Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ
P
áskarnir eru miklir
blómadagar enda fátt
sem gerir heimilið hátíð-
legra en gul og falleg
páskablóm. Einn vöndur
af páskaliljum, kannski nokkur
gul kerti og ein gul planta, er allt
sem þarf til að koma heimilinu í
páskabúning,“ segir Hendrik
Berndsen, eða Binni eins og hann
er yfirleitt kallaður, í Blómaverk-
stæði Binna.
Binni hefur verið viðriðinn
blómasölu í hartnær 60 ár og á
sínar fyrstu minningar úr blóma-
verslun afa síns. Hann segir
helstu breytinguna á þessu hálfrar
aldar tímabili vera hvað úrvalið af
páskablómum hefur vaxið. „Þegar
ég var að byrja var eiginlega ekk-
ert annað en páskaliljur á boð-
stólum en í dag er að finna marg-
ar blómategundir í gulu og þeir
sem vilja breyta til geta á páskum
fengið sér gular rósir, gular ger-
berur, eða eldliljur svo nefnd séu
nokkur dæmi.“
Páskaliljurnar eru samt lang-
vinsælastar. „Páskaliljan er vor-
boði, skín gul eins og sólin, og þar
sem hún vex er hún iðulega fyrsta
blómið til að koma upp úr snjón-
um,“ segir Binni.
Greinar á danska vísu
Að prýða heimilið með for-
sythiu-greinum er líka vinsæl val-
kostur. Forsythían er með gul
blóm og greinarnar má skreyta.
„Forsythíugrein fer mjög vel í
vasa á stofuborði, með fallegu
páskaskrauti. Um er að ræða
danska hefð sem virðist hafa bor-
ist hingað til lands fyrir þetta 25-
30 árum.“
Bæði páskaliljur og for-
sythíugreinar segir Binni að kalli
ekki á flókna sérstaka umhirðu.
„Það eina sem þarf að gera við
liljurnar er að skera neðan af
þeim og setja í vatn. Svo er gott
ef hægt er að setja þær á kaldari
stað yfir nóttina en það hjálpar til
við að tryggja að liljurnar
blómstri fallega yfir alla páskana.“
Páskaliljusalan fer yfirleitt á
fullt á skírdag. „En mest er að
gera á laugardeginum eftir föstu-
daginn langa. Það er góður dagur
til að kaupa liljurnar því líftími
blómanna er ekki nema 4-5 dag-
ar.“
Binni segir ekki hafa orðið
neinn samdrátt að ráði í pásalilju-
kaupum landsmanna þrátt fyrir
kreppu.
Tilvalin páskagjöf
„Páskalijlan er líka með því
ódýrara sem finna má í blómabúð-
um og fallegur vöndur til að hafa
t.d. á veisluborði kostar ekki mik-
ið.“ Landinn kaupir páskablómin
bæði fyrir sjálfan sig, en líka sem
gjöf handa vinum og ættingjum.
„Oft lítur fólk við hjá okkur í
blómabúðinni á leið í heimsókn til
mömmu eða ömmu, og kippir með
sér einum vendi af páskaliljum.
Þetta er falleg og vel þegin gjöf.
Stór liður í páskasölunni eru svo
páskaliljuvendir fyrir leiði, en það
er útbreidd hefð að heimsæka
leiði ástvina á páskum, gera jafn-
vel litla vorhreingerningu, og
skreyta með snotrum páskablóm-
um.“
ai@mbl.is
Páskarnir
byrja með
blómunum
Páskaliljur hafa stuttan líftíma og hjálpar að geyma
blómin á köldum stað yfir nóttina, segir Binni blómasali.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Blóm Binni segir fólk vilja einfalda og látlausa blómvendi um páska. Gaman er að leyfa páskaliljunum að
njóta sín einar og sér en það má t.d. setja með birkigreinar til að hengja á skraut. Hugmyndaflugið ræður.
’Oft lítur fólk við íblómabúðinni á leiðí heimsókn til mömmueða ömmu, og kippirmeð sér einum vendi af
páskaliljum.
Skeyting Stór liður í páskasölunni eru svo páskaliljuvendir fyrir leiði, en
það er mjög útbreidd hefð að heimsæka legstæði ástvina á páskunum
Blóm Narsissusar
Gula páskaliljan sem íslendingar þekkja, Narsissus pseudonarcissus, virð-
ist allt frá tímum Forn-Grikkja hafa haft tengingu við yfirnáttúruleg öfl.
