Morgunblaðið - 05.01.2012, Side 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2012
✝ Bjarni HörðurAnsnes fædd-
ist á Siglufirði 24.
júlí 1940. Hann
lést á sjúkrahúsi
Suðurlands 21.
desember 2011.
Hann var sonur
Þorvaldar Ansnes,
f. 29. júní 1910, d.
1971, og Sólveig
Bjarnadóttir, f.
24. maí 1909, d.
1983. Bjarni átti tvö systkini
en þau eru: Guðrún Ansnes, f.
5. mars. 1934 og Hörður Ans-
nes, f. 11. janúar 1932, d.
1938.
Hinn 5. nóvember 1961 gift-
ist Bjarni Rut Guðmunds-
dóttur, f. 8. febrúar 1940, d.
30. september 2010. Foreldrar
hennar voru Þórunn Jóns-
dóttir frá Ásmúla, f. 1920, d.
2000, og Guðmundur R. Guð-
mundsson slökkviliðsstjóri, f.
1919. Guðmundur
kvæntist síðan El-
ínu Guðmunds-
dóttur, f. 1923, d.
2011. Þau eiga
tvær dætur, Þór-
unni Ansnes, f. 11.
feb. 1962, og Írisi
B. Ansnes, f. 13.
sept. 1972. Fyrr-
verandi eig-
inmaður Þórunnar
er Sigurður I.
Björnsson, f. 1963. Börn
þeirra eru Rut Sigurðardóttir,
f. 1991, d. 1991, Bjarni H.
Ansnes, f. 1992, Gunnar Sig-
urðsson, f. 1994, og Mímir
Sigurðsson, f. 1999. Sambýlis-
maður Írisar er Viggó Sig-
ursteinsson, f. 1970, og eiga
þau eitt barn Tómas Berg
Viggósson, f. 2011.
Bjarni var jarðsunginn í
kyrrþey frá Hrunakirkju 30.
desember 2011.
Við upphaf skólaárs 1972
urðu skólastjóraskipti við
Flúðaskóla. Hinn nýráðni
skólastjóri var Bjarni Hörður
Ansnes og komu með honum
eiginkona hans, Rut Guð-
mundsdóttir, og dæturnar
tvær, Þórunn 10 ára og Íris
nokkurra daga gömul.
Það var eins og hressandi
andblær færi um skólastarfið
við komu hans og breytti
Bjarni mörgu sem varð skól-
anum til hagsbóta. Hann lengdi
starfsár skólans úr sjö mán-
uðum í átta og fljótlega lagði
hann niður heimavist skólans,
heimavistarherbergjum var
breytt í kennslustofur fyrir
yngstu bekkina þrjá. Við þess-
ar breytingar var skiptikennsla
lögð niður en áður höfðu börn á
yngsta stigi og miðstigi skipst á
veru í skólanum, miðstigið
hafði verið í tvær vikur í skól-
anum og eina viku heima og
yngstu börnin eina viku í skól-
anum og svo tvær vikur heima,
en eftir þessa breytingu komu
þau daglega í skólann. Dagleg-
ur akstur var tekinn upp og
höfðu allir nemendur jafn
marga daga í skólanum yfir
veturinn. Í tíð Bjarna hófst
samstarf í skólamálum við
Gnúpverja- og Skeiðahrepp og
nemendur frá þessum sveitum
komu í Flúðaskóla og luku þar
þremur síðustu vetrum skyldu-
náms. Hann stofnaði landspróf-
sdeild við skólann og þurftu því
nemendur ekki að fara í skóla
fjarri heimabyggð til að ljúka
námi fyrir framhaldsskóla.
Bjarni ákvað að árshátíð skól-
ans væri haldin ár hvert og
skyldi hver nemandi hafa þar
eitthvert hlutverk. Við þetta
vöndust nemendur við að koma
fram og efldust þeir við hverja
raun.
Hann hélt kennarafundi
reglulega og jókst samvinna
kennara mikið eftir að þessi
festa í skólastarfi var tekin
upp. Hann var opinn fyrir nýj-
ungum í starfi og tók alltaf ljúf-
mannlega í nýjar hugmyndir
sem starfsfólk kom með.
