Morgunblaðið - 30.03.2012, Qupperneq 2
18
Heimagerð páska-
egg eru ekkert
mál. Páskaskraut
og með því í
Pipar & salt.
2 | MORGUNBLAÐIÐ
30.03.2012
Þegar páskahátíðin gengur í garð er jafnan vor í
lofti. Gildir einu hvort hret gerir vart við sig eða
ekki, það breytir engu um þá staðreynd að
sumarið er handan hornsins. Fólk kemur misvel
undan vetri eins og gengur en menn skyldu taka
sér gróðurinn, að ekki sé minnst á frelsarann, til
fyrirmyndar og rísa upp, brattir og beinir, um
páskahelgina. Þeir sem finnst þeir með orku-
minna móti ættu bara að narta hressilega í
páskaegg eða tvö og þá ætti drifkrafturinn að
vera tryggður. Vonandi leyfa líka sem flestir gula
litnum að lýsa upp híbýlin, ekki veitir af ljóm-
anum eftir veturinn. Vert er að minna á gildi
samveru um páskana. Er hægt að nota frídaga
sem bjóðast betur en að njóta samvista við þá
sem standa manni næst? Og í framhaldi af því
má nefna þann skemmtilega sið að skreyta egg
og fela, og efna svo til hópleitar. Gleði og glað-
værð í bland við hæfilega spennu. Sumir hafa
endalausan ímugust á erlendum hefðum og
finna áhrifum að utan allt til foráttu en
á allt slíkt skal blásið í þessu sam-
hengi því þetta snýst um að gera sér
glaðan dag og það getur aldrei
verið ámælisvert. Skreytt egg
skemma heldur ekki tenn-
urnar.
Vor í lofti og
vonir vakna
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Blaðamenn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Karl Eskil Pálsson
karlesp@simnet.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Auglýsingar
Katrín Theodórsdóttir
kata@mbl.is
Forsíðumyndina tók
Styrmir Kári.
Prentun Landsprent ehf.
LifunPáskar
6
Áslaug Snorradóttir
hjá Pikknikk veit sitt-
hvað um það hvernig
góða veislu gjöra skal
- líka um páskana.
16
Páskaeggin frá Nóa Síríusi
gæla við bragðlaukana
um páskana að vanda.
14
Páskaföndur er ávísun
á glaðar stundir og
góðar minningar.
12
Falleg blóm lífga upp á um-
hverfið, ekki síst um
páskana, segir Ragnhildur
Fjeldsted hjá Dansi á rósum.
22
Í bland við gómsæt egg
og gular liljur er gott að
muna upprunann og
söguna.