Morgunblaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2012 ✝ Snorri Jónssonfæddist á Siglu- firði 2. mars 1925. Hann andaðist á Sólvangi í Hafn- arfirði 20. júní 2012. Foreldrar Snorra voru Helga Jóhannesardóttir, f. á Heiði í Sléttuhlíð 3. júní 1890, d. 24. nóv. 1971 og Jón Anton Gíslason, f. 23. jan. 1889 á Bakka í Austur-Fljótum, d. 8. maí 1973. Systkini Snorra eru: Hrönn, látin, Ragheiður, látin, Dórothea Anna, látin, Jóhannes, látinn, Unnur, látin, Petra, f. 25.3. 1931 og Vilborg, f. 2.8. 1932. Snorri kvæntist þann 23. sept. 1950 Olgu Hafberg, f. 8. júní 1930. Börn þeirra: 1) Olga Guð- rún, f. 6.6. 1951, hennar maður var Einar Einarsson, f. 23.11. 1946, d. 25.4. 1986, börn þeirra: a) Einar Snorri, f. 31.1. 1972, maki Hildigunnur Hafsteins- dóttir, f. 21.8. 1976, dóttir og stjúpdóttir Einars Snorra er Bergdís Helga Jónsdóttir, f. 12.12. 1997, b) Davíð Arnar, f. 16.1. 1978, maki Áslaug Gunn- arsdóttir, f. 7.11. 1980, þeirra börn: Andri Berg, f. 2.4. 1997, Ellertsson, f. 31.1. 1985, c) Elín Helga, f. 10.3. 1990, 4) Hlynur Hafberg, f. 28.2. 1963, maki Alma Björk Sigurðardóttir, f. 25.6. 1965, þeirra börn eru: a) Tinna Hrund, f. 9.2. 1985, maki Hlynur Steinn Þorvaldsson, f. 19.2. 1981, þeirra sonur er Balt- asar Goði Hafberg, f. 16.12. 2009, b) Einar Ægir, f. 29.7. 1989, hans maki er Elísabet Traustadóttir, f. 18.5. 1990, c) Helga Þuríður, f. 18.2. 1994. Snorri útskrifaðist sem íþróttakennari frá Íþróttakenn- araskólanum á Laugarvatni vor- ið 1947 og sem handavinnukenn- ari frá Handíðaskólanum í Reykjavík 1948. Haustið 1950 réðst hann sem íþrótta- og handavinnukennari við hinn ný- stofnaða Héraðsskóla í Skógum undir Eyjafjöllum. Íþróttasalur var í hinni nýju skólabyggingu þar sem Snorri kenndi alla tíð íþróttir auk handavinnu. Í upp- hafi kenndi Snorri sund í hinni gömlu sundlaug á Seljavöllum eða til 1960 þegar sundlaug í Skógum var tekin í notkun. Eftir hálfan fjórða áratug í Skógum fluttu Snorri og Olga til Reykja- víkur og lauk Snorri starfsferli sínum við störf fyrir Alzheim- erssjúklinga á Hlíðarbæ við Flókagötu í Reykjavík. Útför Snorra fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, 29. júní 2012, og hefst at- höfnin kl. 13. Sara Björg, f. 1.7. 2004 og Kristjana Rut, f. 4.2. 2009, c) Birkir Snær, f. 13.1. 1982, maki Þórunn Ása Þórisdóttir, f. 10.7. 1982, þeirra sonur er Einar Kar- el, f. 13.1. 2009, maki Olgu er Rúnar Ástvaldsson, f. 5.9. 1956, 2) Engilbert Ó. H., f. 14.7. 1953, hans kona var Kolbrún Krist- insdóttir, f. 8.11. 1951, d. 16.7, 2005, börn þeirra: a) Jóhann, f. 10.11. 1971, maki María Krist- jánsdóttir, f. 12.11. 1975, börn þeirra Perla Kolbrún, f. 4.5. 2001 og Dagur Óli, f. 17.3. 2008, b) Helgi Karl, f. 2.11. 1978, maki Þóra Helgadóttir, f. 12.11. 1980, þeirra sonur er Baldur Kári, f. 8.2. 2005, c) Snorri, f. 4.11. 1982, hans maki er Ólöf Erlingsdóttir, f. 16.4. 1985, maki Engilberts er Sigrún Tómasdóttir, f. 18.5. 1973, 3) Jón Helgi B., f. 14.11. 1954, maki Þóra Björnsdóttir, f. 26.7. 1955, þeirra börn eru: a) Berglind, f. 20.7. 1978, hennar maki er Emil Árni Vilbergsson, f. 14.11. 1976, þeirra börn eru Eik, f. 11.8. 2006 og Mirra, f. 6.11. 2008, b) Olga Hrönn, f. 16.9. 