Morgunblaðið - 16.12.2011, Page 12

Morgunblaðið - 16.12.2011, Page 12
Utanlandsferðir ráðuneyta og stofnana þeirra fyrstu níu mánuði ársins Abú Dabí 1 Albanía 3 Andorra 1 Argentína 9 Aserbaídsjan 7 Austurríki 74 Álandseyjar 8 Ástralía 6 Bandaríkin 388 Bangladess 1 Belgía 348 Búlgaría 5 Síle 5 Danmörk 461 Bretland 374 Eistland 28 El Salvador 6 Finnland 263 Frakkland 171 Færeyjar 45 Grikkland 31 Grænland 17 Holland 127 Hong Kong 1 Indland 5 Írland 30 Ísrael 2 Ítalía 100Jamaíka 2 Japan 6 Kanada 59 Kasakstan 2 Kenía 4 Kína 6 Kosta Ríka 4 Króatía 12 Kýpur 4 Lettland 20 Liechtenstein 3 Litháen 12 Líbería 1 Lúxemborg 62 Makedónía 2 Malasía 4 Malta 12 Mexíkó 5 Mósambík 2 Mónakó 1 Noregur 371 Nýja-Sjáland 4 Portúgal 52 Pólland 54 Rússland 13 Singapúr 6 Spánn 88 Suður-Kórea 3 Svíþjóð 330 Taívan 2 Sádí Arabía 1 Tæland 1 Úganda 3 Víetnam 1 Skotland 50 Þýskaland 277 Sviss 72 Tyrkland 23 Slóvenía 6 Ungverjaland 61 Serbía 4 Rúmenía 7 Slóvakía 3 Tékkland 23 Heimild: ÁED Fjöldi utanlandsferða ráðuneyta og stofnana þeirra og heildarferðakostnaður hvers ráðuneytis fyrstu níu mánuði þessa árs Fjöldi Heildarferða- Ráðuneyti ferða kostnaður (kr.) Efnahags- og viðskipta- ráðuneyti 222 85.454.033 Forsætisráðuneyti 26 8.730.505 Fjármálaráðuneyti 199 49.747.273 Iðnaðarráðuneyti 174 42.300.375 Mennta- og menningar- málaráðuneyti 1.404 313.461.735 Innanríkisráðuneyti 396 223.406.822 Sjávarútvegs- og land- búnaðarráðuneyti 260 69.709.345 Umhverfisráðuneyti 333 52.102.211 Utanríkisráðuneyti 574 157.481.182 Velferðarráðuneyti 1.159 229.013.856 Samtals 4747 1.231.407.337 0-10 11-50 51-100 101-200 201-300 301-400 401-500 Heimsóknafjöldi: (Skrifleg svör ráðuneyta) SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Starfsmenn ráðuneytanna og stofn- ana sem undir þau heyra ferðuðust meira en 23 milljónir kílómetra og heimsóttu 76 lönd fyrstu níu mánuði ársins. Ferðakostnaður, þ.e. fargjöld og greiddir dagpeningar, námu um 1,2 milljörðum kr. á þessu tímabili. Þetta má lesa úr svörum ráðuneyt- anna við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar alþingismanns um hve margar utanlandsferðir hafi verið farnar á þeirra vegum og stofnana þeirra fyrstu níu mánuði þessa árs. Einnig til hvaða landa hafi verið farið, í hvaða erindum og hver heildar- kostnaðurinn hafi verið vegna far- gjalda og greiddra dagpeninga. En hvers vegna lagði Ásmundur fram fyrirspurnina? „Við umræður um fjárlagafrum- varpið var því jafnan haldið fram að það væri ekki hægt annað en að skera niður í heilbrigðismálum og velferð- armálum. Ríkisstjórnin sagði að það væri ómálefnalegt að gagnrýna nið- urskurðinn,“ sagði Ásmundur. Hann kvaðst hafa tekið eftir gríðarmiklum ferðalögum á vegum hins opinbera m.a. á fundi, ráðstefnur og sýningar. „Manni sýnist þetta ekki hafa dreg- ist saman eftir hrunið. Það er með ólíkindum að horfa upp á miklar utan- landsferðir vegna Evrópusambands- umsóknarinnar. Mér finnst að um 350 ferðir til Belgíu fyrstu níu mánuði ársins og fleiri ferðir vegna þessarar umsóknar til annarra landa en Belgíu staðfesti að sá kostnaður leggist á öll ráðuneyti og stofnanir þótt hann sé ekki tilgreindur sérstaklega í fjárlög- um,“ sagði Ásmundur. „Ég er ekki sáttur við að það sé skorið harkalega inn að beini, t.d. í heilbrigðismálum jafnvel svo að ör- yggi sé ógnað á ákveðnum landsvæð- um. Þess vegna lagði ég fram þessa fyrirspurn til að kanna hvort ekki væri hægt að skera einhvers staðar annars staðar en í velferðarmálunum. Þetta varð niðurstaðan.