Hús & Búnaður - 01.06.1968, Qupperneq 11
MYNDAVÉLA
UMHIRÐA
Myndavél er viðkvæmur hlutur,
sem þarfnast nærgætni og góðrar
umhirðu; skorti þar á, er voði vís,
árangur Ijósmyndarans verður lak-
ari en þurft hefði að vera og end-
ing vélarinnar verri
Hér á eftir verður reynt að gefa
leiðbeiningar, sem að gagni mega
koma byrjanda. Þetta eiga ekki að
vera tæmandi reglur, einungis ráð-
leggingar sem geta firrt ykkur
mörgu leiðindavafstri og sparað
drjúgan skilding.
(1) Berið leðurfeiti á tösku og ól-
ar myndavélarinnar. Gerið
þetta strax. Með þessu verjið
þið leðrið fyrir raka og gerið
það ónæmara fyrir rispum.
(2) Versti óvinur vélarinnar er ryk.
Forðizt að leggja vélina frá ykk-
ur í sand eða mold. Ef þið eruð
með myndavél í sand- eða
moldroki, berið hana þá undir
yfirhöfn; reyndar gildir sama
regnveður. Að afloknu dags-
verki skuluð þið hreinsa vélina
með ryksugu og þurrka vel af
henni.
(3) Forðizt að vera með myndavél-
ar of nálægt hverum og þá a.m.
k. ekki lengi í senn, því að efni
í hveragufunni geta setzt á lins-
ur og spegilgler véla og eyði-
lagt, a.m.k. getur orðið afar erf-
itt að ná þessum efnum af.
Svipuðu máli gegnir reyndar um
særok. Margir af þeim sem
fóru út í Surtsey á bátum komu
heim með skemmdar vélar
vegna þess að sjávarselta hafði
komizt inn í verk myndavélanna
eða á linsur þeirra.
(4) Við snöggar hitabreytingar t.d.
ef þið komið með myndavél úr
frosti og inn í stofuhita, sezt
móða á linsuna. í þessu ástandi
megið þið ekki ganga frá vélum
ykkar í töskur, og skiptilinsum
í hulstur, og láta síðan upp í
skáp. Ef þið gerið þetta, slaga
þessir hlutir og geta stór-
skemmzt. í stað þess skuluð
þið lofa þeim að standa
um stund, þar til öll móða er
horfin af glerjunum. Þá skuluð
þið þurrka vandlega rakann af
stálinu, og síðan megið þið
pakka þessum hlutum inn.
(5) Linsan er sá hlutur sem þýðing-
armest er að halda vel hreinum
og óskemmdum. Til þess þurf-
um við ýmsa hjálparhluti, sem
þó kosta ekki mikið fé. Tilvalið
er að eiga litla gúmblöðru-dælu,
en þær fást í lyfjabúðum. Með
henni getum við blásið ryki af
linsu, sjóngleri, speglum og öðr-
um hlutum vélarinnar. Ef dælan
dugar ekki, notum við mjúkan
linsubursta eða sérstakan papp-
ír, sem hvort tveggja fæst í Ijós-
myndavöruverzlunum.
(6) Aldrei skal koma við linsuglerið
með fingrum eða nokkrum að-
skotahlutum öðrum en hér hafa
verið nefndir. Linsu verður
reyndar bezt hlíft við hnjaski og
ryki með því að hafa þá reglu
að nota ævinlega einhverskon-
ar Ijóssíu (filter), eftir því sem
við á.
(7) Fyrir alla muni verjið vélina fyrir
höggum. Leggið vélina aldrei
lausa frá ykkur í bíl. Ekki þarf
annað en bíllinn hemli snögg-
lega, að maður tali ekki um á-
rekstur eða veltu, og vélin getur
stórskemmzt. Gangið einnig úr
skugga um, að ólar séu sterkar
og festingar þeirra öruggar.
(8) Ef þið eruð með skiptilinsur í
sérstökum plast- eða leður-
hulstrum er hætta á, að hulstrin
séu það rúm, að linsurnar skrölti
innan í. Þetta ber að varast, og
er ágætt að fylla upp með
svampi eða frauðplasti.
(9) Gætið þess, ef vélar eða lins-
ur eru ekki í notkun, að setja til-
heyrandi lok yfir glerið; og ef
um lausar linsur er að ræða, þá
lok á báða enda þeirra.
Þcssi mynd hlaut 1. verðlaun í ljósmyndasamkcppni Félass áhugaljósmyndara s.l. vetur. Höfundur er OTTI PÉTURSSON