Morgunblaðið - 16.12.2011, Side 4
FRÉTTASKÝRING
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Búslóð Skafta Jónssonar, sendi-
ráðunautar við sendiráð Íslands í
Washington, og konu hans, Krist-
ínar Þorsteinsdóttur, skemmdist
mikið í apríl á þessu ári í flutningi
frá Íslandi til Bandaríkjanna. Bú-
slóðin var tryggð fyrir á sjöttu
milljón króna, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins. Á grund-
velli mats var búslóðin hins vegar
bætt af ríkinu fyrir 75 milljónir
króna samkvæmt aukafjárlögum
sem samþykkt voru fyrir
skemmstu.
Fram hefur komið að hluti um-
ræddrar tryggingar hafi verið
keyptur af Skafta sjálfum til við-
bótar við þá tryggingu sem ríkið
keypti vegna flutninganna. Pétur
Ásgeirsson, sviðstjóri rekstrar- og
þjónustusviðs utanríkisráðuneyt-
isins, segir hins vegar í samtali við
Morgunblaðið að svo hafi ekki ver-
ið heldur hafi einungis verið um
að ræða tryggingu sem tekin var
af hálfu ríkisins. Þá hafi trygg-
ingin ekki verið hugsuð sem al-
trygging heldur einungis vegna
mögulegs tjóns af hnjaski og
skrámum.
Mikið tjón í hafi
Á leið sinni til Richmond í Virg-
iníu-ríki í Bandaríkjunum í apríl
varð gámaflutningaskip Eimskips,
Reykjafoss, fyrir ólagi sem reið
yfir skipið með þeim afleiðingum
að sjór komst inn í 20 feta gám
með búslóð Skafta og Kristínar
sem var neðst í lest skipsins.
Ástand búslóðarinnar kom hins
vegar ekki í ljós fyrr en gámurinn
var opnaður til tollskoðunar en þá
hafði hann beðið þess í nokkra sól-
arhringa í miklum hita.
Reyndist búslóðin þá hafa orðið
fyrir miklum skemmdum af völd-
um vatns og myglu en hluti henn-
ar var nokkur fjöldi málverka og
ýmsir aðrir listmunir auk meðal
annars fatnaðar og húsgagna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var í kjölfarið farið í
gegnum búslóðina með nákvæm-
um hætti, að Skafta og Kristínu
viðstöddum, með það fyrir augum
að leggja mat á ástand hennar og
því hent sem talið var gjörónýtt.
Þá var bandarískt fyrirtæki,
sem sérhæfir sig í að reyna að
bjarga verðmætum sem orðið hafa
fyrir skemmdum, fengið til þess
að fara í gegnum málverkin og
listmunina ásamt þeim hjónum og
leggja mat á það hvort hugsanlega
væri hægt að lagfæra þær
skemmdir sem orðið höfðu á þeim.
Niðurstaða þeirrar vinnu var,
samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, sú að nokkur fjöldi
verka mun hafa verið lagfærður af
umræddu fyrirtæki. Fyrirtækið
lagði hins vegar ekki sérstakt mat
á það fjárhagstjón sem orðið hefði
á búslóðinni.
Tryggð fyrir á sjöttu
milljón en 75 bættar
Morgunblaðið/Golli
Tjón Bandarískt fyrirtæki skoðaði búslóðina en lagði ekki mat á fjártjónið.
Búslóð sendi-
ráðunautar og
konu hans
skemmdist mikið
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011
BAKSVIÐ
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Umræðum um frumvarp fjármála-
ráðherra um ráðstafanir í ríkisfjár-
málum, bandorminn, var frestað að-
faranótt fimmtudags en haldið áfram
í gærmorgun. Ætlunin er að hlé
verði gert á þingstörfum í dag vegna
jólanna en óvíst er hvort sú áætlun
gangi eftir. Þótt bandorminum væri
hleypt í gegnum fyrri umræðu án
málþófs eru meira en tveir tugir ann-
arra mála enn óafgreiddir, oft er um
mikilvæg mál að ræða.
Forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, sagði í gær að vonir
stæðu til að takast myndi að standa
að mestu við starfsáætlunina. „En
það á bara eftir að koma í ljós. Þing-
menn eru tala saman, hafa verið að
því í gær og í nótt, þannig gengur
þetta yfirleitt fyrir sig, menn eru að
fikra sig að samkomulagi,“ sagði
Ásta Ragnheiður. Hún sagði aðspurð
að stundum hefðu horfurnar fyrir
jólafrí verið verri en núna.
Oft verður nokkur urgur meðal
stjórnarandstæðinga ef þeim finnst
að ekki sé tekið nægilegt tillit til
sjónarmiða þeirra. Og svo virðist
vera núna. Hvað segja þingmenn
andstöðunnar?
„Það er búið að svíkja svo mörg
loforð að sumir eru farnir að nota
nýtt hugtak, raðsvik,“ sagði einn
þeirra. Heimildarmenn segja að það
verði nánast ómótstæðileg freisting
fyrir þá að egna upp deilur meðal
stjórnarliða og tjá sig ítarlega um til-
lögu er gengur út á að gerðar verði
hljóðupptökur af öllum ríkisstjórn-
arfundum.
Um var að ræða mikið hjartans
mál Hreyfingarinnar en einnig Þrá-
ins Bertelssonar, þingmanns VG.
Hann gerði samþykkt tillögunnar að
skilyrði fyrir því að samþykkja fjár-
lögin. En nú hafa stjórnarflokkanrir
heykst á að framkvæma hugmynd-
ina, af ýmsum ástæðum.
Bent hefur verið á að verði hug-
myndin að veruleika sé líklegt að
ráðherrar muni forðast að ræða ýmis
viðkvæm trúnaðarmál á sjálfum
fundunum. Það verði gert á leynileg-
um fundum á göngunum.
Langur og umdeildur ormur
Bandormur Steingríms J. Sigfús-
sonar fjármálaráðherra er að venju
langur og umdeildur. Frumvarpinu
er ætlað að tryggja að tekjuöflun rík-
issjóðs verði í samræmi við forsend-
ur fjárlagafrumvarps fyrir næsta ár.
Þessum breytingum má skipta í
fjóra meginflokka.
Í fyrsta lagi breytingar sem tengj-
ast yfirlýsingu stjórnvalda sem ætl-
að var að liðka fyrir gerð kjarasamn-
inga í maí á þessu ári. Í öðru lagi eru
sérstakar tekjuöflunaraðgerðir sem
ríkisstjórnin hyggst nota til að koma
á jafnvægi í ríkisfjármálum á næstu
árum.
Í þriðja lagi er svo um að ræða
hækkanir á krónutölusköttum og
gjaldskrám í takt við verðlagsfor-
sendur frumvarpsins og í fjórða lagi
breytingar af ýmsu öðru tagi.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þing-
flokksformaður sjálfstæðismanna,
sagði erfitt að spá um framhaldið og
ekki hefðu verið gerðir neinir samn-
ingar við stjórnarflokkana um að
tryggja að þingfrestun yrði á tilsett-
um tíma í dag. „Allt getur gerst en
mér finnst stjórnarliðar ekki alltaf
átta sig á því að það þarf tvo til að
semja þótt við séum sveigjanleg og
viljum greiða fyrir þingstörfum. Við
fengum nokkrar breytingar á band-
orminum í gegn og þær fara í nefnd
og við erum enn að reyna að vinna í
þessu. En skattaumræðan heldur
áfram og fjársýsluskatturinn er afar
umdeildur.“
Óljóst um
þingfrestun
Stjórnarandstaðan gagnrýnir fjár-
sýsluskatt og vill frekari umræður
Morgunblaðið/Golli
Alþingi Mörður Árnason og Oddný
G. Harðardóttir fylgjast með.
Rúmt ár er síðan alþingismenn
greiddu atkvæði um hvort höfða
skyldi mál fyrir landsdómi á hendur
fjórum fyrrverandi ráðherrum.
