Monitor - 10.11.2011, Side 20
kvikmyndir
Ryan
Gosling
Hæð: 185 sentímetrar.
Besta hlutverk: Noah í The
Notebook.
Staðreynd: Var greindur með
athyglisbrest í æsku og móðir
hans kenndi honum í heima-
húsi í eitt ár.
Eitruð tilvitnun: „Ég hugsa
mikið um dauðann, ég held við
gerum það öll. Ég hugsa ekki
um sjálfsvíg sem möguleika
heldur sem skemmtun. Það er
áhugavert að hugsa til þess að
maður geti stjórnað því hvernig
maður yfi rgefur þetta líf. Þetta
er yfi rvofandi hlutur sem þú
getur stjórnað.“
1980 Fæðist þann 12. nóvember í
London í Kanada.
1993 Byrjar í Walt Disney barna-
þáttunum Mickey Mouse
Club ásamt Justin Timberlake,
Christina Aguilera og Britney
Spears.
1998 Flytur til Nýja Sjálands til að
leika titilhlutverkið í sjón-
varpsþáttunum Hercules: The
Legendary Journeys.
2001 Leikur gyðing sem gerist
nýnasisti í myndinni The
Believer og hlýtur mikið lof fyrir
frammistöðu sína.
2002 Leikur í Murder by Numbers
ásamt Söndru Bullock en þau
tvö rugla saman reitum þetta
árið og 2003.
2004 Leikur aðalhlut-verkið á móti
Rachel McAdams í hinni róm-
antísku The Notebook. Ári síðar
byrja þau saman og eru saman
með hléum til ársins 2008.
2006 Fer með hlutverk kennara sem er
háður fíkniefnum í myndinni
Half Nelson. Er tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir vikið.
2007 Tilnefndur til Golden Globe-
verðlaunanna fyrir leik sinni í
myndinni Lars and the Real Girl.
2009 Einbeitir sér að tónlistinni. Gefur
út plötu með hljómsveit sinni,
Dead Man’s Bones.
2010 Leikur í spuna-myndinni Blue
Valentine og er í tilnefndur til
Golden Globe-verðlaunanna.
2011 Leikur í fyrsta sinn grínhlutverk
í Crazy, Stupid, Love. Sama ár
leikur hann hinn þögla bílstjóra
sem aldrei er nefndur á nafn í
myndinni Drive.
FERILLINN
20 Monitor FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
„Loud noises!“
Brick Tamland, Anchorman: The Legend of Ron Burgundy (2004).
Steven Myers er ungur hugsjónamaður
sem þrátt fyrir ungan aldur er talinn
einn allra besti kosningastjóri Banda-
ríkjanna, enda hefur hann alltaf náð
markmiðum sínum fyrir þá frambjóð-
endur sem hann hefur unnið fyrir. Nú
vinnur hann við framboð þingmanns-
ins Mike Morris sem ætlar sér að verða
kandídat demókrata til embættis
forseta Bandaríkjanna. Hingað til hefur
allt gengið vel og allt sem virðist vanta
er að fá stuðning eins lykilþingmanns
við framboð Mikes. Þá fær Steven
óvænt símtal frá kosningastjóra
andstæðingsins og gerir í fram-
haldinu sín mestu mistök á ferlinum
sem leiða til þess að hann er rekinn úr
vinnu fyrir framboðið. En hvað gerðist?
Hver sveik hann og hvernig getur hann
fengið vinnuna sína aftur?
facebook.com/monitorbladidVILTU MIÐA? Monitor ætlar að gefa miða á The Ides of March, fylgstu með …
FRUMSÝNING HELGARINNAR
K V I K M Y N D
MONEYBALL
Tómas
Leifsson
Aðrar frumsýningar: Bakka-Baldur - African Cats - Human Centipede 2 - Tower Heist FRUMSÝNDAR FÖS. 11. NÓVEMBER
The Ides of March
Leikstjórn: George Clooney.
Aðalhlutverk: Ryan
Gosling, George Clooney,
Philip Seymour Hoff man,
Paul Giamatti, Marisa Tomei
og Jeff rey Wright.
Lengd: 101 mínúta.
Aldurstakmark: Bönnuð
innan 14 ára.
Kvikmyndahús: Sambíó in
Egilshöll, Kringlunni,
Álfabakka, Akureyri og
Kefl avík.
Pitt er fi tt
Þó svo að hafnarbolti sé
einhver sú leiðinlegasta íþrótt
sem stunduð er í dag hafa
Bandaríkjamenn gert margar
skemmtilegar kvikmyndir um
íþróttina. Moneyball er þar engin
undantekning. Hún er byggð
á sönnum atburðum og leikur
Brad Pitt framkvæmdastjórann
Billy Beane. Billy stjórnar liðinu
Oakland At-
hletics, smáliði
sem getur
ekki við keppt
við stóru liðin
þegar kemur
að samningum
leikmanna. Billy
ræður því til
sín tölfræðigúrúinn Peter Brand
(Jonah Hill) og stilla þeir saman
upp liði af leikmönnum sem
önnur lið hafa hafnað. Tölfræðin
sýnir þeim hvaða leikmenn
skila mestu til liðsins og hverjir
ekki. Moneyball er frekar týpísk
bandarísk íþróttamynd sem
kemur ekki mikið á óvart.
