Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Side 14

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Side 14
Sameining sveitarfélaga Dalabyggð Sex hreppar sameinuðust í Dalabyggð árið 1994. Árið 1998 var Skógarstrandarhreppur sameinaður sveitarfélaginu. í rannsókninni kemur m.a. fram að félagsþjónusta í Dölum hefur verið efld og meiru kostað til hennar eftir sameiningu. í dreifbýlinu má þó finna sjónarmið um að henni sé misskipt en aftur á móti er fólk í þéttbýlinu ánægt með hana. Útgjöld til fé- lagsþjónustunn'ar hækkuðu um 20% strax eftir sameininguna og höfðu fjórfaldast á árinu 2000 miðað við það sem var árið 1993. Takmörkuð þjónusta í dreifbýlinu fyrir sameininguna skýrir þenn- an mun á útgjöldum að hluta. Með sameiningu sveitarfélaga í Dalabyggð varð ákveðin hag- ræðing í skólamálum. Skólahaldi að Laugum var hætt á öðru kjörtímabili og öll starfsemi flutt til Búðardals. Hefur það valdið togstreitu í sveitarfélaginu og sækja nokkur börn skóla í ná- grannasveitarfélaginu Saurbæjarhreppi. Öll stjórnsýsla er í þéttbýlinu í Búðardal og byggist hún á stjórnkerfi fyrrum Laxárdalshrepps. Það hefur nokkra kosti í för með sér því innan hans var bæði að finna þéttbýli og dreifbýli fyrir sameininguna. Fjárhagur sveitarfélagsins hefur batnað veru- lega að undanförnu og skýrist það að nokkru af rekstrarhagræð- ingu í skólamálum. íbúar dreifðu byggðanna hafa tilhneigingu til að álíta að for- sendur þeirra til áhrifa hafi versnað eftir sameiningu þrátt fyrir að fimm af sjö sveitarstjórnarmönnum komi úr dreifbýlinu utan gamla Laxárdalshrepps. SNÆFELLSBÆR HAFNARSJ ÓÐUR Olafsvikurhofn Rifshöfn Arnarstapahöfn Sameining felld í Fellahreppi Þrátt fyrir að 1.087 kjósendur hafi sagt já en aðeins 305 nei verður ekki af sameiningu á Héraði. Áform um að nýtt sveitarfélag næði stöðu sem fjölmennasta sveitarfélag á Austurlandi urðu að engu, í bili að minnsta kosti, þegar sameining Austur-Héraðs og Fellahrepps var felld í kosn- ingunum um liðna helgi. Forráðamenn beggja sveitarfélaga töldu sig sjá fjölda sóknarfæra við sameiningu og um leið að sameinað sveitarfélag myndi styrkjast og geta veitt íbúunum betri þjónustu og tekið að sér fleiri og stærri verkefni. Það voru íbúar minna sveitarfélagsins, Fellahrepps, sem höfn- uðu sameiningunni en þó ekki með miklum mun. í Fellahreppi voru 125 kjósendur á móti sameiningu en 117 með. íbúar Aust- ur-Héraðs voru annarrar skoðunar og þar var mikill munur, því 970 sögðu já en 180 nei. Það er því Ijóst að ekki verður af sam- einingu á þessu svæði að sinni og draumur um að þarna yrði til fjölmennasta sveitarfélag Austurlands, með um 2.500 íbúa, rætt- ist ekki. 14

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.