1984, maki Steindór Oddur Elsku pabbi, nú hefur þú kvatt okkur. Minningarnar streyma um hugann. Þú varst fyrirmyndin mín. Þegar ég var lítil stelpa skottaðist ég í kring- um þig og fylgdist með þér þeg- ar þú kenndir leikfimi og sund. Ég sá hvað þú hafðir gaman af vinnunni. Ég var ekki nema fimm ára þegar ég ákvað að feta í fótspor þín og verða kenn- ari. Að alast upp í Skógum var yndislegt. Það var alltaf gaman að ferðast með ykkur mömmu og að fara til Siglufjarðar á hverju vori og upplifa sumarið þar var ævintýri. Þú fórst að vinna á síldarplani um leið og við kom- um norður og þar lærði ég að salta síld og upplifa stemn- inguna sem myndaðist á síld- arárunum. Þú varst fróður um landið okkar og þegar við ferðuðumst varst þú duglegur að segja okk- ur krökkunum frá því sem fyrir augu bar. Það var metnaður hjá mér að kunna bæjarnöfn á leið okkar því þú spurðir oft hvort við vissum hvað næsti bær héti. Þú og mamma stóðuð við bakið á mér í því sem ég tók mér fyrir hendur bæði í leik og starfi og alltaf fékk ég hvatn- ingu og gat sótt til ykkar ef eitthvað bjátaði á. Síðustu árin hafa verið þér erfið, sérstaklega þegar þú gast ekki lengur fengið þér göngu- túra eins og þú varst vanur. Ég veit að nú hefur þú hitt Jóa bróður þinn og Búbba og getur farið allra þinna ferða og líður vel. Við hugsum um mömmu fyrir þig. Olga Guðrún Snorradóttir. Mér er ljúft að minnast tengdaföður míns, Snorra Jóns- sonar. Hann var farsæll kennari við Skógaskóla þegar ég kynn- ist honum fyrir 37 árum þegar við Jónsi fórum að vera saman. Hann var ánægður með að ég væri að norðan en allir sem gátu rakið ættir sínar norður fengu gæðastimpil hjá honum. Það var hans ævistarf að kenna ungu fólki leikfimi og smíðar. Starfsferillinn á Skógum var farsæl og náði Snorri vel til nemenda sinna. Ég hef hitt marga fyrrum nemendur á Skógum sem minnast hans með þakklæti og hlýhug og það er auðfundið að hann tengdist mörgum nemendum sínum vin- áttuböndum. Snorri lagði mikið upp úr því við okkur að það væri mikil- vægt að ganga bein í baki og bera sig vel. Ásamt því að vera vel til fara og snyrtileg. Stelp- urnar okkar fengu góða leið- sögn í því. Snorri var einstak- lega barngóður og fylgdist mjög vel með öllum barnabörnunum sínum. Hann var laginn við að hvetja þau til dáða og vildi fylgjast með einkunnum þeirra á vorin. Hann skrifaði þær nið- ur hjá sér og var óspar á hrós. Hjónaband tengdaforeldra minna, þeirra Snorra og Olgu Hafberg, var einstaklega far- sælt. Þau voru eins og sitt hvor hliðin á sama peningnum. Sam- rýmd og samstillt. Ung hófu þau búskap á Skógum og eign- uðust þrjú börn, Olgu, Engil- bert og Jón, á fjórum árum. Fjórða barnið Hlynur kom síð- ar. Snorri vann alltaf mikið og lagði sig allan í verkefnin sem fyrir lágu. Því voru það mikil vonbrigði að heilsan bilaði um leið og starfsferlinum á Skógum lauk. En Snorri fékk heilablóð- fall þegar hann var að flytja sig frá Skógum til Reykjavíkur 1984. Það var ánægjulegt þegar við Jónsi ásamt Bigga og Birnu keyptum æskuheimili Snorra, Suðurgötu 37 á Siglufirði. Þá rifjaði Snorri upp uppvaxtarár sín á Siglufirði og sagði okkur skemmtilegar sögur af sínu fólki fyrir norðan. Að fá gömlu húsgögnin og alla þá hluti sem systkinin höfðu geymt aftur í húsið er afar ánægjulegt og er til þess fallið að minningarnar lifa í ótal sögum sem hver hlut- ur kallar fram. Snorri átti sterkar taugar til Siglufjarðar enda fór hann og vann öll sum- ur á Sigló meðan síld var unnin þar. Dauðinn var tengdaföður mínum Snorra Jónssyni líkn. Hann talaði um það sjálfur fyrir nokkrum árum að nú væri hann tilbúinn að fara til Jóa bróður síns og Búbba frænda síns. Hann var þess fullviss að þeir biðu hans. Snorri þurfti að sætta sig við erfiðar afleiðingar heilabilunar síðustu fimm ár. Hann tók því með miklu æðru- leysi og ljúfmennsku. Hann naut góðrar umönnunar á Sól- vangi. Fyrir það var hann þakk- látur og þar leið honum vel. Það er gott að eiga góðar minningar