Morgunblaðið - 05.01.2012, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.01.2012, Blaðsíða 12
Ljósmynd/Borgarleikhúsið 2012 Í Fanný og Alexander leika Gunnar og Kristbjörg persónur sem átt hafa í leynilegu ástarsambandi áratugum saman. VIÐTAL Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Það er alltaf einhver titringur fyr- ir frumsýningu, það er bara þannig. Þetta er ábyrgð,“ segir leikkonan Kristbjörg Kjeld, en hún fer með burðarhlutverk í hátíðarsýningu Borgarleikhússins, Fanný og Alex- ander, sem frumsýnd er á Stóra sviðinu á morgun. Mótleikari hennar, Gunnar Eyj- ólfsson, tekur undir með Krist- björgu. „Já, þetta er ábyrgð og maður vill rísa undir þeirri ábyrgð. Það er svo þýðingarmikið að bregð- ast ekki væntingum.“ Þau eru hógværðin uppmáluð, en Gunnar og Kristbjörg eru ekki þekkt af því að bregðast vænt- ingum. Bæði eiga þau áratugalang- an feril að baki sem einir ástsæl- ustu leikarar þjóðarinnar. Og því hefur verið fleygt að Gunnar, sem verður 86 ára í febrúar, sé nú elsti starfandi leikari á sviði á Norð- urlöndum. „Það sagði þetta einhver við mig, og væri dálítið gaman að vita hvort satt er,“ svarar Gunnar þegar þetta er borið undir hann. „En það er mjög erfitt, þegar komið er á þennan aldur. Þetta krefst and- legrar einbeitingar og orku.“ Fyrstu launin voru 10 krónur Þau virðast bæði vera full af orku þegar þau ræða við blaðamann í anddyri Borgarleikhússins og eru reyndar á stöðugum þönum, þótt að baki sé ein af lokaæfingunum fyrir frumsýningu á hinni stórbrotnu fjölskyldusögu Ingmars Bergmans, Fanný og Alexander. Leikgerðin byggir á sjónvar- spþáttunum gríðarvinsælu sem síð- ar voru styttir í kvikmynd. Heims- frumsýning leikritsins var í Þjóðleikhúsi Norðmanna í desem- ber 2009 og er uppfærslan orðin sú vinsælasta í sögu leikhússins. „Ég er alveg klár á því að þessi sýning er mjög litrík og falleg, mik- ið fyrir augað,“ segir Kristbjörg. Hún fer með hlutverk ættmóð- urinnar en Gunnar leikur leyni- legan elskhuga hennar, gyðinginn Ísak. Hann segir huginn leita aftur til upphafs ferilsins, þegar Gunnar og tveir aðrir ungir leiklistar- nemar, þeir Róbert Arnfinnsson og Baldvin Halldórsson, þreyttu frum- raun sína á sviði í Kaupmanninum í Feneyjum, en Haraldur Björnsson þótti þar vinna leiksigur í hlutverki gyðingsins Sjælokks. „Þessi minning og hvernig hann var, þetta var alveg stórkostlegt, og mikill lærdómur fyrir okkur sem unga menn að fá að vera inni á svið- inu og sjá þennan mann. Þarna verður maður fyrir áhrifum.“ Þetta var árið 1945 og Gunnar fékk, á sínum fyrsta samningi, greiddar 10 krónur á sýningu. Leikferill hans spannar því orðið 67 ár, en Kristbjörg steig fyrst á svið nýútskrifuð árið 1958. Bæði hafa þau unnið mest sitt ævistarf á fjöl- um Þjóðleikhússins, og raunar er þetta í fyrsta sinn sem Gunnar stíg- ur á Stóra svið Borgarleikhússins. Kristbjörg gefur mikið af sér Leiklistarsaga þeirra tveggja fléttast víða saman og ófáum sinn- um hafa þau leikið hvort á móti öðru sem elskendur, líkt og nú. „Svona nú, þetta er leikhús. Við skulum ekki misskilja neitt,“ segir Gunnar þegar blaðamanni verður á orði að þeim virðist fara elskhuga- hlutverkið vel úr hendi. „En Kristbjörg gefur afskaplega mikið af sér sem leikkona og mér finnst alltaf svo gott að leika á móti leikurum, bæði körlum og konum, sem ná sambandi við mann,“ bætir Gunnar við og Kristbjörg skýtur inn í að tilfinningin sé gagnkvæm. Þekkja vel hvort inn á annað Eftir allan þennan samleik leiðir blaðamaður að því líkum að þau hljóti að hvort annað afar vel. „Já- jájá,“ svarar Kristbjörg. „Þú hlóst nú að því, Gunnar, þegar við vorum komin upp í rúm þarna í Hafinu. Þá hvíslaði ég í eyrað á Gunnari: „Á 40 ára fresti“.