Morgunblaðið - 16.12.2011, Síða 41

Morgunblaðið - 16.12.2011, Síða 41
Yfirlit yfir nýút- komnar íslenskar barna- bækur. Fiðlan sem vildi verða fræg bbnnn Haraldur S. Magnússon Myndir: Karl J. Jónsson. Óðinsauga 2011. Hér segir frá fiðlu sem leitar að hin- um eina sanna listamanni til að leika á sig. Hún þráir að verða tal- in besta fiðla í öll- um heiminum. Fiðlan ferðast milli eiganda í aldarað- ir en enginn kann að ná því besta út úr henni. Aumingja fiðlan verður gömul en trúir samt sem áður á að einn daginn birtist fiðlusnillingurinn. Svo rennur örlagastundin upp og hin- ir hljómþýðu tónar hrífa hvern þann sem heyrir. Fiðlan nær því markmiði sínu að verða fræg. Sagan er í anda barnabóka eins og Græna hattsins auk ævintýra þar sem beðið er eftir riddaranum á hvíta hestinum. Sagan er aftur á móti svo- lítið einsleit, biðtími fiðlunnar er of langur og lítið gert svo úr því þegar hún loksins finnur sinn fiðlusnilling. Myndirnar eru einfaldar en þær eru svolítið „fullorðins“, á þeim sjást að- eins eldri menn. Auk þess hefði mátt sleppa því að hafa fiðluna með sítt hár þó það sé líklega gert til að undir- strika að fiðlan er kvenkyns. Á hana leika aðeins karlmenn og fiðlusnill- ingurinn hjúfrar sig að henni eins og elskunni sinni, hann er prinsinn hennar og fiðlan þráir að renna sam- an við hann í eina sál. Sagan er einföld, textinn ágætur og boðskapur sögunnar, að fylgja draumum sínum staðfastlega eftir, hvetjandi fyrir börn. Litla ljúfa Skrímsla bbbmn Huginn Þór Grétarsson Myndir: Agung Wulandana Óðinsauga 2011 Í Litla ljúfa Skrímsla segir frá Skrímslu, sem er nú bara hún Anna litla, sem lætur stundum hafa svo- lítið mikið fyrir sér. Hún vekur pabba sinn á nóttunni með allskonar veseni, þá sullar hún matnum sínum út um allt, lætur köttinn ofan í kló- settið og grætur og bítur. Skrímsla er uppátækjasöm eins og óvitar eru. Pabbi hennar á erfitt með að hemja hana og þarf að þola ýmislegt. En það er allt í lagi því hann elskar Srímslu sína og vill allt fyrir hana gera. Þetta er einföld og skemmtileg saga fyrir yngstu börnin. Teikningarnar eru nútímalegar, litríkar og fínar. Textinn stuttur og skýr. Það eiga all- ir eftir að hafa gaman af að lesa þessa bók saman, börnin geta auðveldlega sett sig í spor Skrímslu og foreldr- arnir pabbans. Rafael: Engillinn sem valdi að koma til jarðar bbbbn Ásthildur Bj. Snorradóttir Myndir: Bjarni Þór Bjarnason Talstúdíó Ásthildar 2011 Rafael er lítill hamingjusamur engill. Honum líð- ur illa að sjá þján- ingju barnanna sem búa á jörðinni og fær leyfi til þess að heimsækja jörðina. Hann vill kenna börnunum að þekkja góðar til- finningar og velja rétt. Hann dvelur hjá góðum hjónum og fer í skóla eins og önnur jarðarbörn. Rafael opnar augu krakkana í skólanum fyrir ýmsu, kennir þeim víðsýni og kær- leika og hvernig má bætir líf annarra í kringum sig með því að samgleðjast, fyrirgefa, sýna umburðarlyndi og hafa trú, von og kærleik að leiðarljósi. Rafael bætir líf allra sem hann hittir á jörðinni. Sagan minnir okkur á það sem við eigum til að gleyma alltof oft – mann- kærleik. Vatnslitamyndirnar sem skreyta bókina eru mjög vel gerðar og viðeigandi. Þetta er afskaplega falleg saga með fallegum boðskap sem er settur fram á auðskiljanlegan hátt fyrir unga les- endur. Góðir siðir: Heilræðavísur