Morgunblaðið - 16.12.2011, Page 39
Vefurinn Hollywood Reporter
greinir frá því að leikarinn Mike
Myers sé að vinna að söngleik um
breska njósnarann Austin Powers,
persónuna sem hann lék í þremur
gamanmyndum. Í söngleiknum
verður forsaga Powers tekin fyrir,
sögusviðið Lundúnir á sjöunda ára-
tugnum, og ljósi varpað á hvernig
Powers öðlaðist „mojo“-ið. Myers
mun ekki leika í söngleiknum og
fylgir ekki sögunni hver muni fara
með hlutverk Powers.
Stuð Myers í hlutverki njósnarans
skemmtanaglaða, Austin Powers.
Austin Powers söngleikur
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
MISSION IMPOSSIBLE 4 Sýnd kl. 7 -10 (Power)
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 Sýnd kl. 4 (700kr.) - 6
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN 3D Sýnd kl. 4 (950kr.) - 6
BLITZ Sýnd kl. 8 -10:15
RUM DIARY Sýnd kl. 8 -10:30
ARTÚRBJARGARJÓLUNUM 3D Sýnd kl. 4 (950kr.)
ÞAR SEM LÖGIN TAKA ENDA
HEFST RÉTTLÆTIÐ
HÖRKU
SPENNUMYND
ÍSLENSKT
TAL
FRÁ ÞEIM SÖMU OG
FÆRÐU OKKUR SHREK
OG KUNG FU PANDA
FRÁBÆR TEIKNIMYND
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
-THE HOLLYWOOD
REPORTER
HHHH
ÍSLENSKT
TAL88/100
-CHICAGO SUN TIMES
TOM CRUISE, SIMON PEGG,
PAULA PATTON OG JEREMY RENNER
Í BESTU HASARMYND ÁRSINS!
ÍSLENSKT
TAL
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 6 12
THE RUM DIARY KL. 8 - 10.10 12
MONEYBALL KL. 8 - 10.20 L
JACK AND JILL KL. 6 L
-F.G.G., FBL.
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 6 - 8 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 5.50 L
TROPA DE ELITE KL. 8 - 10 6
IMMORTALS 3D KL. 10.30 16
JACK AND JILL KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
IN TIME KL. 8 - 10.30 12
ELDFJALL KL. 5.45 L
Sjáðu nýja
myndbandið með
JUSTIN BIEBER
í þrívídd á undan
myndinni!
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.40 - 5.50 - 8 L
MISSION IMPOSSIBLE 4 KL. 6 - 8 - 10.50 16
MISSION IMPOSSIBLE 4 LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.50 16
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN 3D KL. 3.40 - 5.50 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 3.40 - 5.50 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM KL. 3.40 L
IMMORTALS 3D KL. 10.10 16
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 9 - 10.10 7
JACK AND JILL KL. 8 L
92% ROTTENTOMATOES
JÓLAMYNDIN 2011
Mission Impossible: Ghost Protocol
Fjórða kvikmyndin í Mission: Imp-
ossible-syrpunni. Ethan Hunt, sá
sem fer fyrir sérþjálfuðu liði innan
bandaríku leyniþjónustunnar, IMF
( Impossible Missions Force ) er
bendlaður ásamt fylgismönnum
sínum við mannskæða hryðjuverka-
árás í Moskvu og ákveða bandarísk
stjórnvöld að leggja IMF niður þar
til botn fæst í málið. Hunt og menn
hans eru alsaklausir og takast á
hendur nær ómögulegt verkefni, að
koma í veg fyrir að brjálæðingur
sendi kjarnorkusprengju á Banda-
ríkin. Gagnrýni um myndina má
finna á bls. 40 í blaðinu í dag.
Leikstjóri myndarinnar er Brad
Bird og með helstu hlutverk fara
Tom Cruise, Jeremy Renner, Josh
Holloway og Paula Patton.
