Morgunblaðið - 27.12.2011, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. D E S E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 303. tölublað 99. árgangur
SKEMMTILEGAST
AÐ HLAUPA ÞEGAR
VEÐRIÐ ER VERST LÍFLEG OG EINBEITT
SÖNGVARAR,
LEIKARAR OG
TVÍFARAR
LJÚFLINGAMÓT TBR ÍÞRÓTTIR ÍSLANDSVINIR ÁRSINS 31LÍFSGÆÐI AÐ GETA HLAUPIÐ 10
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Verðið hefur hækkað lítillega, það er um það bil
10% hækkun,“ segir Jón Ingi Sigvaldason, mark-
aðs- og sölustjóri Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, en liðsmenn björgunarsveitanna eru nú
í óðaönn að undirbúa sölustaði sína fyrir kom-
andi áramót. Ástæða hækkunarinnar segir Jón
Ingi að sé verðlagshækkanir í Kína en jafnframt
hafi flutningskostnaður aukist eitthvað frá í
fyrra.
Líkt og landsmenn þekkja er sala skotelda
helsta tekjulind björgunarsveitanna og því nauð-
synleg til að tryggja áframhaldandi rekstur
þeirra. Segir Jón Ingi dæmi vera um að björg-
unarsveitir fái yfir 90 prósent allra sinna tekna
af skoteldasölu. Hann kveðst þjóðinni mjög
þakklátur fyrir ómetanlegan stuðning og velvilja
í garð björgunarsveitanna í gegnum árin.
Útlit fyrir að illa viðri til uppskota
Frá Veðurstofu Íslands fengust þær upplýs-
ingar að á gamlársdag væri útlit fyrir suðlæga
átt og rigningu eða slyddu með köflum á höf-
uðborgarsvæðinu. Hitastig nálægt frostmarki
eða 0 til 5 stig. Norðaustantil er spáð úrkomu-
lausu veðri með vægu frosti. »4
10% hækkun á flugeldum
Útlit fyrir suðlæga átt og úrkomu með köflum en úrkomulaust norðaustantil
Morgunblaðið/Ómar
Flugeldar Senn líður að áramótum með tilheyr-
andi flugeldum og ljósadýrð víða um land.
Í minningunni eru jólin alltaf hvít og því hefur
veðrið ekki skemmt fyrir þeim sem óskuðu sér
hvítra jóla. Víða eru háar snjóbrekkur sem freist-
andi er að renna sér niður á góðum sleða og virð-
ast þessir ungu herramenn vera á leiðinni í jóla-
brekkurnar sem annaðhvort hafa safnað snjó yfir
jólin eða verið rutt upp af mannanna völdum. Bú-
ist er við svipuðu veðri fram að helgi og því ættu
skíðaiðkendur að nýta sér aðstæðurnar meðan
snjórinn helst.
Morgunblaðið/Golli
Á leiðinni í jólabrekkurnar
Jólaveðrið nýtt til útivistar
Stjórn hestamannafélagsins Funa í Eyjafirði
hyggst láta á það reyna fyrir dómstólum
íþróttahreyfingarinnar hvort ákvörðun
Landssambands hestamannafélaga (LH) um
landsmótið 2016 standist. Formaður LH hef-
ur ráðfært sig við lögfróða menn um þetta
atriði og telur að ákvörðunin muni standast
þótt hún verði
kærð til dómstóls
ÍSÍ.
Eyfirðingar hafa
harðlega gagnrýnt
ákvörðun LH um
að landsmótið 2016
verði haldið á Vind-
heimamelum, en
Gullhylur, sem rek-
ur mótssvæðið,
sótti ekki um mótið
það ár. Gullhylur
lagði höfuðáherslu
á að fá mótið 2014
enda væri það í
samræmi við hefð-
ina að halda mótið
til skiptis sunn-
anlands og norðan.
