Monitor - 10.11.2011, Qupperneq 8
Af hverju lögfræði og stefndir þú alltaf í
þessa átt?
Ég hafði alltaf hugsað mér að verða tónlist-
arkennari en svo langaði mig í háskólanám
og ákvað að prófa lögfræðina og líkar hún
mjög vel.
Hvað er skemmtilegast og hvað er
leiðinlegast?
Skemmtilegast er fjölbreytnin og réttar-
sviðin eru ólík. Hún býður upp á margt og
það er auðvelt að tengja hana við það sem
er um að vera í daglegu lífi . Það er ekkert
sem mér dettur í hug sem er leiðinlegast.
Hversu langt er námið?
Það tekur 3 ár að klára BA-námið og mast-
ers-námið tekur 2 ár. Þannig að í heildina
eru það 5 ár sem þarf að klára til að geta
afl að sér héraðsdómslögmannsréttinda.
Þú getur sett saman námið þitt í meistara-
náminu og valið kúrsa í takt við áhugasvið.
Hversu stór hluti af lífi þínu er námið?
Í dag er það 100%. Ég er í fullu laganámi og
svo er ég formaður Lögréttu sem er félag
laganema við HR. Síðan er ég að vinna á
LEX lögmannsstofu, svo að allur minn tími
og orka fer í lögfræðina.
Framtíðarmöguleikar sem lögfræðingur?
Mér líkar mjög vel við að öðlast reynslu á
lögmannsstofu. Svo fi nnst mér réttarfar
mjög áhugavert, eins og einkamálarétt-
arfarið og sakamálaréttur, þannig að það
heillar mig að starfa við ákæruvaldið. Það
væri gaman að starfa hjá ríkissaksóknara.
Hvernig er félagslífi ð?
Félagslífi ð er æðislegt. Hjá okkur eru hefð-
bundnar vísindaferðir og svo er raunveru-
leg árshátíð Lögréttu kölluð humarhátíðin
og við héldum hana um daginn á Fjöru-
borðinu á Stokkseyri. Svo eru grímuböll,
jólaböll, golfmót og fl eira skemmtilegt.
Einnig er nóg að gera í fræðilegu hliðinni
og við höldum málfundi og annað gagnlegt.
Félagslíf og bækur þurfa að haldast í hend-
ur, maður þarf að geta fengið sér aðeins á
milli þess sem maður er að lesa.
ÓMAR BERG
RÚNARSSON
Árgerð: 1988.
Nám: Lagadeild HR.
ANNA KRISTÍN
ROSENBERG
Árgerð: 1977.
Nám: Meistarnám í kínversku
og alþjóðaviðskiptum.
Af hverju þetta nám og stefndir þú
alltaf í þessa átt?
Ég bjó í tvö ár í Kína eftir að ég kláraði
grunnnámið og þegar ég fl utti heim hafði
HR samband við mig og spurði hvort
þetta væri ekki tilvalið framhald. Ég
ætlaði líka alltaf í áframhaldandi nám og
það kom ekkert annað til greina en HR.
Skemmtilegast og leiðinlegast?
Mér fi nnst gaman hvað það eru margir
góðir kennarar sem koma að utan. Einnig
fi nnst mér skipta máli að geta gert
raunverkefni fyrir raunveruleg fyrirtæki.
Það er svo mikilvægt að geta tekið að
sér verkefni úti í atvinnulífi nu og hafa
reynslu af því úr skólanum. Ég hef ekkert
neikvætt út á námið að setja.
Hversu langt er námið?
Meistaranámið er 2 ár en grunnnámið
er 3 ár.
Hversu stór hluti af lífi þínu er námið?
Á meðan maður er í námi þá er þetta full
vinna. Þetta er svolítið kennt í lotum í
meistaranáminu. Þegar kennarar koma
erlendis frá þá eru þetta oft tarnir frá
fi mmtudegi til sunnudags en það kemst
fl jótt upp í vana.
Framtíðarmöguleikar með gráðu í
viðskiptum?
Ég er að fl ytja út að vinna og það fi nnst
mér mjög jákvætt.
Hvernig er félagslífi ð?
Það er öðruvísi í meistaranáminu heldur
en í grunnnáminu. Ég persónulega get
ekki farið í allar vísindaferðirnar eða
eitthvað þvíumlíkt af því að ég á strák
sem ég þarf að sjá um. En hópurinn er
mjög skemmtilegur og við gerum margt
skemmtilegt saman. Við förum oft út
að borða með kennurunum sem koma
að utan og maður myndaði mjög náin
tengsl við hópinn sinn. Meirihluti verk-
efnanna er hópavinna og því mikilvægt
að við náum vel saman.
8 Monitor FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
Af hverju þetta nám og stefndir þú alltaf
í þessa átt?
