Morgunblaðið - 16.12.2011, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.12.2011, Blaðsíða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011 Ný stendur sýning á verkum Bjargar Atla í Menningarsal Hrafnistu í Hafnarfirði. Á sýn- ingunni eru 19 nýleg akrýl- málverk, litrík verk og ljóðræn í óhlutbundnum expression- ískum stíl. Sýningin stendur til 3. janúar og er öllum opin frá kl. 14.30 til 19. Björg útskrifaðist úr mál- aradeild Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands 1982. Hún hef- ur verið með eigin vinnustofu síðan 1982 og kenndi málun á námskeiðum í Myndlistaskólanum í Reykjavík 1982-87. Þetta er fyrsta einkasýning Bjargar á árinu, en hún hefur tekið þátt í þremur samsýningum á vegum Grósku. Myndlist Björg sýnir á Hrafnistu Björg Atla Jón Svavar Jósefsson óperu- söngvari og jazzkvartettinn Ferlíki leika jazz- og dægurlög úr ýmsum áttum á Café Haiti næstkomandi laugardag. Ferlíki kemur fram í nokkuð breyttri mynd þar sem trommuleikarinn Magnús Tryggvason Eliassen á ekki heimangengt, en í hans stað kemur trompetleikarinn Ragn- hildur Gunnarsdóttir. Aðrir Ferlíkismenn verða á sínum stað; Ásgrímur Ang- antýsson leikur á píanó, Jón Ómar Árnason á gít- ar og Þórður Högnason á bassa. Skammt er síðan Jón Svavar tróð upp með Ferlíki á Rósenberg. Tónleikarnir hefjast kl. 21. Tónlist Jón Svavar og Ferlíki á Café Haiti Jón Svavar Jósefsson. Ragna Sigurðardóttir mynd- listargagnrýnandi og rithöf- undur tekur þátt í spjalli um sýningu Daða Guðbjörnssonar Á slóðum Ódysseifs, en hún skrifar texta um verk og feril Daða í bók sem Opna gaf út samhliða sýningunni. Sýningin er tvískipt, annars vegar verk sem Daði hefur málað á undanförnum þremur árum og hins vegar eldri verk frá 1998-2008. Daði hóf feril sinn þegar „Nýja málverkið“ svokallaða kom fyrst fram á Íslandi og einkennast eldri verk hans af hrárri og sjálf- sprottinni framsetningu, en stíll hans hefur þróast í átt að mýkri og fágaðri tjáningarmáta. Myndlist Ragna spjallar um Daða og Ódysseif Ragna Sigurðardóttir Listamaðurinn Ólafur Elíasson hef- ur ákveðið að bjóða stjórnmála- mönnum í Berlín styrk til náms við stofnun sína um rýmistilraunir. „Ég vil bjóða upp á annan námskost vegna þess að ég tel að list eigi að hafa áhrif á heiminn,“ segir Ólafur um framtak sitt í samtali við þýska vikuritið Der Spiegel. „Það er ekki fyrr en við getum losað okkur við hina ræktuðu fjarlægð hefðbund- inna listháskóla á heiminn sem við getum komið á raunverulegu sam- bandi við hann. Það á vitaskuld einnig við um stjórnmálin og for- vígismenn þeirra.“ Hann segir að í náminu sé áhersla lögð á gagnrýna hugsun, tilraunir og umræður. Í náminu séu gerðar sömu kröfur og búast megi við í venjulegu há- skólanámi. Síðan eigi stjórn- málamennirnir rétt eins og lista- menn, sem sæki námið, að búa yfir sannfæringu um að hægt sé að breyta heiminum. Ólafur er spurð- ur hvort hann telji að skorti á list- ræna menntun stjórnmálamanna. Svar hans er stutt: „Já.“ Stofnun Ólafs tengist listaháskól- anum í Berlín. Á heimasíðu segir að þar sé ekki boðað rof við allt sem á undan er komið. „Öllu heldur styðj- um við hægfara byltingar. Þegar afgerandi breytingar gerast á vett- vangi hins smáa geta þær með tím- anum breytt heilu samfélagi eða heimssýn.