Morgunblaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ Elska framand- legustu rétti Frónbúans Matarmenningin blómstrar á Íslandi og um að gera að nýta það sem landið gefur af sér. Hráefni hrein- leikans hefur mikla kosti sem rómaðir eru um ver- öld víða. Sumir hafa veislu í farangrinum og kynna krásirnar á veraldarvísu. Snjallasti leikurinn er auð- vitað að bjóða gestum hingað heim eins og gert hefur verið undir merkjum hátíðinnar Food & Fun. Fremstu meistarakokkar sækja landið heim og töfra fram rómaða sælkerarétti. Hátíðin er vinsæl meðal Íslendinga og erlendum gestum fjölgar stöð- ugt; bæði fjölmiðlamönnum og fólki sem elskar að bragða framandlegustu rétti Frónbúa. Morgunblaðið/Kristinn Landið sækja þessa dagana heim margir af bestu matreiðslumönnum heims. Þeim er uppálagt að vinna úr íslensku hráefni sem hefur upp á svo margt að bjóða og er rómað fyrir hreinleika og gæði og þekkt sem slíkt víða um veröldina. „Þar sem tilgangur Food&Fun hátíð- arinnar er m.a. að vekja athygli á gæð- um íslensks hráefnis, og matvælafram- leiðslu er ljóst að vörur Mjólkursamsamsölunnar skipa sess á matseðli allra veitingahúsanna sem taka þátt í hátíðinni. Við höfum alla tíð lagt mikla áherslu á nýsköpun og vöruþróun og gott samstarf við íslenska matreiðslumenn. Það er því kærkomið að fá heimsóknir erlendra matreiðslu- manna sem vinna með íslenskar mjólk- urafurðir,“ segir Svanfríður Anna Lár- usdóttir sölufulltrúi hjá MS. Food&Fun hefur öðlast fastan sess í vetrardagskrá Reykjavíkur. „Við ættum einmitt að blása til sóknar á þessum árstíma og bjóða upp á séríslenska við- burði,“ segir Svanfríður Anna. „Aðsókn Íslendinga er reyndar svo mikil að stundum er gantast með það í veitinga- húsageiranum að erlendir ferðamenn eigi erfitt með að fá borð og þurfi að bíða tímunum saman eftir máltíð. Fjöl- breytni einkennir hátíðina í ár og hún ber það með sér hvað matarmenningu okkar hefur fleygt fram síðasta áratug- inn. Ég er ekki í vafa um að Food&Fun á þátt í þeirri framþróun.“ En hvað er það besta sem býðst? Full- kominn matseðill er spennandi sjáv- arréttaforréttur sem kemur bragðlauk- unum á óvart, segir Svanfríður. „Aðalrétturinn er íslenskt lambakjöt og toppurinn ef sósan er rjómalöguð. Mér finnst alltaf jafn gaman þegar ég sé nýj- ar útfærslur af skyreftirréttum. Mat- reiðslumennirnir okkar eru óþreytandi að halda þessum séríslenska eftirrétti á lofti. Og þar sem ég er ekki mikið fyrir sætindi þá væri toppurinn ef hægt væri að fá að smakka góða osta í lokin,“ segir Svanfríður sem kveðst ekki vilja missa af lokakeppni þeirra þriggja matreiðslu- manna sem keppa munu til úrslita sem Food and Fun-matreiðslumaður ársins í Hörpunni á laugardeginum. Sú við- ureign muni verða spennandi og skemmtileg. Svanfríður Anna Lárusdóttir Matarmenningu hefur fleygt fram Food & Fun hefur mikla þýðingu fyrir ís- lenska ferðaþjónustu og matarmenn- ingu, segir Guðný Káradóttir markaðs- stjóri Íslandsstofu. „Matarmenning er þema kynningarstarfs okkar í febrúar og mars og því fellur Food & Fun vel að starfi okkar. Íslandsstofa leggur áherslu á að kynna Ísland sem upprunaland há- gæðahráefnis og matvæla á erlendum mörkuðum. Þetta verkefni er því tilvalinn vettvangur til að laða fram það besta sem íslenska hráefnið býður,“ segir Guðný Með þátttöku erlendra sem verða að störfum á íslenskum veitingahúsum með íslenskum kokkum mætast menningar- straumar. „Þarna