Morgunblaðið - 16.12.2011, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Fargjöld í innanlandsflugi hækka og
rekstur Flugfélags Íslands verður
erfiður þegar hækkanir á lendingar-
og farþegagjöldum á Reykjavíkur-
flugvelli verða að veruleika á næsta
ári. Þetta segir Árni Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Flugfélags Ís-
lands.
Hækkanirnar nema 250 milljón-
um, þær eru samkvæmt samgöngu-
áætlun til næstu fjögurra ára og
eiga að koma til framkvæmda í
tveimur jafnstórum áföngum 2012
og 2013. Þetta verður nýtt í fram-
kvæmdir og viðhald.
Árni segir gjaldahækkunina ekki
hafa verið kynnta forsvarsmönnum
flugfélagsins. Hann segist hafa átt
von á einhverjum hækkunum um
áramótin, en að þær yrðu nokkru
minni. „Við lásum í samgönguáætl-
uninni að okkur ber að borga 250
milljónum meira til hins opinbera.
Þetta mun augljóslega hafa áhrif á
fargjöldin til hækkunar, það er al-
veg ljóst. Það er ekkert óeðlilegt við
að gjöld hækki í samræmi við verð-
lag og annað slíkt. En að hækkunin
yrði í þessum stærðarflokki; því átt-
um við engan veginn von á. Þetta
verða 125 milljónir á næsta ári og
hefur veruleg áhrif á reksturinn.“
Margvísleg gjöld lögð á félagið
Að sögn Árna hafa ýmis gjöld ver-
ið lögð á félagið undanfarin ár. Erf-
itt sé að sjá hversu lengi það geti
haldið áfram. „Það er verið að tví-
skatta okkur vegna kolefnisblásturs;
bæði vegna útblásturs á eldsneyti
sem við greiðum til ríksins og frá
janúar 2012 þurfum við að borga
samkvæmt evrópsku kerfi, ETS.
Síðan hafa bæði lendingar- og far-
þegagjöld hækkað á okkur og skatt-
ar á eldsneyti og eldsneytisverðið
sjálft hefur hækkað.“ Árni segir tak-
mörk fyrir því hvað markaðurinn
geti þolað í verðhækkunum. „Þetta
fer beint út í verðið. Ef það verður
of hátt, þá fáum við miklu færri far-
þega. Það má heldur ekki gleyma að
þetta hefur mikil áhrif á búsetu og
verslun á landsbyggðinni.“
Margir þættir hafa áhrif á far-
gjöld, að sögn Árna. „Allir kostn-
aðarliðir hafa áhrif á verðmynd-
unina; rekstrarkostnaður, eldsneyti,
viðhald og opinber gjöld, svo eitt-
hvað sé nefnt.“
Undanfarin tíu ár, eða þar um bil,
hefur félagið verið rekið án taps.
„Þetta hefur verið gríðarlega erfitt,
sérstaklega undanfarin þrjú ár í
kjölfar hrunsins. Farþegum fækkaði
verulega árin 2009 og 2010, en í ár
hefur verið hæg aukning. En maður
sér ekki fram á að það muni halda
áfram ef kostnaður eykst svona
mikið,“ segir Árni. »18
Hærri fargjöld og erfiður róður
Flugfélag Íslands þarf að greiða 250 milljónir í lendingar- og farþegagjöld á næstu tveimur árum
Áttu ekki von á hækkun í þessum stærðarflokki Gjöldin hafa veruleg áhrif á rekstur flugfélagsins
Flugfélagið Fargjald mun hækka.
„Okkur hefur tekist að halda
okkur réttum megin við núllið,
en ekkert meira en svo, und-
anfarin tíu ár. Þá gerðum við
verulegar breytingar á rekstr-
inum,“ segir Árni. „Við tókum út
nokkrar leiðir sem voru ekki að
bera sig og gerðum breytingar á
söluferlinu, tókum upp netið
sem helsta sölutæki og höfum
hagrætt gríðarlega í rekstr-
inum.“
Réttum megin
við núllið
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Auðvitað eru hræringar á markaðn-
um og alltaf einhver áhætta í slíku.
