Morgunblaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ | 19
I
celandair annars vegar og
Reykjavíkurborg hins vegar
hafa gert þriggja ára samning
við Samtök iðnaðarins um rekst-
ur Food & Fun-hátíðarinnar.
Þá hafa SI og viðburðafyrirtækið
Main Course ehf. undirritað samning
um að þeir síðarnefndu hafi umsjón
með verklegum hluta hátíðarinnar
ásamt verk-
efnastjóra.
„Með þriggja
ára samningi
þessara aðila er
lagður traustur
grunnur að því að
þróa og efla þessa
árlegu matarhátíð
sem hefur fyrir
löngu skipað sér
fastan sess í
menningarlífi
Reykjavíkurborgar,“ segir Jón
Haukur Baldvinsson, verkefnastjóri
Food & Fun.
Helgi Már Björgvinsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs
Icelandair, Einar Örn Benediktsson,
formaður menningar- og ferða-
málaráðs Reykjavíkurborgar, og
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri
SI, skrifuðu undir samningana í Ráð-
húsi Reykjavíkur fyrr í vikunni,
bolludaginn 20. febrúar.
Að sögn Jóns Hauks er tilgangur
hátíðarinnar tvíþættur: annars vegar
að vekja athygli á íslenskri mat-
argerðarlist, gæðum íslenskra hrá-
efna og matvælaframleiðslu. Hins
vegar að fjölga ferðamönnum til
borgarinnar utan háannatíma. „Það
er von aðstandenda að með þessum
samningum takist að skerpa á
áherslum hátíðarinnar og festa hana
enn betur í sessi sem alþjóðlega mat-
arhátíð,“ bætir Jón Haukur við.
Hátíð haldin í 11. sinn
Food & Fun 2012 verður haldin í
Reykjavík dagana 29.-4. mars, en
þetta er í 11. sinn sem hátíðin er
haldin.
Frá upphafi hefur Food and Fun
snúist um að boða til landsins er-
lenda matreiðslumeistara, kynna fyr-
ir þeim íslensk gæðamatvæli og Ís-
land og Reykjavík sem sælkeraland-
og borg. Það hefur skilað sér í um-
talsverðri umfjöllun í erlendum fjöl-
miðlum og meðal veitingamanna, en
um 200 erlendir matreiðslumeistarar
og fjöldi annarra matgæðinga og fjöl-
miðlamanna hafa komið á hátíðina
frá upphafi. Meðal annars valdi ný-
lega hið virta tímarit National Geog-
raphic Food and Fun eina merkustu
matarhátíðina í sælkeraheiminum.
„Hátíðin í ár verður sú umfangs-
mesta til þessa en 16 veitingahús
taka á móti erlendum matreiðslu-
meisturum og fjöldi erlendra blaða-
manna hefur aldrei verið meiri,“
bætir Jón Haukur við. „Veitingastað-
irnir bjóða fjögurra rétta sælkera-
máltíð eins og undanfarin ár á sama
verði á öllum stöðum.“ Hann nefnir
ennfremur að þrátt fyrir miklar
verðhækkanir á hráefniskostnaði
haldist verðið óbreytt frá síðustu ár-
um. Miðvikudags-, fimmtudags- og
sunnudagskvöldið kostar fjögurra
rétta matseðill 6.900 kr. en föstu-
dags- og laugardagskvöld 7.400 kr.
Árlega er keppt um „Food & Fun
Chef of the Year“-verðlaunin sem
eru orðin vel þekkt og eftirsókn-
arverð í sælkeraheiminum. Keppnin,
þar sem þrír efstu kokkarnir etja
kappi, verður haldin í Hörpunni laug-
ardaginn 3. mars. Hún verður með
nýstárlegu sniði í ár þar sem almenn-
ingi gefst kostur á að fylgjast með
meisturunum elda úr fyrirfram
ákveðnu hráefni sem valið er fyrir
þá.
Aðrir samstarfsaðilar Food and
Fun 2012 eru Íslandsstofa, Iceland
Naturally, MS, Vífilfell, American
Express og Saltverk.
jonagnar@mbl.is
Samningar undirritaðir um Food & Fun
Merk matarhátíð í
sælkeraheimi. Þriggja
ára samningur. Fjölga
ferðamönnum og vekja
athygli á hráefninu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samningar í höfn. Helgi Már Björginvinsson frá Icelandair, Orri Hauksson frá SI og Einar Örn Benediktsson formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur.
Jón Haukur
Baldvinsson