um traustan og vel- viljaðan tengdaföður. Það er alls ekki sjálfgefið að fólk eigi skap saman en ég fann aldrei annað en hlýhug og góð- mennsku frá elskulegum tengdaföður mínum. Ég minnist hans, sem glæsilegs manns sem bar sig vel. Viðmót hans var einstakt og hann var einlægur í því að vilja öllu fólki vel. Við munum halda minningu hans á lofti við barnabörnin um alla framtíð. Ég kveð Snorra Jónsson hinstu kveðju með þakklæti. Minningin lifir. Þóra Björnsdóttir. Afi hefur nú fengið hvíld. Eftir sitja góðar minningar um Snorra afa. Fyrstu minningarn- ar eru frá Skógum. Það var mikilvægt að kalla „afafoss“ þegar Skógafoss kom fyrir sjón- ir á leiðinni austur. Þar tóku afi og amma vel á móti öllum. Afi þreyttist aldrei á gönguferðum niður að Kvernuá til þess að kasta steinum, oft á dag, ef því var að skipta. Reglulega fórum við og kíktum í kaffi til annarra íbúa Skóga, þá hélt lítil afa- stelpa fast í höndina á afa sín- um, sagði lítið og fékk að dýfa sykurmolum í kaffið hans. Afi var mikill íþróttamaður og góður kennari, við barna- börnin nutum góðs af því og lærðum ung að árum að synda hjá afa. Hann var mjög ákveð- inn kennari en að sama skapi ljúfur. Við fengum reglulega að heyra hversu stórkostleg við værum og alveg einstaklega dugleg. Afi sparaði aldrei hrós- in. Hann var mjög sannfærandi þegar hann hrósaði okkur. Ég man eftir því þegar ég var bara 3 ára að renna mér niður brekk- urnar á skíðum, þá taldi afi mér trú um það að ég væri miklu betri á skíðum en stóru strák- arnir sem þeyttust fram úr mér. Hrós og hvatningarnar héldu áfram, hvort sem það var skóla- gangan eða íþróttir. Við vorum alltaf best. Síðasta hrósið frá afa var þegar ég var ófrísk í með- göngujóga. Þá sagði hann með sömu sannfæringu og áður: „Þú ert alveg örugglega best í jóga.“ Afi var mikið snyrtimenni, hann var alltaf fyrstur til þess að taka eftir nýrri klippingu eða fötum. Hver heimsókn byrjaði á hrósum fyrir fataval, nema einu sinni. Ég hafði þá sjálf saumað gallapils úr gömlum slitnum buxum. Honum fannst þetta pils ekki passa mér. Það var ekki notað aftur. Afi var alltaf vel til fara og beinn í baki. Dugnaðurinn var mikill og þrátt fyrir veikindi hætti hann ekki að hreyfa sig. Þegar hann komst ekki út úr húsi gekk hann einfaldlega upp og niður stigana. Það var íþróttamanninum mikilvægt að halda sér við. Ég hef hitt marga gamla nemendur afa sem allir tala um hann sem kennara af guðs náð. Frábæran íþrótta- kennara sem fékk nemendurna til þess að rétta úr sér og líða eins og fimleikastjörnum. Afi og amma voru samrýmd hjón og til mikillar fyrirmyndar. Ég man alltaf eftir þeim leiðast, fyrst í Skógum og síðast á Sól- vangi. Ég kveð afa með söknuði, megi hann hvíla í friði. Berglind Jónsdóttir. Snorri afi minn skipar stóran sess í lífi mínu. Hann fylgdist vel með öllum sínum og hvatti til dáða. Það var sérstök athöfn að sýna afa einkunnaspjaldið í lok hverrar annar. Hann fór gaum- gæfilega yfir það og skrifaði allt hjá sér og lýsti aðdáun sinni. Sagði gjarna „sko mína“. Þá var hann stoltur. Það var fastur lið- ur allan minn uppvöxt þar til hann veiktist að gera afa grein fyrir því hvað maður væri að gera og hvernig gengi. Hann gerði kröfur en hvatningin frá afa var líka ómetanleg. Honum var létt og lagið að láta mann finna hvað honum þótti mikið til manns koma og með þessari hvatningu náði hann að laða fram það besta í fari manns og fá mann til að rækta það. Afa fannst maður reyndar vera best- ur og flottastur í öllu sem maður gerði. Hann lagði líka áherslu á að maður tileinkaði sér heilbrigt líferni