Bjarni átti ýmis áhugamál,
hann var vel lesinn, söng í kór-
um, spilaði bridge, hafði áhuga
á alls konar ræktun en aðal-
áhugamálið var hestarnir hans.
Hann átti mikið af hestum og
marga góða. Hápunkturinn var
1. verðlauna hryssan hún Tinna
hans sem var Íslandsmeistari í
tölti 1984.
Margs er að minnast frá
liðnum árum og þá koma fram í
hugann öll ferðalögin sem við
Kjartan höfum farið í með Rut
og Bjarna ásamt fleiri vinum,
bæði innanlands á hestum
hvert sumar í tæp 30 ár og
einnig margar ferðir erlendis.
Alltaf var Bjarni með spaugs-
yrði á vörum og skipti aldrei
skapi á hverju sem gekk.
Fyrir sex árum vorum við
Bjarni kosin í stjórn Hjarta-
heilla á Suðurlandi og tók hann
þar við starfi formanns sem
hann gegndi til dauðadags.
Hann vann ötullega að því að
SÍBS-lestin fór um Árnessýslu
núna snemma vetrar til að
mæla ástand æðakerfis þeirra
sem vildu nýta sér þessa þjón-
ustu. Gott var að starfa með
honum í stjórninni.
Rut og Bjarni féllu of fljótt
frá. Eftir langa starfsævi hefði
verið ljúft fyrir þau að eiga
meiri tíma fyrir sín áhugamál
og fylgjast með dætrum sínum
og börnum þeirra. Það er trú
mín að hann hafi nú hitt Rut
sína sem hann syrgði svo sárt.
Við Kjartan sendum Þór-
unni, Írisi og fjölskyldum
þeirra okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Björg Björnsdóttir.
Þegar nóttin var svo löng að
varla tók því fyrir dagsbirtuna
að skína örskamma stund um
hádaginn, andaðist vinur minn
Bjarni Ansnes.
Hann var borinn og barn-
fæddur á Siglufirði en fluttist
með foreldrum sínum og systur
til Reykjavíkur á unga aldri.
Faðir Bjarna var Þorvaldur
Ansnes. Hann var þannig til
kominn að faðir hans, norskur
sjómaður, hafði dansað fram á
morgun við síldarstúlkuna Guð-
rúnu Sigurðardóttur. Móðir
Bjarna var Sólveig Bjarnadótt-
ir Vestur-Skaftfellingur í húð
og hár og alin upp í Mýrdaln-
um. Var faðir hennar Bjarni
Kjartansson, kaupfélagsstjóri í
Vík. Hann flutti frá Vík með
fjölskyldu sína norður á Siglu-
fjörð og gerðist þar útsölustjóri
áfengiseinkasölunnar á staðn-
um. Kom það til af því að
Bjarni Kjartansson var slíkt
góðmenni að hann gat ekki
neitað fátækum um úttekt í
nauð. Það þoldi Kaupfélagið í
Vík ekki til lengdar og var
hann því látinn hætta. Mikið
held ég að Bjarni skólastjóri
hafi líkst Bjarna afa sínum um
margt og trúlega vissi hann af
því. Framsóknarmaður varð
hann þó aldrei eins og ættin og
grunar mig að hann hafi hálf-
skammast sín fyrir þann póli-
tíska uppruna, eins og fleiri.
Bjarni Hörður gekk þessa
hefðbundnu skólagöngu sem
reyndist honum auðveld og
auðsótt enda næmur vel og
endaði hana útskrifaður úr
Kennaraskólanum.
Á þeim tíma var hann virkur
í íþróttum og skátastarfi og bar
það heilbrigða viðhorf með sér
alla tíð. Kringum íþróttirnar
kynntist hann jafnöldru sinni,
afrekskonu í handbolta sem
hann heillaðist af og dáði alla
tíð. Hún hét Rut Guðmunds-
dóttir, einstaklega glæsileg,
greind og góð kona. Rut var al-
in upp af móður sinni, ein-
stæðri, fátækri verkakonu sem
gaf allt sitt til framtíðar dóttur
sinnar. Bjarni og Rut giftu sig
og fluttu vestur á Hellissand
þar sem Bjarni var skólastjóri í
rúm tíu ár. Að Flúðaskóla var
Bjarni skipaður skólastjóri árið
1972 en Rut kennari og störf-
uðu þau við þann skóla lengst
af sinni starfsævi. Þau eign-
uðust tvær dætur, Þórunni og
Írisi.
