Morgunblaðið - 29.06.2012, Side 14

Morgunblaðið - 29.06.2012, Side 14
FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ótryggð ökutæki eru talin vera hátt á sjöunda þúsund talsins hér á landi, þar af um 1.500 dráttarvélar. Þetta kom fram við umfjöllun um frumvarp um ökutækjatryggingar í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Undanfarin ár hafa verið skráð í kringum 100 tjón á ári þar sem ótryggð ökutæki koma við sögu, að sögn Jóns Ólafssonar, framkvæmda- stjóra Alþjóðlegra bifreiðatrygginga á Íslandi (ABÍ), en öll tryggingafélög- in eiga aðild að ABÍ. Félagið borgar tjónþolum tjónin og reynir að rukka tjónvaldana. Heildartjón vegna ótryggðra ökutækja á ári geta legið frá því að vera 10-15 milljónir og upp í 30-40 milljónir að meðaltali. Einstök stórtjón geta hleypt þessum tölum verulega upp og mundi Jón eftir ein- stöku tjóni upp á um 60 milljónir að núvirði. Mörg ár geta liðið áður en öll kurl koma til grafar vegna tjónanna. Bóta- kröfur vegna líkamstjóna koma oft eftir langan tíma og þær geta hlaupið á háum upphæðum, að sögn Jóns. Endanleg uppgjör vegna undanfar- inna ára liggja því ekki fyrir. Jón taldi ekki að tjónum vegna ótryggðra öku- tækja hefði fjölgað, frekar að þeim hefði fækkað. „Þegar uppsveiflan var sem mest og töluvert af útlendingum kom hing- að til starfa þá voru þeir nokkuð áber- andi í hópi þeirra sem tryggðu ekki bílana. Þetta fólk er að mestu farið. Eftir er erlent fjölskyldufólk sem er ekki frábrugðið Íslendingum hvað þetta varðar,“ sagði Jón. Upp á síð- kastið hafa komið upp mál varðandi eignaleigur. Þegar þær vilja taka bíl af umráðamanni er oft ágreiningur um hver eigi að borga tryggingarnar. Tjón vegna eignaleigubíla enda því sum á borði ABÍ. Mjög illa hefur gengið að inn- heimta endurkröfur vegna tjóna af völdum ótryggðra bíla, að sögn Jóns. Skuldarar eru eltir alveg í gjaldþrot borgi þeir ekki. Ekki er óalgengt að eigendur ótryggðra ökutækja hafi þegar verið lýstir gjaldþrota þegar þeir valda tjóninu. „Ef ABÍ fær ekki greitt frá tjón- völdum þá eru tryggingafélögin rukk- uð. Þau borga ABÍ í hlutfalli við stærð sína á markaði og fá svo endurgreitt ef ABÍ nær að innheimta,“ sagði Jón. Tillaga um aðra innheimtuleið Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bolungarvík, leggur til að tekið verði upp vantryggingagjald vegna ótryggðra ökutækja. Samkvæmt um- ferðarlögum á lögregla að fjarlægja númer af ótryggðum ökutækjum eða leggja sekt á notendur eða eigendur þeirra. „Þeir sem sagt hefur verið upp tryggingum geta keyrt áfram án þess að nokkur krafa stofnist á þá. Mér finnst það vera mjög alvarlegt gagn- vart samfélaginu,“ sagði Jónas. Hann lagði því fram tillögu um van- tryggingagjald í umsögn um frum- varp um ökutækjatryggingar sem lagt var fram á Alþingi í fyrravor. Meirihluti efnahags- og viðskipta- nefndar lagði fram breytingartillögu um upptöku þessa nýja gjalds. Frum- varpið bíður afgreiðslu. Vantryggingagjaldið á að leggjast á ökutæki og eiganda þess í inn- heimtukerfi ríkisins um leið og trygg- ingafélag hefur sagt upp tryggingu ökutækisins. Miðað er við að leggja megi gjaldið á mánaðarlega í allt að tíu mánuði og geti upphæðin alls numið allt að 250 þúsund krónum á stærstu ökutækin. Jónas segir að gjaldið verði með lögveði í ökutækinu og beinni uppboðsheimild. Þess vegna verður hægt að selja ökutækið á upp- boði með skömmum fyrirvara verði frumvarpið með þessari breytingu að lögum. Svíar og Eistar hafa tekið upp van- tryggingagjald, líkt og lagt er til í frumvarpi um ökutækjatryggingar. Jón Ólafsson hjá ABÍ sagði þá hafa lagt til við Alþingi að félagið innheimti þetta gjald og hefði tekjur af því, líkt og systurfélög þess í Svíþjóð og Eist- landi gera. „Okkur finnst einkenni- legt að ríkið ætli að hirða þetta gjald en ætla okkur að standa undir kostn- aðinum,“ sagði Jón. Þúsundir ótryggðra ökutækja Morgunblaðið/RAX Tjón Skráð hafa verið um 100 tjón á ári í umferðinni hér á landi þar sem ótryggð ökutæki komu við sögu. Heild- artjónin geta hlaupið á mörgum tugum milljóna. Ökutækin á myndinni tengjast ekki umfjölluninni beint.  