Morgunblaðið - 27.12.2011, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011
– fyrst og fre
mst
ódýr!
Gleðilega
hátíð
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við erum búin að breyta innihaldi
allra fjölskyldupakkanna okkar.
Við komum með einn lítinn fjöl-
skyldupakka í fyrra, sem var bara
smádót, og erum núna með einn
stærri. Þannig að við erum að
breyta úrvalinu þar mjög mikið,“
segir Jón Ingi Sigvaldason, mark-
aðs- og sölustjóri hjá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg, aðspurður
hvort landsmenn megi búast við
einhverjum nýjungum tengdum
skoteldum í ár.
Liðsmenn björgunarsveita um
land allt eru nú í óðaönn að leggja
lokahönd á undirbúning sölunnar
enda er um að ræða helstu tekju-
lind sveitanna. Segir Jón Ingi
sumar björgunarsveitir fá yfir 90
prósent alls fjármagns síns í formi
flugeldasölu og að hátt í 4.000
sjálfboðaliðar komi að sölunni ár
hvert.
Fjölbreytt úrval í boði
Staðsetning og fjöldi sölustaða
verður með svipuðu sniði og í fyrra
en á höfuðborgarsvæðinu verða
þeir alls 36 talsins. Hægt verður
að kaupa skotelda af björgunar-
sveitunum frá og með morgundeg-
inum.
Að sögn Jóns Inga verður boðið
upp á fleiri nýjungar í ár, t.a.m.
var gerð ákveðin breyting á
stærstu skottertunum, en þær eru
150 skota og kenndar við sögu-
fræga bardaga, en einnig var sér-
stakur blysapakki settur saman í
ár sem inniheldur alls sex litskrúð-
ug blys. Að sögn Jóns Inga er tals-
verð áhersla lögð á að breyta vöru-
úrvali reglulega til að tryggja
fjölbreytni. „Við reynum að vera
svolítið á tánum með að breyta
mjög ört. Þótt það sé kannski
óþarfi að breyta hlutum sem eru
góðir þá er líka ágætt að hrista
upp í þeim.“
Hann segir mjög misjafnt eftir
hverju fólk sækist þegar það kaup-
ir skotelda fyrir áramótin en und-
anfarið hefur fjölskyldupakkinn
verið mjög vinsæll og þá sérstak-
lega ef innihald hans hefur tekið
einhverjum breytingum frá því ár-
ið áður. „Flestir taka fjölskyldu-
pakka og svo kappa- eða bardaga-
tertu með. Svo eru aðrir sem vilja
bara stjörnuljós eða rakettur,“
segir Jón Ingi og bætir við að þeir
sem vilji kynna sér vöruúrvalið áð-
ur en mætt er á sölustaði geti gert
það á heimasíðu Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar. Þar er t.a.m. að
finna lýsingar og myndbönd af
þeim skottertum sem í boði eru í
ár.
Jón Ingi segir landsmenn ávallt
hafa staðið þétt við bakið á björg-
unarsveitunum þegar kemur að
kaupum á flugeldum en vart verð-
ur nógu mikil áhersla lögð á mik-
ilvægi þess stuðnings.
„Við erum mjög ánægðir með
stuðninginn sem við höfum fengið
hjá almenningi. Það má heldur
ekki gleyma því að þótt björgunar-
sveitirnar samanstandi af sjálf-
boðaliðum þá kostar sitt að end-
urnýja og borga olíuna á tækin.
Vilja fyrirbyggja augnslys
Núna erum við komin með ný
flugeldagleraugu og erum að
reyna að fá foreldra til þess að
vera með gleraugu líka. Það þurfa
allir að vera með gleraugu sem eru
að horfa á og skjóta,“ segir Jón
Ingi en gleraugun voru að sögn
endurhönnuð með það í huga að
þau féllu betur að hátíðarbúningi
fólks. „Nú er engin afsökun fyrir
því að vera ekki með gleraugu.“
Vert er að nefna að hlífðargler-
augun fylgja með öllum fjölskyldu-
pökkum og segir Jón Ingi þar að
auki langflestar björgunarsveitir
afhenda fólki gleraugun án endur-
gjalds svo fækka megi slysum
tengdum skoteldum. „Við viljum
reyna að útrýma öllum augnslys-
um.“
Morgunblaðið/Ómar
Ljósadýrð Óðum styttist í áramótin en misjafnt er hvað fólk kaupir af flugeldum til að kveðja árið sem er að líða. Víst má þó búast við miklum hvellum.
Mikilvægasta tekjulindin
Sölustaðir flugelda opnaðir á morgun Sumar björgunarsveitir fá yfir 90%
alls síns fjármagns í formi flugeldasölu Mikið breytt innihald fjölskyldupakka
Lögreglumenn
frá Fáskrúðsfirði
gómuðu á jóla-
dag tvo veiði-
þjófa í Hamars-
firði. Samkvæmt
upplýsingum frá
lögreglunni á
Eskifirði höfðu
mennirnir skotið
hreindýr í firð-
inum fyrr um daginn. Kváðust þeir
hafa verið við refaveiðar á svæðinu
en ekki getað staðist mátið þegar
hreindýrs varð vart.