Dvölin á Flúðum var lengsti
kafli lífsgöngu Bjarna og þar
skaut fjölskyldan rótum.
Lengst af á því skeiði bjuggu
þau við velgengni og vaxandi
vinsældir en undir lokin dró í
kólgubakka sem uppblásinn var
af þeim er síst skyldi. En þann-
ig eru laun heimsins og við
þeim tók Bjarni með sömu ljúf-
mennskunni og einkenndi hann
alla tíð.
Svo liðu árin, Bjarni hætti
kennslu, en sýslaði kringum
hrossin sín eða baksaði við
garðrækt. Hann var aldrei mik-
ill afkastamaður enda sá hann
enga dyggð í slítandi puði líkt
og margur samferðamaðurinn
gerði. Rut slakaði hinsvegar í
engu á, hvorki í vinnu né við
nám enda var hún drifkraft-
urinn í sambúðinni. Þá kom
höggið stóra, Rut greindist með
krabbamein og lést eftir stutta
legu, 30. september fyrir rúmu
ári. Eftir það virtist slokkna á
lífsvilja Bjarna skólastjóra.
Hann fann ekki tilgang með líf-
inu lengur, hætti að hlakka til
morgundagsins, sem öllum er
þó svo lífsnauðsynlegt.
Jón Hermannsson.
Brátt bar að andlát þitt. Þó
að heilsu þinni hafi hrakað mik-
ið síðasta árið bjóst ég við því
að þú yrðir lengur á meðal okk-
ar og að við ættum eftir að tala
saman einu sinni enn um strák-
ana, hrossin og pólitíkina. Þeg-
ar horft yfir farinn veg er
margt sem kemur upp í hug-
ann. Ég minnist fyrstu áranna
þegar ég var að stíga mín
fyrstu spor í hestamennsku í
þínu skjóli. Þinn brennandi
áhugi og þessi frábæru hross
sem þú ræktaðir og ég fékk að
njóta leiddu til þess að ég hef
gert hestamennskuna að aðal-
starfi.
Það var alltaf yndislegt að
heimsækja ykkur Rut á Flúðir.
Oft var það í kringum eitthvert
stúss við hestana en ljúfustu
minningarnar á ég þegar við
Þórunn komum austur á jólum
með strákana. Þó að þú hafir
aldrei trúað því, þá þótti mér
síldarsalatið sem þú gerðir al-
veg ágætt.
Hestaferðirnar um hálendið
voru ávallt hápunktur sumars-
ins. Þessar ferðir fóruð þið Rut
með vinafjölskyldum í um ald-
arfjórðung. Mér þykir afar
vænt um að hafa fengið að slást
í hópinn. Synir okkar Þórunnar
tóku þátt í þessum ferðum af
miklum áhuga og eiga minn-
ingar um þig í tengslum við
þær eftir að lifa með þeim.
Einnig eru mér sérstaklega
minnisstæðar ferðir sem við
fórum í litlum hópi í kringum
Langjökul og Hofsjökul. Ég sé
þig ljóslifandi fyrir mér á Tinna
gamla í Kráksskarði eða við
Arnarfellsmúlana. Þarna fannst
þér gaman, þarna varstu í ess-
inu þínu.
Því miður gafst mér ekki
færi á að fylgja þér síðustu
sporin, en hugur minn er hjá
dætrum þínum, Þórunni og Ír-
isi, sem ég votta mína dýpstu
samúð.
Ég minnist þín með miklu
þakklæti. Þú hafðir dýpri áhrif
á mig en þig grunaði.
Farðu vel, gamli vinur.
Sigurður I. Björnsson.
Vinur okkar Bjarni H. Ans-
nes lést snögglega 21. desem-
ber. Manni finnst óneitanlega
stutt stórra högga á milli, þar
sem aðeins eru 15 mánuðir síð-
an kona hans Rut Guðmunds-
dóttir lést.