Tjón vegna ótryggðra ökutækja hlaupa á tugum milljóna á ári  Illa gengur að innheimta eigendur og umráðamenn  Lagt er til að taka upp nýtt vantryggingagjald með veði í ótryggðu ökutækjunum Tjón vegna ótryggðra » Alþjóðlegar bifreiðatrygg- ingar á Íslandi borga tjónþol- um tjónið sem ótryggð öku- tæki valda og reyna síðan að rukka eiganda ótryggða öku- tækisins. » Ef eigandinn borgar ekki lendir tjónið á tryggingafélög- unum þannig að iðgjaldagreið- endur borga á endanum. » Lagt er til að taka upp van- tryggingagjald með veði í öku- tækinu svo hægt verður að selja ökutækið nauðungarsölu. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2012 Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bolungarvík, segir að trygginga- félögin sendi Umferðarstofu fjölda tilkynninga í hverjum mánuði um uppsagnir á ökutækjatryggingum vegna vanskila. Hann telur að ár- legar tekjur ríkissjóðs vegna van- tryggingagjalds af ótryggðum öku- tækjum gætu orðið að minnsta kosti 100 milljónir króna og senni- lega talsvert meiri. Hann telur að gjaldið muni stuðla að því að eig- endur ökutækja standi frekar í skilum með vátryggingarnar en nú. Þá segir hann að verði gjaldið tekið upp þá muni það skapa þrjú til fjögur störf við umsýslu og innheimtu. Embætti sýslumannsins í Bolungarvík hefur reynslu af innheimtu van- rækslugjalds vegna ökutækja sem ekki eru færð til lögmæltrar skoðunar. Inn- heimta vanrækslugjaldsins hófst 1. apríl 2009 og hefur það skilað meira en einum milljarði króna í ríkissjóð. 100 milljónir á ári SÝSLUMAÐUR LEGGUR TIL UPPTÖKU VANTRYGGINGAGJALDS Jónas Guðmundsson Árlegt fjöl- skyldumót Har- ley Davidson mótorhjóla- klúbbsins á Ís- landi verður haldið í Odds- parti í Þykkva- bæ um helgina. Mótið hefst í kvöld. Í tilkynningu segir, að mótið sé ávallt vel sótt af áhugamönnum um Harley Dav- idson-mótorhjól og önnur hjól en það sé opið öllum. Á þriðja hundr- að manns sóttu hátíðina 2010 og 2011 en hún var þá haldin á sama stað. Fjölskyldumót Har- ley Davidson-klúbbs Harley Davidson mótorhjól. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há- skóla Íslands, og Guðmundur Magnússon, formaður Ör- yrkjabandalags Íslands, skrifuðu í gær undir samstarfssamning um kennslu og rannsóknir á sviði fötl- unarfræða við Háskóla Íslands. Markmið samningsins er að styrkja kennslu, rannsóknir, framþróun og stefnumörkun á fræðasviðinu og í málefnum fatlaðs fólks. Samstarfssamningurinn felur í sér að Öryrkjabandalag Íslands veitir allt að fimm milljónir króna til að stuðla að því að gera nám í fötlunarfræðum aðgengilegt nem- endum í grunnnámi. Styrkurinn verður notaður til að kanna hvort og þá með hvaða hætti unnt er að stofna til grunnnáms í fötlunar- fræðum sem aukagrein við Félags- og mannvísindadeild. Í tilkynningu segir að með samn- ingnum vilji Öryrkjabandalagið efla samstarf og tengsl við fræða- samfélagið. Samstarf um fötl- unarfræðinám Fulltrúar Öryrkjabandalagsins og Háskóla Íslands við undirritunina. Hamingjudagar eru nú haldnir á Hólmavík í áttunda sinn. Í tilkynningu segir, að hátíðin nái hámarki nú um helgina, en þá mæti m.a. töframaðurinn Ingó Geirdal á svæðið með magnaða töfrasýningu, KK haldi ókeypis tónleika fyrir alla gesti hátíð- arinnar, Leikhópurinn Lotta sýni Stígvélaða köttinn, Hvanndals- bræður spili á stórdansleik í fé- lagsheimilinu og Sauðfjársetur á Ströndum haldi sína árlegu Furðu- leika. Hamingjudagar á Hólmavík STUTT Sími 568 5170

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.