Morgunblaðið - 16.12.2011, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011
Hjálparstarf kirkjunnar tók á mið-
vikudag við safndiski með þremur
útgáfum af laginu Hjálpum þeim.
Jóhann G. Jóhannsson, annar höf-
unda lagsins, afhenti diskinn. Lagið
hefur aflað mikilla fjármuna til
neyðarstarfs Hjálparstarfs kirkj-
unnar. Það er von allra sem tengj-
ast málinu að nú safnist vel fyrir
neyðaraðstoð í A-Afríku. Um hana
snýst einnig jólasöfnun Hjálp-
arstarfsins enda þörfin mikil og
ástand gríðarlega erfitt, segir á vef
Hjálparstarfsins.
Safndiskur með lag-
inu Hjálpum þeim
Hjálparstarf Jónas Þórir Þórisson og Jó-
hann G. Jóhannsson.
Morgunblaðið/Golli
Karlar á Akureyri og nágrenni
verða fyrstir til að njóta aukinnar
þjónustu við karla sem vilja losna úr
vítahring ofbeldisbeitingar og mun
Kristján Már Magnússon sálfræð-
ingur hafa umsjón með meðferðinni.
Verkefnið Karlar til ábyrgðar er
sérhæft meðferðartilboð fyrir karla
sem beita maka sinn ofbeldi. Sál-
fræðingarnir Andrés Ragnarsson og
Einar Gylfi Jónsson hafa byggt með-
ferðarúrræðið upp og notið til þess
handleiðslu frá Alternativ til vold í
Noregi. Frá því að verkefnið var
endurvakið árið 2006 hafa 140 karl-
ar komið í viðtöl á höfuðborg-
arsvæðinu og fullt hefur verið í hóp-
meðferð sem er einnig í boði.
Karlar til ábyrgðar
STUTT
Í haust auglýsti Krabbameins-
félag Íslands eftir umsóknum um
styrki til vísindarannsókna á
krabbameinum hjá körlum.
Ákveðið var að veita fimm styrki,
samtals að upphæð 2,5 milljónir
króna, sem skiptast þannig að
einn styrkur er ein milljón króna,
tveir styrkir eru 500.000 krónur
og tveir styrkir 250.000 krónur.
Átta umsóknir bárust.
Sigríður Klara Böðvarsdóttir
sameindalíffræðingur hlýtur
1.000.000 kr. styrk til sameinda-
líffræðilegrar greiningar á skæðu
blöðruhálskirtilskrabbameini.
Jón Þór Bergþórsson sameinda-
líffræðingur hlýtur styrk til rann-
sókna á þroskun og krabbameins-
myndun blöðruhálskirtilþekju.
Stefán Þ. Sigurðsson sameinda-
líffræðingur hlýtur styrk til að
rannsaka áhrif stökkbreytinga
ákveðins gens á framvindu
blöðruhálskirtilskrabbameins. Jó-
hanna E. Torfadóttir doktorsnemi
hlýtur styrk til rannsókna á nær-
ingu, lífsháttum og hættu á
krabbameini í blöðruhálskirtli.
Tryggvi Þorgeirsson læknir hlýt-
ur styrk til að rannsaka hvort
magn ákveðins próteins í vefj-
asýnum við greiningu geti sagt
fyrir um horfur í blöðruhálskirt-
ilskrabbameini og bætt ákvörðun
um meðferð.
Styrkur (f.v.) Ásgerður Sverrisdóttir, formaður vísindaráðs Krabbameinsfélagsins, Tryggvi
Þorgeirsson, Stefán Þ. Sigurðsson, Jón Þór Bergþórsson, Sigríður Klara Böðvarsdóttir, Jó-
hanna E. Torfadóttir og Jakob Jóhannsson, varaformaður Krabbameinsfélags Íslands.