og stundaði íþróttir og bæri sig vel. Hann sagði að mað- ur ætti að vera beinn í baki og snyrtilegur til fara. Þótt afi væri orðinn mjög veikur undir það síðasta brást ekki að hann var uppörvandi og hafði ekki slakað á viðmiðunum sem hann lagði alltaf áherslu á. Þá tók hann oft fyrstur eftir nýjum flíkum sem ég klæddist og jafnvel örlítið breyttri hárgreiðslu og hrósaði mér í hástert. Það er stutt síðan hann hrósaði mér fyrir það að honum fannst ég vel klædd og sagði: „Maður á nefnilega ekki að vera til fara eins og maður sé búinn að gefast upp.“ Minningarnar sem ég á um afa eru svo ótalmargar og fal- legar. Ég hef oft hugsað um það hvað mér finnst ég vera heppin að hafa átt Snorra sem afa og ég mun alltaf minnast hans og geyma í hjarta mínu. Olga Hrönn Jónsdóttir. Elsku afi, það er erfitt að kveðja þig, en við yljum okkur við fallegar minningar. Þú varst svo yndislegur og góður við okk- ur og okkur þótti alltaf svo gam- an að koma til ykkar ömmu og vera hjá ykkur og eins að fá ykkur vestur til okkar. Þegar við yljum okkur við minning- arnar eins og núna, eru þær svo ótal margar, þú varst svo söng- lelskur og söngst mikið fyrir okkur og kenndir okkur ófá lög- in. Manstu afi þegar rigndi og við vorum að sópa alla ormana úr bílskúrnum á Háaleitisbraut- inni? Allt sem þú gerðir með okkur og fyrir okkur er ógleym- anlegt, allar ferðirnar í Kringl- una og þú sast á bekk svo ró- legur og þolinmóður og beiðst eftir okkur, allar ferðirnar aust- ur í bústaðinn, allar sögurnar sem þú last fyrir okkur, þú varst alltaf svo ljúfur og góður og hafðir endalausa þolinmæði gagnvart okkur. Við erum af- skaplega þakklát fyrir það að þú hafir verið afinn okkar, þú hafðir alltaf tíma fyrir okkur og fylltir okkur af ýmsum fróðleik úr öllum áttum. Þú varst alltaf svo endalaust góður við hana ömmu, gerðir allt fyrir hana og passaðir alltaf upp á það að hún hefði það sem allra best, nú er komið að okkur að gera það fyr- ir hana. Við lofum þér því að hugsa vel um ömmu og passa vel upp á hana. Elsku afi, við söknum þín sárt og kveðjum þig með tárum en minnumst þín með brosum og hlýju. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. . . . . . . þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín barnabörn, Tinna Hrund, Einar Ægir og Helga Þuríður. Við afadrengirnir þínir viljum minnast þín í örfáum orðum. Það var ekki auðvelt fyrir okk- ur bræðurna að setjast niður að skrifa þessi orð vegna þess hversu minningarnar eru marg- ar þar sem þú varst svo stór hluti af okkar lífi og tilveru. Fyrst koma upp í hugann minningar um samverustundir okkar í Skógum. Þar kenndir þú meðal annars íþróttir, sund og smíði. Það voru ófá sumrin sem við bræðurnir fengum að njóta þess að vera með ykkur ömmu í sveitasælunni. Einnig eru öll jólin sem við áttum þar saman ógleymanleg en þar skapaðist órjúfanleg hefð að setja alla pakkana í sófann vegna fjölda þeirra. Þaðan út- deildir þú pökkunum til allra af þínum alkunna húmor og alúð. Þú varst kennari af guðs náð og kenndir okkur eldri bræðr- unum meðal annars að synda í sundlauginni í Skógaskóla á þinn rólega, yfirvegaða en ákveðna hátt. Það fas einkenndi þig alla tíð, en þó var aldrei langt í húmorinn og er það ógleymanlegt þegar okkur bræðurna langaði í byssuleik uppi í skógi og þú lést undan suðinu og smíðaðir byssur fyrir okkur. Okkur til ama, þá voru þær hins vegar með bogin hlaup. Þegar við vorum orðnir óviðráðanlegir úr sorg út af ónothæfu byssunum, þá dróst þú fram rétt smíðaðar byssur, sem þú hafðir smíðað samhliða hinum og afhentir okkur með bros á vör. Þó