Morgunblaðið - 24.02.2012, Side 20

Morgunblaðið - 24.02.2012, Side 20
Morgunblaðið/Sigurgeir S. Feðgarnir Brynjar Eymundsson og Logi Brynjarsson eru klárir fyrir Food & Fun. L eiðarljós okkar við innréttingar og skipulag var að byggja upp stað- inn eins og hann hefði alltaf verið hér,“segir Brynjar Eymundsson, en hann rekur staðinn ásamt eiginkonu sinni, Elsu Guðmundsdóttur. „Því gerð- um við okkur far um að halda í sem mest- um mæli þessu gamla og sjarmerandi út- liti, en nota í bland nútímaleg og falleg húsgögn. Við erum afskaplega ánægð með útkomuna og ég held að fólk kunni að meta útlit staðarins. Alla vega erum við afar þakklát fyrir viðtökurnar sem við höfum fengið frá opnun. Íslenskt í öndvegi Frá upphafi var uppleggið í eldhúsi stað- arins að matseðill staðarins tæki mið af klassískum íslenskum mat og yrði út- færður á nýtískulegan máta. Gestakokk- urinn Michael Ferraro, sem er Banda- ríkjamaður af ítölsku bergi brotinn, mun eflaust gera hráefnunum spennandi skil. „Matseðillinn ber ítalskan keim en svo tónar Ferraro þetta skemmtilega með austurlenskum áhrifum og er greinilega vel að sér um hvað hentar að nota af ís- lensku hráefni,“ segir Brynjar. „Michael er menntaður frá hinum virta skóla Cul- inarie Institude of America og var valinn einn af 30 bestu kokkum 30 ára og yngri í New York. Við erum því mjög spennt að fá hann til okkar á Höfnina,“ bætir Brynjar við, en þess má geta að Michael rekur vinsælan veitingastað í Soho á Manhattan sem heitir Delicatessen/ Macbar. Heimilislegt við Höfnina Frá því veitingastaðurinn Höfnin var opnaður í maílok 2010, í svokölluðum Verbúðum við Suðurbugtina við Reykjavíkurhöfn, hefur bekkurinn verið þéttsetinn. Það þarf engan að undra því staðurinn er ákaflega notalegur að heimsækja og viðtökurnar segja meira en mörg orð um matinn. 20 | MORGUNBLAÐIÐ Professional mandolin -fyrir heimili og veitingastaði frá kr. 6.500 Klapparstíg 44 • Sími 562 3614 Þ ar er á ferðinni Daninn Jakob Mielcke og matreiðslumeist- arar staðarins, þeir Theodór Árnason og Sigurður Krist- inn L. Haraldsson. Þeir hlakka til að fá þennan spennandi liðsauka að hlóðunum en Jakob var nýlega settur á lista Phaidon sem einn af 100 frum- legustu matreiðslumeisturum heims. Þá er veitingastaður hans, Mielcke & Hurtigkarl einn sá virtasti og vinsæl- asti í Kaupmannahöfn. Hráefni úr bakgarðinum „Við á VOX höfum verið að fylgjast með Jakob Mielcke og því sem hann hefur verið að gera í tæp 2 ár,“ segir Theódór. „Hugmyndafræði hans er byggð að miklu leyti á að ná til fólks með því að vera fyndinn, ögrandi og koma á óvart. Hann hefur ferðast töluvert um heiminn og matreiðsla hans hefur litast af því,“ bætir hann við. Undir þetta tekur Sigurður. „Hann er með einlægan og nýstár- legan stíl með asísku stefi og þrátt fyrir að hann sé ekki á nýnorrænu línunni eins og VOX Restaurant er alla jafna, þá á hann það sameiginlegt með okkur að hann sækir flest af sínu hráefni beint í „bakgarðinn“ ef svo má að orði komast. Þetta er einmitt hluti af stefnu nýnorrænu mat- argerðalistarinnar, að notast aðeins við hráefni sem auðvelt er að nálgast og úr okkar nánasta umhverfi. Ein- kennisrétturinn hans er virkilega flottur en það er eftirrétturinn For- est Floor. Þar notar hann til að mynda birki og beykitré sem hluta af bragði og skreytingu á réttinum. Þessi réttur verður meðal annars á boðstólum hjá okkur á Food & Fun.