Morgunblaðið - 30.03.2012, Síða 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
H
elgi, sem er eldri en tvæ-
vetur við framleiðslu á
hvers konar sælgæti,
tekur að sjálfsögðu slag-
inn þegar páskavertíðin
gengur í garð. Góa hefur enda fram-
leitt páskaegg um langt árabil.
Ofbauð okrið á sínum tíma
„Það eru komin góð fimmtán ár
síðan við hófum framleiðslu á páska-
eggjum,“ segir Helgi. „Mér ofbauð á
sínum tíma þegar menn voru farnir
að selja þetta fyrir tífalt meira en
venjulegt sælgæti, og mig vantaði
bara skelina utan um eggin. Ég átti
rúsínurnar og kúlurnar og karamell-
urnar en vantaði bara skelina. Ég
átti meira að segja súkkulaðið. Svo
þegar ég var tilbúinn með eggin ut-
an um sælgætið þurfti ég ekki annað
en að bæta einu núlli aftan við kíló-
verðið og þá var þetta komið í 3.000
krónur kílóið. Mér fannst þetta bara
algert okur, en svona var það meðan
þeir skiptu þessu á milli sín, risarnir
á markaðnum. Svo kem ég inn í
þetta og er að eyðileggja fyr-
irkomulagið fyrir þeim. Þetta var jú
mjög þægilegt hjá þeim,“ segir
Helgi og kímir við. „En mér ofbauð
og fannst þetta ekki ná nokkurri átt.
Það má sjálfsagt segja að eggin séu
almennt 1.000 til 1.500 krónum ódýr-
ari af því ég er á markaðnum. Þegar
menn fara að okra þá verða til tæki-
færi fyrir aðra.“
Tilbrigði við klassíkina
Að sögn Helga hefur lítið verið átt
við uppskriftina að súkkulaðinu frá
upphafi. Góu-súkkulaðið standi fyrir
sínu. En aftur á móti er bryddað upp
á nýjungum í páskaeggjunum endr-
um og eins. „Við komum með lakkr-
ísegg í fyrra, mjög gott lakkrísegg,
sem líkaði vel. Nú í ár komum við
með hraunegg sem verður gaman að
sjá hvernig fólki líkar. Annars kem-
ur það bara í ljós, maður reynir bara
að gera sitt besta og koma til móts
við fólk.“ Og hvaða egg skyldi vera í
uppáhaldi hjá Helga sjálfum? „Það
er erfitt að segja. Sælgætisblandan í
eggjunum er nokkurn veginn sú
sama milli gerða. En þetta er allt
mjög gott nammi, eins og ég orða
það,“ segir Helgi og brosir við.
„Við blöndum bara hrísinu við
súkkulaðið sem er góð blanda. En
við látum fólkið svo bara vera dóm-
arann á það, það er engin leið að
ætla að dæma um þetta sjálfur.“ En
Helgi veit þó sínu viti um hvað er
gott sælgæti? „Ojú, ef ég get ekki
borðað nammið þá þýðir ekki að
reyna að selja það. Það virkar ekki.
Er það ekki mælistika sem mark er
á takandi?“ spyr Helgi og brosir
breitt. „Enda sérðu að ég er patt-
aralegur.“
Óvæntur glaðningur í egginu
Aðspurður hvort stundum komi
inn á borð til þeirra beiðnir um að
lauma einhverju óvenjulegu í ákveð-
ið egg segir Helgi það gerast af og
til. „Það er alltaf eitthvað um það að
menn eru að senda kærustunni. Það
gekk svo vel hjá einum að hann kom
og gaf mér smá stykki í staðinn,
hann var svo ánægður með það
hvernig til tókst,“ segir Helgi og
hlær dátt. Sjálfur segist Helgi ekki
hafa brugðið á þennan leik með
óvæntum glaðningi í eggi.
„Afabörnin mín biðja bara um
páskaegg, refjalaust. Þau eru ekkert
að flækja það með veseni.“
jonagnar@mbl.is
Allt mjög gott nammi
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Súkkulaði Helgi Vilhjálmsson í Góu hefur framleitt gotterí ofan í landann í áratugi og kann sitthvað fyrir sér í þeirri iðn. „Við blöndum bara hrísinu
við súkkulaðið sem er góð blanda. En við látum fólkið svo bara vera dómarann á það,“ segir Helgi meðal annars hressilega hér í viðtalinu.
Helgi Vilhjálmsson, jafnan
kenndur við Góu, er á
heimavelli þegar góðgæti
og sætir molar eru annars
vegar. Hann er ásamt
starfsfólki sínu á fullu í
undirbúningi fyrir páskana.
’Fannst þetta ekkiná nokkurri átt.Það má sjálfsagt segjaað eggin séu almennt1.000 til 1.500 krónum
ódýrari af því ég er á
markaðnum
Um páska verður fjölbreytt dagskrá
að vanda í Mývatnssveit. Píslarganga
umhverfis Mývatn verður í átjánda
sinn á föstudaginn langa og hefst við
Hótel Reynihlíð kl. níu um morguninn.
Leiðin er 36 km löng og fer hver á sín-
um forsendum og hraða.
Á þessu ári er haldið upp á hundrað
ára búsetu í Gamla bænum í Reykja-
hlíð og sjötíu ára afmæli hótelrekstrar
í Reynihlíð. Heimamenn hafa lengi
tekið á móti gestum og veitt þeim
beina enda margir sem komu við, þar
sem þessi viðkomustaður var sá síð-
asti áður en lagt var á Mývatns- og
Möðrudalsöræfi og sá fyrsti þegar
komið var til baka eftir langa og oft
stranga ferð austan af landi.
Afmælisár Gamla bæjarins hefst
formlega 4. apríl, með afmælisboði. Í
boði verður léttur kvöldverður og af-
mæliskaffi frá kl. 19.30-21, gestum að
kostnaðarlausu eins og vera ber í
góðri afmælisveislu. Að kvöldverði
loknum verður spurningakeppnin
Barsvar haldin að hætti heimamanna
og ýmis tilboð. Einnig má nefna tón-
leika með sígildri tónlist sem Laufey
Sigurðardóttir fiðluleikari stendur fyr-
ir og haldnir eru í félagsheimilinu
Skjólbrekku og Reynihlíðarkirkju en
frá þeim er sagt á öðrum stað hér í
blaðinu.
Upp um fjöll og dali
Áhugaverðir möguleikar eru þegar
kemur að útivist í Mývatnssveit. Hægt
er að fara í sleðaferðir um fjöll, göngu-
skíðabrautir eru troðnar, skíðalyftan
opin í Kröflu og loks er hægt að ganga
um og njóta náttúru. Margir nýta sér
einnig að slaka á í Jarðböðunum.
Hægt er jafnframt að bóka vél-
sleðaferðir fyrir litla hópa og leigja
gönguskíði í Hótel Reynihlíð.
Sveit Margir koma við í Gamla bæ í Mývatnssveit. Veisla Afurðir úr sveitinni eru jafnan vinsæll matur.
Píslarganga og Barsvar um páska
Margt í boði í Mývatnssveit um komandi hátíðar. 100 ára afmæli Gamla bæjarins verður minnst
með ýmsu móti. Áhugaverðir möguleikar í útivist í boði. Sleðaferðir, jarðböð og skíði.
Klapparstíg 44 - Sími 562 3614
Úrval af
fallegu leirtaui