“ Spurning um forgangsröðun Ásmundur sagði að nú lægi það fyr- ir að um 1,2 milljarðar hefðu farið í flugfargjöld og dagpeninga fyrstu níu mánuði ársins og utanlandsferðirnar verið vel yfir fjögur þúsund á sömu mánuðum. „Þegar maður sér þessar upplýsing- ar spyr maður sig hvort ríkisstjórnin sé raunverulega að forgangsraða í þágu velferðarinnar, eins og hún hefur jafnan haldið fram. Svörin við þessari fyrirspurn styrkja mig í þeirri skoðun að þessi ríkisstjórn eigi lítið skylt við velferð,“ sagði Ásmundur. Hann greindi ferðalögin nánar og komst að því að búið var að ferðast á vegum hins opinbera fyrstu níu mánuði ársins meira en 23 milljónir km sem samsvar- ar þrjátíu ferðum til tunglsins og aftur til jarðar. Þá kom í ljós að á þessu tímabili voru heimsótt alls 76 þjóðlönd. Oftast var farið til Danmerkur, eða 461 ferð. Næst komu Bandaríkin með 388 ferðir, þá Bretland með 374 ferðir og Noregur með 371 ferð. Ásmundur kvaðst hafa talið að ferðalögin og ferðakostnaður hins op- inbera væru miklu minni en upplýs- ingar ráðuneytanna sýna. „Ég held að það sé full ástæða hjá ríkisstjórninni til að kanna hvort utanlandsferðum hafi fækkað og ferðakostnaður lækkað eins og haldið hefur verið fram. Mann grun- ar að svo sé ekki,“ sagði Ásmundur. Hann kvaðst hafa fullan skilning á því að Ísland þyrfti að eiga samskipti við erlend ríki, það væri hluti af því að vera fullvalda þjóð. En það væri mik- ilvægt á tímum harkalegs niðurskurð- ar í velferðarmálum að horfa til þess hvort ekki væri mögulegt að draga úr þessum kostnaði, rétt á meðan mestu erfiðleikarnir gengju yfir. „Það finnst manni ekki hafa verið gert,“ sagði Ás- mundur. Hann benti á að tækninni hefði fleygt fram í tölvusamskiptum og fjarfundatækni. Kanna mætti með að nýta þá tækni til að draga úr ferða- kostnaðinum. Þrjátíu tunglferðir til 76 landa  Starfsmenn ráðuneyta og stofnana þeirra ferðuðust um 23 milljónir km fyrstu níu mánuði ársins  Heildarferðakostnaður um 1,2 milljarðar  Þingmaður telur þetta of mikið á niðurskurðartímum 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011 Svör ráðuneytanna má sjá á vef Al- þingis. Framsetning þeirra er ekki að öllu leyti samræmd. Sum til- greindu hvað margir fóru í hverja ferð en önnur skráðu ferð hvers og eins sérstaklega, þótt fólk væri að fara á sama fund eða ráðstefnu. Ásmundur Einar Daðason lét leið- rétta fyrir margtöldum ferðum og þá fækkaði þeim í 4.195. Í töflunni eru ferðir og ferða- kostnaður Seðlabankans tekinn með efnahags- og viðskiptaráðu- neyti. Tekið skal fram að ferða- kostnaður hinna ýmsu stofnana kemur ekki eingöngu úr ríkissjóði. Margar ferðir eru greiddar af öðr- um, m.a. ferðakostnaður í Háskóla Íslands upp á um 90 milljónir sem er talinn með í kostnaði mennta- málaráðuneytis. Eins ferðakostn- aður upp á 265 milljónir á reikn- ingi innanríkisráðuneytisins, m.a. vegna þátttöku Landhelgis- gæslunnar í landamæraeftirliti ESB og er endurgreiddur eða greiddur af sértekjum. Þá eru ráð- stefnuferðir samkvæmt kjara- samningum um 90% af ferðum á vegum Landspítalans. Ekki allar greiddar af ríkinu FERÐAKOSTNAÐUR HINS OPINBERA Til allra heimshorna » Flestar ferðir voru farnar til Danmerkur, Bandaríkjanna, Bretlands og Noregs. Evr- ópuríki voru heimsótt einna oftast þegar á heildina er lit- ið. » Fjarlægari heimshorn voru ekki afskipt og var farið á vegum hins opinbera m.a. til Ástralíu, Nýja-Sjálands, Arg- entínu, Bangladess, Síle, Kína, Taívans, Víetnams, Hong Kong, Suður-Kóreu, Japans, Mósambík, Úganda, Abú Dabí og Sádi-Arabíu svo nokkuð sé nefnt. Pakki á pakka Fallegt pakkaskraut hannað af Arca Design Island. Aðrir sem standa að þessu eru Lógóflex og Markó- Merki. Jólatréð verður selt á 500 kr. hjá Arca design, Grímsbæ við Bústaðaveg og fer öll upphæðin óskipt til stuðnings Fjölskylduhjálpar Íslands. Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-17, sun. kl. 13-17 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is 17 ára Verkfæralagerinn Myndlista vörur í miklu ú rvali Strigar, ótal stærðir frá kr.195 Olíu/Acrýl/ Vatnslitasett 12/18/24x12 ml frá kr.495 Acryllitir 75 ml kr.480 Þekjulitir/ Föndurlitir frá kr.480

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.