Styrkir til rannsókna á karlakrabbameini
Byggingarnefnd hjúkrunarheimilis
á Ísafirði hefur ákveðið að fara í
tveggja þrepa samkeppni um hönn-
un á hjúkrunarheimili sem fyr-
irhugað er að byggja á Ísafirði. Sam-
keppnin verður í samstarfi við
Arkitektafélag Íslands. Á heimilinu
eiga að vera 30 rými og er áætlað að
hjúkrunarheimilið rísi frá grunni
á næstu tveimur árum. Húsið á að
standa að ofanverðu við sjúkrahúsið
á Ísafirði.
Undirbúa hönnun
hjúkrunarheimilis
Sturtusett
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
NAPOLI
hitastýrt
sturtusett
26.900,-
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Sparaðu með Miele
kr.: 24.900
Verðlistaverð kr.: 33.530
Tango Plus er vinsælasta ryksugan frá Miele
Miele ryksugurnar eru traustar
og kraftmiklar, með stillanlegu
röri og úrvali fylgihluta. Þær
hafa hlotið hæstu einkunn hjá
neytendasamtökum í Þýskalandi.
AFSLÁTTUR
Care Collection ryksugupokar
og ofnæmissíur eru sérstaklega
framleidd fyrir Miele ryksugur
Farðu alla leið með Miele
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Ryiad al-Maliki, utanríkisráðherra
Palestínu, kvaðst á opnum fundi í
Norræna húsinu síðdegis í gær
fagna ákvörðun íslenskra stjórn-
valda að viðurkenna sjálfstæði Pal-
estínu og sagði að með henni væri
þrýstingur settur á grannríkin.
Al-Maliki og Össur Skarphéðins-
son, utanríkisráðherra Íslands, stað-
festu fyrr um daginn formlega í
Þjóðmenningarhúsinu upptöku
stjórnmálasambands milli Íslands og
Palestínu. „Ég vona að þessi ákvörð-
un muni verða til þess að önnur lönd
á þessum slóðum geri slíkt hið
sama,“ sagði hann. „Ég veit að ásetn-
ingurinn er til staðar, en hins rétta
tíma er beðið.“ Al-Maliki vísaði þar
til hinna Norðurlandanna. Hann
ítrekaði þó að þrátt fyrir að ekki væri
um stjórnmálasamband við þau að
ræða veittu Norðurlöndin Palestínu-
mönnum mikinn stuðning.
Viðurkenning Palestínu hjá
Unesco, menningarstofnun Samein-
uðu þjóðanna, fyrir þremur dögum
var al-Maliki hugleikin og lét hann
þess getið að í dag héldi hann til Úrú-
gvæ á fund um fríverslunarsamning
við ríkjasambandið Mercosur.
Gerðu könnun fyrirfram
Al-Maliki sagði að Palestínumenn
hefðu ekki í hyggju að hætta við um-
sókn sína um viðurkenningu hjá ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Vissulega væri ljóst að Bandaríkja-
menn hygðust beita neitunarvaldi ef
til þess kæmi að meirihluti vildi sam-
þykkja umsóknina. Fyrirfram hefðu
Palestínumenn gert könnun meðal
ríkjanna í öryggisráðinu og komist
að því að þeir hefðu níu atkvæði og
þar með meirihluta. Bandaríkja-
menn vildu hins vegar allt til vinna til
að þurfa ekki að beita neitunarvaldi
því að það yrði neyðarlegt fyrir þá.
Þeir hefðu því gripið til sinna ráða og
veiki hlekkurinn reynst vera Bosnía
Hersegóvína.
„Bandaríkjamenn hafa drepið
málið án þess að þurfa að beita neit-
unarvaldi,“ sagði al-Maliki og bætti
við: „En við munum endurtaka leik-
inn aftur og aftur, í annað sinn,
þriðja, fjórða, fimmta … allt þar til
við sigrum.“
Morgunblaðið/Golli
Ákveðinn Ryiad al-Maliki, utanríkisráðherra Palestínu, sagði í Norræna húsinu í gær að ekki kæmi til greina að
draga til baka umsókn Palestínumanna um viðurkenningu sjálfstæðis hjá öryggisráðinu.
Viðurkenning setur
þrýsting á grannríki
Al-Maliki segir umsókn í öryggisráði verða haldið til streitu