Morgunblaðið - 21.07.2012, Qupperneq 2
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Evrópski seðlabankinn, ECB, hefur
endurheimt að fullu lán upp á fjóra
milljarða evra sem dótturfélög Glitn-
is, Kaupþings og Landsbankans í
Lúxemborg fengu í október 2008.
Upphæðin samsvarar 612 milljörðum
króna á skráðu gengi Seðlabankans.
Til samanburðar má nefna að tekjur
ríkissjóðs í fyrra voru 486,5 milljarðar
og útgjöld ríkisins tæplega 576 millj-
arðar króna.
Seðlabanki Íslands átti náið sam-
starf um lausn málsins við seðlabank-
ann í Lúxemborg. Í fréttatilkynningu
Seðlabanka Íslands kemur fram að
seðlabankinn í Lúxemborg hafi veitt
dótturfélögum íslensku bankanna
þessa lausafjárfyrirgreiðslu fyrir
hönd Evrópska seðlabankans. Þegar
íslensku bankarnir fóru í þrot „var
innlausn þeirra trygginga sem lagðar
höfðu verið fram vandkvæðum bund-
in vegna dýpkandi fjármálakreppu og
náðist samkomulag um að vinna tíma
til að hámarka endurheimtur,“ segir í
tilkynningunni. „Fjórum árum síðar,
hafa lánin nú verið gerð upp að fullu
án afskrifta af hálfu ECB.“
Kaupin á Avens mikilvæg
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri sagði að þegar íslensku bank-
arnir féllu hefðu öll þessi lán verið í
vanskilum. Seðlabankinn í Lúxem-
borg tók yfir veðin. Sum veðanna inn-
heimtu þeir sjálfir en í fleiri tilvikum
sömdu slitastjórnir þrotabúa föllnu ís-
lensku bankanna, Kaupþings, Glitnis
eða Landsbankans, við seðlabankann
í Lúxemborg um uppgjör þessara
skulda og fengu þannig hinar veð-
settu eignir í sínar hendur. Már sagði
að kaup Seðlabanka Íslands, fyrir
hönd ríkissjóðs Íslands, á skuldabréf-
um Avens B.V. í maí 2010 hefðu greitt
mjög fyrir því að hægt var að ljúka
málum gagnvart Landsbankanum.
Már sagði aðspurður að sú niður-
staða sem nú er fengin varðandi upp-
gjör lána Evrópska seðlabankans
hefði ekki áhrif á gjaldeyrisstöðu
Íslands. Hann sagði að Avens við-
skiptin hefðu aukið gjaldeyrisforðann
á sínum tíma þegar keyptar voru
eignir sem síðan voru seldar lífeyris-
sjóðunum.
Már telur að sú niðurstaða sem nú
liggur fyrir varðandi uppgjör lána
Evrópska seðlabankans til íslensku
bankanna muni hafa jákvæð áhrif
fyrir Ísland.
Jákvætt fyrir orðspor landsins
„Ef þetta hefði farið verr og ekki
verið hægt að gera upp þessa skuld,
þá hefðu allir seðlabankarnir í seðla-
bankakerfi Evrópu þurft að bóka hjá
sér tap vegna viðskipta við íslenska
banka. Það hefði staðið í bókum
þeirra að eilífu! Það hefði ekki verið
gott fyrir okkar orðspor, jafnvel þótt
þetta hafi verið einkabankar. En við
forðuðum því,“ sagði Már.
Hann nefndi í öðru lagi að Avens-
samkomulagið og síðan jákvæð nið-
urstaða uppgjörs skulda út af Lands-
bankanum, hefði gert það að verkum
að endurheimturnar upp í Icesave
urðu meiri heldur en ef þetta hefði allt
farið á brunaútsölur. Við það hefðu
tapast mikil verðmæti.
„Avens-samningurinn á sínum tíma
og þau jákvæðu áhrif sem þetta
skuldauppgjör nú hefur á orðspor
þjóðarinnar er jákvætt innlegg í það
að losa um gjaldeyrishöftin,“ sagði
Már.
Lánin endurheimtust að fullu
Evrópski seðlabankinn þarf ekki að
afskrifa neitt vegna 4 milljarða evra lána
Ljósmynd/Seðlabanki Íslands
Seðlabankastjórar Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Yves Mersch,
seðlabankastjóri í Lúxemborg, sem dvelur nú á landinu. Þeir skiptust á sér-
slegnum myntum sem fara í myntsöfn seðlabankanna tveggja.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hann Emil Breki Davíðsson, á 3. ári, sem var í
heimsókn nyrðra en býr annars í Kópavogi,
reyndi fyrir sér á bryggju í Ólafsfirði í gær, enda
heilla fréttir af makrílgöngum upp að land-
steinum víða. Þarna fengust að vísu bara smá-
vaxnir ufsar þann daginn, en ánægjan var hin
sama. Betra hefði verið að sjá hinn unga veiði-
mann í björgunarvesti en pabbi var raunar hálf-
an metra frá og fylgdist með hverri hreyfingu.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Ungur veiðimaður
við öllu búinn
Veðurstofan varaði við stormi á Suðurlandi,
Faxaflóa og miðhálendinu með kvöldinu. Í gær
var spáð vaxandi austan- og suðaustanátt með
rigningu. Um hádegi verði kominn 10-15 m/s
vindur á Suður- og Suðvesturlandi. Þar á vind-
urinn að fara í 15-23 m/s með kvöldinu og er von
á talsverðri rigningu. Hvassast verður við suð-
vesturströndina og á vestanverðu hálendinu.
