Morgunblaðið - 16.12.2011, Side 40

Morgunblaðið - 16.12.2011, Side 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011 100/100 „MERRILY OUTRAGEOUS, OVER-THE-TOP FUN“ -ENTERTAINMENT WEEKLY 88/100 „FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ HASARATRIÐUM SEM MINNA EINNA HELST Á LJÓÐLIST“ -CHICAGO SUN TIMES 80/100 „MISSION: IMPOSSIBLE 4 ER SVO VEL GERÐ AÐ ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ HANA OFTAR EN EINU SINNI TIL AÐ NÁ AÐ META HANA AÐ FULLNUSTU“ -BOXOFFICE MAGAZINE NÚMERUÐ SÆMIÐASALA Á S á allar sýningar merktar með grænu SPARSPARBÍÓ 1.000 kr. SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI 3D MÖGNUÐ ÞRÍVÍDDARMYND KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI TOM CRUISE, SIMON PEGG, PAULA PATTON OG JEREMY RENNER Í BESTU HASARMYND ÁRSINS! Leikarinn Tom Cruise beraldurinn vel, verður fimm-tugur á næsta ári en djöfl-ast enn og hamast í has- armyndum eins og hann sé á þrítugsaldri. Karlinn er í fantaformi, svo mikið er víst. Í fjórðu Mission: Impossible-kvikmyndinni fer hann enn og aftur með hlutverk Ethans Hunts, forsprakka úrvalssveitar á vegum bandarískra stjórnvalda sem falin eru verkefni sem virðist ómögulegt að leysa og heitir sveitin því skondna nafni Impossible Mis- sion Force, skammstafað IMF. Í upphafi myndar er einn liðs- manna IMF myrtur af leigumorð- ingja á vegum huldumanns sem nefndur er Cobalt. Víkur þá sögunni að Hunt sem situr í rússnesku fang- elsi (undir lok myndar kemur í ljós af hverju) en er bjargað þaðan af fé- lögum sínum í IMF með miklum klækjabrögðum. Næsta verkefni IMF er að komast inn í Kreml í Moskvu og ná þaðan upplýsingum um hver þessi Cobalt sé. Hunt og fé- lagar lenda þar í miklum hremm- ingum því engar eru upplýsingarnar og Cobalt stelur tösku sem hefur að geyma stjórnbúnað fyrir rússneskar kjarnorkuflaugar. Því næst sprengir hann Kreml í loft upp og lætur líta út fyrir að Hunt og félagar standi á bak við ódæðið. IMF þarf að fara huldu höfði en hinn grjótharði Hunt er ekki á því að gefast upp og tekst á við enn eitt óleysanlega verkefnið með félögum sínum, að koma í veg fyrir að brjálæðingurinn Cobalt hrindi af stað kjarnorkustyrjöld. Til þess þarf hann skotkóða sem leigu- morðinginn fyrrnefndi hefur í vörslu sinni sem og aðgang að gervihnetti. Cobalt reynist vera sænskur kjarn- orkuvísindamaður og heldur tæpur á geði þar sem hann telur kjarn- orkustyrjöld nauðsynlega þróun mannkyns. Hefst þá mikið kapp- hlaup við tímann hjá Hunt og fé- lögum, koma þarf í veg fyrir að brjálæðingurinn fái kóðana í hendur og beita þarf þá ýmsum brögðum. Söguþráður myndarinnar er ekki upp á marga fiska og illmennið ansi klisjukennt, brjálæðingur sem hyggst tortíma heiminum í James Bond-stíl. Illmenni þetta er auk þess tilkomulítið í höndum sænska leik- arans Mikaels Nyqvist, hann er gaddfreðinn í þau fáu skipti sem honum bregður fyrir í myndinni. Engu að síður er áhorfandanum haldið við efnið með mögnuðum has- aratriðum og fer Cruise mikinn í þeim, klýfur menn í herðar niður og hleypur eins og skrattinn sé á hæl- unum á honum stóran hluta myndar. Eitt hasaratriði ber sérstaklega að nefna sökum glæsileika en í því klíf- ur Hunt hæstu byggingu heims, Burj Khalifa í Dubai. Cruise mun í raun og veru hafa hangið utan á byggingunni og leikið í atriðinu, ljóst að hann þjáist ekki af lofthræðslu. Myndatakan er hreint mögnuð í þessu atriði og undirritaður fékk hreinlega í magann við að horfa á Cruise gallharðan á ystu nöf. Inn í þennan mikla Mission: Imp- ossible-hasarpakka er reglulega skotið smágríni, Pegg sér einkum um það enda leikur hann hlægilega tækninördinn í sérsveitinni. Þá er gert grín að föstum liðum mynd- anna, t.d. því að skilaboð eyðist sjálf- krafa og hátæknigræjurnar bila á ögurstundu. Tilfinningasemi undir lokin skemmir töluvert fyrir annars fínni hasarmynd sem og fyrirsjáan- legur og lítt spennandi endir. En leikstjórinn Brad Bird á mikið lof skilið, þetta er hans fyrsta leikna kvikmynd sem er merkilegt í ljósi þess hversu fagmannlega hún er unnin og hasaratriðin lýtalaus. Bird á að baki lofsungnar teiknimyndir, m.a. The Iron Giant og Ratatouille, og greinilegt að hasarmyndir liggja jafn vel fyrir honum. Ógnvekjandi Cruise utan á hæstu byggingu heims í fjórðu Mission: Impossible-kvikmyndinni. Cruise hékk í raun og veru utan á byggingunni en öryggis var að sjálfsögðu gætt í hvívetna. Lofthræddir áhorfendur haldi sér fast. Flottur hasar, þunn saga Sambíóin Mission: Impossible – Ghost Protocol bbbmn Leikstjóri: Brad Bird. Aðalhlutverk: Tom Cruise, Simon Pegg, Jeremy Renner, Paula Patton og Mikeal Nyqvist. Banda- ríkin, 2011. 133 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Þessi „ljómandi“ góða jólaplata kom eiginlega inn á borð til mín eins og þruma úr heiðskíru lofti eða eigum við kannski frekar að segja að hún hafi fallið á það ljúflega, líkt og ókennileg en býsna snotur snjóflaga? Hinn lítt þekkti Ólafur Már Svavarsson legg- ur hér upp með ljúfa og hátíðlega jólaplötu sem skírskotar skamm- laust og mjög svo meðvitað til for- tíðarinnar. Þegar best lætur svífa þeir kappar Bing Crosby og Nat King Cole ljóslifandi yfir hátíðlegum vötnum og Ólafi tekst að knýja fram þessa indælu, hjúfrandi stemningu sem við þekkjum úr þessum allra klassískustu amerísku jólalögum. Ólafur styðst þó við ný íslensk lög – sem er svo rúllað inn í þennan for- tíðarpakka – og hafi hann þökk fyrir að koma með ný lög í stað þess að rölta um þessi gamalkunnugu. Þetta er plötunni mikill styrkur. Platan dalar þó þegar þessari stemningu sleppir, lög eins og „María og Jósep“ sem hann syngur ásamt Valgerði Guðnadóttur og „Leiðin heim“ passa t.a.m. ein- kennilega við þennan fortíðar- ramma sem er utan um flest lögin hérna. Heilt yfir er þetta þó hið fram- bærilegasta verk og vel það. Ekkert er til sparað í hljóðfæraleik og um- búnaði öllum og ég spái því að Ólaf- ur eigi ekki eftir að vera svo lítt þekktur í kjölfar hennar. Manstu gamla daga? Ólafur Már Svavarsson Ljómandi jól bbbmn Arnar Eggert Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.