“ Morgunblaðið/Þorkell Styrkir Ólafur Elíasson vill opna augu stjórnmálamanna í Berlín. Býður póli- tíkusum námsstyrk  Ólafur Elíasson býður styrk til náms Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Sagan upp á hvern mann nefnist bók eftir Rósu Þorsteinsdóttur, rannsókn- arlektor hjá Árnastofnun, sem nýverið kom út hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Í bókinni er fjallað um heimssýn í ævintýrum og sagna- sjóðum átta Íslendinga sem valdir voru úr hópi þeirra fjölmörgu sem sagt hafa ævintýri sín og sögur inn á segulbönd sem varðveitt eru í þjóðfræðisafni stofn- unarinnnar. Að sögn Rósu hefur hún unnið við þjóðfræðisafnið frá árinu 1994 og fékk fljótlega áhuga á ævintýrum. „Við bú- um svo vel hérlendis að eiga upptökur af ævintýrum, en í flestum nágranna- löndum okkar hafa fræðimenn skoðað ævintýrin einvörðungu sem ritaða texta,“ segir Rósa og bendir á að lengi hafi verið talið að ævintýri væru í afar föstum skorðum og alltaf sögð með sama hætti. „En þegar þjóðsagna- fræðingar fóru að beina sjónum sínum að sagnafólkinu sjálfu kom í ljós að svo er ekki og íslensku upptökurnar stað- festa að sögurnar taka breytingum í hvert sinn sem þær eru sagðar.“ Útrás fyrir drauma og þrár „Önnur tilgáta erlendra fræði- manna gengur út á að ævintýri séu sagnagrein fátæka fólksins, sem fái útrás fyrir drauma sína og þrár í æv- intýrunum,“ segir Rósa og tekur fram að rannsókn hennar hafi ekki staðfest þetta nema að hluta. „Þannig kom það mér á óvart að allar kon- urnar sex sem ég valdi voru aldar upp á vel stæðum sveitaheimilum og hlutu meiri menntun en algengt var með stúlkur sem fæddar voru um alda- mótin nítjánhundruð. Karlarnir tveir voru hins vegar aldir upp í mikilli fá- tækt og gafst ekki færi á skólagöngu. Það er ljóst að öll hefðu þau viljað mennta sig meira ef tækifæri hefði gefist, þannig að kannski má segja að ævintýrin séu sagnagrein þeirra sem hefðu viljað verða eitthvað meira en aðstæður þeirra buðu upp á,“ segir Rósa. Tekur hún fram að val hennar á sagnafólki hafi stjórnast af því hversu mörg hljóðrituð ævintýri voru til með viðkomandi, en oftast voru 10- 20 ævintýri til hljóðrituð með hverj- um og einum sagnamanni bók- arinnar. Meðal þess sem Rósa leitar svara við í bók sinni er hvort náttúrlegt eða félagslegt umhverfi endurspeglist í ævintýrunum sem sagnafólkið velur að segja. Æviskeið fólksins var því kannað og sagnasjóður hvers og eins gaumgæfður. „Niðurstaðan er sú að ævintýrin geta endurspeglað lífs- viðhorf, gildismat og lífsreynslu fólksins sem segir þau og til þess að komast nær merkingu ævintýranna skiptir verulegu máli að þekkja ævi sagnafólksins sem segir þau og um- hverfið sem það bjó í,“ segir Rósa. Spurð hvort ævintýrin beri þess merki að vera sögð af Íslendingum segir Rósa að þó yfirleitt megi tengja ævintýrin við alþjóðleg sagnaminni þá hafi þau langoftast fengið á sig ís- lenskan blæ. „Þannig minnir kon- ungsríkið á stórbýli þar sem kotið er hjáleigan og umhverfið verður allt mjög kunnuglegt,“ segir Rósa og tek- ur fram að allir hafi gott af því að lesa og hlusta á ævintýri. Þess má geta að úrval sagnanna er prentað í