Morgunblaðið - 05.01.2012, Síða 40

Morgunblaðið - 05.01.2012, Síða 40
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 5. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Vísað burt úr VIP-partíi 2. Kanna hvarf íslensku konunnar 3. Ónotatilfinning sjálfstæðismanna 4. „Ég ætla að horfa fram á við … “ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir birtir lista á vefsíðu sinni yfir bestu plötur síðasta árs að hennar mati. PJ Harvey er á toppi listans en í humátt á eftir koma Lykke Li og Tom Waits. Nánar á lararunars.com. Lára Rúnarsdóttir og plötur ársins  Ein virtasta neðanjarðar- rokksveit allra tíma, hin banda- ríska Fugazi, spil- aði á tónleikum hérlendis í apríl 1999. Þeir hafa nú verið gefnir út af hljómsveitinni og hafa viðbrögð íslenskra rokkara ekki látið á sér standa. Tónleikarnir þykja goðsagnakenndir og eru fagn- aðarlæti mikil, á fésbókinni og víðar. Íslandstónleikar Fugazi útgefnir  Leikarinn Gunnar Hansson leysti Andra Frey Viðarsson af í Virkum morgnum í gær. Ræddi hann m.a. um þá ósk sína að gefa út plötu þar sem hann syngi yfir fræg ósungin lög, eins og t.d. „Garden Party“ Mezzoforte. Morgun- blaðið ræddi við Gunn- ar, en að vísu um allt önnur mál og óskyld. »36 Gunnar Hansson og „Garden Party“ Á föstudag Suðaustan 10-18 m/s og slydda eða snjókoma í fyrstu á Norður- og Austurlandi. Annars SV 8-13 og skúrir eða slydduél. Léttir til norðaustanlands síðdegis. Hiti víða 1 til 6 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir árla dags V-til á landinu og síðdegis A-lands. Él fram eftir degi NA-til, annars bjartviðri. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum. Byrjar að snjóa á S- og V-landi í kvöld. VEÐUR Njarðvík fylgir Keflavík eins og skugginn í toppbaráttu úrvalsdeildar kvenna í körfuboltanum. Shanae Baker-Brice, lykilleikmaður í liði Njarðvíkinga, segir að það ætli sér að vinna Ís- landsmeistaratitilinn og möguleikarnir á því séu nokkuð góðir. Heil um- ferð var leikin í deildinni í gærkvöld þar sem Keflavík, KR og Valur unnu líka sína leiki. »4 Njarðvík fylgir Keflavík eftir Íþróttamaður ársins verður útnefnd- ur í kvöld í 56. skipti af Samtökum íþróttafréttamanna. Frjálsíþróttafólk hefur oftast hlotið þennan heiður, eða í 21 skipti, en hand- boltamenn hafa hins veg- ar orðið fyrir valinu und- anfarin þrjú ár. Síðast var það Alexander Petersson. »2 Íþróttamaður ársins 2011 útnefndur í kvöld Svo virðist sem Arnór Þór Gunn- arsson og Fannar Þór Friðgeirsson séu úr leik í baráttunni um sæti í handboltalandsliðinu fyrir EM í Serb- íu. Þeir voru skildir eftir heima í morgun þegar Guðmundur Þ. Guð- mundsson fór með 18 menn á mót í Danmörku. Útlit er fyrir að nú berjist þrír leikmenn um eitt laust sæti í endanlegum hópi fyrir EM. »1 Tveir úr leik í baráttu um sæti í landsliðinu? ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Andri Karl andri@mbl.is „Þegar maður upplifir að allt upp í 82% þjóðarinnar fylgist með okkur þá er það örugglega heimsmet í áhorfi á handbolta yfirhöfuð. Það hvetur okkur áfram að finna þennan stuðning þjóðarinnar, hvetur til dáða og setur jafnframt á okkur pressu,“ segir Guðmundur Þ. Guð- mundsson, þjálfari íslenska karla- landsliðsins í handknattleik, en „strákarnir okkar“ leika sinn fyrsta leik á Evrópumótinu í Serbíu 16. janúar nk. Liðið heldur utan til Dan- merkur í dag þar sem það tekur þátt í Total Kredit-æfingamótinu. Íslenska liðið hefur tekið þátt í stórmótum undanfarin tvö ár í jan- úarmánuði og á sama tíma greip um sig handknattleiksæði hér á landi. Vart var um annað talað í skamm- deginu en gengi landsliðsins og til að mynda voru útsendingar frá leikjum Íslendinga á Evrópumótinu í Aust- urríki í janúar 2010 langvinsælasta sjónvarpsefnið á meðan mótið stóð yfir og mældist uppsafnað áhorf á milli sjötíu og áttatíu prósent. Öllu minna áhorf var á heimsmeist- arakeppnina í Svíþjóð í janúar á síðasta ári en þar voru flestir leikir Íslands í lokaðri dag- skrá. Að þessu sinni sýnir RÚV frá mótinu og hefj- ast fyrstu tveir leikirnir í riðlinum kl. 19.10 en sá þriðji kl. 17.10. Upplifa stemn- inguna óbeint En hvernig skynja landsliðsmennirnir stemninguna á Íslandi? „Auðvitað upplifum við stemninguna meira óbeint. Við erum ekki á landinu heldur annars staðar, uppteknir við handbolta og erum að einbeita okk- ur fyrst og síðast að því sem við er- um að gera á hverjum tíma,“ segir Guðmundur. „Það liggur eiginlega við að við upplifum þetta meira þeg- ar við komum heim.“ Þó svo að leikmenn geti ekki gefið sér mikinn tíma til að fylgjast með því sem gerist í heimalandinu segir Guðmundur að þeir heyri það engu að síður af afspurn. „Og við erum af- skaplega þakklátir fyrir þann áhuga sem liðinu er sýndur. Það er ekki sjálfgefið og alls ekki þannig hjá öll- um þjóðum sem taka þátt á stórmót- um. […] Við erum fulltrúar þjóð- arinnar og erum að spila fyrir hana.“ Guðmundur hefur marga fjöruna sopið í handknattleiknum og helgað sig landsliðinu stóran hluta ævinnar; sem leikmaður, aðstoðarþjálfari og loks þjálfari. Hann segir stuðning þjóðarinnar ávallt hafa verið mikinn og ef einhverjar breytingar sé að merkja þá hafi hann aðeins aukist á undanförnum stórmótum, samhliða góðu gengi liðsins. Gleðigjafar í skammdeginu  Styttist í að „strákarnir okkar“ hefji leik á Evrópumótinu í handknattleik Morgunblaðið/Kristinn EM 2010 Aron Pálmarsson brýst í gegnum rússneskan varnarmúr í leik liðanna á EM í Austurríki árið 2010. Um sjötíu prósent þjóðarinnar fylgdust með. Íslenska landsliðið leikur vin- áttuleik við það finnska föstu- daginn 13. janúar nk. í Laug- ardalshöll. Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari íslenska liðsins, segir leikinn mjög mik- ilvægan og mikilvægari en margir geri sér grein fyrir. Hann segir Arion banka ætla að bjóða lands- mönnum á leikinn og von- ast til að það skili sér í fullri Laugardalshöll. „Það er mjög mikilvægt fyrir okk- ur upp á þennan stuðning sem við þurfum. Og vonandi getum við gert þetta að góðri generalprufu fyrir fyrsta leik á mótinu.“ Generalprufa fyrir mótið LEIKIÐ VIÐ FINNA HEIMA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.