Metacritic: 75/100
Alvin og íkornarnir 3
Íkorninn Alvin og félagar hans
Símon og Theódór eru hér mættir í
þriðja sinn. Að þessu sinni halda
þeir með Davíð, manninum sem tók
þá að sér, í siglingu á skemmti-
ferðaskipi. Íkornarnir fara að leika
sér með flugdreka en verða fyrir
því óhappi að dragast með honum
frá borði og enda þeir á eyju. Eru
þá góð ráð dýr. Myndin er sýnd
með íslensku tali og með helstu
hlutverk í talsetningunni fara Orri
Huginn Ágústsson, Atli Rafn Sig-
urðarson, Víðir Guðmundsson,
Ólafur S.K. Þorvaldz og Bjartmar
Þórðarson. Aðalleikarar i mynd-
inni, þeir sem leika á móti hinum
teiknuðu íkornum, eru Jason Lee,
Amy Poehler, Justin Long og Ann-
ar Faris. Leikstjóri er Mike Mitch-
ell.
Metacritic: 11%
Í Bíó Paradís verða engar kvik-
myndir frumsýndar í dag en sýn-
ingar hefjast á kvikmyndinni Eld-
fjall og Rare Exports verður
endursýnd.
Bíófrumsýningar
Úrvalslið og
íkornar í klípu
Íkornastuð Úr kvikmyndinni Alvin og íkornarnir 3 sem sýningar hefjast á í
dag. Íkornarnir komast í hann krappan og lenda fyrir slysni á eyju.
Geturðu lýst þér í fimm orðum?
Hress, hugmyndarík, ástríðufull, sérvitur og ákveðin.
Hvort eru móálótt eða bleikálótt hross fallegri? (spyr síð-
asti aðalsmaður, Kristján Bjarki Jónasson)
Bleikálótt, ég er svo veik fyrir svartri mön í faxi.
Hver er uppáhaldsrithöfundurinn þinn?
Ég les ekki bækur, kannski seinna.
En hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn?
Þetta er nú heldur ósvaranleg spurning en
þeir sem hafa haft áhrif á mig eru t.d. Ro-
gers Waters, Claude Debussy, Jón Nor-
dal, Bob Dylan, Ozzy Osbourne, Chet
Baker, Frank Zappa … ég gæti haldið
endalaust áfram og er eflaust að
gleyma þeim mikilvægustu.
Hver er tilgangur lífsins?
Það fer nú eftir því hvernig á
það er litið. Tilgangurinn með
mínu lífi er að læra, kenna
öðrum, hafa áhrif á aðra
einstaklinga og auðvitað
að hafa gaman.
Hver er sætasti með-
limurinn í Sykri?
Kristján.
Ef þú værir ekki í
músíkbransanum,
hvað værir þú þá að
gera?
Í myndlist eða eig-
andi óþekkts flug-
félags í Suður-
Afríku.
Færðu þér sykur í
kaffið?
Ég vil mitt kaffi
svart og sykurlaust.
Ég innbyrði minn sykur á annan hátt.
Getur þú lýst dansstíl þínum á djamminu?
Fer eftir því hvort ég sé á sveittu djammi eða fínu
djammi. Á sveittu djammi þá hoppa ég og skýt hönd-
unum á bjánalegan hátt út í loftið í takt við áherslur í
textanum sem ég reyni að garga með en á fínu djammi
þá nota ég jafnvægið milli axla og mjaðma til að dilla
mér pent frá hægri til vinstri.
Hvað finnst þér um sætuefni?
Helvítis kjaftæði, hreinan sykur, takk.
Ertu rokkstjarna?
Já.
Hvað nærðu mörgum armbeygjum?
Eins mörgum og ég vil.
Hvað færðu ekki staðist?
Bleika molann í Mackintosh.
Áttu þér leyndan hæfileika og ef
svo er þá hvern?
Já, get sungið eins og
Shaggy og Anastacia.
Múm eða Sigur Rós?
Múm á veturna en Sigur
Rós á sumrin.
Sushi eða mexíkóskt?
Mexíkóskt, fílaða sterkt
og sveitt.
Hvað fær þig til að
skella upp úr? Sér-
stakar týpur og fyrir-
sjáanlegar aðgerðir
þeirra.
Hvers viltu spyrja
næsta aðalsmann?
Hvert væri töku-
nafn þitt ef þú vær-
ir heimsfrægur
rappari?
Hreinan sykur, takk
Aðalsmaður vikunnar er Agnes Björt Andradóttir, söngkona
hljómsveitarinnar Sykur, sem kemur fram á Jólaplöggi
Record Records á Nasa í kvöld, ásamt fleiri hljómsveitum.
Hæfileiki Agnes Björt getur
sungið eins og Shaggy og
Anastacia. Ekki amalegt það.