Monitor - 10.11.2011, Síða 22
22 Monitor FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
LOKAPRÓFIÐ skólinn
| 10. nóvember 2011 |
Allt að gerast - alla fi mmtudaga!
ERT ÞÚ
AÐ GERA
EITTHVAÐ
SKEMMTILEGT?
fílófaxið
fi mmtud10nóv
EURO-NÖRDAR
KOMA SAMAN
Hressó
20:00 Fáses, opinbert félag aðdá-enda Eurovision, býður öllum
áhugasömum á þematengt vídjókvöld þar
sem farið verður yfi r eftirminnilegustu lögin
sem hafnað hafa í öðru sæti í keppninni.
Tilvalið tækifæri til að koma út úr Eurovision-
skápnum og hitta aðra forfallna aðdáendur.
Aðgangur ókeypis.
QUARASHI 11.11.11
Prikið
21:00 Hinir ódauðlegu Quarashi-liðar standa fyrir útgáfupartí
nýs safndisks sem kom út á dögunum undir
nafninu Anthology. Sveitin gefur boðsmiða
á netinu.
föstudagu11nóv
Kvikmynd: Big Lebowski því the
dude er svo svalur, Mean girls
því að ég er svo einföld, Sódóma
Reykjavík, bull sem meikar sens.
En ég hef ekki einu sinni séð Star
Wars þannig að ekki hlusta á mig.
Þáttur: Það eru ekki til
betri þættir en Human
Planet. Fyrir mér festa
þeir niður þá stóru
hugmynd að enginn
upplifi lífi ð á sama hátt.
Bók: Síma-
skráin, hún
nýtist í svo
ótal margt!
Til dæmis eru
fjórar Símaskrár sem
halda uppi rúminu
mínu og þegar ég
á ekki pening fyrir
klósettpappír þá er
Símaskráin þarfasti
þjónninn. Nei nei, mér
fi nnst gaman að glugga
í góðar ljóðabækur.
Plata: Ég bý til mixtape með sama
artistanum en af mismunandi plötum
því að mér fi nnst gaman að skapa mitt
eigið andrúmsloft. Ég myndi ekki segja
að ég hlustaði mikið á plötur, frekar
artista. En ef ég ætti að nefna eina
plötu myndi ég segja að platan Woops með
Andrew sé í miklu uppáhaldi af
mörgum mismunandi ástæðum.
Vefsíða: Stumble upon er ein af
mínum uppáhaldssíðum. Þar
vafrar kerfi ð með notand-
ann um Internetið út frá
hvar áhugi viðkomandi
liggur.
Staður: Stundum
vakna ég á nóttunni
og get ekki sofi ð, þá
er bara eitt í stöðunni.
Nammilandið í Hagkaup
er opið allan sólar-
hringinn og þar
er nammibarinn
næstum jafnlang-
ur og álverið í
Straumsvík.
Síðast en ekki síst
» Agnes Björt Andradóttir, söngkona, fílar:
ARMSTRONG 11.11.11.
Föstudagurinn 11. nóvember
Vegamót kl. 23:00
„Neil Armstrong er virkilega fl ottur og tæknilegur plötusnúður
með virkilega fl otta sögu. Hann hefur hitað upp fyrir Kanye, spilað
á NBA „rookie shoutout“ og svo hefur hann fengið mikið lof fyrir
sitt innlegg í hina svokölluðu mixtape menningu,“ segir Benedikt
Freyr Jónsson, eða Benni B-Ruff eins og hann kallar sig þegar hann
þeytir skífum. Benni og plötusnúðurinn Jay-O verða Neil Armstrong
til halds og trausts á Vegamótum. „Mesta snilldin er náttúrulega að
Neil hitaði upp og spilaði á tónleikum með Jay-Z frá 2008 til 2010,
þannig að hann er með svakalega reynslu í því að halda uppi alvöru
stuði fyrir tugþúsundir manna. Í framhaldi af tónleikaferðalaginu
með Jay-Z hefur hann svo komið fram með stórstjörnum á borð við
Beyoncé, NERD, Timbaland, Common, Colplay og Puff Daddy.“ Benni
segir að allir sem vilji dansa megi ekki láta sig vanta á föstudaginn.
„Ekki skemmir fyrir að hann er sonur Neil Armstrong sem var
fyrstur á tunglið. Nei, ég segi svona, hann er ekkert sonur hans.“
Alnafni
tunglfara á Vegó
SYKUR ÁSAMT NÓLÓ
Gaukur á stöng
22:00 Sykur, sem nýverið gaf út plötuna Mesópótamía, treður
upp á Gauknum ásamt hljómsveitinni Nolo.
Tilvalið tækifæri til tjútts. Húsið opnar kl. 21.
Miðaverð er 1.000 kr.
KIRIYAMA FAMILY
Faktorý
22:00 Kiriyama Family stendur fyrir tónleikum þar sem einn
heppinn gestur mun ganga út með allan
aðgangseyrinn. DJ Milla sér um upphitun.
Miðaverð er 1.000 kr.
monitor@monitor.is
GÍSLI PÁLMI
Gaukur á stöng
22:00 Hinn gallharði Gísli Pálmi ætlar að setja allt í gang á
Gauknum. Þar verða fríar veitingar í boði en
miðaverð er 1.000 kr.
laugardag12nóv