Morgunblaðið - 16.12.2011, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 16.12.2011, Qupperneq 18
Hótel Eldhestar í Ölf- usi hlutu umhverf- isverðlaun Ferða- málastofu fyrir markvissa umhverf- isstefnu og sjálfbæran rekstur en verðlaunin voru veitt í 17. sinn í gær. Í rökum dóm- nefndar segir m.a. að Eldhestar hafi lengi verið í fremstu röð í umhverfismálum í ís- lenskri ferðaþjónustu en hótelið er fyrsti íslenski gististaðurinn sem fékk alþjóðlega umhverfisvottun, Norræna umhverfismerkið Svaninn, frá júlí 2002-2006 og svo aftur árið 2011. Með Svansvottuninni hafi hót- elið uppfyllt öll nauðsynleg skilyrði til að verðskulda umhverfisverðlaun. Hótel Eldhestar fær umhverfisverðlaun Verðlaun Fulltrúum Eldhesta afhent verðlaunin.  Eru með markvissa umhverfisstefnu 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011 Guðný Kristmanns Hafsteinn Austmann Hallsteinn Sigurðsson Jón Axel Björnsson Ragnar Axelsson Valgarður Gunnarsson Opið um helgina hinrikssongallery er opið laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. desember milli klukkan 13:00 og 18:00. Einnig er hægt að hafa opið á öðrum tímum samkvæmt samkomulagi. Fyrir nánari upplýsingar: www.hinrikssongallery.is hinriksson@hinrikssongallery.is Sími 618 3800 Fiskislóð 31, 101 Reykjavík FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Það blæs ekki byrlega fyrir innan- landsflugi á Íslandi í samgönguáætl- un sem Ögmundur Jónasson innan- ríkisráðherra lagði fyrir Alþingi á miðvikudag. Annars vegar er um að ræða verkefnaáætlun með fjárhags- ramma sem gildir fyrir árin 2011 til 2014 og hins vegar tólf ára sam- gönguáætlun fyrir árin 2011 til 2022 sem felur í sér stefnumótun í mála- flokknum. Í áætluninni til 2014 segir að óverulegt svigrúm sé til viðhalds og framkvæmda við innanlandsflugvelli næstu árin og aðalviðfangsefnið verði að viðhalda mannvirkjum sem ella gangi úr sér. Þannig fær viðhald flugbrauta, brýnasta flugöryggis- búnaðar og flugbrautarljósa mestan forgang. Stefnt er að hækkun lend- ingar- og farþegagjalda á Reykja- víkurflugvelli til jafns við gjöld á Keflavíkurflugvelli. Gæti hækkunin skilað 250 milljónum króna á ári sem nýttar yrðu í nauðsynlegar fram- kvæmdir og viðhald í innanlands- fluginu. Farþegagjald í Keflavík er 1.200 krónur fyrir fullorðna en er 498 krónur í Reykjavík. Óvíst er hvort sú hækkun dugi til því í langtímaáætluninni til 2022 kemur fram að útreikningar Isavia sýni að farþegagjöld í innanlands- flugi þurfi að hækka verulega til að flugvallakerfið geti staðið undir æskilegum fjárfestingum og haldist í óbreyttum rekstri. Ef gjald á hvern farþega ætti að standa undir rekstri og viðhaldi núverandi innan- landskerfis í flugi yrði farþegagjald 5.560 kr. á hvern fullorðinn farþega. Hækka vitagjaldið Í siglingamálaáætlun í fjögurra ára samgönguáætluninni kennir ým- issa grasa. Heildarfjármagn til sigl- ingamála á áætlunartímabilinu 2011-2014 nemur tæpum 6,8 millj- örðum króna. Af því er rúmlega einn milljarður í vitagjald sem innheimt er eftir stærð skipa og á það að standa undir rekstri Siglingastofn- unar. Gert er ráð fyrir að vitagjaldið hækki um fimm prósent frá og með 1. janúar 2012 í samræmi við verð- lagsbreytingar. Eins og er nemur vitagjald 130,12 krónum á hvert brúttótonn skips en þó aldrei lægra en 4.900 krónur. Búi sig undir sjávarflóð Þá er kveðið á um að rúmum hálf- um milljarði króna verði varið í sjó- varnir. Víða séu sjóvarnargarðar orðnir fimmtán til tuttugu ára gaml- ir og þarfnist endurbyggingar og styrkingar. Við útdeilingu