Sveitarstjórnarmál - 01.12.2000, Blaðsíða 30
MÁLEFNI ALDRAÐRA
Betri upplýsingar bæta hag
aldraðra
Hrafh Pálsson, deildarstjóri öldrunarmála, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu
Heilbrigðisráðuneytið hefur á
undanförnum árum beitt sér fyrir
því að meta þarfír aldraðra á sem
hlutlægastan hátt, þannig að ákvarð-
anataka verði upplýst og stuðli að
jafnræði einstaklinganna. Vistunar-
matið er vel þekkt mælitæki sem nú
hefur verið nýtt í áratug og hefur
leitt til opnunar nýrra úrræða, þar
sem þörfin er mælanlega mest.
I ffamhaldinu beindist athyglin að
þeim einstaklingum sem þegar eru
vistaðir: hverjar eru þarfir þeirra og
hvemig er þeim mætt í daglegri að-
hlynningu. Mælitækið er nefht RAI-
mælitæki, sem er skammstöfun fyrir
„Raunvemlegan aðbúnað íbúa“ eða
á ensku máli „Resident Assessment
Instrument". Mælitækið metur hátt í
500 breytur, ekki aðeins likamlega
þætti heldur einnig andlega þætti,
félagslega þætti og fæmi i athöfnum
daglegs lífs. Mælitækið hefúr stað-
fest gildi og áreiðanleika samkvæmt
alþjóðlegu mati. Markmið mælitæk-
isins er að bæta hjúkmnarferli það
sem unnið er eftir dags daglega á
elli- og hjúkrunarheimilum, meta og
bæta gæði þjónustunnar með
svokölluðum gæðavísum og síðast
en ekki síst að gefa möguleika á að
tengja verkefni og greiðslur.
Upphaflega var um rannsóknar-
verkefni að ræða, en síðan hefur
verkefnið verið þróað í daglegu
starfi stofnana og nú ber öllum
stofnunum fyrir aldraða á íslandi að
meta vistmenn sína að minnsta kosti
einu sinni á ári. Hafa þær upplýs-
ingar, sem aflað er, verið vandlega
varðveittar. Aðgang að þeim hafa
lögum samkvæmt aðeins þeir sem
bera ábyrgð á upplýsingunum undir
eftirliti tölvunefndar, auk þess eru
upplýsingamar hluti af sjúkraskrá
hvers einstaklings á viðkomandi
heimili. Fram til þessa hafa upplýs-
ingar verið settar á sérstök mats-
blöð, en á næsta ári er þess að vænta
að allur pappír verði óþarfúr og þær
fari um sérstakt heilbrigðisnet.
Þannig mun RAI-matið verða að-
gengilegt á tölvum viðkomandi
dvalar- og hjúkrunarheimilis og nýt-
ist þar beint í daglegri starfsemi
þeim sem hafa lögformlegan að-
gang að upplýsingunum vegna
vinnu sinnar. Matið er einnig varð-
veitt í sérstökum gagnabanka undir
eftirliti tölvunefndar og svokallaðir
þyngdarstuðlar verða sendir til
Tryggingastofnunar ríkisins, sem
kemur til með að byggja greiðslur á
þeim að hluta.
Verði breyting á högum hins aldr-
aða er mögulegt að setja þær strax
inn í kerfið og þvi verður matið
ferskt og tiltækt á heilbrigðisnetinu.
Vænta má að þetta fyrirkomulag
einfaldi vinnulag, auki öryggi og
leiði til hagræðingar. Auk þess fæst
gott mat á vinnuaðstöðu þeirra sem
veita aðhlynningu. Með þessu nýja
vinnulagi virðist hagur aldraðra á
stofnunum vera á góðri leið. Þegar
okkur hefur þar á ofan tekist að
byggja í Reykjavík það hjúkrunar-
rými sem á vantar til að mæta mjög
brýnni þörf samkvæmt mælingum
Vistunarmatsins er kominn tími til
að hlúa að fleiri þáttum í þjónustu-
keðjunni.
Fyrir þremur árum voru gerðar
RAI-mælingar í heimaþjónustu á
fjórum heilsugæslustöðvum á höf-
uðborgarsvæðinu. Kom forkönnun
þessi afar vel út og sé tekið mark á
því og af árangri þeirra erlendis, þá
ber okkur að taka RAI-mælingamar
upp í heimaþjónustunni hér á landi,
en þá er átt bæði við heimilishjálp
og heimahjúkrun.
Með þessu myndu allir þeir sem
að þjónustu við eldra fólk koma
geta metið þarfirnar með ámóta
mælistiku, þannig að jöfnuður og
skilningur ætti að rikja og tryggara
yrði að allir gætu setið við sama
borð. Til að ná þessu ffam þurfa fé-
lags- og heilbrigðisþjónustan að
taka höndum saman. Sambærileg
tæki hafa verið þróuð fyrir öldmnar-
þjónustu sjúkrahúsanna. Með því að
samnýta þessi tæki mætti koma upp
samræmdri upplýsingakeðju, sem
tæki til allra þátta öldmnarþjónust-
unnar. Með því móti yrði öldrunar-
þjónustan í fararbroddi í upplýs-
ingavæðingu heilbrigðis- og félags-
þjónustu.
Veita verður meira fé til þjónust-
unnar utan stofhana án þess að taka
það fé af stofnununum, enda verður
þessu samræmda vinnulagi aldrei
komið á með því að færa fé á milli
þátta í spamaðarskyni. RAI-mæli-
tækið verður að fá tækifæri til að
sanna sig á breiðum grundvelli,
enda er nokkuð ömgg vissa fyrir því
að með ofangreindum vinnubrögð-
um muni þjónustan við aldraða stór-
batna, verða markviss og hagkvæm.
284