Morgunblaðið - 30.03.2012, Page 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ
O
kkur er öllum bjartsýnin
mikilvæg og jákvæð af-
staða til lífsins. Stundum
er sagt að hlutirnir hafi
tilhneigingu til að fara
heldur vel. Slíkt má til sanns vegar
færa þó að iðulega sé brugðið fæti
fyrir bjartsýnina og hlutirnir fari ein-
faldlega illa. En einmitt þá komum
við að kjarna kristinnar trúar sem er
upprisa hins krossfesta Jesú, sem
birtir okkur hvert innsta eðli lífsins
er, og á hverju von okkar byggist.
Það er góður Guð sem sigra allt um
síðir,“ segir herra Karl Sigurbjörns-
son, biskup Íslands.
Páskarnir, mesta hátíð kristinna
manna, er að ganga í garð. Hátíð sem
er á mörkum vetrar og vors. Mynda-
bók lífsins er að lifna við, dagarnir að
lengjast og náttúran að taka lit.
„Þessi myndabók segir áhrifaríka
sögu um sigur lífsins. En við þurfum
eigi að síður meira,“ segir Karl í sam-
tali við páskablað Morgunblaðsins.
„Við þurfum á því að halda sem krist-
in trú boðar og tileinka okkur hana í
daglegu lífi, til dæmis þegar von-
brigði og raunir ber að höndum. Í því
efni er upprisan staðfesting á sigri
hins góða. Það er okkur nauðsynlegt
veganesti.“
Skapaði siðrof
Karl Sigurbjörnsson lætur í sumar
af embætti biskups sem hann hefur
gegnt sl. fjórtán ár eða frá ársbyrjun
1998. Óhætt er að segja að á þeim ár-
um sem síðan eru liðin hafi þjóðfélag-
ið gjörbreyst og taktur mannlífsins
orðið annar. Karl staðfestir þetta og
segir að efnahagshrunið haustið 2008
hafi markað kaflaskil enda hafi þá
komið í ljós miklir brestir og í raun
meinsemdir í samfélagsgerð og
menningu Íslendinga.
„Viðhorfin á árunum um og eftir
aldamót voru þannig að fólk gaf ekki
sem skyldi gaum að þessum gömlu og
góðu gildum sem Íslendingum hafa
dugað svo vel í aldanna rás, það er
hógværð, auðmýkt, virðing og þraut-
segja. Í staðinn komu og urðu áber-
andi lestir eins og oflæti, sjálfumgleði
og hroki. Þetta voru atriði sem sköp-
uðu siðrof í íslensku samfélagi og
stuðluðu að því áfalli sem við höfum
enn ekki bitið úr nálinni með,“ segir
Karl og heldur áfram:
„Það er sem þjóðin sitji föst í því
hlutverki að vera fórnarlamb og í
einskonar sakbendingarferli. Þó
mætti ætla að Íslendingar gætu tekið
erfiðleikum af reisn svo æfð sem við
ættum að vera í aldalöngum fang-
brögðum við óvægin náttúruöfl. Því
miður er þjóðin enn föst í reiðinni og
ég hef stundum velt fyrir mér hvort
og þá hverjir hafi hagsmuni af því að
viðhalda þeirri ólgu og upplausnar-
ástandi sem nú er svo víða áberandi.
Það er spólað í sama pytti án þess að
komast spönnina. Þrætubókarlistin
er áberandi og kannski er Njálssaga
með öllum sínum lagaflækjum ekki
svo mjög fjarri raunveruleika okkar á
líðandi stundu. “
Börnin þekki menningararfinn
Fyrir þrjátíu árum eða svo gerði
sóknarprestur í bæ úti á landi að um-
talsefni í fermingarfræðslu að grunn-
gerð íslensks samfélags væri sú að
maður í nauðum gæti alltaf vænst
hjálpar nærstaddra.
Einhverjir segja sjálfsagt sem svo
að þetta sé breytt. Mætti þar nefna
fréttir á síðustu vikum um að lífverðir
fylgi nú tveimur af ráðherrum rík-
isstjórnarinnar, aukinheldur sem
glæpagengi færa sig upp á skaftið.
