Morgunblaðið - 05.01.2012, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.01.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2012 FRÉTTASKÝRING Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Mitt Romney, fyrrverandi ríkis- stjóri Massachusetts, þykir enn sigurstranglegastur í forkosningum repúblikana eftir forvalið í Iowa í fyrradag en úrslitin eyddu ekki þrálátum efasemdum um að hann gæti fengið íhaldssama kjósendur repúblikana á sitt band án þess að styggja miðjumenn sem gætu ráðið úrslitum í forsetakosningunum í nóvember. Romney fékk mest fylgi í Iowa en munurinn á fylgismestu fram- bjóðendunum var sáralítill. Aðeins munaði átta atkvæðum á honum og íhaldsmanninum Rick Santorum, fyrrverandi öldungadeildarþing- manni frá Pennsylvaníu. Margir höfðu afskrifað Santorum nokkrum dögum fyrir forvalið og mikið fylgi hans kom því fréttaskýrendum mjög á óvart. Í þriðja sæti var Ron Paul, fulltrúadeildarþingmaður frá Texas, með 21% fylgi, fjórum pró- sentustigum minna en Romney og Santorum. Fréttaskýrandi The Wash- ington Post, Dan Balz, telur að þessi litli munur á fylgi frambjóð- endanna þriggja geti verið Romney til framdráttar. Þótt Santorum og Ron Paul hafi komið mörgum á óvart með góðri frammistöðu í Iowa hafi hvorugur þeirra burði til að halda út langvinna baráttu við Romney. Hann bendir á að keppi- nautarnir tóku Santorum ekki al- varlega og beindu því ekki spjótum sínum að honum fyrir forvalið en líklegt er að það breytist núna. Úrslitin í Iowa eru áfall fyrir Newt Gingrich, fyrrverandi forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, Rick Perry, ríkisstjóra Texas, og Michele Bachmann fulltrúadeildar- þingmann sem ákvað í gær að draga sig í hlé. Í kosningabaráttunni í Iowa beindi Romney einkum spjótum sínum að Gingrich sem var gagn- rýndur mjög harkalega í sjónvarps- auglýsingum. Líklegt er að harka færist í kosningabaráttuna á næstu vikum og keppinautarnir haldi áfram að skemmta Barack Obama forseta með því að rakka hver ann- an niður. „Getur Obama sameinað flokkinn?“ Romney hefur lýst sér sem þeim frambjóðanda sem sé líkleg- astur til að sigra Obama með því höfða til miðjumanna sem gætu ráðið úrslitum í forsetakosning- unum í nóvember. Romney þarf þó fyrst að tryggja sér nægan stuðn- ing meðal íhaldssamra kjósenda repúblikana, en margir þeirra líta hann hornauga. Romney kemur frá tiltölulega frjálslyndu ríki og var í fyrstu álit- inn frjálslyndur í samfélagsmálum á borð við deiluna um fóstureyð- ingar. Hann varð þó andstæðingur fóstureyðinga eftir að hann var kjörinn ríkisstjóri Massachusetts og hefur fetað sig í áttina að íhaldssömum kjósendum í fleiri málum – en án mikils árang- urs. „Hann hefur ekki enn unnið hjarta íhaldsmanna. Hann kann að hafa unnið hug þeirra með því að vera sigurstranglegur, en ekki hjarta þeirra,“ hefur fréttaveitan AFP eftir David Wo- odard, stjórn- málafræðingi við í Suður- Karólínu. Fréttaskýrandi The New York Times segir að úrslitin í Iowa geti orðið til þess að Romney neyðist til að færa sig enn lengra í áttina að Teboðshreyfingunni. Könnun sem gerð var meðal kjósendanna í Iowa bendir til þess að flestir þeirra telji að mikilvæg- ara sé fyrir repúblikana að velja forsetaefni sem geti sigrað Obama en „sannan íhaldsmann“. „Lykilspurningin er ekki hvort Romney geti sameinað flokkinn, heldur hvort Obama geti sameinað repúblikana,“ hefur The New York Times eftir Richard Land, einum frammámanna bandarískra bapt- ista. „Og svarið er hátt og snjallt JÁ.“ Andúðin á Obama gæti sameinað repúblikana  Romney enn álitinn sigurstranglegastur eftir hnífjafnan kosningaslag í Iowa Reuters Hnífjafnt Mitt Romney heldur ræðu í Des Moines eftir hnífjafna baráttu í forvalinu í Iowa. Með honum eru eigin- kona hans og synir. Romney er fyrrverandi ríkisstjóri Massachusetts og auðgaðist á áhættufjárfestingum. Saksóknarar og verjendur fjölda- morðingjans, sem myrti 77 manns í Noregi 22. júlí, hafa lagst gegn því að réttargeðlæknum verði falið að leggja fram nýtt mat á geðheilsu ódæðismannsins. Lögmenn fjöl- skyldna fórnarlamba morðingjans hafa óskað eftir nýju mati réttar- geðlækna. Áður hafði nefnd réttarlækna í Noregi staðfest þá