Við erum þeirrar skoðunar að hug-
myndafræði eins og IKEA muni
ganga í kreppu eins og góðæri,“ seg-
ir Sigurður Gísli Pálmason sem
ásamt Jóni bróður sínum hefur
stofnað fyrirtæki í Litháen til að
byggja upp og reka stórverslun und-
ir merkjum IKEA í höfuðborginni
Vilníus.
Fyrirtæki Jóns og Sigurðar Gísla
og móðurfyrirtækis IKEA, Felit,
hefur keypt lóð undir starfsemina í
útjaðri borgarinnar, nærri alþjóða-
flugvellinum, og borgaryfirvöld hafa
gengið frá skipulagi. Tilkynnt var
um áform um uppbyggingu á sam-
eiginlegum blaðamannafundi Art-
uras Zuokas, borgarstjóra Vilníus,
fjárfestingarstofu Litháen og Felit í
gær.
Fleiri verslanir á döfinni
Áformað er að hefja framkvæmdir
næsta vor og að verslun verði opnuð
haustið 2013. Verslun IKEA verður
um 25 þúsund fermetrar að stærð,
heldur stærri en verslun IKEA í
Garðabæ.
Kostnaður við uppbygginguna er
áætlaður um 45 milljónir evra sem
svarar til um 7 milljarða íslenskra
króna. Sigurður Gísli segir að verk-
efnið sé fullfjármagnað, að öllu leyti
frá útlöndum.
Verslanir IKEA hafa víða dregið
að sér aðrar smásöluverslanir. Gert
er ráð fyrir því í skipulagi verslunar-
svæðisins í Vilníus að svo geti orðið.
Sigurður Gísli segir að það sé viða-
mikið verkefni sem ekki sé víst að
byggist upp á sama tíma. Markaðs-
aðstæður ráði því. Tekur Sigurður
Gísli fram að þeir bræður muni ein-
beita sér að því að reisa og reka
IKEA-verslun og hin framkvæmdin
verði ekki beint á þeirra vegum.
Sigurður Gísli og Jón eru rekstr-
araðilar IKEA á Íslandi en sam-
starfssamningur þeirra við
IKEA nær einnig til Eystra-
saltslandanna. „Við munum
einbeita okkur að því sem
við erum að gera í Litháen.
Þegar sá rekstur hefur sannað
sig munum við meta
framhaldið. Ef allt
gengur að óskum
verður það grund-
völlur fyrir fleiri
verslunum,“
segir Sigurður
Gísli um fram-
haldið.
Gengur í kreppu
eins og góðæri
Rekstraraðilar IKEA á Íslandi byggja upp í Litháen
Morgunblaðið/Eyþór
IKEA Verslun sem IKEA opnaði í Kauptúni í Garðabæ 2006 var stærsta verslun sem opnuð hefur verið hérlendis.
Magnús Ármann og Kevin Gerald
Stanford þurfa hvor um sig að greiða
Arion banka hf. 240 milljónir króna
vegna skiptrar sjálfskuldarábyrgðar
fyrir láni félags þeirra Materia In-
vest ehf. Hæstiréttur staðfesti í gær
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá í
janúar þar sem Materia Invest ehf.
er gert að greiða Arion banka hf.
tæpa 6,4 milljarða, en þar af greiði
Magnús og Stanford fyrrgreindar
upphæðir.
Arion banki höfðaði mál til greiðslu
skuldar aðilanna vegna lánasamn-
ings sem forveri hans, Kaupþing
banki, gerði með þeim 16. nóvember
2005, að upphæð 4,2 milljarðar króna
til kaupa á hlutabréfum í FL Group
hf., með handveði í þeim. Var lánið
kúlulán sem skyldi greiðast í einni
greiðslu í nóvember 2008.