Ástæðan fyrir því að ég fór í þetta nám var
sú að þetta heldur nánast öllum möguleik-
um opnum. Ég á auðvelt með stærðfræði
og vissi það í raun alltaf að ég færi út í
eitthvað verkfræðilegt. Hátækni er mjög
spennandi kostur því fagið er í raun á milli
rafmagnsverkfræði og vélaverkfræði.
Skemmtilegast og leiðinlegast?
Skemmtilegast er félagslífi ð og andinn
í kringum allt í HR. Ég var í bekkjarkerfi
í Verzló og hér hefur myndast svipuð
stemning og þar. Við erum mjög fá í há-
tækniverkfræðinni og erum öll orðin mjög
miklir viðir. Svo heillar eðlisfræðin og
stærðfræðin mig. Leiðinlegast er svo álagið
sem getur verið frekar mikið stundum. Svo
getur þú ekki spurt mig út í reglunarfræði
því ég hef enn ekki náð því hvað það er.
Hversu langt er námið?
BS-námið er þrjú ár. Þá er hægt að fara í
master í rauninni hvaða verkfræði sem
er. Ég tek mikið val í rekstrarverkfræði
því það heillar mig að fara í þá áttina í
framhaldsnáminu. Svo eftir mastersnám
er hægt að kalla sig verkfræðing.
Hversu stór hluti af lífi þínu er námið?
Ég myndi segja að námið sé svona 80%
af mínu lífi núna. Líf mitt er lítið annað
en skóli, fótbolti og félagslífi ð í skólanum
þessa dagana.
Framtíðarmöguleikar með gráðu í
hátækniverkfræði?
Það er mögulegt að fara í gott framhalds-
nám í virtum háskólum víðsvegar um
heiminn og svo eru mörg tækifæri sem
opnast í atvinnulífi nu.
Hvernig er félagslífi ð?
Félagslífi ð er frábært. Pragma, félag verk-
fræðinema, er mjög virkt og gott. Hér eru
vísindaferðir í hverri viku og árshátíð og
allt utanumhald er gott. Fólk er almennt í
góðum fíling og án þess að særa neinn þá
held ég að Pragma sé virkasta nemendafé-
lagið innan skólans.
Af hverju þetta nám og stefndir þú alltaf í
þessa átt?
Ég er svona týpísk stelpa sem hélt að ég ætti
ekkert í þessa stráka sem lærðu örugglega
forritun á sama tíma og þeir lærðu að smyrja
brauð. En svo af því að ég var starfsmaður
hjá HR fékk ég að taka nokkra kúrsa að eigin
vali og ég smám saman leiddist út í tölvunar-
fræðina.
Skemmtilegast og leiðinlegast?
Maður fær verkefni og hugsar fyrst hvernig í
ósköpunum maður eigi að leysa þau og það er
skemmtilegast að leysa verkefnin á endanum
og sigrast á áskorunum. Án þess að það sé
leiðinlegt þá getur samt álagið verið mikið á
köfl um.
Hversu langt er námið?
Af því að ég er ekki með grunngráðu úr
tölvunarfræði þá þarf ég að bæta við mig sem
samsvarar einu ári og því verð ég 3 ár að klára
en að öllu jöfnu þá er meistaranámið 2 ár.
Hversu stór hluti af lífi þínu er námið?
Er til eitthvað annað líf? Þegar maður leggur
saman skólann og fjölskylduna þá er mjög
lítið eftir.
Framtíðarmöguleikar sem tölvunarfræðing-
ur?
Ég sé þetta í samhengi við grunngráðuna
mína í upplýsingafræði því það er svo mikill
kostur að hægt sé að tengja tölvunarfræðina
við svo margt. Gagnagrunnar eru mitt
áhugasvið eins og er en möguleikarnir eru
margir og maður er alltaf að sjá möguleika út
í önnur fræði.
Hvernig er félagslífi ð?
Félag tölvunarfræðinema, Tvíund, er mjög
virkt. Þó ég eigi fjölskyldu og geti ekki sleppt
mér í félagslífi nu þá er mjög mikilvægt að
komast í gegnum námið með því að hafa gott
fólk í kringum þig og það er mjög mikilvægt
að geta kynnst fólki í gegnum félagslífi ð.
HárRétt ákvörðun
ÁSLAUG
EIRÍKSDÓTTIR
Árgerð: 1982.
Nám: Meistarnám í
tölvunarfræðideild.
GRÉTAR ATLI
GRÉTARSSON
Árgerð: 1988.
Nám: Grunnám í
hátækniverkfræði.
M
yn
di
r/
Si
gu
rg
ei
r
S.
Ungmennum stendur margt til boða þe
gar kemur að námi. Monitor
ræddi við nemendur úr Háskólans í R
eykjavík frá ýmsum deildum.