“ Þau skella bæði upp úr. „Þá voru 40 ár liðin síðan við lékum í 79 af stöðinni og aftur vor- um við komin saman upp í rúm.“ Fanný og Alexander er sem fyrr segir frumýnt á morgun en uppselt er á fyrstu 16 sýningarnar. Saman í rúmið á 40 ára fresti Ljósmynd/Ljósmyndasafn Íslands 1958 Sem ung hjón í Horfðu reiður um öxl í Þjóðleikhúsinu.  Gunnar Eyjólfsson og Kristbjörg Kjeld leika burðarhlutverk í hátíðarsýningu Borgarleikhússins  Hafa leikið saman í tugum verka síðustu 54 ár  Gunnar líklega elsti leikari Norðurlanda á sviði 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2012 Kristbjörg Kjeld og Gunnar Eyjólfsson hittust fyrst þegar þau fóru með hlutverk ungu hjónanna í Horfðu reiður um öxl, eftir John Osborne, í upp- setningu Þjóðleikhússins árið 1958. „Ég var þá úti í Ameríku þegar Bald- vin [Halldórsson leikstjóri] sendi mér bréf og sagði: Við viljum engan nema þig í þetta hlutverk og það er ung leikkona, Kristbjörg Kjeld, sem leikur Alison á móti þér,“ segir Gunnar. „Þá var ég kornung leikkona og alveg rosalega spennt að fá þennan stórleikara heim frá Ameríku. En þú vissir nú ekkert hver ég var, einhver smástelpa bara,“ segir Kristbjörg. „Þá var þetta nýtt verk og mjög fram- úrstefnulegt og spennandi.“ Síðan eru sameiginlegu verkin á ferilskrám þeirra orðin á þriðja tug talsins, jafnt á sviði sem hvíta tjaldinu og í út- varpi. Þekktust sem par eru þau án efa í kvikmyndinni 79 af stöðinni. Spurð hvort einhver þessara mörgu verka séu þeim sérstaklega kær nefna þau m.a. leikritið Græna landið, eftir Ólaf Hauk Símonarson, sem þau sýndu saman í Færeyjum við góðar undirtektir. „Það var svo gaman og Kristbjörg er alveg dáð þar. En það er eitt verk sem er djúpt í mér, og það er Andorra,“ segir Gunnar. „Svo lék ég náttúrlega sviknu brúðina, þegar þú lékst Pétur Gaut,“ bætir Kristbjörg við. „Já,“ samsinnir Gunnar. „Svona er þetta, við tengjumst endalaust.“ „Við tengjumst endalaust“ LÉKU FYRST SAMAN Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU 1958 Heimsferðir bjóða beint morgunflug með Icelandair til Munchen í vetur og þar með tryggjum við þér aðgang að bestu skíðasvæðum Austurríkis, s.s. Flachau, Lungau og Zell am See. Flestar dagsetnin- gar eru uppseldar, en við eigum nokkur sæti laus 21. janúar á frábærum kjörum. Mjög takmarkaður fjöldi flugsæta og gistingar á þessum frábæru kjörum! Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Austurríkis Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is 21. janúar í viku Frá kr. 129.900 með hálfu fæði Síðustu sætin á skíði Verð kr. 149.900 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Skihotel Speiereck í Lungau með hálfu fæði í viku. Kr. 129.900 vikuferð með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. tvo fullorðna og tvö börn á Skihotel Speiereck í Lungau með hálfu fæði í viku. til í vetur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.