Morgunblaðið - 20.01.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.01.2012, Blaðsíða 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ U mferðarmiðstöðin, sem margir kalla einfaldlega BSÍ, hefur haft veit- ingasölu innan veggja sinna í næstum fimmtíu ár. Það var um það leyti sem rútu- bransinn hérlendis komst á legg, eða um 1960. Húsið er því síungt, eins og Daði Agnarsson, veit- ingamaður hjá Fljótu og góðu, sagði blaðamanni. „Í dag er húsið í prýði- legu standi, verulega huggulegt hvert sem litið er og má segja að BSÍ sé falinn gullmoli á besta stað í bænum. Við þurfum ekki að kvarta yfir aðsókninni en ég hef samt sem áður á tilfinningunni að býsna margir geri sér ekki grein fyrir þessum skemmtilega stað, mið- svæðis í borginni segir Daði. Að sögn Daða er andinn í húsinu ein- staklega góður og stemningin minn- ir á flughöfn, bara með heim- ilislegum og notalegum blæ. „Enda er húsið samgöngumiðstöð sem þjónar öllum sem koma með hóp- ferðabílum frá Keflavík. Andrúms- loftið er því skemmtilega alþjóðlegt. Auk þess eru Íslendingar talsvert duglegri að nota rúturnar sem sam- göngumáta á síðustu misserum. Hér er því alltaf nóg af fólki og gaman að vera.“ Sérfræðingar á sínu sviði Sviðakjammar eru ekki sú tegund matar sem flestir tengja við skyndi- bita eða sölu tilbúins matar gegnum bílalúgu, en það er einmitt tilfellið hjá Fljótu og góðu. Það sem meira er, staðurinn er einn stærsti ein- staki kaupandi sviða á Íslandi, og hefur þó vart undan eftirspurninni. „Við seljum þúsunda sviðakjamma á hverju ári og fer vel á því enda eru sviðin einfaldlega rammíslenskur skyndibiti,“ bendir Daði á. „Sviðin sem við bjóðum upp á eru frá Vopnafirði, verkuð upp á gamla mátann, og ég held einfaldlega að það skili sér í betri vöru sem fólk kann að meta. Hver og einn kjammi er handsviðinn og því engin hætta á öðru en fyrsta flokks verkun á hverjum einasta kjamma. Ég held það megi fullyrða að við bjóðum upp á bestu sviðin í bænum,“ segir Daði. Byrjar á bóndadaginn Þorrinn gengur í garð á bóndadag- inn og þá tekur þorramaturinn völdin hjá Fljótu og góðu. „Við verðum með myndarlegt þorrahlað- borð með fjölmörgum réttum. Hjá okkur verður hægt að fá lunda- bagga, súrt slátur, hákarlinn og hvaðeina sem sælkerar vilja helst. Þjóðlegar krásir verða í öndvegi hjá okkur á þorra,“ segir Daði. „Þá verð ég að nefna ljúffenga nýjung hjá okkur sem er reykt svið. Þar er á ferðinni mikið hnossgæti sem við leggjum áherslu á í ár. Og það er eins með þorramatinn og annað sem við bjóðum upp á, gestir geta valið um að tylla sér inn og fá sér bita eða fengið kræsingarnar beint í bíl- inn. Enda er það afar vinsælt að fá sér þorrabakka í bílinn gegnum lúg- una. Daði nefnir ennfremur að svið- in séu ekki endilega vinsælust á þorranum. „Þau eru eiginlega jafnvinsæl ár- ið um kring, og toppa reyndar í vin- sældum á sumrin. Þá koma nátt- hrafnarnir við og næla sér í svið eftir skemmtanir í miðbænum. Vígðir í víkinga tölu Það eru ekki bara Íslendingar sem sækja í sviðin hjá Daða. Útlend- ingar koma við í síauknum mæli og þreyta svokallaða manndómsvígslu. „Ég fæ til dæmis heilu hópana hing- að meðan á Airwaves-tónlistarhátíð- inni