Sveitarstjórnarmál - 01.12.2000, Side 58
ERLEND SAMSKIPTI
arsvæðum eru í auknum mæli að
efla samskipti sín í milli og efla
tengingar atvinnulífs á viðkomandi
svæðum. Hugtakið „Tengiborgir" er
m.a. skilgreint af yfirvöldum í Vín-
arborg sem svæði þar sem fyrir
hendi eru:
- Mjög góðar tengingar fyrir allar
tegundir samgangna.
- Góðar upplýsingar um stjómar-
farslegar og lagalegar hindranir.
- Náin tengsl við borgir sem mikil
viðskipti eru við.
- Umhverfi fyrir skrifstofur og
búnaður eins og best verður á
kosið.
- Almennt öryggi íbúa, þ.e. lág af-
brotatíðni.
- Stöðugleiki í efhahagslífinu og í
stjómmálum.
Einkaframkvæmdir í Austurríki
í erindi Franz Wemer Hauberl,
framkvæmdastjóra Arwag Holding
AG í Vínarborg, kom ffam að með
tilkomu einkaframkvæmda hefur
verið ráðist í framkvæmdir sem
sveitarfélögin hefðu að öðmm kosti
ekki ráðið við ein og sér. Aukin
tengsl hafa myndast milli skipulags-
yfirvalda og fjárfesta. Nú er svo
komið að í Vín hafa skipulagsyfir-
völd náið samráð við fjárfesta um
skipulagsmál vegna krafna um arð-
semi fjárfestingar. Aður en skipulag
svæðis er samþykkt fer fram arð-
semismat, bæði fyrir sveitarfélagið
og fjárfesta. Að mati Hauberl munu
einkaaðilar í auknum mæli taka að
sér verkefni sveitarfélaga og annarra
opinberra aðila, þ.m.t. lagningu og
viðhald vega sem og að- og frá-
rennsliskerfa. Það er líka hlutverk
einkageirans að sjá til þess að fram-
kvæmdir á hans vegum falli að hug-
myndum íbúanna og því félagslega
umhverfi sem þær eru í og stefnu
ríkis og sveitarfélaga.
Sveitarfélagið Ölíus stofnar til vinabæjatengsla
að frumkvæði deildar Norræna félagsins
Júlíus Ingyarsson, formaður Norrœna félagsins í Sveitarfélaginu Ölfusi
Norræna félagið, deild í sveitarfé-
laginu Ölfusi, var formlega stofnað
16. maí 1991 og verður því 10 ára í
maí á næsta ári. Frá upphafi hefur
starfsemi félagsins verið í nokkuð
föstum skorðum; aðalfundur haldinn
síðdegis fyrir Jónsmessunótt og
gjaman undir bemm himni ef færi
gefst. Eftir fund er grillað og
bmgðið á leik með bömum félags-
manna. í byrjun desember er haldin
jólahátíð félagsins. Þá koma félags-
menn saman og borða mat sem teng-
ist jólahaldi hinna ýmsu norrænu
landa, flytja efni eða hafa uppi glens
sem tengjast atburðum eða menn-
ingu landanna. Menningarferðir hafa
verið famar til Reykjavíkur, en þó
ekki á hverju ári, Norræna húsið
heimsótt, samhliða heimsóknum í
sendiráð Norðurlandanna.
Árið 1994 er fyrst vemlega farið
að reifa hugmyndir um vinabæja-
samstarf innan félagsins og málið
kynnt fyrir sveitarstjóm þáv. Ölfus-
hrepps. Sett var á stofn nefnd af
hálfu deildar Norræna félagsins í
Ölfusi. í henni sátu Halldór Sigurðs-
son, skólastjóri og þáverandi for-
maður deildarinnar, og Júlíus Ingv-
arsson, núverandi formaður. Upp-
haflega vom hugmyndir um teng-
ingu við eitt sveitarfélag og þá helst
í Danmörku; stafaði það helst af
tengslum sem sköpuðust milli
danskra skóla og grunnskólans í
Þorlákshöfn. Við nánari skoðun
voru þessar hugmyndir lagðar til
hliðar, einfaldast var að komast í
samband við keðjur vinabæja sem
þegar vom til á milli sveitarfélaga
annars staðar á Norðurlöndunum
og óskuðu eftir íslensku sveitarfé-
lagi í samstarf. Nokkrar keðjur vom
skoðaðar og að lokum völdum við
keðju með Rygge í Noregi,
Vimmerby í Svíþjóð, Kauhava í
Finnlandi og Skærbæk í Danmörku.
Tillaga um ofangreind sveitar-
félög var lögð fyrir sveitarstjóm. Á
fundi sveitarstjómar 30. apríl 1998
var samþykkt samhljóða að veita fé-
laginu formlega heimild til að vinna
áffam að ffamgangi málsins.
Þegar heimild þessi lá fyrir var
hafist handa við kynningu á sveitar-
félaginu Ölfusi og upplýsingar um
sveitarfélagið sendar til bæjanna i
keðjunni. Jafnframt var send inn
formleg beiðni um inngöngu.
Umsókn okkar var tekin fyrir á
vinabæjamóti í Skærbæk á síðasta
ári og samþykkt. Jafnframt liggur
nú fyrir samþykki allra sveitar-
stjórnanna í viðkomandi bæjum.
Vinabæjamót eru haldin annað
hvert ár til skiptis milli sveitarfélag-
anna. Næsta mót, og það fyrsta sem
við getum sótt, verður í Kauhava
um miðjan júlí á næsta ári. Við sem
unnið höfum að ffamgangi málsins
vonum að sveitarstjórnarmenn í
Ölfusi og félagar í Norræna félaginu
sjái sér fært að fjölmenna á mót
þetta og taki þátt í að efla samstarf
milli sveitarfélaga í keðju þessari á
sviði mennta, menningar og við-
skipta.
3 1 2