Aðspurðir af stjórn
LH hvort umsókn-
in myndi ekki gilda einnig fyrir 2016 sögðu
þeir að ef reglunni yrði breytt myndi um-
sóknin ná til næsta móts einnig.
Stjórn Funa telur að taka þurfi ákvörð-
unina upp þar sem umsóknin fullnægi ekki
kröfum. Lýsti hún því einnig yfir að málið
yrði sent til meðferðar Íþróttasambands Ís-
lands.
Þetta er ekki eina atriðið sem valdið hefur
titringi meðal hestamanna því óánægju gæt-
ir enn norðanlands vegna þeirrar ákvörð-
unar að halda landsmótið á Hellu árið 2014,
en það verður þá annað skiptið í röð á Suður-
landi. helgi@mbl.is
Lands-
mót fyr-
ir dóm
Enn mikil óánægja
á meðal hestamanna
Landsmót
» Landsmótið
verður annað ár-
ið í röð á Suður-
landi en það
verður haldið í
Reykjavík 2012
og á Hellu 2014.
» Norðlendingar
segja þetta brot
á hefð en það
hefur verið hald-
ið til skiptis á
Norðurlandi og
Suðurlandi í ára-
tugi.
MDeilur um staðarval »12
Samskiptavefurinn Twitter er
orðið mikilvægt tæki fyrir fyrirtæki
víða um heim. Íslensk fyrirtæki eru
hins vegar tveimur til þremur árum
á eftir ef miðað er við Bandaríkin.
Þetta er mat Finns Pálma Magn-
ússonar, vörustjóra Marorku.
Áætlað er að á milli fjögur og
fimm prósent Íslendinga séu á
Twitter eða um 15 þúsund manns,
sem er ekki stór hópur í samanburði
við íslenska notendur Fésbók-
arinnar en þeir eru um 210 þúsund
talsins. Twitter-hópurinn er engu að
síður mikilvægur, að mati Finns, en
þar fara fram allt annars konar sam-
skipti. »14
Íslensk fyrirtæki
árum á eftir í tísti
Áhugamenn um norðurljósin
leggja mikið á sig til að sjá þau í
öllu sínu veldi og safna upplýs-
ingum um heppilega staði, að sögn
fréttavefjar breska ríkisútvarpsins,
BBC. Þá skiptir miklu að lítið sé um
ský og ljósmengun frá jörðu.
Aurora Borealis, eins og fyrir-
bærið heitir á latínu, er kennt við
morgungyðju Rómverja og norð-
anvindinn. BBC segir gyðjuna
duttlungafulla, erfitt að reikna út
hvort Áróra láti á sér kræla. Hlaðn-
ar elektrónur berist með sólvindum
að segulpólum jarðar og „æsi upp“
óhlaðnar eindir í loftinu. Liturinn
fari eftir því hvaða frumefni sé æst
upp; súrefni, köfnunarefni eða ann-
að. Styrkur sólvinda fari svo eftir
sólvirkni, hún verði óvenjumikil
2012 og 2013. kjon@mbl.is
Gyðja sem lætur
ganga eftir sér
„Auðvitað bregður manni þegar
maður sér svona fréttir eins og frá
Noregi en það má heldur ekki
missa sjónar á því að þetta er versta
veður sem þarna hefur komið í
manna minnum,“ segir Aldís Haf-
steinsdóttir, bæjarstjóri í Hvera-
gerði, en til stendur að reisa í bæn-
um svonefnt mjúkhýsi líkt Abra-
íþróttahöllinni í Þrándheimi sem
jafnaðist við jörðu í ofsaveðri sem
reið yfir um helgina.
Aldís kveðst þó ekki hafa áhyggj-
ur af fyrirhugaðri framkvæmd.
Hún bendir á að önnur sambærileg
mjúkhýsi í Noregi hafi staðið veðrið
af sér. »6
Engar áhyggjur af
mjúkhýsi hér á landi