Alþingismenn undirbúa nú þings-
ályktunartillögu um að fela saksókn-
ara Alþingis að draga tilbaka ákæru
á hendur Geir H. Haarde fyrrver-
andi forsætisráðherra.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í
fyrra var sú að samþykkt var með 33
atkvæðum gegn 30 að ákæra yrði
gefin út á hendur Geir.
Athygli vakti við atkvæðagreiðsl-
una að Samfylkingarmenn tóku mis-
munandi afstöðu til ákæranna. Níu
Samfylkingarmenn samþykktu að
höfðað yrði mál gegn Geir. Þetta
voru Jónína Rós Guðmundsdóttir,
Magnús Orri Schram, Mörður Árna-
son, Oddný G. Harðardóttir, Ólína
Þorvarðardóttir, Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir og Skúli Helgason.
Af þessum níu þingmönnum Sam-
fylkingar greiddu hins vegar fjórir
atkvæði gegn því að höfðað yrði mál
gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur, fyrrv. utanríkisráðherra.
Tillaga um málshöfðun gegn Ingi-
björgu Sólrúnu var felld með 34 at-
kvæðum gegn 29. Munaði því fjórum
atkvæðum á því að tillaga um hana
var felld og samþykkt um Geir.
Þingmenn Framsóknar skiptust í
tvennt. Þrír þeirra greiddu atkvæði
á móti öllum tillögunum en sex með.
Það voru Birkir Jón Jónsson, Eygló
Harðardóttir, Huld Aðalbjarnar-
dóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson,
Siv Friðleifsdóttir og Vigdís Hauks-
dóttir. Þingmenn annarra flokka
studdu annað hvort allar tillögur um
málshöfðun á hendur ráðherrunum
eða greiddu atkvæði gegn þeim.
Allir þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins, 16 talsins, greiddu atkvæði gegn
málshöfðun á hendur ráðherrunum
fjórum. Þingmenn VG og Hreyfing-
arinnar vildu að höfðað yrði mál
gegn ráðherrunum fjórum.
sigrunrosa@mbl.is
Atkvæði Samfylkingar-
innar réðu úrslitum
Ertu alltaf
í spreng?
Sprengur.is
Spurður um lagaskyldu ríkisins
til þess að bæta tjón eins og það
sem varð á búslóð Skafta Jóns-
sonar og Kristínar Þorsteins-
dóttur í flutningi til Bandaríkj-
anna í apríl síðastliðnum segir
Pétur Ásgeirsson, sviðsstjóri
rekstrar- og þjónustusviðs utan-
ríkisráðuneytisins, að ábyrgð rík-
isins byggist á því að starfsmenn
utanríkisráðuneytisins séu lög-
um samkvæmt skyldugir til þess
að flytja þangað sem starfs-
krafta þeirra sé óskað innan ut-
anríkisþjónustunnar.
Pétur segir að ríkinu beri á
móti að flytja búslóðir þeirra
þangað sem þeir flytjast starfs
síns vegna og á meðan þær séu í
vörslu þess sé
það ábyrgt fyrir
þeim.
Spurður hvað
hafi verið lagt til
grundvallar því
að meta búslóð-
ina á 75 millj-
ónir króna segir
Pétur að fyr-
irtækið Könnun hf. hafi fram-
kvæmt matið á grundvelli ná-
kvæmrar skrár yfir það sem hafi
verið í búslóðinni, ljósmyndum af
henni fyrir og eftir tjónið og
matsskýrslu frá bandarísku
matsfyrirtæki. Um sama fyr-
irtækið er að ræða og rætt er um
í meginmáli fréttarinnar.
Ríkið ábyrgt fyrir búslóðum
SVIÐSSTJÓRI Í UTANRÍKISRÁÐUNEYTINU
Pétur Ásgeirsson