Á skilnaðarstundu viljum við
minnast hans nokkrum orðum.
Bjarni lauk prófi frá Kenn-
araskóla Íslands 1962 og varð
skólastjórn og kennsla hans
meginstarf í lífinu. Bjarni og
Rut, ásamt dótturinni Þórunni,
fluttu vestur á Hellissand, þar
sem hann hafði fengið skóla-
stjórastöðu við Barna- og ungl-
ingaskóla Hellissands en Rut
fékkst þar einnig við kennslu.
Árið 1972 flutti fjölskyldan á
Flúðir, en þá hafði Íris bæst í
hópinn. Tók Bjarni við stöðu
skólastjóra Flúðaskóla og Rut
við kennarastöðu við sama
skóla. Gegndi Bjarni þeirri
stöðu auk kennslu þar til hann
fór á eftirlaun.
Þá voru hjónin með garð-
yrkju til margra ára á Flúðum
sem Bjarni stundaði allt til síð-
asta dags, með góðra manna
hjálp. Þau höfðu mikið yndi af
hestum og fóru margar hesta-
ferðir um óbyggðir landsins,
með vinafólki sínu.
Alltaf voru þau góð heim að
sækja, Bjarni og Rut, og áttum
við margar ánægjulegar sam-
verustundir hjá þeim, bæði
vestur á Hellissandi sem og
Flúðum. Í hugann koma því
margar góðar minningar, sem
gott er að eiga á sorgarstund.
Þau hefðu átt gullbrúðkaup
5. 11.’11., svo að tíminn var orð-
inn nokkuð langur sem þau
höfðu átt samleið. Þau voru
samhent í öllu sem þau tóku
sér fyrir hendur. Eftir svo
langa og farsæla sambúð varð
missir Bjarni mikill þegar
Rut dó, og við tóku mjög erf-
iðir tímar. Hann stóð ekki einn,
því að dætur hans Þórunn og
Íris stóðu þétt við hlið hans allt
til hinstu stundar og gerðu allt
fyrir hann sem þær gátu.
Bjarna viljum við þakka góð
kynni og vinskap gegnum árin.
Árnum við honum allra heilla á
nýjum vegum. Góður maður er
genginn.
Við biðjum Þórunni og son-
um hennar, Bjarna Herði,
Gunnari og Mími, sem og Írisi
og Viggó og syni þeirra Tómasi
Bergi, Guðrúnu systur Bjarna
og öðrum ættingjum, blessunar
og styrks og vottum þeim inni-
lega samúð okkar.
Blessuð sé minning Bjarna
Harðar Ansness.
Margrét og Halldór.
Guðrún og Bjarni.
Látinn er góður vinur og
samstarfsmaður um áratuga-
skeið, Bjarni H. Ansnes. Útför
hans var gerð frá Hrunakirkju
30. des sl. Útförin var ekki aug-
lýst að ósk hins látna. Engu að
síður fylgdi mikill fjöldi fólks
honum til grafar, vandamenn,
vinir og sveitungar og vildu
með því auðsýna hinum látna
virðingu og þökk.
Bjarni var ráðinn skólastjóri
við Grunnskólann að Flúðum
haustið 1972, sem þá var
heimavistarskóli eins og al-
gengast var þá í sveitum lands-
ins. Bjarni kom ásamt fjöl-
skyldu sinni frá Ólafsvík, þar
sem hann hafði verið skóla-
stjóri í 10 ár. Með Bjarna kom
eiginkona hans, Rut Guð-
mundsdóttir, ásamt tveimur
dætrum þeirra, Þórunni 10 ára
og Írisi sem þá var nýfædd.
Kom það í hlut þeirra hjóna að
móta skólastarfið í Flúðaskóla
næstu þrjá áratugina á miklum
breytingatímum í skólastarfinu.
Skólaárið var smám saman
lengt og heimavistin lögð af ár-
ið 1991 og var þá allt húsnæði
heimavistar tekið undir kennslu
og einnig íbúðir í húsnæði skól-
ans síðar.