fyrir börn á öllum aldri bbbmn Pétur Stefánsson Myndir: Baldur Jóhannsson Óðinsauga 2011 Margar góðar heilræðavísurnar hafa verið samdar og notaðar til að siða okkur til í gegnum aldirnar. Nýsam- dar heilræðavísur eru sjaldséðnari í dag en nú hefur Pétur Stefánsson sent frá sér lítið kver fullt af vísum með uppeldislegu gildi fyrir börn á öllum aldri. Það er tekið á eigingirni, vinsemd og hjálp- semi, þá er ým- islegt brýnt fyrir lesendum sem á það til að fara fyrir ofan garð og neðan hjá fólki, t.d. að hirða upp skítinn eftir hundana sína, fara varlega í umferðinni, muna eftir að bursta tennurnar og þvo hend- urnar eftir klósettferðir. Vísurnar eru vel samdar hjá Pétri; léttar, oft skemmtilegar og boðskapurinn kemst vel til skila. Úrklippumyndir Baldurs hæfa líka vel þessu riti og undirstrika boðskap vísnanna. Þetta er góð bók fyrir börn og foreldra að lesa saman, vísurnar fá börnin til að hugsa út í ýmislegt í hegðun sinni og foreldrarnir geta þá verið til taks og útskýrt hlutina. Bókin fær þá líka til að hugsa út í margt sem tengist upp- eldinu og því að vera góð fyrirmynd. Kýrin sem kunni ekki að baula og kettlingurinn sem vildi ekki mjálma bbmnn Huginn Þór Grétarsson Myndir: Sebastian Jaster Óðinsauga 2011 Bókin skiptist í fyrri og seinni kapítula. Í þeim fyrri segir frá kú sem kemur einn daginn á sveitabæ. Hún getur ekki baulað og hjálpa hin dýrin á bænum henni við að ná upp úr sér bauli með ýmsum aðferð- um. Í síðari kapítula segir frá kett- lingi sem fæðist á sama sveitabæ og hagar sér ekki eins og aðrir kettir. Honum finnst ekki nógu spennandi að mjálma og apar því eftir hegðun annarra dýrategunda. Sagan um kúna er að hluta í bundnu máli. Það tekst stundum vel til en gerir söguna líka stundum flóknari og textann óliprann í lestri. Í text- anum er ýmist talað um kú eða belju, eftir því hvort rímar betur. Höfund- urinn hefði bara átt að halda sig við kúna. Þótt belja sé orðið algengara í talmáli í dag er kýr fallegra og rétt- ara ritmál. Textinn í sögunni um kett- linginn er í óbundnu máli og mikið betri í lestri en sá í bundnu máli, sú saga er líka liprari á allan hátt. Myndirnar eru afskaplega litríkar og lifandi og það er mjög mikið að gerast á hverri opnu, of mikið stundum svo myndirnar verða óreiðukenndar og óskiljanlegar. Teiknarinn afbakar dýrin og gerir þau óþekkjanleg með einhverjum stælum. Myndirnar eiga það til að vera harðar og fráhrindandi sem er ókostur í barnabók. Boðskapurinn í bókinni er góður; samfélagið sættist aldrei á þá sem eru öðruvísi og reynir að steypa þá í það mót sem þykir viðeigandi. Þegar upp er staðið er samt bara best að vera maður sjálfur. Strákurinn sem týndi jólunum bbbmn Ingi Hrafn Hilmarsson og Jóel Ingi Sæmundsson Myndir: María Manda Leikhópurinn Vinir 2010 Hér ræðir um átta litlar bækur sem koma allar saman í pakka. Í fyrstu bókinni hefur álfur söguna af strákn- um Jónatani sem er komin með nóg af jólastússinu og ákveður að finna stað þar sem að jólin eru ekki til. Álfurinn eltir Jónatan og lætur hann fá verkefni sem leiðir hann í ævintýri þar sem hann hittir m.a dreka og Grýlu. Vitaskuld finnur Jónatan jólaandann í þessari ferð og lærir að verða þakklátur. Bækurnar átta eru merktar einum bókstafi hver svo þær mynda orðið Jólasaga. Sagan er byggð á leikriti sem