fáum við skemmtilega útkomu,“ segir Guðný. „Við nýtum jafn- framt tækifærið og bjóðum til landsins erlendum blaðamönnum sem kynnast íslenskri matarmenningu og fjalla um hana í erlendum miðlum; segja sögur af upplifun sinni. Við munum jafnframt nýta okkur samstarfið við Food & Fun í nýju átaki innan Inspired by Iceland sem við köllum Eldhús: Iceland‘s Little House of Food. Þann 5. mars verður átakinu formlega ýtt úr vör með farandeldhúsi sem verður ferast með um landið ásamt gestgjafa sem býður erlendum ferða- mönnum að bragða á veislumat úr ís- lensku hráefni á vinsælum áfangastöð- um um landið. Fáum einmitt einn þeirra matreiðslumanna sem koma á Food & Fun til að elda úr íslenskum hráefnum fyrir ferðamenn sem njóta veitinganna í Eldhúsinu.“ Hvað vekur áhuga Guðnýjar sjálfrar? Hvaða viðburði á Food & Fun ætlar hún að sækja? „Ég er hrifnust af fiski. Bíð spennt eft- ir að sjá matseðla veitingastaðanna til að geta valið úr.Ætla síðan að fara í Hörpuna laugardaginn 3. mars þar sem lokakeppnin fer fram. Þar verður ein- göngu eldað úr íslensku hráefni og verð- ur gaman að sjá hvernig erlendu kokk- unum tekst upp enda hafa fæstir eldað úr íslensku hráefni áður. “ Guðný Káradóttir Laða fram það besta úr hráefni „Samstarf Vífilfells og Food&Fun er ákveðinn gæðastimpill fyrir Vífilfell sem sýnir hversu mikilvæg við erum á þessum markaði. Vífilfell er með þekktustu vörumerki landsins í bjór og gosi en hefur á undanförnum árum byggt upp eina af sterkustu víndeild á landinu með gríðarlega fjölbreytt og gott úrval,“ segir Hreiðar Þór Jónsson sem er markaðsstjóri áfengis hjá Víf- ilfelli. „Food&Fun er einn af hápunktum ársins í ferðaþjónustu og matarmenn- ingu þar sem verður til góð blanda af Íslendingum og erlendum ferðamönn- um á flottustu veitingastöðum lands- ins,“ segir Hreiðar. Hann segir engan einn ákveðinn hápunkt á hátíðinni heilla sig öðrum fremur en gaman sé þó að sjá árangursríkt samstarf mat- reiðslumeistara og vínþjóna. „Oft er það rétt val á drykkjum með matnum sem ég er hrifnastur af. Mæli því með því að fólk velji vínpakka með matnum til að gera ferðalagið enn meira spennandi. Helst vildi ég að há- tíðin stæði lengur yfir þannig að maður gæti prófað fleiri staði. Það taka nokkrir nýir áhugaverðir taka þátt í fyrsta skipti sem er spennandi. Mat- reiðslumeistararnir sem eru að koma til landsins eru allir svakalega færir þannig að erfitt er að gera upp á milli staðanna. En líklega verður maður að fara að panta borð til að missa ekki af lestinni. Food&Fun er líka gluggi fyrir Vífilfell á erlenda markaði með Víking vörumerkið sem hefur verið að hasla sér völl erlendis auk bjórsins Einstök, sem við framleiðum fyrir erlenda aðila og hefur fengið góða dóma í Bretlandi og Bandaríkjunum. Eftir hátíðina í fyrra fengum við töluvert af fyrirspurnum um Pils Organic sem er fyrsti og reyndar eini lífræni bjórinn sem fram- leiddur er á Íslandi. Það er mikil gróska hjá okkur og fjölmargar nýjungar sem gætu farið fram hjá fólki ef ekki væri fyrir hátíð eins og Food&Fun.