Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Blaðsíða 19

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Blaðsíða 19
Umhverfisátak frá haustdögum 1998 Umhverfisátakið í Snæfellsbæ hefur heppnast mjög vel vegna hins jákvæða hugarfars bæjarbúa og mikils metnaðar þeirra við að ganga sem best um umhverfi sitt. „Helst ekki vinur. Ég er kominn útúr öllu þessháttar. Nútíminn burstar í sértennurn- ar í staðinn fyrir að fara með kvöldbæn". Þessi orð leggur Halldór Laxness séra Jóni Prímusi í munn þegar vinur hans, Godman Sýngman, biður hann að biðjast fyrir með sér kvöldið áður en hann deyr. Þessar setningar úr Kristnihaldi undir Jökli koma ósjálfrátt í hugann þegar farið er um Snæfellsbæ. Þegar þjóðin tók að bursta í sér tennurnar þótti það mik- ið framtak til þrifa og ekki er ör- grannt um að tíðindamanni sem á leið um byggðirnar á utanverðu Snæfellsnesi nú sýnist sem burstinn hafi verið tekinn áþreifanlega í þjónustu umhverfis og íbúa. Átakið sem skilað hefur íbúum Snæfellsbæjar betra og fegurra um- hverfi hófst í byrjun októbermánað- ar 1998 þegar bæjarstjórnin ákvað að taka þátt í umhverfisverkefninu sem byggt er á Staðardagskrá 21. Skipaður var stýrihópur um verkefn- ið og var Guðlaugur Bergmann, löngum kenndur við Karnabæ en nú ferðaþjónustu- og framkvæmdamaður á Hellnum, ráðinn verkefnisstjóri. Þegar Samband íslenskra sveitarfélaga og um- hverfisráðuneytið ákváðu að veita því sveitarfélagi verðlaun, sem best var talið hafa staðið að því að koma af stað áætlun um verkefni í anda Staðardagskrár 21 hlaut Snæfellsbær þá viðurkenningu og var hún formlega veitt þann 23. mars árið 2000. Á ráðstefnu um Staðardagskrárverk- efnið í Ólafsvík haustið eftir var gengið frá yfirlýsingu um umhverfismál, sem kennd er við staðinn. Þessi yfirlýsing er nú þáttur í Staðardagskrárverkefninu hvar sem það fer fram um landið, því þau sveitarfélög sem undirrita hana skuldbinda sig til þess að leggja sitt af mörkum til sjálfbærrar þróunar. Jarðgerð minnkar sorp um helming Hvar sem farið eru um byggðir Snæfells- bæjar vekur umhverfisátakið eftirtekt og athygli. Snyrtimennska ein- kennir alla umgengni um at- hafnasvæði sjávarútvegsins. Víða hefur verið hlúð að húsum og í flestum tilfellum er vel gengið um nágrenni þeirra. Verulegt átak hefur verið gert að þessu leyti og vel hefur tekist til við að fá íbúana að verkefninu. Nú er á döfinni að fá íbúa Snæfellsbæjar til þess að hefja jarðgerð, með öðr- um orðum að flokka lífrænt sorp frá ólífrænu og breyta því í jarðveg. Talið er að með jarðgerð megi minnka venjulegt heimilissorp um allt að 40% sem sparar kostnað og fækkar vandamálum við sorpförgun. Þegar hefur jarðgerðartunnum verið komið fyrir í öllum skólum Snæfellsbæjar. Krist- inn Jónasson bæjarstjóri segir að sérstaklega vel hafi verið unnið að þessu í skólanum á Lýsuhóli á sunnaverðu Nesinu og muni hann fljótlega hljóta „græna flaggið" sem vottun fyrir verkefnið. Hafnarsvæðin malbikuð Á síðustu árum hefur verið unnið átak við umhverfi hafnanna í Ólafs- vík, Hellissandi og á Rifi. Hafnar- svæðin hafa verið malbikuð auk þess sem vandað hefur verið til grjóthleðslna og varnargarða. Víða má sjá listrænt handbragð við gerð þessara garða og líkast því að hver steinn hafi verið höggvinn til þess að mæta næsta steini. Höfnin á Rifi er mikið mannvirki og þar er nú áformað að vinna að frekari endur- bótum á umhverfi hennar, meðal annars með aukinni malbikun. Þá hefur verið unnið að endurbótum gatna en þar er mikið verk óunnið. Þegar bæjarstjórinn ók með tíðinda- manni um götur Ólafsvíkur benti hann á götu þar sem steinsteypa var notuð til þess að binda yfirborð götunnar. Kristinn sagði að þótt steinsteypan sé kostnaðarsamari í byrjun þá væru endingarmöguleikar henn- ar mun meiri en malbiks þannig að ekki ætti að vera um dýrari framkvæmdir að ræða þegar til lengri tíma er litið. Kristinn segir að umhverfisátakið í Snæfellsbæ hafi heppnast eingöngu vegna hins jákvæða hugarfars bæjarbúa og mikils metnaðar þeirra við að ganga sem best um umhverfi sitt. íbúar Snæfellsbæjar hafa svo sannarlega tekið „tannburstann" í þjónustu sína svo aftur sé vitnað til líking- ar Nóbelsskáldsins, sem öðrum fremur hefur haldið svæðinu undir Jökli - byggð núverandi Snæfellsbæjar - á lofti. Félagsheimilið í Ólafsvík Gömul gata á Hellissandi. Húsafriðunamefnd hefur lagt til friðun götumyndarinnar en hún er ein heillegasta þorpsgötumynd á landinu eins og þær voru fyrr á árum. 19

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.