„Latneska heiti ættkvíslarinnar kemur til vegna grísku goðsagnarinnar um
hinn unga og fagra Narsissus sem var of sjálfhverfur til að endurgjalda ást
þeirra meyja sem felldu til hans hug. Segir sagan að dísin Ekkó varð ást-
fangin af Narsissusi en þegar hann vildi ekkert með hana hafa grét Ekkó
þar til ekkert varð eftir nema rödd hennar,“ segir Binni. „Guðirnir reiddust
Narsissusi og létu piltinn kenna á eigin fegurð, svo eitt sinn þegar hann sat
við tjarnarbakka og sá sjálfan sig speglast í vatninu gat hann með engu
móti hætt að dást að sjálfum sér. Sat Narsissus við bakkann þar til hann
veslaðist upp og dó. Þar sem hann hafði setið óx svo upp falleg páskalilja,
og enn lýtur liljan höfði líkt og Narsissu gerði við tjörnina.“
Dymbilvika
í Hallgrímskirkju 2012
Pálmasunnudagur 1. apríl
Messa og barnastarf kl. 11. Birkigreinar
bornar inn í tilefni Pálmasunnudags.
Prestur sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Inga
Harðardóttir guðfræðinemi prédikar. Félagar
úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja,
organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Skírdagur 5. apríl Kvöldmessa kl. 20. Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson prédikar, félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja,
organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Í lok athafnar verður
Getsemanestund með afskrýðingu altarisins. Altarisklæði eftir Unni
Ólafsdóttur tekið fram til notkunar á föstudaginn langa.
Föstudagurinn langi 6. apríl
Guðsþjónusta kl. 11. Tónlistarflutningur er tengdur föstudeginum langa,
m.a. Lacrimosa úr Mozart Requiem. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju
syngja, stjórnandi og organisti er Hörður Áskelsson.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Kl.13-18 Heildarflutningur á Passíusálmum Hallgríms Péturssonar.
Eftirtaldir stúdentar í guðfræði og bókmenntafræði við Háskóla Íslands lesa:
Daníel Örn Arnarson, Guðrún Þorgrímsdóttir, Gunnar Már Kristjánsson,
Ingibjörg Eyþórsdóttir, Auður Hermannsdóttir, Magnea Þuríður
Ingvarsdóttir, Ólafur Jón Magnússon, Sigríður Sæunn Sigurðardóttir,
Sigurlín Bjarney Gísladóttir og Þuríður Anna Pálsdóttir. Umsjón með
lestrinum hefur Baldur Sigurðsson dósent.
Í tilefni af 30 ára afmæli Listvinafélags Hallgrímskirkju og 20 ára afmæli
Klaisorgelsins verða frumfluttir 6 nýir Passíusálmaforleikir eftir Elínu
Gunnlaugsdóttir, Hjálmar H. Ragnarsson, Huga Guðmundsson, John A.
Speight, Þorkel Sigurbjörnsson og Þuríði Jónsdóttur. Björn Steinar
Sólbergsson og Hörður Áskelsson frumflytja orgelforleikina milli lestranna.
Páskadagur 8. apríl
Árdegisguðsþjónusta kl. 8.
Páskatónlist, m.a. Páskahelgileikur úr Hólabók frá 1589 fluttur af
Mótettukór Hallgrímskirkju og einsöngvurum úr röðum kórfélaga.
Stjórnandi Hörður Áskelsson. Organisti: Björn Steinar Sólbergsson.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Magneu
Sverrisdóttur djákna.
Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Páskatónlist. Þættir úr Messu í c-moll
eftir Mozart. Flytjendur: Mótettukór Hallgrímskirkju, Þóra Einarsdóttir
sópran, stjórnandi Hörður Áskelsson og organisti Björn Steinar
Sólbergsson. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt Jóni Dalbú Hróbjartssyni.
Annar í páskum 9. apríl Hátíðarmessa og ferming kl. 11.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
Magneu Sverrisdóttur djákna. Félagar úr Mótettukórnum syngja,
organisti er Hörður Áskelsson.