að minningarnar séu margar, þá eru meðal þeirra ljúfustu frá heimsóknum okkar á Háaleitisbrautina, þar sem oftar en ekki var spilað á spil og spjallað um daginn og veginn. Ef heimsóknin dróst á langinn, var henni lokið með kvöldkaffi þar sem undanrennan og jóla- kakan var dregin fram. Elsku afi, þú munt lifa í hjörtum okkar alla tíð. Hvíl í friði. Einar Snorri, Davíð Arnar og Birkir Snær. Snorri Jónsson, kær frændi, einlægur og traustur vinur, er fallinn frá. Hér verður hans minnst í nokkrum fátæklegum orðum. Fyrsta minning mín um Snorra var þegar ég 7 ára hnokki suður með sjó hóf knattspyrnuiðkun í Kelagarði við Uppsalaveg í Sandgerði undir merkjum Reynis. Ein af stjörnum vallarins, strákur mér einu ári eldri, nálgast mig undir lok leiksins og segir: „Gunni, hann Snorri íþrótta- kennari í Skógum biður að heilsa honum Búbba pabba þín- um,“ en piltur þessi hafði verið í sveit undir Eyjaföllum. Ég hváði, hafði ekki hugmynd um hvar Skógar væru né um tilvist nokkurs Snorra íþróttakennara þar á bæ. Ég mundi þó eftir að bera föður mínum kveðjuna þegar hann kom heim úr vinnu síðar þann dag: „Pabbi, einhver Snorri íþróttakennari í Skógum biður að heilsa þér.“ Það hýrn- aði verulega yfir pabba og gleðibjarmi kom yfir andlit hans sem ég hef ekki getað gleymt, æskan og uppvaxtarár- in á Siglufirði. Pabbi tjáði mér að þeir Snorri þessi ásamt Jóa bróður hans væru nánir frænd- ur og hefðu verið bestu vinir sínir í uppvextinum á Siglu- firði. Það var svo ekki fyrr en sumarið áður en ég hóf nám í menntaskóla í Reykjavík að Snorri kom í heimsókn til Sandgerðis ásamt fjölskyld- unni. Ég var ekki heima en systur mínar lýstu þessari heimsókn sem stórviðburði sem ég því miður hafði misst af. En hjólin fóru heldur betur að snú- ast þegar ég hóf námið í menntaskólanum því örlögin höguðu því þannig að ég lenti í sama bekk og Engilbert jafn- aldri minn og frændi og elsti sonur Snorra í Skógum. Við urðum óaðskiljanlegir félagar og vinir öll mennta- og há- skólaárin hér á landi. Ekki leið á löngu áður en ég loksins fékk að líta og kynnast Snorra sjálfum og fjölskyldu hans og þar varð ég svo sann- arlega ekki fyrir vonbrigðum, Olga kona Snorra, Olga Guð- rún frumburðurinn, Jón árinu yngri en við Engilbert og síðan Hlynur talsvert yngri. Við Jón höfum verið óaðskiljanlegir fé- lagar og vinir æ síðan. Og brátt hlotnaðist mér sú ánægja að sækja Snorra og Olgu heim að Skógum og sjá íþróttakennar- ann og reglumanninn Snorra stýra fimleikasýningu á árshá- tíð skólans. Ferðirnar þangað urðu ófáar með þeim Engilbert og Jóni á skólaárunum og þangað var haldið með foreldr- um og systkinum til að njóta ómældrar gestrisni þeirra hjóna, náttúrufegurðar svæðis- ins og ánægjulegra samskipta. Hvílík blessun að eiga slíkt öndvegisfólk sem Snorra og fjölskyldu að vinum, þau alltaf boðin og búin af heilindum og fórnfýsi, umhyggjan einstök og vináttan fölskvalaus. Hvað er betur til þess fallið að gæða líf- ið fyllingu og létta hið daglega amstur? Þetta er sú tegund vináttu sem faðir minn hafði notið og ég síðan í ríkum mæli ásamt fjölskyldu minni. Fyrir það vil ég að leiðarlokum þakka heiðursmanninum Snorra Jónssyni. Um leið og ég kveð frænda minn og vin, Snorra Jónsson, sendi ég fjöl- skyldu hans, Olgu konu hans og börnum ásamt barnabörn- um og öðrum ættingjum inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning sómamannsins Snorra Jónssonar, íþróttakenn- ara í Skógum. Guðmundur G. Haraldsson (Gunnar Búbba). Snorri Jónsson  Fleiri minningargreinar um Snorra Jónsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.