Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 23
„Í hópnum sem stundar göngur með okkur eru nú um hundað manns og hann stækkar jafnt og þétt,“ segir Þórður Ingi Marelsson hjá Fjallavinum. Þau Fríður Hall- dórsdóttir standa fyrir skipu- lögðum gönguferðum undir merkjum Fjallavina og nk. mánudag, 2. apríl, ætla þau að bjóða upp á gönguferð í Esjunni. Lagt verður af stað frá Esjustofu við Mógilsá kl. 18 og verður göngufólki boðið upp á páskaegg. Á skírdag og laugardag fyr- ir páska, það er 5. og 7. apríl, ætla Fjallavinir svo að ganga á Eyjafjallajökul. Lagt verður upp frá Seljavöllum en áætla má að ferðin taki um 8 til 9 klukkutíma. Goða- steinn, hæsta bunga jökulsins, þangað sem gengið verður, er í 1.666 m hæð. sbs@mbl.is Egg og Eyjafjallajökull Fjallavinir Skemmtilegar göngur og hátt verður stefnt um páska. MORGUNBLAÐIÐ | 23 N ú um páskana verður há- tíðin Músík í Mývatns- sveit haldin í 15. sinn. Tónleikar eru nú sem fyrr tvennir; dagskrá með kammerverkum á skírdags- kvöld kl. 20 í félagsheimilinu Skjól- brekku, þar sem meðal annars verð- ur flutt tríó eftir bandaríska tónskáldið Ewazen fyrir trompet, fiðlu og píanó, og eftir hlé verða flutt sönglög eftir Schubert og alþekktar íslenskar sönglagaperlur. Seinni tón- leikarnir eru í Reykjahlíðarkirkju að kvöldi föstudagsins langa kl. 21 en þar verður flutt fjölbreytt kirkju- tónlist, meðal annars eftir Bach og Händel. Flytjendur á tónleikunum eru Ágúst Ólafsson baritónsöngvari, Ás- geir H. Steingrímsson trompetleik- ari, Aladár Rácz sem leikur á píanó og orgel og Laufey Sigurðardóttir sem leggur fiðluna að vanga sér. Innlegg í flóruna „Ég á sterkar rætur í Mývatns- sveit og hef alltaf dvalist þar mikið, bæði um páska og í annan tíma. Gjarnan er sagt að lengja þurfi ferða- mannatímann en slíkt gerist auðvitað ekki nema til staðar sé afþreying og hún þarf að vera fjölbreytt. Páska- tónleikarnir voru á sínum tíma af minni hálfu hugsaðir sem innlegg í þá flóru,“ segir Laufey sem hefur í tímans rás fengið til liðs við sig á tón- leikunum marga af best þekktu lista- mönnum landsins á sviði sílgildrar tónlistar. Gjarnan hefur það verið fólk sem á rætur norður í landi. Má þar til dæmis nefna að Ásgeir Stein- grímsson, sem í áraraðir hefur verið 1. trompetleikari Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands, er Húsvíkingur að uppruna og þar í bæ býr Aladár Rácz sem er meðal þátttakenda nú. „Hótel Reynihlíð hefur alveg frá fyrstu tíð verið helsti bakhjarl okkar og tillegg hótelhaldara þar hefur í raun gert okkur kleift að halda okkar striki, þegar sífellt verður torsóttara að afla fjár til menningarstarfs,“ seg- ir Laufey sem hlakkar til tónleika- haldsins í Mývatnssveit sem fram- undan er. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir S. Listafólk Laufey Sigurðardóttir, þá Ásgeir Steingrímsson og slaghörpusveinninn er Aladár Rácz. Sígilt og sönglagaperlur Hátíðin Músík í Mývatnssveit verður haldin í fimmtánda sinn nú um páskana. Klassísk tónlist er í öndvegi. Kirkjutónlist á dagskrá á föstudaginn langa. Norðlendingar leika. ’Fengið til liðs viðsig marga af bestþekktu listamönnumlandsins á sviði sígildrar tónlistar. SEÐLA- OG KORTAVESKI / LYKLA- OG PENINGABUDDUR FRÁBÆRT ÚRVAL FYRIR DÖMUR OG HERRA KOMDU OG FINNDU ÞITT EINA SANNA 9.500 kr. Sími: 528 8800 drangey.is Smáralind Stofnsett 1934 Töskur Hanskar Seðlaveski Ferðatöskur Tölvutöskur Belti Skart og skartgripaskrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta 9.700 kr. 3.900 kr. 2.500 kr. 4.900 kr. 10.900 kr. Kíktu inn á drangey.is Verndun umhverfisins gegnir mikilvægu hlutverki við framleiðslu á vörum Colourful Life. Notkun auðlinda er alltaf sjálfbær og stenst kröfur. Notaðir eru klórlausir vefir sem framleiddir eru í samræmi við vottað staðla Forest Stewardship Council (FSC). Allir prentlitir eru vatnsuppleysanlegir og uppfylla stranga ESB staðla. Allar umbúðir er umhverfisvænar og endurvinnanlegar. Takk fyrir að velja Colourful Life Heildsöludreifing - sími 565 1504 - serica@serica.is Söluaðilar: Árbæjarblóm, Hraunbæ - Betra líf, Kringlunni - Blómabúðin, Kringlunni - Blómagallerí, Hagamel - Blómasmiðjan, Grímsbæ - Blómastúdíó Hrönn, Nóatúni - Borð fyrir tvo, Laugavegi Breiðholtsblóm, Mjódd - Dalía, Glæsibæ - Hlíðablóm, Austurveri - Ísblóm, Háaleitisbraut Runni, Hverafold og Bíldshöfða - Tékk-Kristall, Laugavegi - 18 Rauðar rósir, Kópavogi Kópavogsblóm, Kópavogi - Sóleyjarkot, Garðabæ - Blómabúðin Dögg, Hafnarfirði Gallerý Nýblóm, Mosfellsbæ - Model, Akranesi - Blómaborg, Borgarnesi - Blómsturvellir, Hellissandi Blómaverk, Ólafsvík - Skipavík, Stykkishólmi - Blómalindin, Búðardal - Verslunin Hlín, Hvammstanga Bæjarblómið, Blönduósi - Blóma- og gjafabúðin, Sauðárkróki - KS, Drangsnesi Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungavík - Aðalbúðin, Siglufirði - Blómabúð Akureyrar Blómabúðin Akur, Akureyri - Blómabrekkan, Húsavík - Búðin, Grímsey - Laufskálinn, Neskaupsstað Böggablóm, Eskifirði - Klakkur, Vík - Blómabúð Vestmannaeyja - Volare, Vestmannaeyjum Sjafnarblóm, Selfossi - Sveitabúðin Sóley, Tungu - Blómastúdíó Sillu, Þorlákshöfn Blómaborg, Hveragerði - Blómakot, Grindavík - Draumaland, Keflavík Serviettur og kerti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.