Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Blaðsíða 10

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Blaðsíða 10
Sameining sveitarfélaga Vel heppnuð sameining er mikilvæg byggðaaðgerð Meirihluti íbúa sjö nýlegra sveitarfélaga telur þá starfsemi og þjónustu sem sveitarfélögin inna af hendi hafa mjög miklu hlutverki að gegna fyrir byggðaþróun á viðkomandi svæði. Þetta er á meðal þess sem lesa má úr skýrsiu Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri um rannsókn á áhrifum og af- leiðingum sameiningar 37 sveitarfélaga í sjö vítt um landið. Þessar niðurstöður eru m.a. í samræmi við rannsókn sem gerð var árið 1994 meðal 367 sveitarstjórnarmanna þar sem þeir töldu sveitarfélögin hafa miklu hlut- verki að gegna í byggðaþróun. í niðurstöðum könnunarinnar kemur hins vegar einnig fram að íbúar jaðar- byggða og áður lítilla hreppa eru ekki eins ánægðir með ástand lýðræðis í stærra og öflugra sveitarfélagi. Þau sveitarfélög sem rannsóknin náði til urðu að veruleika eftir sameiningar á árunum 1994 og 1998 og við rannsóknina var tekið til fimm þátta sem telja má að sameining hafi nokkur áhrif á. Þessir þættir eru; rekstur og fjár- mál, stjórnsýsla, þjónusta, búsetu- og byggðaþróun og lýðræði. Dulin þjónustuþörf Dr. Crétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræð- ingur og framkvæmdastjóri Rannsókna- stofnunarinnar, sem vann rannsóknina ásamt Hjalta Jóhannessyni, landfræðingi og starfsmanni hennar og fleirum, segir að margt geti orðið til þess að valda óánægju eða ágreiningi eftir sameiningu sveitarfé- laga. Einkum séu skiptar skoðanir um skólamál. Kröfur um hagræðingu í þeim málaflokki komi gjarnan fram í kjölfar sameiningar sveitarfélaga, einkanlega þar sem dreifbýli sameinast þéttbýli. í samtali við Crétar Þór og Hjalta kom fram að áður dulin þjónustuþörf í félagsþjónustu hafi komið upp þegar fámenn sveitarfélög hafi orðið hluti af stærri heildum. Verkefni hennar hafi aukist og kostnaður hækkað af þeim sökum. Einkum er hér um að ræða afskipti félagsþjónustu þar sem mik- ið fámenni og nálægð fólks kom í veg fyr- ir faglegar lausnir. Minni áhrif íbúa jaðarbyggða í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að stjórnsýslan verður bæði faglegri og skilvirkari í sameinuðu sveitarfélögun- um, einkum þar sem fámennir hreppar áttu í hlut, vegna þess að þar var oft ekki um neina eiginlega stjórnsýslu að ræða. Stjórnsýslan, að svo miklu leyti sem hún var til staðar, var gjarnan á heimilum odd- vita sem sinntu málefnum sveitarfélag- anna í hlutastarfi. Grétar Þór og Hjalti segja að fyrir- komulag og staðsetning stjórnsýslunnar séu oft tilfinningamál þegar sveitarfélög eru sameinuð. í nánast öllum tilfellum sem rannsókn þeirra náði til kom fram að íbúar jaðarbyggðanna, þeirra byggða sem lengst eru frá þéttbýlinu, telja sig afskipta hvað áhrif á málefni sveitarfélagsins varð- ar. Miðstöð stjórnsýslu er oftast staðsett í stærsta þéttbýliskjarnanum þótt finna megi undantekningar frá því. í þeim sveitarfélögum sem rannsóknin náði til er um þrenns konar form stjórn- sýslu að ræða. í fyrsta lagi þar sem allri stjórnsýslu hefur verið komið fyrir á ein- um stað. Á það við um sameiningarnar fámennustu sveitarfélaganna. í öðru lagi þar sem meginhluti stjórnsýslunnar er á einum stað en nokkrum hluta hennar dreift á fleiri staði. í þriðja lagi eru dæmi um að stjórnsýslu hefur verið skipt á milli allra fyrrverandi sveitarfélaga og stjórn- sýslan því algerlega dreifð. Slíkt dæmi er að finna í Fjarðabyggð þar sem stjórnsýsl- unni er skipt á milli þéttbýlisstaðanna Eskifjarðar, Reyðarfjarðar og Norðfjarðar. Valdið þar sem höfuðstöðvarnar eru Grétar Þór og Hjalti segja að þær lausnir, sem fundnar hafa verið á fyrirkomulagi stjórnsýslunnar, miði að því að stuðla að lýðræðislegri stjórnsýslu, þar sem hún er sem næst borgurunum. Þeir segja dreifðari stjórnsýslu dýrari lausn en þegar henni er komið fyrir á einum stað. Þau sjónarmið koma einnig fram á meðal embættis- manna og kjörinna fulltrúa sveitarfélaga að dreifð stjórnsýsla geti verið óskilvirk en hún sýnir sig að vera lýðræðislegri frá sjónarhóli íbúanna. Staðsetning höfuð- stöðva sveitarfélaga skiptir íbúana veru- legu máli og virðist hafa mun meira tákn- rænt gildi en hvar bæjar- og sveitarstjórar Dr. Crétar Þór Eyþórsson (t.h.), forstöðumaður Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri, og Hjalti Jóhannesson, landfræðingur og starfsmaður stofnunarinnar, eru höfundar skýrslu um rannsókn á áhrifum og afleiðingum sameiningar 37 sveitarfélaga í sjö. 10

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.