fjármagns til þess- ara verkefna er stuðst við forgangs- röðunarlíkan Siglingastofnunar og er stærsta verkefnið sagt vera fyrsti áfangi sjóvarnargarðs við Vík í Mýr- dal sem unnið var að á þessu ári. Það er þó varað við því að fram- kvæmdaþörfin gæti aukist ef sjávar- flóð verða en búast megi við stór- flóðum á tíu til tuttugu ára fresti. Um tuttugu ár eru frá síðasta stór- flóði suðvestanlands en tólf til fjórtán ár á Norðurlandi. Frá því að Landeyjahöfn var tekin í notkun hafa dýpkunarskip átt annríkt við að dýpka hafnarmynnið til að Herjólfur geti siglt þar inn. Gert er ráð fyrir 1,05 milljörðum í framkvæmda- kostnað á næstu þremur árum og að honum verði að mestu varið í viðhalds- dýpkun. Hærra gjald dugar skammt  Fé skortir í viðhald og framkvæmdir við innanlandsflugið  Óvíst hvort hækkun farþegagjalds dugi  Hálfur milljarður í sjóvarnargarða á næstu þremur árum og vitagjald hækkað um 5% um áramótin Morgunblaðið/Ernir Farþegar Í samgönguáætlun er lögð til hækkun gjalda á Reykjavíkur- flugvelli en tölur Isavia sýna að hún hrekkur ekki til fyrir kostnaði. Samkvæmt 5. grein laga um samgönguáætlun, nr. 33/2008, á innanríkisráðherra að skila skýrslu um framkvæmd sam- gönguáætlunar næstliðins árs til Alþingis. Það hefur enn ekki verið gert en samkvæmt upp- lýsingum frá innanríkisráðu- neytinu var verið að leggja loka- hönd á skýrsluna um fram- kvæmd samgönguáætlunar ársins 2009 í gær. Stóð til að hún yrði send Al- þingi í dag. Það er þó ekki víst að henni verði dreift til þing- manna strax í dag þar sem mik- ið álag er á Alþingi þessa dag- ana. Gæti það því frestast fram yfir helgi að skýrslunni yrði dreift. Skýrsla ráðherra í fyrra var sú fyrsta þar sem teknar voru saman allar samgöngu- greinarnar þrjár; flug-, siglinga- og vegamál en áður kom út ein skýrsla fyrir hverja grein. Send til Al- þingis í dag SKÝRSLA UM FRAMKVÆMD Ögmundur Jónasson Morgunblaðinu hefur borist eftirfar- andi tilkynning frá Arion banka: „Arion banki hafnar alfarið þeim aðdróttunum sem settar hafa verið fram í fjölmiðlum í dag og lúta að vangaveltum um ólögmæt innherja- viðskipti í tengslum við nýyfirstaðið úboð Haga. Verðbréfaviðskipti innherja lúta mjög ströngum skilyrðum skv. lög- um um verðbréfaviðskipti. Verð- bréfaviðskipti starfsmanna Arion banka eru háð samþykki regluvarð- ar bankans. Reglum samkvæmt úti- lokaði regluvörður þá starfsmenn bankans frá þátttöku í útboði Haga sem hugsanlega gátu haft verðmót- andi vitneskju sem ekki kom fram í útboðslýsingu, þ.e. þá starfsmenn sem töldust innherjar. Útboðslýsing vegna útboðs Haga var ítarleg og innihélt allar upplýs- ingar sem lágu fyrir við útgáfu henn- ar og voru fjárfestum nauðsynlegar við mat á félaginu. Vissulega hefði verið betra að þær viðbótarupplýs- ingar sem komu fram síðar og gerð var grein fyrir í viðauka hefðu legið fyrir við útgáfu útboðslýsingarinnar. Íslensk löggjöf inniheldur skýr ákvæði um hvernig skuli brugðist við ef verðmótandi upplýsingar koma fram eftir birtingu lýsingar og var þeim ákvæðum fylgt að öllu leyti. Í viðaukanum kom fram að Hagar ættu rétt á 510 milljóna króna end- urgreiðslu vegna endurútreiknings gengistryggðra lána sem gerð höfðu verið upp árið 2009. Endurreikning- ur lánanna er tilkominn vegna dóms Hæstaréttar í máli Mótormax. End- urgreiðslan jafngildir um 3% af and- virði heildarhlutafjár Haga þegar tekið er mið af endanlegu útboðs- gengi. Um var að ræða jákvæðar fréttir fyrir félagið.“ „Hafnar aðdróttunum vegna útboðs Haga“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.