“ Hreiðar Þór Jónsson Vínið gerir ferða- lagið spennandi „Food & fun er uppákoma sem er farin að skipta Íslendinga verulegu máli. Há- tíðina sækja fulltrúar fjölmargra virtra erlendra fjölmiðla, blaða, tímarita og sjónvarpsstöðva, sem skrifa um mat- armenningu af þekkingu og komast virkilega vel frá sínu. Rétt eins og kokkarnir sem hingað koma þá eru blaðamennirnir frá Bandaríkjunum, Evrópu og Norðurlöndunum og auðvit- að munar um landkynningu þeirra,“ segir Sif Gunnarsdóttir, for- stöðumaður Höfuðborgarstofu. Matur er stór þáttur í menningu hverrar þjóðar og á ríkan þátt í að skapa orðspor hennar. Íslendingar ætla sér stóra hluti með alþjóðlegu ráðstefnuhaldi og verða, að mati Sifjar, því að geta tekið á móti gestum af reisn og vera þekktir fyrir að bjóða fólki annað og meira en hafragraut og pylsur á Bæjarins bestu – svo hlutirnir séu ýktir aðeins. „En svo skiptir hátíð á borð við Food & fun líka miklu máli fyrir landann. Margir hafa gert sér glaðan dag þessa daga og farið út að borða enda bjóða veitingastaðirnir hér í Reykjavík af- sláttarverð á matseðlinum þessa helgi, nú þegar heimsfrægir meistarakokkar eru á svæðnu. Núna kemur hingað til dæmis Ben Pollinger frá Ney York og verður á Nítjándu í Kópavogi. Ég hef flest árin sem hátíðin hefur verið hald- in farið út á borða, meðal annars þeg- ar Pollinger var á Einari Ben og það er því forvitnilegt að sjá hvað hann er með á matseðlinum núna. Þá er ég líka spennt fyrir því hvað Daninn Claus Henriksen býður, en hann í heimalandi sínu þekktur sem matreiðslumeistari í Dragsholm Slot á vesturströnd Sjá- lands. Og almennt talað er gaman að sjá og finna hvernig þessir erlendu veitingamenn vinna úr íslensku hráefni og ekki síður að fylgjast með hvernig áhrif þeirra á íslenska matarmenningu verða í fyllingu tímans,“ segir Sif að síðustu. Sif Gunnarsdóttir Kokkarnir hafa áhrif á Íslandi Íslensk matargerð og hráefni hefur mikla þýðingu fyrir ferðaþjónustuna hér á landi. Hér á bæ fylgjumst við nákvæm- lega með umfjöllun um Ísland í erlend- um miðlum og á Netinu og sé hún sett upp línulega þá er kúrfan upp á við eftir hátíðina, þegar greinar erlendra blaða- manna sem hátíðina sækja birtist. Slík kynning ræður miklu þegar fólk á ferð- inni ákveður að fara til Íslands,“ segir Guðmundur Óskarsson forstöðumaður markaðs- og viðskiptaþróunar Ice- landair. Fyrirtækið hefur verið einn af helsti bakhjarl Food & fun og telur Guð- mundur reynsluna góða. Matur og veitingastaðir eru stór hluti af þeirri upplifun að ferðast. Food & fun kemur þessari upplifun á framfæri með skemmtilegum og áhrifaríkum hætti sem skiptir miklu máli fyrir íslenska matargerð og ferðaþjónustu. Segist Guðmundur hafa sérstaklega gaman af því þegar íslenskt hráefni mæti sköp- unargleði mismunandi matreiðslu- manna af ólíkum þjóðernum. Food & Fun ýti undir slíkt og sé á sinn hátt list- viðburður. Guðmundur segist munu eftir megni reyna að sækja einhverja þá viðburði sem haldnir verða undir merkjum Food & fun. „Ég ætla til dæmis að hitta á meistarakokkinn Jennifer Jasinski, sem verður á Kolabrautinni í Hörpunni. Jas- inski rekur þrjá veitingastaði í Denver í Colorado. Icelandair hefur flug til Den- ver 10. maí nk. þannig að ég sé þarna kjörið tækifæri til að ná smá forskoti á sæluna, en þar í borg eru reknir margir skemmtilegir veitingastaðir og skemmtileg matarmenning setur sinn svip á mannlíf í borginni. Sjálfur var ég þar vestra fyrir um mánuði og mér fannst gaman að koma til dæmis á staði sem bjóða gestum sínum kjöt af vís- undum. Ég gæti raunar nefnt margt fleira skemmtilegt þarna að vestan og vonandi fá gestir Food and fun að kynn- ast einhverju af því,“ segir Guðmundur að síðustu. Guðmundur Óskarsson Viðburður sköp- unargleðinnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.