„Hin kristna siðkrafa um náunga-
kærleika hefur alltaf verið virk í siða-
uppeldi þjóðarinnar, að við skulum
elska náungann og gullna reglan: það
sem þið viljið að aðrir menn geri ykk-
ur skuluð þið og þeim gjöra. Þessi orð
og viðmið eru og verða alltaf í gildi þó
að einatt virðist sem viðhorfið að hver
sé sjálfum sér næstur og „hvað fæ ég
út úr því?“ séu mest áberandi,“ segir
Karl Sigurbjörnsson.
„Nei, sem betur fer og svo sann-
arlega eru gömlu gildin ekki horfin úr
vitund íslensku þjóðarinnar. Því fer
hins vegar mjög fjarri að Ísland sé í
rúst sem siðað samfélag. En til að svo
megi áfram verða þurfa börnin okkar
hins vegar að þekkja hinn kristna
menningararf sem er meginuppi-
staðan í öllum okkar samfélagsvef.
Því miður virðist á stundum að í
gangi sé sé bólusetning gegn kristn-
um gildum í gangi og það finnst mér
svo sannarlega vera áhyggjuefni fyrir
þjóðina.“
Grunnstoð
mannúðarsamfélags
Í nýlegri könnun á trausti almenn-
ings til stofnana samfélagsins eru
Landhelgisgæslan og lögreglan í
efstu sætum. Gæslan fær einkunnina
5,8 en þjóðkirkjan aðeins 3,5. Karl
Sigurbjörnsson segir þessar nið-
urstöður ekki koma á óvart. Um ára-
bil hafa grunnstoðir samfélagsins
gegndarlaust verið talaðar niður af
því að hinn alvitri markaður átti að
koma í þeirra stað. Þess vegna séu
margar stofnanir stórlega laskaðar.
Enginn hafi hag af slíku.
„Til lengdar stenst ekkert sam-
félag án traustra stofnana. Kirkjan er
ein grunnstoða hins góða mann-
úðarsamfélags sem við viljum sjá
dafna á Íslandi. Orðin traust og trú
eru af sama meiði, og eins tryggð.
Það er merkilegt hve stór hluti þjóð-
arinnar heldur enn tryggð við hinn
kristna sið. Þrátt fyrir áróður gegn
kristinni trú lætur nærri að um 90%
barna á fjórtánda aldursári fermist.
Þannig er trúin virkur þáttur í lífi
fjölskyldna í landinu,“ segir Karl sem
bætir við að sér þyki miður að í frétt-
um líðandi stundar séu jákvæðum tíð-
indum sjaldan gerð þau skil sem
verðugt væri. Einatt sé klifað á því
sem neikvætt sé og margir séu hættir
að fylgjast með fréttum vegna nei-
kvæðni og bölmóðs sem þar sé í fyr-
irrúmi.
Hið góða og fagra
„Hins er samt mikilvægt að minn-
ast að hið góða og fagra er þrátt fyrir
allt reglan, og hið illa og ljóta und-
antekningin, fréttnæmt er það sem er
frávik frá hefð,“ segir Karl Sig-
urbjörnsson. „Morgunblaðið hefur
jafnan jákvæða frétt á baksíðu og
Sjónvarpið endar gjarnan sinn frétta-
tíma á slíkri – og með sama hætti er
lokaniðurstaða kristinnar trúar sú
Guð er góður og lífið sigrar. Það eru
góðu fréttirnar, fagnaðarerindið.
Þessu megum við aldrei missa sjónar
á og sjálf þurfum við að vera hluti af
góðu fréttinni með því að sýna vin-
semd og góðan hug í samskiptum við
annað fólk.“
sbs@mbl.is
Kristin gildi uppistaðan í samfélagsvefnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Trú „Guð er góður og lífið sigrar. Það eru góðu fréttirnar, fagnaðarerindið. Þessu megum við aldrei missa sjónar á og sjálf þurfum við að vera hluti
af góðu fréttinni. með því að sýna vinsemd og góðan hug og góðan hug í samskiptum við annað fólk ,“ segir Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands.
Því miður er þjóðin enn
föst í reiðinni og ég hef
stundum velt fyrir mér
hvort og þá hverjir hafi
hagsmuni af því að við-
halda ólgu og upplausn,
segir Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands. Hin kristna
siðkrafa um náungakær-
leika virk í siðauppeldi
þjóðarinnar.
’Morgunblaðið hefurjafnan jákvæðafrétt á baksíðu og Sjón-varpið endar gjarnansinn fréttatíma á slíkri –
og með sama hætti er
lokaniðurstaða krist-
innar trúar sú Guð er
góður og lífið sigrar.