Rut aflaði sér fljótlega
kennsluréttinda og kenndi við
hlið eiginmanns síns til alda-
móta 2000 og var honum hollur
ráðgjafi við skólastarfið. Ég
starfaði sem kennari við Flúða-
skóla frá 1961 til 1994 og átti
mikið og gott samstarf við þau
hjónin. Margs er að minnast
frá þessum árum og er bjart yf-
ir þeim minningum.
Rut andaðist á haustdögum
2010 eftir hetjulega baráttu við
krabbamein. Missir Bjarna var
mikill og má segja að hann hafi
ekki borið sitt barr eftir andlát
hennar. Það var sem lífslöng-
unin dvínaði ört. Hann átti
einnig við veikindi að stríða síð-
ustu árin og dvaldi á sjúkrahúsi
og heilsustofnunum um skeið.
Hann hresstist þó og virtist
vera að ná nokkuð góðri heilsu
eftir dvöl á sjúkrastofnun á sl.
hausti og hafði t.d. pantað sér
ferð til Kína, en heilsunni hrak-
aði á jólaföstu uns hann and-
aðist á Sjúkrahúsi Suðurlands
21. des sl. Bjarni var farsæll
skólastjóri og félagslyndur og
skemmtilegur maður í allri um-
gengni. Ógleymanleg verður
mér vikuferð okkar til Noregs í
maí 1991 með 10. bekk Flúða-
skóla. Vorum við að heimsækja
skóla í Kongs-vinger sem hafði
heimsótt okkur haustið áður.
Ótal aðrar ánægjulegar minn-
ingar rifjast upp varðandi sam-
skipti við Bjarna og hans
ágætu eiginkonu, Rut Guð-
mundsdóttur. Fyrir öll þessi
miklu samskipti fyrr og síðar
vil ég og eiginkona mín, Hrafn-
hildur Jónsdóttir, sem einnig
starfaði við skólann í nokkur
ár, þakka af heilum hug. Dætr-
unum og fjölskyldum þeirra
flyt ég einlægar samúðarkveðj-
ur.
Jóhannes Sigmundsson.
Bjarni Hörður
Ansnes
✝ Við birtinguæviágrips sem
birtist með
minningargreinum
um Sigurgísla Sig-
urðsson 3. janúar
sl. féll út síðasta
málsgreinin og er
það því birt hér í
heild sinni. Hlut-
aðeigendur eru
beðnir velvirð-
ingar á mistök-
unum.
Sigurgísli Sigurðsson, hús-
gagna- og innanhúsarkitekt,
fæddist í Reykjavík 16. maí
1923. Hann lést á Landspít-
alanum 26. desember 2011.
Faðir hans var Sigurður
Ágúst Guðmundsson, skip-
stjóri í Reykjavík, f. í Krýsu-
vík 2.8. 1883, d. 3.2. 1950.
Faðir Sigurðar var Guð-
mundur Jónsson, sjómaður í
Krýsuvík, f. 16.11. 1854, d.
9.6. 1918, og móðir hans var
Guðrún Jónsdóttir, f. 9.6.
1860, d. 6.6. 1910. Móðir Sig-
urgísla var Gíslína Sigurð-
ardóttir, húsmóðir í Reykja-
vík, f. á Helgastöðum við
Vitatorg í Reykjavík 20.6.
1891, d. 30.4.
1990. Faðir Gísl-
ínu var Sigurður
Jónsson, f. á Hofi,
Kjalarneshreppi
15.9. 1829, d. 30.5.
1915. Móðir Gísl-
ínu var Sigríður
Jónsdóttir, f. á
Snotru í Þykkva-
bæ, 7.11. 1847, d.
18.1. 1924. Systk-
ini Sigurgísla eru
1) Sigurður Gunnar Sigurðs-
son, varaslökkviliðsstjóri í
Reykjavík, f. 2.2. 1917, d. 29.8.
1994, maki Sigurðar Gunnars
var Ragnhildur Guðmunds-
dóttir, f. 10.10. 1919, d. 26.6.
1984. 2) Sigríður Bára Sigurð-
ardóttir húsmóðir, f. 2.10.
1930, maki Sigríðar Báru er
Reynir Þórðarson, f. 31.10.
