Morgunblaðið - 27.12.2011, Síða 6

Morgunblaðið - 27.12.2011, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011 15% afsláttur Fæst án lyfseðils N J Ó T U M Þ E S S A Ð H R E Y F A O K K U R af öllum styrkleikum og pakkningastærðum „Við erum engu nær um hver var þarna að verki og við höfum ekki heyrt neitt enn frá lögreglunni vegna málsins,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, framkvæmda- stjóri Fjölskylduhjálpar Íslands, spurð um innbrotið í húsakynni Fjölskylduhjálpar á Suðurnesjum. „Við ætlum í kjölfar þessa atviks að láta vakta húsnæði okkar. Það kost- ar auðvitað sitt en hingað til höfum við ekki trúað því að nokkur maður myndi brjótast inn hjá okkur enda eru aldrei geymdir fjármunir hjá okkur.“ Mikilvægar upplýsingar voru í tölvu sem stolið var og segir Ás- gerður óheppilegt að missa tölvuna og gögnin. „Allar okkar tölvur eru gamlar tölvur sem Landsbankinn gaf okkur og við erum búin að vera að nota í nokkur ár og því enginn ávinningur af því að stela þeim. Gögnin skipta okkur meiru máli og mikilvægt fyrir okkur að fá þau aft- ur.“ Ásgerður segir þó enga hættu á því að upplýsingarnar fari á flakk. „Í sjálfu sér eru gögnin ekki í hættu því það verður að skrá sig inn á þjóðskrá til að komast í þau. Þetta kostar okkur fyrst og fremst mikla vinnu og tölvuna, þótt gömul sé, enda er erfitt að vera án hennar í dag.“ Matvælum og fatnaði stolið frá Fjölskylduhjálp Íslands  Framkvæmdastjóri segir að vakta verði húsnæðið Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við erum að bjóða út undirstöðurnar, sökklana og alla vinnu í kringum það að reisa síðan húsið,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hvera- gerði, og vísar til útboðs vegna framkvæmda Hamarshallarinnar í Hveragerði. Um er að ræða byggingu 5.000 fermetra mjúkhýsis en útboð vegna framkvæmdanna hófst fyrir skömmu og stendur það yfir til byrjunar janúarmánaðar. Að sögn Aldísar hefur útboðið farið vel af stað og stærstu verktakafyrirtæki landsins sýnt fram- kvæmdinni mikinn áhuga. Í miklu óveðri sem gekk yfir Noreg um liðna helgi hrundi 10.000 fermetra mjúkhýsi í veðurofs- anum. Um var að ræða Abrahallen, íþrótta- og æfingahöll Rosenberg, í Þrándheimi í Noregi. Er þetta í annað skiptið sem skemmdir verða á Abrahallen vegna veðurs, en það þoldi ekki mik- inn snjóþunga árið 2009. „Auðvitað bregður manni“ Aldís segir það hús ekki vera fyllilega sam- bærilegt við það sem reisa á í Hveragerði og kveðst því ekki hafa áhyggjur af fyrirhugaðri framkvæmd. „Auðvitað bregður manni þegar maður sér svona fréttir eins og frá Noregi en það má heldur ekki missa sjónar á því að þetta er versta veður sem þarna hefur komið í manna minnum. Og þarna eru líka aðrar hallir og þær standa,“ segir Aldís og bendir á að þó svo að Abrahallen hafi hrunið hafi annað minna mjúk- hýsi, í um fimm mínútna akstursfjarlægð, staðið af sér veðurofsann. „Síðan ákváðum við strax að gera frekari ráðstafanir. Þannig að það er gert ráð fyrir vírafestingum í okkar húsi en ekki þess- um sem hafa verið sett upp í Noregi.“ Aldís segir að ekki væri verið að fara út í þessa framkvæmd ef Hvergerðingar hefðu ekki trú á þessu byggingarformi. „Það er líka mikilvægt að halda til haga að það getur auðvitað allt fokið. Það getur allt skemmst í ofsaveðrum,“ segir Al- dís en hún segist jafnframt ætla að fylgjast vel með framvindu mála í Noregi. „Ég hef verið í sambandi við þá þarna úti og hef verið að heyra í þeim. Þeir eru að kanna hvað gerðist því ekki er vitað hvort eitthvað hafi fokið á höllina og rifið hana,“ segir Aldís og bætir við að eigendur Abra- hallen hafi þegar kannað möguleika á að fá aðra höll. Hafa enn fulla trú á mjúkhýsum  Gríðarstórt mjúkhýsi hrundi í veðurofsanum í Noregi  Stærstu verktaka- fyrirtæki landsins sýna fyrirhugaðri framkvæmd í Hveragerði mikinn áhuga Mjúkhýsi Alls kyns mjúkhýsi eru til og fyrir fjölmargar íþróttagreinar. „Við fengum ábendingu um að eldri kona hefði lát- ið sig hverfa af elli- heimili hér á landi eftir að hafa fengið bókina að gjöf frá dóttur sinni. Hún fannst þó samdæg- urs heil á húfi,“ segir Erla Björg Gunnarsdóttir, kynningarstjóri JPV, en umrædd bók; Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf hefur heldur betur haft áhrif á lesendur, en hún fjallar um mann sem ákveður að strjúka af elliheimili stuttu fyrir 100 ára afmælið sitt til þess að rifja upp ævi sína og upplifa ævintýri. Auk konunnar sem tók boðskap bókarinnar bókstaflega fékk JPV bréf frá ungum manni sem var mið- ur sín yfir því að það vantaði nokkr- ar blaðsíður í einstak hans, en hann fékk gallað eintak í jólagjöf. „Ég var rétt í þessu að fara með nýja bók til Ásgríms, svo hann gæti klár- að að lesa bókina.“ Ásgrímur Hermannsson heitir óheppni bókareigandinn en hann uppgötvaði að 37 blaðsíður vantaði í bókina. „Bréfið átti aldrei að kom- ast í fjölmiðla en mér fannst það fyndið og skemmtilegt og setti það á Facebook-vegginn minn. Vinum mínum sem nokkrir vinna á fjöl- miðlum fannst þetta tilvalin jóla- frétt og skelltu þessu m.a. á frétta- vef Morgunblaðsins, mbl.is, og nú er fréttin komin út um allt.“ Gamlinginn sem lét sig hverfa gerir allt vitlaust Fallegur jólasnjór féll á hús, dýr og menn yfir hátíðarnar. Þessi fjölskylda ákvað að líta í Húsdýragarðinn til að heilsa upp á hestana á jóladag en þá var opið á meðan verið var að gefa dýrunum. Hlutverk hestsins í samfélagi mannanna hefur óneitanlega breyst hratt á undanförnum rúmum hundrað árum. Áður fyrr var hann nauðsynlegur fararskjóti mannfólksins eða allt þar til tæknin gerði hann þarflítinn. Glæsileiki hans og styrkur verður samt áfram áhugaverður, bæði fyrir full- orðið fólk og litla snáða sem geta horft á hann af herðum föður síns. Hestar og menn fögnuðu jólunum Dýrunum í Húsdýragarðinum gefið á jóladag Morgunblaðið/Golli Mikilvægar upplýs- ingar voru í tölvu sem stolið var og biður Fjölskylduhjálp um að tölvugögnunum verði skilað aftur til Fjöl- skylduhjálpar. „Það er mikil vinna bakvið þessi gögn og við vilj- um fá þau aftur,“ segir Ásgerður Jóna. Tölvu stolið MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.