Morgunblaðið - 16.12.2011, Síða 11
eysku útgáfunni. „Ég er að vinna
annað verkefni sem verður fram-
haldsbók af þessari og ætluð fyrir
eldri krakka, það verða lengri sögur
og meiri texti. Þá sögu ætla ég að
byggja á vættum og þjóðtrú Íslands,
Noregs, Danmerkur.“
Vill vekja til umhugsunar
Eftir Huginn hafa komið út fjöl-
margar barnabækur, ýmist frum-
samdar eða sem hann hefur þýtt.
„Þrettán þrautir jólasveinanna er ein
þeirra bóka sem ég er með í almennri
dreifingu núna og svo þýddi ég Sí-
gildu ævintýrin, sem er stór og veg-
leg bók og hefur selst gríðarlega vel.
Eldingaþjófurinn er þýdd bók sem er
stóra bókin þessi jólin, það er fram-
haldssaga fyrir börn og þekkt um
víða veröld.“
Huginn neitar því ekki að það
geti verið ákveðin glíma að flétta
saman boðskap og skemmtun í bók-
um fyrir börn. „Margar þeirra bóka
sem ég hef samið eru með boðskap,
eins og til dæmis bókin Kýrin sem
kunni ekki að baula, í henni er mikill
texti og mikill boðskapur. Ég held
reyndar að börn hafi gott af því að við
ýtum þeim út í meiri lestur og meiri
pælingar. Ég vil vekja fólk til um-
hugsunar með bókunum mínum.
Barnabækur þurfa ekki alltaf að vera
með léttum stuttum texta og miklum
myndum, þó svo þær séu ætlaðar fyr-
ir krakka sem eru fjögurra til fimm
ára.“
Hefur svo gaman af þessu
Huginn hefur líka verið með fyr-
irtækjaþjónustu og hann vann meðal
annars stórt verkefni fyrir Iceland
Express. „Ég vann fyrir þá barnabók
til að bjóða börnum í flugi. Þessi bók
er um Skoppu og Skrítlu og er allt í
senn, saga, þrautir og litabók. Í henni
er ljósmyndum og myndskreytingum
blandað saman. Ég hef líka verið með
þessa fyrirtækjaþjónustu fyrir Dom-
inos og American Style. Sem betur
fer er veltan alltaf að aukast hjá Óð-
insauga, enda er ég að reyna að gera
þetta að atvinnu. Ég hef svo gaman af
þessu.“
Börn og fullorðnir
geta með bókinni
lært ný tungumál.
www.huginnthor.com
Ekki verður annað sagt en hugmyndir um hártísku
og greiðslur hafi verið teknar skrefi lengri á hár-
sýningu í Seúl á dögunum.
Það hefur sennilega ekki verið sérlega þægilegt
eða auðvelt að bera sumt af því skrauti sem þar
sást á tískusýningapöllunum. Rúllurnar virðast
hafa gleymst í einu módelinu og stutt í að marg-
litur haugurinn beri hana yfirliði. Svo sýnist sem
önnur hafi brugðið sér í hlutverk trés og beri
krónu þess á höfðinu. Sú þriðja er skrýdd því er
líkist helst ægimiklum fuglsham. Svona er
hægt að leika sér að ýmiss konar útfærslum í
hári og klæðnaði. Þessar eru sannarlega skraut-
legar og skemmtilegar fyrir augað. En um leið
helst til íburðarmiklar og óþægilegar til lengdar. Það
gæti þó verið flott að skreyta sig með nokkrum fjöðrum
yfir hátíðarnar þegar maður vill skarta sínu fegursta.
Heill hellingur af
rúllum og fjöðrum
Hártíska
Reuters
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011
www.ils.is | Sími: 569 6900 | Grænt númer: 800 6969 | Borgartúni 21, 105 Reykjavík
Kynntu þér lán og aðra
þjónustu Íbúðalánasjóðs
• Lán til íbúðarkaupa
• Lán til endurbóta og viðbygginga
• Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
• Ráðgjöf og úrræði í greiðsluvanda
Varúð! Kæru aðdáendur í Heimi Maríu, aðþessu sinni verður ekki fjallað um svaðilfarirí borg óttans, samskiptareglur kynjanna eðanokkuð sem tengist skemmtanalífi eða
áfengi. Nei. Hér verður skrifað um börn. Já, þið
heyrðuð rétt og nú megið þið missa andlitið. Partý-
pæjan Mæja ætlar að skrifa heilan heim um börn og
hvað þau eru yndisleg og sæt. (Nema þegar þau öskra
en þá má bara skila þeim aftur í fang framleiðanda).
Í júlí á síðasta ári varð ákveðin breyting á lífi mínu
þegar fyrsta barnið kom í vinahópinn. Ég viðurkenni
að í fyrstu fannst mér þetta dálítið „end of an era“.
Nú yrði ekkert eins og áður. Vissulega reyndist það
rétt en ég sá fljótt að þessar breytingar höfðu já-
kvæðar afleiðingar. Ég gat t.d. farið að kaupa lítil
og sæt dúlluföt sem var mjög ánægjulegt. Svo er
líka fínt að æfa sig dálítið enda litlu systkinin
orðin fullorðin og maður löngu kominn úr æf-
ingu. Eftir langt hlé barneigna í nánustu fjöl-
skyldu er ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með
litlu kríli vaxa og dafna. Nú eru litlu stúlkurnar
í vinahópnum orðnar tvær. Önnur er
aðeins rétt rúmlega fimm mánaða en
hin eins og hálfs árs. Sú eldri end-
urtekur orðið allt sem maður segir svo
nú má maður fara að vara sig. Sú yngri
er meðfærilegri og maraþonið ekki hafið
sem fylgir því þegar börnin byrja að
ganga.
Ég fæ öðru hvoru að máta þær og
kjassa, knúsa þær og passa. Ég geri mér
grein fyrir því að ég er dálítið eins og amman í
hópnum. Þessi sem fær að dekra þær alveg
eins og ég get og þarf ekki að takast á við
svefnlausar nætur eða agalegar kúkasprengjur.
Það er einmitt þetta sem fyllir mig stolti. Stolti yfir
þessum duglegu vinkonum mínum (sem eru alveg jafn
ungar og ég, finnst ég enn 25 ára) sem hefur tekist að
ganga með barn inni í sér í nærri heilt ár. Það, nota
bene, án eins einasta kokteils og jafnvel gubbu upp í
háls. Koma síðan barninu í heiminn og ganga með
heilt mjólkurbú framan á sér. Á meðan hef ég
rassakastast á milli bara og hegðað mér eins og
versti unglingur á köflum. Um leið gegnt mik-
ilvægu hlutverki sem sendiboði slúðurs og
skemmtisagna.
Ég hef ekkert haft á móti þessu hlutverki
en frá og með hausti tók lífið nýjan lit.
Hann var bleikur og lífið eftir því. Bar-
inn má að mestu eiga sig og sófinn hef-
ur tekið við. Lífið er gott í rólega-
heitagír og um daginn í krílakaffi sá
ég enn betur hvað þau gefa lífinu fal-
legan og skæran lit. Sjálf ætla ég nú
samt bara að halda mig við þann
bleika í bili. Ég tími nú ekki að láta
af dýrmæta svefntímanum mínum og
rauðvínsglasinu alveg strax ...
»Eftir langt hlé barneigna í nánustufjölskyldu er ótrúlega skemmtilegt
að fylgjast með litlu kríli vaxa og dafna.
Heimur Maríu
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is