Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ | 19 E f snjórinn helst á skíða- svæðunum verða páskarnir líklega stærsta ferða- mannahelgi vetrarins á Norðurlandi. Veðrið ræður þessu mikið en mér heyrist að bók- anir á gististöðum séu ágætar og af- þreyingin sem býðst sé við allra hæfi,“ segir Ás- björn Björg- vinsson fram- kvæmdastjóri Markaðs- skrifstofu Norð- urlands. Skíðasvæðið heillar Það er hefð hjá mörgum að fara norður um páskana. Akureyri hefur stimplað sig inn sem vinsæll ferðamannastaður á þessum árstíma, enda er kostað kapps um að allir finni eitthvað við sitt hæfi; vetraríþróttir. Sömu sögu er að segja um flesta aðra staði fyrir norðan, um páskana sameinast heimamenn um að bjóða gesti vel- komna. Ásbjörn segir að skíðasvæðið á Siglufirði njóti greinilega aukinna vinsælda, þeir sem til dæmis gisti á Akureyri geti nú auðveldlega skutl- ast til Siglufjarðar eftir að Héðins- fjarðargöng voru opnuð fyrir umferð. „Skíðasvæðin draga flesta hingað norður um páskana og Hlíðarfjall við Akureyri er á toppnum. Svo er auð- vitað líka mikið um að fólk komi hing- að norður til að heimsækja ættingja og vini.“ Loftbrú milli landshluta Flugfélag Íslands flýgur sex og allt upp í ellefu ferðir á dag á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Ari Foss- dal, stöðvarstjóri FÍ á Akureyr- arflugvelli, segir að skíði séu nokkuð algengur farangur á þessum árstíma. „Já, skíðin eru áberandi í farangri fólks og brettum hefur fjölgað mikið eftir að þau urðu vinsæl. Veðrið skiptir auðvitað öllu máli eins og reyndar alltaf þegar flug er annars vegar. Stærsti dagurinn hjá okkur er venjulega annar í páskum, enda þurfa margir að mæta í vinnu daginn eftir. Álagið er nokkuð jafnt dagana fyrir sjálfa hátíðina, en við bætum við ferðum ef með þarf.“ Ekkert er flogið á páskadag, þann- ig að starfsfólk FÍ fær þá frí. „Vaktakerfið er sett upp þannig að starfsfólk fær ágæta pásu annað hvert ár. Hitt árið er svo nokkuð mik- il viðvera. Ef veðrið er óhagstætt og áætlun raskast þurfum við að kalla út starfsfólk sem er í fríi, sem er alltaf tilbúið til að leggjast á árarnar með okkur ef mögulegt er,“ segir Ari. Flugfarþegarnir fylgjast vel með veðurspám, segir Ari, og þeir hafa greinilega tröllatrú á Flugfélagsfólki hvað veðráttuna varðar, að sögn Ara „Þetta á sérstaklega við þegar spáin er eitthvað óljós. Margir þurfa nauð- synlega að fljúga á milli staða á til- settum tíma, þannig að það er vissara að fylgjast vel með veðrinu. Sumir eru að fara til útlanda og þá er eins gott að ferðaáætlunin innanlands standist, aðrir þurfa að mæta á fund eða athöfn og treysta á að áætlunin hjá okkur standist,“ segir Ari Foss- dal. Gaman á Græna hattinum Á tónleikastaðnum Græna hatt- inum á Akureyri verður mikið um- leikis um páskana. „Hjá mér hafa páskarnir verið samfelld vinna árum saman og svo verður líka í ár en tón- leikarnir um páskana þetta árið verða alls sex,“ segir Haukur Tryggvason á Græna hattinum á Ak- ureyri. Hann segir afmælistónleika Svanfríðar stórviðburð í íslensku tón- listarlífi. „Hljómsveitin var stofnuð í ársbyrjun 1972 í kjölfar þess að hljómsveitin Náttúra leystist upp eft- ir að hafa tapað öllum hljóðfærum sínum í Glaumbæjarbrunanum skömmu áður. Pétur W. Kristjánsson söngvari lét það ekki stöðva sig, fékk sér nýtt hljóðkerfi og stofnaði Svan- fríði, sem náði miklum vinsældum,“ segir Haukur. Pétur lést langt um aldur fram, 3. september 2004, aðeins 52 ára gam- all. Hann hefði því orðið sextugur á þessu ári. Gunnar Hermannsson, Sigurður Karlsson og Sigurður Rún- ar Jónsson ætla að heiðra minningu Péturs og fagna um leið 40 ára af- mæli hljómsveitarinnar á Græna hattinum 4. apríl og hálfum mánuði síðar í Austurbæ í Reykjavík. Elvar Örn Friðriksson og Pétur Örn Guð- mundsson sjá um að fylla skarð Pét- urs Kristjánssonar. Þetta verða tón- leikar sem talað verður um lengi á eftir.“ Á skírdag verður ofurkvartettinn ADHD með tónleika á Græna hatt- inum. Megas og Senuþjófarnir stíga á svið föstudaginn langa og á laug- ardeginum er röðin komin að Bagga- lúti. Hjálmar slá svo botninn í þessa helgi á Græna hattinum á Akureyri með tónleikum á páskadag. karlesp@simnet.is Öll vötn falla nú til Akureyrar Skíðasvæðin nyðra heilla um páskana. Annríki er hjá Flugfélagi Íslands. Vertinn á Græna hattinum á Akureyri heldur ekki minna en sex tónleika nú um hátíðarnar. Svanfríður Gömlu eðalrokkarnir spilar fyrir norðan um um páskana. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tónleikar Margir áhugaverðir tón- leikar verða á Græna hattinum hjá Hauki Tryggvasyni. . Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hlíðarfjall Margir munu skemmta sér á skíðum fyrir norðanum páska. Ásbjörn Björgvinsson. Það er gaman að vera í Mývatnssveit um páskana ! Endalausir möguleikar á útivist, sleðaferðir um fjöllin, troðnar gönguskíðabrautir fyrir skíðafólk, hin árlega Píslarganga umhverfis Mývatn á föstudaginn langa og svo auðvitað slökun í Jarðböðunum eftir góða útivist. Að sjálfsögðu lýkur hverjum degi svo með sælkeramáltíð í okkar vinsæla veitingahúsi “Myllunni”. Hægt er að bóka vélsleðaferðir fyrir litla hópa og leigja gönguskíði hjá okkur í Hótel Reynihlíð. Nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna ! Í páskatilboðinu er innifalin gisting í 2ja manna herbergi með fullu fæði, morgunverði, hádegisverði og 3ja rétta kvöldverði. Drykkir ekki innifaldir. Einnig er innifalið aðgangur 1x í Jarðböðin við Mývatn. Hlökkum til að sjá þig ! Hringdu og bókaðu páskafríið í Hótel Reynihlíð í síma 464 4170 eða á netfanginu bookings@reynihlid.is. *Tilboðið gildir 5-9. apríl 2012. ....komið og njótið ykkar við Mývatn ! VIÐ MÝVATN HÓTEL REYNIHLÍÐ www.myvatnhotel.is Hótel Reynihlíð - 660 Mývatn - Sími 464 4170 - netfang: info@myvatnhotel.is Páskatilboð: fyrsta nóttin kr. 33.600,- fyrir tvo í 2 mannna herbergi, önnur nóttin kr. 13.000,- fyrir 2, þriðja nóttin kr. 9.000,- fyrir 2, fjórða nóttin frí !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.