stendur. Þá koma þeir hingað gagngert í manndómsvígsluna sem gengur út á sporðrenna sviða- kjamma og skola honum niður með hrímköldu brennivínsstaupi. Þessi athöfn kallast ‘become a viking’ á ensku og verður sífellt eftirsóttari,“ segir Daði. „Þeir sem vígjast með þessum hætti í víkingatölu láta vita- skuld mynda sig í bak og fyrir með- an á eldrauninni stendur svo sönn- unargögn liggi nú örugglega fyrir. Oft fara þeir svo sjálfir eða vinirnir rakleiðis á netið með afraksturinn, blogga um reynsluna og láta mynd- ir fylgja með úr salnum hér hjá okkur. Mér þætti líklegt að sviðin hjá okkur væru fyrir bragðið mest ljósmyndaði maturinn á Íslandi,“ bætir Daði við og hlær. jonagnar@mbl.is Sviðin á Umferðarmiðstöð svífa út Morgunblaðið/Ómar Lúgusala Útlendingar koma við í síauknum mæli og þreyta svokallaða manndómsvígslu þegar þeir graðka í sig sviðunum, segir Daði Agnarsson veitingamaður á BSÍ. Veitingasalan á Um- ferðarmiðstöðinni er á heimavelli þegar þorrinn gengur í garð. En sviðin eru sívinsæl og renna viðstöðu- laust út um bílalúg- una árið um kring. Við seljum þúsunda sviða- kjamma á hverju ári og fer vel á því enda eru sviðin einfaldlega rammíslenskur skyndibiti. Þ orrinn er fjórði mánuður vetrar og hefst á föstu- degi á bilinu 19. til 25. janúar. Þegar þorra lýkur tekur góan við en hún hefst á sunnudegi á bilinu 18. til 24. febrúar. Þetta eru venjulega köld- ustu og erfiðustu mánuðir ársins. „Áður fyrr, þegar fólk bjó ekki jafn vel og nú, kalt var í húsum og matur og hey oft af skornum skammti, gátu þorrinn og góan reynst mörgum erfiðir mánuðir. Þá þurftu menn að þreyja þorrann og góuna en eftir það fór daginn að lengja verulega og styttast tók í sumarið. Síðar er farið að nota orðasambandið í yfirfærðri merk- ingu um að ’þola tímabundna erf- iðleika’,“ segir í greininni þar sem þetta óvenjulega orðatiltæki er út- skýrt. Hagkvæmni í hugsun Ástæða þess að Íslendingar hættu að nota gömlu mánaðaheitin er sennilega fyrst og fremst hag- kvæmni. Evrópuþjóðir sem lands- menn voru helst í samskiptum við notuðu gömlu rómversku mán- aðaheitin, og þegar í upphafi 16. aldar var farið að gefa út almanök í Þýskalandi og Danmörku. Latneskættuðu mánaðaheitin (til dæmis januarius, februârius) fengu almennt ekki íslenska beygingu fyrr en á 18. og 19. öld en beygðust samkvæmt latneskum beyging- arreglum. Að íslensk beyging var þó eitthvað notuð fyrr. Þótt latnesku mánaðaheitin hafi lengi þekkst á Íslandi fór almenn- ingur ekki að nota þau fyrr en seint á 18. öld og elstu dæmi Orðabókar Háskólans eru flest frá því snemma á 19. öld. Sum gömlu mánaðaheitin lifðu þó enn í munni manna og gera reyndar enn, einkum nöfnin á vetr- armánuðunum, segir Guðrún Kvar- an á Vísindavefnum. Þreyja þorrann og fram á góuna Sögnin að þreyja merkir að þrauka eða bíða einhvers með eftirvæntingu og er skyld sögn- inni að þrá. Þetta segir Guðrún Kvaran mál- fræðingur í grein á Vísindavef HÍ. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Ófærð Undanfarið hefur verið snjóþungt og hafa sorphirðumenn átt erfitt um vik. En þeir þreyja þorra og vænta betri tíðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.