Morgunblaðið - 20.01.2012, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 20.01.2012, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ | 13 A ð blóta þorra er þjóðlegur siður og skemmtilegur. Þó að hefðin sé alla jafna sögð rammíslensk er óvíst að allir þekki sögu hans, jafnvel ekki þeir sem duglegastir eru við að gleðjast við sneisafull trog af þjóðlegum krásum. Fyrir þá sem hafa áhuga á að grennslast fyr- ir um forsögu þorrahátíðarinnar er ekki úr vegi að glugga í bók Árna Björnssonar, Þorra- blót, sem Forlagið gaf út undir merkj- um Máls og menn- ingar. Þjóðhátta- fræðingurinn Árni er flestum mönnum fróðari um íslenska siði og venjur, og ekki komið að tóm- um kofunum hjá honum frekar en fyrri daginn. Blótað í heiðnum sið Hvað upprunann varðar þá bendir Árni á það í bók sinni að orðið „blót“ bendi til þess að sá siður sé ævaforn að gera sér dagamun í upphafi þorra á miðjum vetri, og siðurinn sé því eldri kristnitöku hér á landi. Ekki virðast þó ritaðar heimildir fyrir því í Íslendingasögum. Þorra- blóts er hins vegar getið í Orkney- inga sögu um 1300, bendir Árni á. Mannfagnaðurinn sem slíkur á sér því langa sögu sem nær aftur í heiðni, en ekki mun ljóst hvenær úr verður hátíð sem slegið er upp til að fagna komu þorrans þar sem hann er persónugerður sem einhvers konar vetrarvætt eða veðurguð. Blótað á laun Í bók Árna er rakið hvernig menn iðkuðu blót í heimahúsum með lág- stemmdum hætti enda ekki vel séð að stunda heiðið blót í hinum kristna sið. Var þá látið ótalið þó að menn héldu þorra- blót ef það var í heimahúsum, en þorrablót á opinber- um vettvangi var refsivert. Á átjándu öld tekur fólk þó að fagna þorra enda þótti sjálfsagt væn- legra að hafa hann með sér frekar en á móti. Greina heim- ildir frá því að haft var á orði, eftir morgunsigningu á fyrsta degi þorra: „Velkominn þorri, vertu ekki mjög grimmur.“ Misjafnt var hvort hús- freyja bauð þorra velkominn ellegar bóndinn; á Vestfjörðum var það venju samkvæmt freyjan; annars staðar virðist bóndinn hafa séð um að afgreiða ávarpið. Bóndadagur Svo sem alkunna er hefst þorra- mánuður á bóndadegi. Hans er fyrst getið í þjóðsögum Jóns Árna- sonar árið 1864. Þó að útbreiðsla heitisins hafi verið takmörkuð fram á þriðja áratug síðustu aldar eru til fjölmargar heimildir um bóndadag sem ná aftur til fyrri hluta 19. aldar. Varpar Árni Björnsson þeirri hug- leiðingu fram í bók sinni að ef til vill hafi verið um að ræða eins konar feluorð eða dulnefni yfir mannfagn- aðinn þorrablót enda þurfti að fara í launkofa með það athæfi fyrir þeim sem tóku kristna trú alvarlega. Nútímaþorrablót Svo virðist sem þorrafagnaður hafi heldur legið í láginni í Reykjavík framan af 20. öld, bendir þjóðhátta- fræðingurinn á í bók sinni, ef til vill vegna þess að þorrablót þótti sveitalegt og púkó. Þá var úrval skemmtana og matvöru þesslegt í höfuðstaðnum að ekki þurfti að stóla á þorrann með sama hætti og í dreifbýlinu. Líkast til er það ýmsum átthagasamtökum aðfluttra dreif- býlisbúa að þakka að mannamót á þorra sækja í sig veðrið smátt og smátt. Veitingamenn í Naustinu munu hafa fest augu á auglýsingum þar að lútandi og fengið þá hug- mynd að bjóða til veislu í anda fornra þorrablóta, þar sem matur verkaður að fornum sið var borinn fram í trogum. Restina af sögunni þekkjum við – Íslendingar fagna þorra með því að gera vel við sig í mat og drykk og hafa gert allar göt- ur síðan. Fyrir þá sem vilja glöggva sig enn frekar á öllu sem snýr að hinum séríslensku hátíðardögum sem þorr- inn er, skal bent á framangreinda bók Árna Björnssonar, Þorrablót. jonagnar@mbl.is Saga þorrans Sá þjóðlegi siður sem þorrinn ber með sér er í senn eldforn og nýr af nálinni. Þó að heimildir greini frá þorrablótum frá því fyrir kristnitöku eru veislurnar sem við þekkjum í dag hugmynd frá því um 1950. Kjamsað á kjamma Ís- lendingar gera vel við sig í mat og drykk á þorra. Úrvalsþorramatur úr kjötborði Þjóðlegir á þorranum 551 0224 Seljabraut 557 1780

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.