Morgunblaðið - 16.12.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011
Hátíð í bæ
Verslanir miðborgarinnar
okkar eru opnar frá:
10-22
Jólamarkaðurinn Ingólfstorgi
er opinn frá: 14 - 20
Velkomin þangað sem
jólahjartað slær!
ÓHUGNANLEG
OG HJARTNÆM
holabok.is/holar@holabok.is
Ævisaga Elfríðar Pálsdóttur er í
senn óhugnanleg og hjartnæm.
Það tók mjög á hana að rifja
upp æsku sína í Þýskalandi og
lesendur munu skilja af hverju
svo var.
2. prentun komin í verslanir!
Forsætisráðherra sagði á þingi ígær að tekið yrði á refsiaðgerð-
um Evrópusambandsins gegn Íslandi
„af mikilli festu“ ef sambandið
ákvæði að grípa til slíkra aðgerða.
Tilefnið var fyrir-spurn frá Ein-
ari K. Guðfinnssyni,
sem vildi vita til
hvaða aðgerða yrði
gripið af hálfu ís-
lenskra stjórnvalda
og hvort ekki væri
óeðlilegt að eiga í
aðildarviðræðum við
ESB á sama tíma og
sambandið undirbýr
mögulegar refsiað-
gerðir á hendur okk-
ur.
Jóhanna taldi slíkar hótanir ekkifrekar en annað gefa tilefni til
að hætta við umsóknina, en eins og
áður sagði ætlar hún að taka á mál-
inu „af mikilli festu“.
Þeirri festu kynntust landsmennvel í grjótharðri afstöðu stjórn-
valda í Icesave-málinu, þegar sér-
hver óbilgjörn og ólögmæt krafan á
fætur annarri var samþykkt mögl-
unarlaust.
Áhyggjur af því að losaralegaverði haldið á málstað Íslands
gagnvart ESB í þessu máli eru þess
vegna alveg óþarfar.
Og með sama hætti væri óþarfi aðhafa áhyggjur af stöðu Íslands í
samningaviðræðum um makríl eða
aðra flökkustofna ef Jóhönnu tækist
að þvinga Ísland inn í ESB.
Þá væri staða Íslands engin, Ís-landi yrði skammtað það sem
ESB hentaði og Jóhanna mundi
verja íslenska hagsmuni af mikilli
festu.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Festa að hætti
forsætisráðherra
STAKSTEINAR
Einar K.
Guðfinnsson
Veður víða um heim 15.12., kl. 18.00
Reykjavík -4 skýjað
Bolungarvík -1 snjókoma
Akureyri -5 snjókoma
Kirkjubæjarkl. -5 léttskýjað
Vestmannaeyjar -2 heiðskírt
Nuuk -3 snjókoma
Þórshöfn 2 léttskýjað
Ósló 1 skýjað
Kaupmannahöfn 5 skýjað
Stokkhólmur 3 skýjað
Helsinki 5 skúrir
Lúxemborg 3 skýjað
Brussel 6 skýjað
Dublin 3 léttskýjað
Glasgow 3 léttskýjað
London 7 léttskýjað
París 7 skýjað
Amsterdam 6 skúrir
Hamborg 5 skúrir
Berlín 6 skýjað
Vín 5 skúrir
Moskva 2 þoka
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 13 heiðskírt
Winnipeg -11 snjókoma
Montreal 6 skúrir
New York 11 léttskýjað
Chicago 7 alskýjað
Orlando 18 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:18 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:03 14:54
SIGLUFJÖRÐUR 11:48 14:35
DJÚPIVOGUR 10:56 14:50
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Gestir á tónlistarhátíðinni Iceland
Airwaves voru í heild 23% fleiri í
haust en í fyrra, fjölgunin var hlut-
fallslega enn meiri meðal erlendra
ferðamanna eða 26%, að því er fram
kemur í könnun sem Tómas Young
gerði fyrir Útflutningsskrifstofu ís-
lenskrar tónlistar, Útón. Alls komu
hingað gestir frá um 50 löndum, að
sögn Gríms Atlasonar, fram-
kvæmdastjóra hátíðarinnar.
Fram kemur að erlendu gestirnir
dvöldust að þessu sinni einum degi
lengur á landinu en í fyrra eða sex
daga. Þeir eyddu alls um 450 millj-
ónum króna hér á landi meðan há-
tíðin stóð yfir, veltuaukningin var
um 44% milli ára. Næst verður
Airwaves nokkru seinna á árinu en
áður.
„Hún hefur alltaf verið um þriðju
helgina í október en verður næst 31.
október til 4. nóvember,“ segir
Grímur. „Aðsóknin er orðin svo mik-
il og núna ætlum við að reyna að losa
okkur við alla aðra túrista, þetta er
orðið of mikið! Þá sitjum við nærri
ein að svo mörgu, flugvélasætum og
öðru. Við getum auðvitað ekki tekið
mikla áhættu, m.a. vegna veðurfars-
ins, þess vegna seinkum við bara um
tvær vikur. En í ár var veðrið eig-
inlega betra í byrjun nóvember.“
Gestir koma víða að
Gestir Airwaves koma víða að,
flestir frá nágrannalöndunum en
sumir frá Austur-Evrópu, aðrir alla
leið frá Mexíkó og Japan. Hann seg-
ir að fólkið sé af öllu tagi en yfirleitt
þó í yngri kantinum, líklega sé með-
alaldur útlendinganna um þrjátíu ár
en lægri hjá innlendum gestum.
Alls séu tónleikar á 12 stöðum og
venjulega sé röð á einum eða tveim-
ur stöðum. „En oft er engin röð þar
sem það besta er í boði, það er ekki
enn orðið frægt en verður það. Eftir
tvö ár hafa svo allir verið á þeim tón-
leikum sem voru stærstir og bestir!
Við höfum fengið mikla umfjöllun út
um allt, síðast var það Spin Magaz-
ine, eitt stærsta lífsstíls- og tónlist-
arrit í heimi, og Rolling Stone hefur
birt greinar um okkur.“
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Stuð Frá Airwaves-tónleikum á Nasa í október.
Airwaves-hátíðin
stöðugt vinsælli
Veltuaukning frá því í fyrra um 44%
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is