1929. Hinn 9.1. 1954 kvæntist
Sigurgísli, Eddu Ingveldi Vik-
ar Guðmundsdóttur, f. 29.12.
1927, d. 7.2. 2002. Edda stund-
aði nám við Kvennaskólann í
Reykjavík og tölvunám við
Verslunarskólann, hún starf-
aði við skrifstofustörf og nam
og lagði stund á vefnað. Sonur
Eddu og uppeldissonur Sig-
urgísla er Guðmundur Vikar
Einarsson þvagfæra-
skurðlæknir, f. 8.2. 1949. Guð-
mundur kvæntist Steinunni
Guðmundsdóttur, f. 20.10.
1950, d. 2.11. 2002. Börn
þeirra eru: a) Edda Vikar sál-
fræðingur, f. 28.8. 1970, maki
Jón Örn Guðmundsson, börn
þeirra eru Guðmundur Vikar
og Steinunn Vikar b) Þóra
Vikar förðunarfræðingur, f.
30.4. 1976, maki Jahmel Topp-
in. Eiginkona Guðmundar Vik-
ar er Guðrún Garðars, f.
10.12. 1956, sonur hennar og
uppeldissonur Guðmundar
Vikar er Guðmundur Þór Vil-
hjálmsson, f. 4.3. 1984, unn-
usta Anna Lind Traustadóttir.
Önnur börn Sigurgísla og
Eddu eru: 1) Hjördís, arkitekt,
f. 15.10. 1956, maki Dennis
Davíð Jóhannesson, arkitekt,
f. 29.7. 1946. Sonur hans er
Ragnar Jón, f. 9.10. 1982, sam-
býliskona Anna Fríða Stef-
ánsdóttir og sonur þeirra er
Ottó Örn. 2) Hilmar, rafvirki,
f. 16.11. 1957, maki Ásgerður
Atladóttir, f. 18.1. 1957. Synir
þeirra eru a) Orri, f. 22.7.
1980, b) Gísli, f. 22.10. 1981,
unnusta Emma Elísabet
Grímsdóttir. 3) Sjöfn, doktor í
matvælafræði, f. 2.9. 1963,
maki Stefán Jökull Sveinsson
lyfjafræðingur, f. 2.5. 1963.
Börn þeirra eru a) Tinna, f.
25.8. 1988, unnusti Björgvin
Gauti Bæringsson, og b)
Snorri, f. 12.4. 1993. Sigurgísli
lauk meistaraprófi í hús-
gagnasmíði 1949 og húsasmíði
1953 frá Iðnskólanum í
Reykjavík. Hann hafði löggild-
ingu sem húsasmíðameistari.
Sigurgísli fór í framhaldsnám
í Aarhus Tekniske Skole, 1946
til 1950 í Danmörku og lauk
þaðan prófi í húsgagna- og
innanhúshönnun sem hús-
gagna- og innanhúsarkitekt.
Sigurgísli stofnaði og rak tré-
smiðjuna Húsgögn og innrétt-
ingar frá 1950.
Árið 1970 hætti hann
rekstri og hóf störf hjá Borg-
arverkfræðingi og síðar hjá
Skólaskrifstofu Reykjavíkur
þar sem hann hafði umsjón og
eftirlit með viðhaldi á skóla-
byggingum í Reykjavík. Hann
lét af störfum 1993, 70 ára að
aldri. Hann var einn af stofn-
endum veiðifélagsins Streng-
ur. Hann var félagi í Odd-
fellow stúkunni Þorfinni
Karlsefni. Sigurgísli tók þátt í
að stofna HK og var í stjórn
þar. Sigurgísli tók þátt í
hlaupum á vegum ÍR og lagði
stund á millivegalengdir,
stundaði einnig handbolta og
átti Íslands- og félagsmet í
þessum greinum. Hann keppti
einnig fyrir dönsk íþróttafélög
eins og Arhuss 1900. Edda og
Sigurgísli bjuggu í Kópavogi
frá árinu 1960.
Útför Sigurgísla fór fram
frá Digraneskirkju 3. janúar
2012.
Sigurgísli
Sigurðsson