Veðurstofan benti ferðamönnum, einkum þeim
sem ferðast með aftanívagna eða eru í útilegu, á
að spáð er ört versnandi veðri í dag. Búast má
við hvössum vindi og vindhviðum sunnan og vest-
an til síðdegis og allmikilli rigningu í kvöld.
Verulega dregur úr veðurhæð í nótt, fyrst
sunnan til.
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir að við
þær aðstæður sem spáð er megi fastlega gera
ráð fyrir snörpum vindhviðum, allt að 30-35 m/s á
stöðum eins og undir Eyjafjöllum, á utanverðu
Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli, við Hafursfell á
Snæfellsnesi og á Fróðárheiði. Hann segir að
hvasst verði á þessum slóðum á undan skilum
lægðarinnar frá því upp úr miðjum degi og fram
eftir kvöldi.
Tíðar viðvaranir undanfarna daga vegna
djúprar lægðar sem fer að gæta hér í dag virðast
hafa haft áhrif á ferðalög fólks um helgina.
Jóhann Kári Ívarsson, skálavörður í Land-
mannalaugum, sagði í gærkvöldi að þar væru
óvenjufáir gestir. Tjaldbúum í Landmannalaug-
um er bent á að setja steina á tjöldin til að fergja
þau og ferðamönnum er ráðið frá því að fara í
lengri gönguferðir í ljósi veðurspárinnar. Allir
gestir koma í afgreiðsluna í skálanum og þá er
rætt við þá. Eins er farið um tjaldstæðið til að
rukka og þá eru gestir látnir vita af spánni.
Þorbjörg Sigurðardóttir, sem vinnur á tjald-
stæðinu á Flúðum, sagði að í gærkvöldi hefðu
verið þar áberandi fáir gestir miðað við föstu-
dagskvöld í júlí. gudni@mbl.is
Ört versnandi veður í dag
Ferðafólk varað við að vera á ferð með aftanívagna Búast má við snörpum
vindi og vindhviðum síðdegis sunnan- og vestanlands Bent á að fergja tjöldin
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Landmannalaugar Fólki er bent á að fergja
tjöldin með grjóti vegna veðurspárinnar.
Nokkuð minni umferð var á
helstu þjóðvegum landsins í
gær en verið hefur und-
anfarnar helgar samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu.
Talsvert minni umferð var um
Hellisheiði um tíuleytið í gær-
kvöldi en á sama tíma fyrir
viku, samkvæmt upplýsingum
um umferð á vefsíðu Vega-
gerðarinnar. Sömu sögu er að
segja af Kjalarnesi og undir
Hafnarfjalli. Útihátíðirnar sem
fram fara um helgina fara ró-
lega af stað. Viðbúnaður er
við Úlfljótsvatn þar sem
landsmót skáta hefst um
helgina. Á Gásum, þar sem
Miðaldadagar fara fram eru
mótshaldarar einnig við öllu
búnir verði veður vont.
Færri á ferð
en venjulega
BÍLAUMFERÐ
Sr. Hjálmar
Jónsson, sóknar-
prestur í Dóm-
kirkjunni, mun á
morgun leiða
minningarmessu í
prestakallinu
Bardu í Norður-
Noregi en þá
verður ár liðið frá
fjöldamorðunum í
Osló og Útey.
„Í þessu 4.000 manna prestakalli
voru sjö ungmenni sem fóru til Út-
eyjar, og voru þar þegar þetta gerð-
ist, en fimm komu til baka. Tveir
ungir efnismenn voru myrtir,“ segir
Hjálmar, sem leysir af í prestakall-
inu næstu fimm vikur.
„Þetta hefur haft mikil áhrif á
þetta samfélag og ákveðinn skuggi
yfir en fólk hefur hins vegar, og
norska þjóðin öll, komist í gegnum
þetta með undraverðum hætti og er
að klára þetta vel,“ segir hann.
Norðmenn hafi einsett sér að
bæta það sem verði bætt og hjálpa
þeim sem lifðu af en enn eru sárir á
líkama og sál.
Fórnar-
lambanna
minnst
Sr. Hjálmar
Jónsson