niðurstöðu tveggja réttargeðlækna að fjölda- morðinginn væri ósakhæfur vegna ofsóknargeðklofa. Norska sjón- varpsstöðin TV2 sagði í fyrrakvöld að þrír sálfræðingar og einn geð- læknir hefðu fylgst með morðingj- anum í fangelsi og teldu ekki að hann væri haldinn ofsóknar- geðklofa. Vilja ekki nýtt mat geðlækna í máli fjöldamorðingja Tveir breskir karlmenn, sem voru fundnir sekir um aðild að morði á 18 ára gömlum blökkupilti árið 1993, voru dæmdir í 14-15 ára fang- elsi í gær. Gary Dobson, sem er 36 ára, var dæmdur í a.m.k. 15 ára fangelsi og David Norris, 35 ára, fékk minnst 14 ára fangelsisdóm. Þeir voru báðir 17 ára þegar þeir myrtu Stephen Lawrence í úthverfi Lundúna. Dómari sagði að kyn- þáttahatur hefði verið eina ástæðan fyrir morðinu á Lawrence. Hópur ungra manna réðst á Lawrence þegar hann beið eftir strætisvagni og dómarinn sagði að þrír eða fjór- ir aðrir hefðu tekið þátt í árásinni en gengju enn lausir. Lögreglan handtók Dobson, Norris og þrjá aðra í apríl 1994 en breska saksóknaraembættið lét málið niður falla á þeirri forsendu að lykilvitni væri ekki nægilega trúverðugt. Opinber rannsókn fór fram á því hvernig Lundúnalög- reglan fór með málið og árið 1999 varð niðurstaða rannsóknar- nefndarinnar sú að kynþátta- fordómar innan lögreglunnar hefðu haft áhrif á málsmeðferðina. „Kynþáttahatarar“ í fangelsi fyrir morð BRETLAND Hartnær þúsund börn létu lífið í fangabúðum í Finnlandi þar sem þeim var haldið vegna grunsemda um tengsl þeirra við hópa sem studdir voru af Sovétríkjunum í borgarastríði landsins árið 1918. Tuulikki Pekkalainen, finnskur sagnfræðingur, sagði frá þessu þegar hún kynnti nýja bók sem gef- in verður út á næsta ári um efnið. „Á þessum tíma var mikið um hatur og tortryggni í Finnlandi og börn- um var refsað vegna þess sem for- eldrar þeirra og ættingjar höfðu gert,“ segir Pekkalainen. Um fimm hundruð börn biðu bana í stríðinu að sögn hennar en 952, þeirra á meðal ungbörn, létust í fangabúð- um eftir að stríðinu lauk vegna hræðilegra aðstæðna. Nær 1.000 börn létu lífið í fangabúðum FINNLAND „Fjölskyldan, trú og frelsi,“ eru kjörorð Ricks Santorum í kosningabaráttunni og skila- boð hans fengu góðan hljóm- grunn hjá íhaldssömum, kristnum kjósendum repú- blikana í Iowa. Í ræðu sinni eftir að úrslitin voru kynnt lagði hann áherslu á rætur fjölskyldu sinnar í stáliðn- aðinum í Pennsylvaníu og bar- áttu afa síns í kolanámum eft- ir að hann flutti þangað búferlum frá Ítalíu. Santorum er 53 ára, kaþ- ólskur, faðir sjö barna og hef- ur verið kvæntur eiginkonu sinni, Karen, í 21 ár. Hann var kjörinn í fulltrúadeild Banda- ríkjaþings fyrir Pennsylvaníu árið 1990 og átti sæti í öld- ungadeildinni frá 1995 til 2007. Andstæðingar hans hafa lýst honum sem trúarof- stækismanni og m.a. skír- skotað til viðtals þar sem hann jafnaði kynmök- um samkyn- hneigðra við sifja- spell og barnaníð. Sakaður um ofstæki RICK SANTORUM Rick Santorum FORVALIÐ Í IOWA 120.000 atkvæði voru greidd 25% 30.015 Fjöldi atkvæða Kjörfylgi í % 30.007 26.219 16.251 12.604 6.073 745 25% 21% 13% 10% 5% Heimildir: Reuters, fréttir fjölmiðla Mitt Romney, 64 ára fyrrverandi ríkisstjóri, MA Rick Perry, 61 árs ríkisstjóri Texas Newt Gingrich, 68 ára fyrrv. forseti fulltrúa- deildarinnar Michele Bachmann, 55 ára fulltrúadeildarþingm., MN Ron Paul, 76 ára fulltrúadeildarþingm., TX Rick Santorum, 53 ára fyrrv. öldungadeildar- þingmaður, PA Jon Huntsman, 51 árs fyrrv. ríkisstjóri, UT 1% KOSNINGAR Heimild: Kjörstjórn Bandaríkjanna. KJÖRDAGARNIR Í BANDARÍKJUNUM FORKOSNINGAR REPÚBLIKANA OG DEMÓKRATA JanúarLokið Febrúar Mars Apríl Maí Júní„Ofurþriðjudagur“ 6. mars MIKILVÆGIR DAGAR JAN. JAN.FEBR. MARS APRÍL MAÍ JÚNÍ JÚLÍ ÁGÚST SEPT. OKT. NÓV. DES. 20. jan. 2013 Innsetning í forseta- embættið 6. nóv. Forseta- kosningar 27.-30. ágúst Lands- fundur repúblikana 3.-6. sept. Lands- fundur demókrata 3. janúar Forvalið í Iowa 10. janúar Forkosningar í New Hampshire 6. mars „Ofur- þriðju- dagur“ NH MA RI CT NJ DE MD D.C. WA OR AZ AK HI NM TX OK KS CO UTNV CA ID MT ND SD NE MN IA MO AR MS AL LA FL GA TN WI IL IN OH MI KY NY WY PA VA WV VT MN NC SC KOSNINGAR NOREGUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.