Þrátt fyrir það er hún vel gerð
kvikmynd í alla staði og þá
sérstaklega handritið sem er
einstaklega vel skrifað. Þegar
Aaron Sorkin og Steven Zaillian
koma saman verða engar
sjoppubókmenntir til.
Glæsilegur Hoffman
Í Moneyball fer Brad Pitt
með stórt hlutverk og snýst
myndin í raun langmest um
hans persónu. Pittarinn er, eins
og allir vita, fjallmyndarlegur
einstaklingur en einnig góður
leikari. Það verður ekki tekið af
honum. Hann skilar sínu mjög
vel en mér fannst hann samt
ekki sýna neinn stórleik. Óskar-
stilnefningu fær hann efl aust en
ég held hann fái ekki styttu. Þið
lásuð þetta fyrst hér í Monitor.
Aðrir leikarar eru einnig góðir og
þá sérstaklega Philip Seymour
Hoffman. Hoffman er einn af
fáum leikurum í Hollywood sem
leikur ekki alltaf sömu týpuna
því hann virðist getað skellt sér
í hvaða hlutverk sem er. Algjört
kamelljón. Ég mæli því eindregið
með þessari mynd því hún er
falleg saga um mann sem lét
ekki peninga
stjórna sínu
lífi . Speki
sem aldrei
verður
þreytt.
Ef það er einhver leikur sem mann langar að horfa
ástleitnum augum á og segja, „Þú ert fallegasti
leikur sem ég hef á ævinni séð“, þá er það Battlefi eld
3. Leikurinn keyrir á glænýrri grafíkvél sem heitir
Frostbyte 2 og má nánast tala um gæði hennar sem
grafískt klám.
Söguþráður leiksins snýst um hryðjuverkamenn
sem stolið hafa kjarnorkuvopnum og hafa uppi plön
um að sprengja þær í stórborgum á borð við París og
New York. Sagan er sögð frá mismunandi sjónarhorn-
um og fara leikmenn í hlutverk ýmissa persóna sem
varpa ljósi á hryðjuverkamennina og ill áform þeirra.
En í leikjum eins og Battlefi eld 3 er það netspilunin
sem skiptir mestu máli og eru góðu fréttirnar þær að
netspilun leiksins er klárlega ein sú besta sem gerð
hefur verið, en leikurinn inniheldur fjölmörg risastór
borð sem eru mjög fjölbreytt og lifandi. Frostbyte 2
grafíkvélin tryggir að leikmenn geta eyðilagt töluvert
stóran hluta borðanna og geta leikmenn til að mynda
sprengt göt á byggingar og jafnvel jafnað sumar
þeirra við jörðu. Aðalsmerki Battlefi eld-leikjanna
hefur verið farartæki og er það undirstrikað svo um
munar í Battlefi eld 3, en hægt er að hlamma sér niður
í þotur, skriðdreka, jeppa, báta, þyrlur og fl eira.
Í netspiluninni er hægt að velja um nokkrar gerðir
hermanna til að spila sem, en þar á meðal eru verk-
fræðingar (viðgerðagaurar) sem geta gert við allskyns
farartæki og læknar sem geta hjálpað særðum her-
mönnum. Allt sem leikmenn svo gera í netspiluninni
skilar sér í stigum sem aftur skila sér í betri vopnum
og fl eiri aukahlutum. Í PC-útgáfu leiksins geta allt að
64 spilað saman á netinu, en 24 eru hámarkið á PS3
og Xbox 360.
Eins og áður segir er grafík leiksins stórkostleg og
það sama má segja um tónlist og talsetningu leiksins
sem er í hæsta gæðafl okki svo ekki sé minnst á öll
hljóð í byssum og farartækjum leiks-
ins. Endingin er nánást endalaus,
enda alltaf eitthvað nýtt að gerast
í netspilun leiksins, bæði ný borð
og nýir möguleikar detta þar inn
reglulega.
Þannig að þeir sem eru í leit
að nánu ástarsambandi við
tölvuleik, sambandi þar sem
útlit og innihald skipta máli,
ættu að tékka á Battlefi eld 3.
Ólafur Þór Jóelsson
Grafískt klám
Tegund: Skotleikur
PEGI merking: 16+
Útgefandi: EA
Dómar: Gamespot 8 af 10 /
IGN 9 af 10 / Eurogamer 8 af 10
Battlefi eld 3
TÖ LV U L E I K U R