Upp komst um verknaðinn við
hefðbundið umferðareftirlit lögregl-
unnar, en lögreglumenn höfðu af-
skipti af bifreið sem í voru menn sem
klæddir voru í veiðigalla og virtust
afar vel útbúnir til veiða. Ákvað lög-
reglan þá að kanna málið betur.
Málið telst upplýst og fer nú sína
leið í réttarkerfinu. Mannanna bíður
sekt eða skilorðsbundið fangelsi,
svipting veiðikorta en líklega halda
þeir þó skotvopnaleyfi og skotvopn-
um.
Skutu
hreindýr á
jóladag
Veiðiþjófar gripn-
ir í Hamarsfirði
„Kirkjusókn er
alltaf góð um jólin
en veðrið varð þó
til þess að örlítið
færri sóttu mess-
una klukkan sex
en miðnæt-
urmessuna,“ seg-
ir Hjálmar Jóns-
son,
dómkirkjuprest-
ur, spurður um
kirkjusókn um jólin. „Það koma
fleiri börn í fyrri messuna sem-
skapar sérstakt andrúmsloft eft-
irvæntingar og gleði sem fylgir
börnunum og hrífur okkur hin eldir
með. Í miðnæturmessunni er and-
rúmsloftið annað. Þá er spennan far-
in og við upplifum heilaga kyrrð og
frið í jólanótinni.“ Aðsókn að mess-
um er mikil yfir jólin og voru um 900
manns í messum Dómkirkjunnar á
sjálfan aðfangadag. Á jóladag og
annan dag jóla sækja færri messur.
Um 900 sóttu í
messur Dóm-
kirkjunnar
Hjálmar
Jónsson
„Af þeim fimmtán konum sem leituðu til okkar í desem-
ber voru sex hérna sem nýttu sér aðstöðuna yfir jólin og
héldu þau hér með okkur,“ segir Kristín Helga Guð-
mundsdóttir, verkefnastjóri hjá Konukoti. Að hennar
sögn hafa Íslendingar alltaf verið tilbúnir að leggja sitt af
mörkum til að hjálpa öðrum en í þau átta ár sem haldið
hefur verið upp á jólin í Konukoti hefur fjöldi einstak-
linga lagt kotinu lið til þess að gera jólin sem hátíðlegust
og ánægjulegust fyrir þær konur sem þar dvelja um jól-
in.
„Allir eiga að fá að halda jólin hátíðleg og líða vel á jól-
unum. Við leggjum okkar af mörkum til að láta þeim kon-
um líða vel sem dvelja hjá okkur og ég veit að önnur
hjálparsamtök gera það sama. Það er líka mikilvægt fyrir
sjálfboðaliðana sem eru hérna yfir jólin, fjarri sínum fjöl-
skyldum, að finna hátíðleikann og líða vel.“ Framlag
sjálfboðaliða er mismunandi mikið en að sögn Kristínar
skiptir mestu máli að fólk sé viljugt að leggja hjálpar-
samtökum lið og gefa af tíma sínum fyrir aðra. „Rúnar
Þór Arnarsson, kokkur í Noregi, kemur til dæmis bara til
okkar um jólin en það er rosalega mikilvægt að fá at-
vinnumann eins og hann í eldhúsið til þess að elda jóla-
steikina. Þess vegna verður framlag hvers og eins ekki
mælt í tímum heldur því sem hver og einn getur lagt af
mörkum.“ Jólin í Konukoti voru að sögn Kristínar ein-
staklega afslöppuð, róleg og hlýleg. „Ég velti því fyrir
mér hvort þessi ofboðslega stormspá hafi haft áhrif á fólk
til hins betra.“ vilhjalmur@mbl.is
Sex konur héldu jólin
hátíðleg í Konukoti
Mikilvægt að fá atvinnumann í eldhúsið sem eldar jólamat
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Jólin Notaleg og hlýleg jólastemning í Konukoti.
„Það eiga allir að vera með gleraugu og svo er mjög
algengt að yngri börn séu hrædd við hávaða og þá er
mjög sniðugt að láta þau nota heyrnarhlífar,“ segir
Jón Ingi Sigvaldason hjá Slysavarnafélaginu Lands-
björg, aðspurður hverju ber að huga að við meðferð
og notkun skotelda.
Segir Jón Ingi einnig mikilvægt að notaðir séu
hanskar, helst úr leðri, eða vettlingar þegar skotið er
upp svo koma megi í veg fyrir brunasár á höndum.
Ennfremur leggur hann þunga áherslu á að fólk hugi
vel að þeim leiðbeiningum sem skoteldum fylgja og fari eftir þeim í
einu og öllu.
Fólk fylgi leiðbeiningum
HUGUM AÐ ÖRYGGI VIÐ MEÐFERÐ OG NOTKUN SKOTELDA
Jón Ingi