Leikhópurinn vinir sýndi á leikskólum árið 2009. Þetta er skemmtileg jólasaga sem höfðar sterkt til barna og ekki skemmir fyrir að hafa hana í litlum handhægum bókum sem gera lestur- inn enn meira spennandi. Rafael Vatnslitamyndirnar í bók- inni eru hugljúfar eins og sagan. Barnabækur Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is SAMBIO.IS MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 4 - 5:10 - 8 - 10:50 2D 12 MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 5:10 - 8 - 10:50 2D VIP HAROLD & KUMAR Ótextuð kl. 5:50 - 8 - 10:10 3D 16 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 3:40 3D L STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 3:40 - 5:50 2D L PUSS IN BOOTS Enskt tal kl. 10:20 2D L A GOOD OLD FASHIONED ORGY kl. 10:50 2D 16 HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 3:20 - 5:40 2D L TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 8 - 10:50 2D 12 THE HELP kl. 8 2D L TOWER HEIST kl. 8 2D 12 MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 5:10 - 8 - 10:10 - 10:50 2D 12 HAROLD & KUMAR Ótextuð kl. 5:40 - 8 - 10:30 3D 16 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:40 3D L TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 8 2D 12 HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 5:40 3D L THE IDES OF MARCH kl. 8 2D 14 SEEKING JUSTICE kl. 10:20 2D 16 MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 8 - 10:50 2D 12 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 3D L JACK AND JILL kl. 5:50 - 8 - 10 2D L / AKUREYRI MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 8 - 10:50 Powersýning 2D 12 HAROLD & KUMAR Ótextuð kl. 5:50 3D 16 HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 6 2D L TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 8 2D 12 A GOOD OLD FASHIONED ORGY kl. 10 2D 16 MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D 12 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 6 2D L TOWER HEIST kl. 8 - 10:20 2D 14 / KEFLAVÍK / SELFOSSI / KRINGLUNNI / EGILSHÖLL / ÁLFABAKKA MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 5:40 - 8:20 - 10:10 2D 12 HAROLD & KUMAR Ótextuð kl. 5:50 - 8 - 11:10 3D 16 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 3:40 - 5:50 3D L STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 3:40 2D L TRESPASS kl. 8 - 10:10 2D 16 HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 3:40 3D L á allar sýningar merktar með appelsínuguluRBÍÓ 750 kr. SÝND Í EGILSHÖLL GUY PEARCEANDJANUARY JONES NICOLAS CAGESEEKING „MÖGNUÐ OG VEL GERÐ MYND“ -H.V.A. - FBL HHHH „BESTA KVIKMYND ÁRSINS“ - CBS TV HHHH „FYNDIN, TILKOMUMIKIL“ - BACKSTAGE HHHH FRÁBÆR SPENNUÞRILLER FRÁ LEIKSTJÓRANUM ROGER DONALDSON SÝND Í EGILSHÖLL Stórstjörnurnar Kristen Stewart, Robert Pattinson og Taylor Lautner eru mætt í vinsælustu myndinni í heiminum í dag ! „HAPPY FEET 2 ER JAFNVEL BETRI EN FYRRI MYNDIN!“ „HIN FULLKOMNA HELGIDAGASKEMMTUN“ - MARA REINSTEIN / US WEEKLY HHHH SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SHREK OG KUNG FU PANDA FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA „NIÐURSTAÐAN ER SVO FYNDIN OG AÐLAÐANDI AÐ ÁHORFENDUR HLJÓTA AÐ FALLA FYRIR ÞESSUM KATTAHEIMI“ -BOXOFFICE MAGAZINE HHHH -THE HOLLYWOOD REPORTER HHHH SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.