Sveitarstjórnarmál - 01.12.2000, Síða 57
ERLEND SAMSKIPTI
ar sem er yfirfarin af endurskoðend-
um sveitarfélagsins. Árangur sem
náðst hefur:
- 15% lækkun á kostnaði við þjón-
ustu sem samningar ná til.
- Rekstrarhalli sveitarfélagsins
stöðvaður.
- Lækkun útgjalda vegna ljárfest-
ingar.
- Bætt þjónusta.
Það sem áunnist hefúr við þessa
samninga er að fulltrúar sveitar-
félagsins hafa lagt áherslu á stefnu-
mótun og geta einbeitt sér að stjóm-
sýslu og félagslegu hlutverki án
þess að blanda sér í almennan rekst-
ur. Grundvöllur fyrir því að hægt
verði að ná árangri og samningum
af þessu tagi er almennur pólitískur
stöðugleiki, jákvætt lagalegt um-
hverfi, fjárhaglegur stöðugleiki og
áreiðanleiki og stefnufesta hjá sveit-
arstj ómarmönnum.
„Borgarsvæði sem þekkingar-
kjarni“
Torgeir Reve, prófessor við
Norska stjórnunarskólann í Sand-
vika í Noregi, flutti erindi er hann
kallaði „Borgarsvæði sem þekking-
arkjarni“ („City Regions as
Knowledge Clusters “).
Reve mælir með að borgir eða
borgarsvæði myndi þekkingarþyrp-
ingar (knowlegde clusters) á
ákveðnu sviði, þ.e. sérhæfmgu. Með
þessum hætti styddi eitt fyrirtækið
við annað, ákveðin samkeppni og
samstarf væri milli aðila. Einnig
segir hann að ákveðnir kjamar væm
nauðsynlegir í hverri borg eða borg-
arsvæði:
- Stjómunarkjami.
- Menningarkjami.
- Viðskiptakjami.
- Iðnaðarkjami.
Sem dæmi nefndi hann einkenni
þekkingarkjama vera:
- Samansöfnun fyrirtækja á skyld-
um sviðum.
- Kjarni verslunar og þjónustu i
tengslum við iðnað.
- Rannsóknir og þróun sem tengd
er umhverfmu.
- Áhættufjármagn sé fyrir hendi.
- Framboð af störfum og starfs-
fólki í þekkingariðnaði.
Reve nefndi dæmi um kjarna í
Noregi sem hann sagði vera á sviði:
- Sjávarútvegs.
- Orkuiðnaðar.
- Siglinga.
- Sjávarútvegs- og hafrannsókna.
- Tölvu- og fjarskipta.
Hann sagði ennfremur að sjávar-
útvegskjamar séu i fiskirækt, erfða-
rannsóknum á fiski, söfhun reynslu
og þekkingar á vesturströndinni og í
aðgerðum til að auka vitund neyt-
enda í Evrópu um gæði norskra
fiskvara. Norski orkuiðnaðurinn
hefði úr að spila gasi, olíu og vatns-
orku. Nokkurt forskot væri í Noregi
á sviði borpallavinnslu, ákveðin
þyrping þekkingar væri á vestur-
ströndinni og greiður aðgangur væri
að mörkuðum í Evrópu. Reve lagði
mikla áherslu á að borgir og borgar-
svæði ættu að vera aðlaðandi kostur
fyrir þá starfsemi sem fyrir hendi
væri. Einnig ætti að leggja áherslu á
að laða nýja atvinnustarfsemi til
svæðisins. Þá þyrftu þessi svæði að
draga til sín einstaklinga með mikla
þekkingu, viðskipti og nýsköpun og
ennfremur skyldu kostir búsetu
gerðir aðlaðandi.
4. Athyglisveröir punktar
Á ráðstefnunni vom rædd mál vítt
og breitt, dæmi kynnt og svo var
nokkuð um almennar kynningar.
Kynnt var skipulag borga á við
Taipei á Taívan, Bombay á Ind-
landi, skipulagsmál á Gaza-svæðinu
o.fl. Sagt var ffá uppbyggingu nýrra
borga, sem skipulagðar hafa verið
ffá gmnni, t.d. Álmere í Hollandi og
Modi’in í Israel. Hér eru kynnt
Qögur erindi.
Nýjar borgir
Álmere er byggð á landfyllingu
austan við Amsterdam, en hug-
myndir að borginni vom fyrst settar
fram á 6. áratug þessarar aldar.
Skipulag borgarinnar er í anda Eb-
enezer Howard, sem setti fram
kenningu um „fjölkjarna“-borgir
með grænum svæðum á milli fyrir
rúmri einni öld. í skipulagi borgar-
innar er gert ráð fýrir að margar teg-
undir af samgöngutækjum geti
þjónað ibúunum og að tengingar séu
á milli þeirra. Allt skipulag miðast
við að tengingar séu sem greiðastar,
hvort sem er við flugvöll, jámbraut-
ir, vegi eða hafnir. Þá er allt lands-
lag borgarinnar skipulagt og mann-
gert, þ.m.t. tjamir. Ibúar Almere em
nú um 150 þúsund, 25 ámm eftir að
hafist var handa um uppbyggingu
hennar ojg er árleg fjölgun um 4.000
manns. Á ráðstefnunni var gerð ítar-
leg grein fyrir uppbyggingu nýrrar
borgar í ísrael, Modi’in, sem er
milli Jerúsalem og Tel Aviv. Hug-
mynd var sett fram um skipulag
borgarinnar fyrir níu árum og nú
þegar búa þar um 50.000 manns. Til
viðbótar eru um 10.000 íbúðir í
byggingu. Borgin er skipulögð m.a.
með hliðsjón af aukinni eftirspum
eftir íbúðarhúsnæði vegna mikilla
fólksflutninga til ísraels. Frum-
kvæði að skipulagningu og bygg-
ingu borgarinnar hefur ríkisvaldið
haft.
„Tengiborgir“
í erindum um „Tengiborgir“
(„Gateway Cities") var mikil
áhersla lögð á að borgir eða borgar-
svæði hefðu góðar tengingar inn-
byrðis milli atvinnustarfsemi á
svæðinu og við önnur fjarlæg
svæði. Yfirvöld í borgum eða borg-
3 1 1