Gerðir voru viðaukar við lánið og
ógreiddir gjaldfallnir vextir færðir til
lokagreiðslu þess. Gjaldfallin skuld
með vöxtum í byrjun árs 2009 nam
því 6,4 milljörðum, sem er stefnufjár-
hæðin. Féllst dómurinn ekki á varnir
Magnúsar og Stanfords, sem sneru
m.a. annars að því að greiðsla
ábyrgðar væri umfram lánsfjárhæð,
lánið hefði verið ranglega gjaldfellt,
né að bankinn hefði vanrækt að beina
greiðsluáskorun að þeim og greiðslu-
skylda því ekki stofnast. Vísaði
Hæstiréttur þar til forsendna hér-
aðsdóms sem byggðust m.a. á skil-
málum lánasamningsins.
Materia Invest er fjárfestingafélag
í eigu Kevins Stanfords, Magnúsar
Ármanns og Þorsteins M. Jónssonar.
Félagið átti m.a. stóran hlut í Stoð-
um. sigrunrosa@mbl.is
Greiði 240
milljónir hvor
Materia Invest greiði 6,4 milljarða
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Niðurstaða Hæstiréttur staðfesti
dóm héraðsdóms um greiðsluskyldu.
IKEA hefur verið á Íslandi í þrjá-
tíu ár. Fyrirtækið tók í notkun
núverandi verslunarhúsnæði í
Kauptúni í Garðabæ 2006.
Fyrsta verslun IKEA hér á
landi var deild í Hagkaupum í
Skeifunni. Fjórum árum seinna
var opnuð verslun í Kringlunni
og 1994 var flutt í Holtagarða.
IKEA var stofnað í Svíþjóð af
Ingvar Kamprad en er nú al-
þjóðlegt fyrirtæki. Hátt í 300
verslanir eru reknar undir
merkjum IKEA í á fjórða tug
landa.
IKEA er þekkt fyrir hönnun
tiltölulega ódýrra hús-
gagna í flötum pakkn-
ingum og er nú einn
helsti húsgagnafram-
leiðandi heims. Marg-
víslegar aðrar heim-
ilisvörur eru til sölu í
verslunum þess.
300 verslanir
um allan heim
IKEA Á ÍSLANDI Í 30 ÁR
Sigurður Gísli Pálmason
Góð sala var í minkaskinnum á
fyrsta loðskinnauppboði sölu-
tímabilsins í Kaupmannahöfn í gær
og verð á svipuðu róli og í fyrra.
Byrjunin þykir lofa góðu fyrir fram-
haldið í vetur.
„Þetta fer bara vel af stað, það er
100% sala og markaðurinn virðist
vera í jafnvægi,“ sagði Einar E. Ein-
arsson, ráðunautur Bændasamtak-
anna í loðdýrarækt. „Verðið var svo
hátt í fyrra að menn trúðu því ekki
að það héldist svona hátt lengi. Þeir
hafa frekar átt von á að verðið leiti
eitthvað niður á við en eftirspurnin
er gríðarleg.“
Uppboðið hófst í fyrradag með
sölu á refaskinnum, chinchilla og
öðrum sjaldgæfari skinnategundum.
Í gærmorgun var byrjað að bjóða
upp minkaskinn og verður því hald-
ið áfram þar til í kvöld. Einar sagði
að högnaskinn hefðu hækkað lít-
illega en feldir af læðum lækkað lítið
eitt. Segja megi að verðið sé stöðugt.
Boðnar eru til sölu 1,4 milljónir
minkaskinna á uppboðinu. Af þeim
voru ekki nema tvö til þrjú þúsund
íslensk minkaskinn, að því er Einar
taldi. Þetta var fyrsta og jafnframt
minnsta uppboð sölutímabilsins. Eft-
ir er að halda fjögur uppboð hjá Co-
penhagen Fur á þessu sölutímabili
og má vænta þess að meira verði af
íslenskum minkaskinnum á þeim
uppboðum sem eftir eru.
gudni@mbl.is
Minkaskinn seljast vel
Morgunblaðið/Ómar
Minkaskinn Skinn seldust vel á
fyrsta skinnauppboði vetrarins.
Verð á svipuðu
róli og í fyrra