Sveitarstjórnarmál - 01.12.2000, Qupperneq 28
BRUNAVARNIR
Oft er hægt að spara umtalsverðar
íjárhæðir með því að beita reikn-
ingslegum aðferðum af þessu tagi,
jafnt í smáum sem stórum bygging-
um. Til dæmis er oft hægt að
minnka eða sleppa eldvöm á burð-
arvirki með því að hafa reyklosun
og/eða úðakerfi í húsinu og taka til-
lit til bmnaálags og byggingarforms
hússins. Stundum mega flóttaleiðir
vera lengri eða þrengri en reglu-
gerðin mælir fyrir um ef sýnt er
fram á að fólk komist út úr húsinu
áður en hættuástand skapast. Það
sem mestu máli skiptir er að með
því að greina málið í heild sinni
fæst hámarksöryggi með sem
minnstum tilkostnaði.
Nýjar byggingar - betri
brunahönnun
Byggingum íjölgar hratt í stærstu
þéttbýliskjömum landsins, einkum á
höfuðborgarsvæðinu. Hönnun og
arkitektúr verður að sama skapi fjöl-
breyttari. Islenskir arkitektar hafa
menntast í nær öllum heimshomum
og þeir koma heim fúllir nýstárlegra
hugmynda enda bera margar nýjar,
frumlegar eða sérstæðar byggingar
þess merki sem aldrei fyrr. Mörg
þessara húsa væri ekki unnt að
byggja án þess að til komi sem fúll-
komnust brunahönnun samfara
annarri hönnunarvinnu. Þannig nýt-
ist vaxandi þekking á bmnavömum
beinlinis í þágu framfara í húsagerð
og í þágu húseigenda jafnt sem al-
mennings.
Línuhönnun býður ffam þjónustu
á þessu sviði; gildir einu hvort um
athuganir og úrbætur á bmnavöm-
um lítilla bygginga eða stórra er að
ræða. Ætla mætti að sveitarfélög
gætu víða eflt brunavarnir, t.d. í
skólum eða félagsheimilum. Fyrir-
tæki, í einkaeigu eða félagslegri,
geta einnig nýtt sér sérþekkingu
innan Línuhönnunar á brýnum ör-
yggismálum hvers samfélags.
Markmiðið með ráðgjöfinni er að
greina vandann faglega og finna
síðan þá bestu og hagkvæmustu
lausn sem völ er á.
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
Reykhólahreppur ræðir
við hreppa Dalasýslu
Hreppsnefnd Reykhólahrepps
hefur nýverið óskað eftir aðild að
viðræðum Dalabyggðar og Saur-
bæjarhrepps um sameiningu hrepp-
anna í eitt sveitarfélag sem skýrt var
frá í síðsta tölublaði. Hreppsráð
Dalabyggðar hefúr á fundi 30. nóv-
ember samþykkt aðild Reykhóla-
hrepps að viðræðunum. Gert er ráð
fyrir að erindið verði afgreitt á fúndi
hreppsnefndar Saurbæjarhrepps sem
haldinn verður fyrir áramót.
Bókun hreppsnefndar Dalabyggð-
ar var svofelld:
„Sveitarstjóm Dalabyggðar sam-
þykkir að taka þátt í viðræðum við
sveitarstjórn Reykhólahrepps og
Saurbæjarhrepps um sameiningu
sveitarfélaganna þriggja á sömu for-
sendum og lagðar voru til grund-
vallar þegar ákveðið var að taka upp
samningaviðræður við Saurbæjar-
hrepp.“
Hörgárbyggð heitir
nýi hreppurinn
í 2. tbl. í ár var skýrt frá niður-
stöðum atkvæðagreiðslu 3. júní um
sameiningu Skriðuhrepps, Öxna-
dalshrepps og Glæsibæjarhrepps í
Eyjafjarðarsýslu, þar sem samein-
ingin var samþykkt í öllum hrepp-
unum. í framhaldi af því var á
haustdögum sendur kjörseðill til
allra atkvæðisbærra manna í hrepp-
unum þar sem könnuð var skoðun
íbúanna á heiti sameinaða hrepps-
ins. Settar vom fram hugmyndir um
fjögur nöfú en síðan mátti gera til-
lögu um annað heiti.
Niðurstaða könnunarinnar var
eindregin. Yfirgnæfandi fjöldi
þeirra er þátt tóku í atkvæðagreiðsl-
unni studdi tillögu um nafnið Hörg-
árbyggð.
Yfirkjörstjórn vegna atkvæða-
greiðslunnar um sameininguna lagði
því til að það yrði nafn hins nýja
hrepps. Hreppsnefndimar þijár hafa
nú lýst yfir stuðningi við það nafn
og félagsmálaráðuneytið verið beð-
ið að staðfesta það.
Þá var boðað til kosningar fyrstu
hreppsnefndar hins sameinaða
hrepps hinn 9. desember sl. Borinn
var fram listi sem að stóðu hrepps-
nefndir gömlu hreppanna þriggja.
Ekkert mótffamboð kom og varð ný
sveitarstjórn því sjálfkjörin. Hún
tekur við í byrjun árs 2001.
Atkvæðagreiðsla um
sameiningu Blönduóss
og Engihlíðarhrepps
7. apríl
I síðasta tölublaði var skýrt frá
því að viðræður væra þá að hefjast
milli bæjarstjórnar Blönduóss og
hreppsnefhdar Engihlíðarhrepps um
sameiningu sveitarfélaganna. Við-
ræðurnar hafa nú leitt til þess að
sveitarstjómir beggja sveitarfélag-
anna hafa á fúndi hinn 12. desember
ákveðið að íbúar sveitarfélaganna
gangi til atkvæðagreiðslu um sam-
einingu sveitarfélaganna laugardag-
inn 7. apríl nk.
Sveitarfélögin 122
um áramótin
Sameiningin í Eyjafirði er sú eina
sem orðið hefúr á árinu 2000. Við
hana fækkaði hreppum landsins um
tvo. I byrjun ársins vora sveitarfé-
lögin 124 en verða í lok ársins sam-
kvæmt ffamansögðu 122.
282