“ jonagnar@mbl.is Leturhumar Maeda-San Sandhverfa og reykt þorskhrogn – rauðrófur eldaðar í heyi Lambahjörtu í vorhug Fullmeyrnaðar nautalundir Skógarbotn Matseðill Steikt blálanga með káli og lauk Fyrir 4 Blálanga Fiskurinn er hreinsaður og skorinn í 160 g bita, kryddaður með salti. Steikt- ur í smáolíu við háan hita í 2 mínútur á hvorri hlið og smjörteningum bætt á pönnuna. Lokið við að elda fiskinn í 170°C heit- um ofni, í 2-3 mínútur (eftir hversu þykk steikin er ?) Kartöflumús 500 g kartöflur 4 stk. hvítlauksgeirar 250 ml rjómi 100 g smjör salt Kartöflur skrældar og soðnar í létt- söltu vatni, hvítlaukurinn er afhýddur og eldaður í helmingnum af smjörinu við vægan hita þar til gullinbrúnn, þeg- ar kartöflurnar eru soðnar eru þær teknar í gegnum pressu, færðar yfir hita og rjómanum bætt saman við. Hvítlaukurinn saxaður og bætt í ásamt restinni af smjörinu, einnig er gott að nota smjörið af hvítlauknum líka. Smakkað til með salti. Smjörsósa 200 g smjör, skorið í kubba ½ krukka silungahrogn steinselja, dill, ferskur aspas og skalott smátt saxað. Í litlum potti komið upp suðu á 2 msk. af vatni, hrærið svo köldum smjörkubbum saman við með písk, þarf að hræra svolítið kröftuglega, fjarlægið af hita og blandið öllu saman. Salt eftir smekk. Borið fram volgt. Kál og laukur Kál skorið í hæfilegar sneiðar og soð- ið í söltu vatni með smásmjöri í 30 sek., laukurinn skorinn í lauf og steiktur á annarri hliðinni þar til hann er eldaður í gegn, einnig borið fram með smjöreld- uðum hvítlauksgeirum. Ferskur Ricotta-ostur 3,3 l mjólk 1,4 l rjómi 1,3 dl ferskur sítrónusafi 15 g sjávarsalt í flögum Aðferð Hitið mjólk og rjóma að 88°C. Slökkvið á hitanum. Skvettið sítrónusafanum jafnt yfir mjólkurblönduna og sáldrið salti yfir. Hrærið ögn með gúmmísleif, látið blönduna standa við stofuhita í 45 mínútur. Kekkir ættu nú að sjást og vökvinn á að vera gulur. Ef ekki, bætið við smásítrónusafa. Síið blönduna gegn- um tvöfaldan ostaklút. Setjið í ílát og geymið í kæli. Asísk áhrif á VOX Morgunblaðið/Kristinn Sigurður Kristinn og Theódór eru í óða önn að gera klárt fyrir hina árlegu matarveislu, Food & Fun. Öndvegiseldhúsið á VOX Restaurant á Hilton Reykjavik Nordica á von á góðum gesti þegar Food & Fun gengur í garð. Lystauki Heimalagaður ferskur ostur, vorlaukskex og sultaðar smáappelsínur „Kumquat“ Forréttur Humar á tvo vegu: Snögg- ristaður leturhumar og „Kimchi“-pera Leturhumar-tartar, „ristuð“ soja vinargrette, sítrónusýrð- ur rjómi og Wasabi-kavíar Milliréttur Ristuð bleikja, roð“-chips“, Ricotta Gnocchi, sveppa- mauk og Parmesanseyði Aðalréttur Langtímaeldað lamb, Polenta, soðsósa og myntu- froða Eftirréttur Skyr og „Cereal“ Panna Cotta, bláberjakrap og kampavínsseyði Matseðill

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.