Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Blaðsíða 21
Slysavarnaskólinn
á Gufuskálum
Lóranstö5in á Gufuskálum skammt frá HelIissandi hefur fengið
nýtt hlutverk. Meðan hún þjónaði fjarskiptum fyrr á árum var
nokkur byggð á staðnum og standa þar íbúðabyggingar auk ann-
arra mannvirkja. Meðal annars stendur þar hæsta mastur sem reist
hefur verið hér á landi, og er það jafnframt hæsta mannvirki
landsins.
Nú hefur Slysavarnarfélagið Landsbjörg fengið Gufuskála til af-
nota og er verið að byggja þar upp aðstöðu fyrir slysavarnaskóla
samtakanna. Athafnasvæði lóranstöðvarinnar er kjörið fyrir starf-
semi skólans. íbúðarhúsnæði er á staðnum auk annarra mann-
virkja sem nýtast fjölbreyttu starfi hans. Búið er að setja upp tank
einn mikinn og rör þar sem björgunarmenn verða æfðir til að
skríða um dimma, þrönga ganga við björgunarstörf og einnig er
verið að byggja eins konar húsarústir þar sem æfa á fólk til þess
að annast björgun þar sem hús hafa hrunið, til dæmis vegna jarð-
skjálfta.
Ekki var laust við að sú tilfinning færi um tíðindamann, þegar
hann gekk um æfingasvæði Slysavarnafélagsins Landsbjargar á
Gufuskálum, að um herþjálfunarsvæði væri að ræða en erfið
björgunarstörf krefjast oft og tíðum viðlíka þjálfunar og hermenn
fá. Svæðið mun einnig í framtíðinni fá að gegna slíku hlutverki
vegna sameiginlegra æfinga varnarsamtaka og er ætlunin að fyrsta
æfingin þar sem erlendir aðilar koma við sögu fari fram á Gufu-
skálum í sumar.
Æfinfamastur á Cufuskálum. Áfast mastrinu er rör sem björgunarmenn eiga að
skríða um niður í tank á jörðu niðri.
Girðingar
°g. _
hlið
hæsta gæöaflokki
Klettagörðum 12 104 Reykjavík • sími 575 0000 • fax 575 0010 • www.sindri.is