bókinni, en einnig er hægt að hlusta á sög- urnar á vefnum:www.arnastofnun.is/ saganuppahvernmann. Ævintýraheimur Rósa Þorsteinsdóttir rannsóknarlektor við Árnastofnun. Ævintýrin endurspegla lífsreynsluna Þjóðfræðisafnið » Í ársbyrjun 2008 mátti finna 475 upptökur af ævintýrum í þjóðfræðisafni Árnastofnunar. » Ævintýrin voru í frásögn 155 einstaklinga. » Alls voru 396 ævintýri sögð af konum og 79 sögð af karl- mönnum. » Hallfreður Örn Eiríksson, Jón Samsonarson og Helga Jóhannsdóttir söfnuðu stærst- um hluta safnsins á árunum 1963-75.  Sagnasjóður átta Íslendinga skoð- aður í bókinni Sagan upp á hvern mann Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju verða haldnir nú um helgina og með- al annars frumflytur Eivør Páls- dóttir nýtt jólalag sitt á tónleik- unum. Ásamt Kór Langholtskirkju syngur Gradualekór Langholts- kirkju. Jón Stefánsson stjórnar. Lag Eivarar, sem hún nefnir Jóla- minnir, vitraðist henni í draumi fyrir stuttu og hún tileinkar það öllum sem ekki eru með okkur lengur og við söknum sérstaklega á jólunum. Hún hefur sérstaklega í huga föður sinn sem lést á árinu. Kórar Langholtskirkju flytja jóla- lög hvor fyrir sig og einnig saman. Gestakór verður Táknmálskórinn. Hljóðfæraleik annast Hallfríður Ólafsdóttir og Arna Kristín Ein- arsdóttir á flautur, Monika Abend- roth á hörpu og Lára Bryndís Egg- ertsdóttir á orgel. Einnig leika þeir Kjartan Valdemarsson á píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa og Pétur Grétarsson á trommur. Einsöngvarar eru Andri Björn Róbertsson, Eivør Pálsdóttir, Guð- rún Matthildur Sigurbergsdóttir og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Einnig syngja kórfélagar úr Gradualekór Langholtskirkju einsöng. Alls verða fernir tónleikar að þessu sinni, hinir fyrstu í kvöld kl. 23, þá á morgun, laugardag, kl. 20 og 23 og loks á sunnudag kl. 20. Jólasöngvar í Langholtskirkju Jólalög Kór Langholtskirkju heldur Jólasöngva sína í þrítugasta og fjórða sinn í kvöld, annað kvöld og á sunnudag.  Frumflutt nýtt jólalag Eivarar Pálsdóttur Fyrir stuttu kom út bókin Stórlaxar eftir Þór Jónsson og Gunnar Bend- er. Í bókinni er rætt við sjö lands- þekkta veiðimenn, karla og eina konu, sem Gunnar segir eiga það sameiginlegt að vera veiðimenn en sum hafi meiri áhuga á silungs- en laxveiðum. Hann segist hafa gert áþekka bók með Eggerti Skúlasyni fyrir tuttugu og fimm árum og tími til kominn að gera aðra slíka enda hafi margt breyst frá þeim tíma. „Bæði er sportveiði orðin meiri al- menningsíþrótt og svo eru líka kon- ur jafnt sem karlar að veiða í dag, en það voru eiginlega bara karlar áður fyrr.“ Einnig segir Gunnar að sumir viðmælendur þeirra séu þekktir fyrir annað en veiðiskap og nefnir Kristin Sigmundsson og Njörð P. Njarðvík sem dæmi um það. „Við reyndum að hafa sem ólíkasta viðmælendur í bókinni og einnig að ræða við veiðimenn sem stunda jafnt silungsveiði sem lax- veiði þó að bókin heiti Stórlaxar.“ Rætt við lands- þekkta veiðimenn  Viðtöl um silungs- og laxveiði Stórlaxar Gunnar Bender ræddi við lax- og silungsveiðimenn. Í söngleiknum verður forsaga Powers tekin fyrir, sögusviðið Lundúnir á sjöunda áratugnum39 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.