Morgunblaðið - 21.07.2012, Side 4

Morgunblaðið - 21.07.2012, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012 Skúli Hansen skulih@mbl.is Búið er að opna alla hálendisvegi landsins og virðast þeir almennt hafa verið opnaðir fyrr nú en á síð- asta ári. Þannig voru, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, fyrstu hálendisvegirnir opnaðir 4. apríl og þeir síðustu 4. júlí síðastlið- inn. Í fyrrasumar voru fyrstu há- lendisvegirnir opnaðir 6. maí og þeir síðustu 21. júlí. Að sögn Ragnars Magnússonar, skálavarðar í Landmannalaugum, hefur ferðamannastraumurinn til Landmannalauga verið samkvæmt venju í sumar; hann hafi byrjað ró- lega en reynslan segi þó að ferða- menn séu flestir frá miðjum júlí og út ágúst. .„Við erum með einn áttatíu manna skála hérna sem er meira og minna fullbókaður út ágúst,“ segir Ragnar. Að sögn hans var vegurinn að Landmannalaugum opnaður tals- vert fyrr en á síðasta ári. „Við opn- uðum hérna í byrjun júní sem var tuttugu dögum fyrr heldur en í fyrra,“ segir Ragnar og bætir við: „Í fyrra var opnað dálítið seint vegna snjóa.“ Opnuðu óvenjusnemma „Fyrstu vegir voru opnaðir óvenjusnemma í sumar,“ segir Hjör- leifur Hreinsson, þjóðgarðsvörður á Norðursvæði, aðspurður hvenær vegirnir til Öskju opnuðust í ár. Að sögn Hjörleifs eykst umferðin ávallt töluvert um þessa vegi um mánaðamótin júní/júlí enda hafi tíðkast að opna hálendisvegi í kring- um þann tíma. Hjörleifur segir, að það séu eink- um erlendir ferðamenn sem aka eft- ir þessum vegum. „Þetta eru lang- mest bílaleigujeppar og eigin ökutæki fólks sem kemur með ferj- unni [Norrænu]. Síðan eru þetta rút- ur og hópferðabifreiðar í bland,“ segir Hjörleifur og bætir við að hann telji að það hafi færst í vöxt síðustu árin að fólk ferðist um hálendið á eigin vegum frekar en í skipulögðum hópferðum. 80 kílómetra þvottabretti Að sögn Gunnars Guðjónssonar, staðarhaldara á Hveravöllum, opn- aðist vegurinn að Hveravöllum fyrr núna en í fyrra enda hafi ýmis fyr- irtæki sett peninga í að moka skafla af veginum til þess að opna hann fyrr. Gunnar segir mikla ferðamanna- umferð hafa verið þarna í sumar. Mjög algengt sé að menn keyri þarna á bílaleigujeppum en einnig sé mikið um rútur. „Það er búið að áætla að það séu eitthvað um 30 þúsund manns sem koma þarna á sumrin. Mesta álagið er frá 20. júní til 10. ágúst. Við höf- um mest talið 18 rútur úti á plani,“ segir Gunnar. Að sögn hans er alltaf að aukast að fólk komi til landsins með eigin jeppa og aki á honum um landið. „Vegagerðin er með opið fyr- ir alla bíla en sjálfur myndi ég ekki fara á venjulegum bíl þennan veg. Þetta er eiginlega 80 kílómetra langt þvottabretti,“ segir Gunnar. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Heit laug á Hveravöllum Hópur fólks nýtur sólskinsins er það baðar sig í veðurblíðunni á Hveravöllum. Hálendisvegir voru opnaðir snemma í ár  Mun fleiri fara upp á hálendið á einkabílum en áður Þótt lítið sæist til sólar var líf og fjör í miðborg Reykjavíkur í gær. Í Hjartagarðinum svonefnda efndi hársnyrtistofan Sjoppan til klippi- maraþons til styrktar Hjarta- heillum en þar gátu loðnir gestir og gangandi látið snyrta á sér höfuðið gegn frjálsu framlagi. Um sannkallað samstarfsátak var að ræða en Gogoyoko sá m.a. fyrir tónlist og skemmtistaðirnir Hemmi og Valdi, Lebowski og Faktorý fyrir veitingum. Ofar í bænum gengu um sextíu unglingar frá Íslandi og Þýskalandi frá Hlemmi og niður Laugaveginn til að vekja athygli á baráttunni gegn einelti. Krakkarnir eru allir virkir í kirkjustarfi og er yfirskrift heim- sóknar þýsku ungmennanna hingað „Unglingar gegn einelti – Mann- réttindaátak gegn mismunun og útilokun.“ Létu gott af sér leiða í miðbænum Morgunblaðið/Styrmir Kári Hár Klippimaraþonið var enn í fullum gangi um kvöldmatarleytið í gær og þeir eflaust ófáir sem höfðu lést um nokkur grömm þegar því lauk. Boðið var upp á grill og happdrætti og góða stemningu í Hjartagarðinum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ganga Sömu krakkar og gengu gegn einelti niður Laugaveginn í gær, hitt- ust í Þýskalandi í fyrra og fræddust þar um náttúruvernd. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Álagningarseðlar einstaklinga verða birtir miðvikudaginn 25. júlí nk. á þjónustusíðum gjaldenda á vefnum www.skattur.is. Á sama tíma verður birtur listi yfir 50 hæstu greiðendur opinberra gjalda á landinu þetta ár- ið. Seðlar verða einnig póstlagðir þann dag til þeirra sem ekki hafa af- þakkað að fá þá á pappír. Skúli Eggert Þórðarson ríkis- skattstjóri segir mögulegt að álagn- ingarskrár fyrir hvern og einn verði aðgengilegar degi fyrr, en embættið miði þó við birtingu þann 25. júlí. Vinna við álagningu er flóknari en áður, að sögn Skúla, sérstaklega er varðar útsvarið. Áður var útsvarið lagt á þar sem fólk átti lögheimili í lok ársins en núna er farið að skipta því hlutfallslega eftir búsetu innan ársins. Þessu var breytt árið 2010, á grundvelli tillagna frá Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga. Skúli segir þetta geta t.d. þýtt meiri útvarstekj- ur fyrir minni sveitarfélögin og þá á kostnað þeirra stærri. Fer þetta allt eftir flutn- ingsstraumnum milli landshluta en heildarút- svarstekjur verða þær sömu og áður. Að sögn Skúla voru framtalsskil- in mjög góð þetta árið. Opnað var fyrir framtalsgerð- ina fyrr en áður, samstarf við endur- skoðendur og bókara um að flýta skilum var gott og aukinn viðbún- aður var í þjónustu og símsvörun. Inneignir gjaldenda, s.s. vegna barna- og vaxtabóta, verða svo lagð- ar inn á bankareikninga viðkomandi 1. ágúst nk. Engar ávísanir verða sendar út, að því er fram kemur á vef Ríkisskattstjóra, rsk.is, og þurfa þeir sem ekki hafa tilkynnt um bankareikning að sækja inneignir sínar til innheimtumanns, sem eru Tollstjórinn í Reykjavík og sýslu- menn um land allt. Álagningin að bresta á  Ríkisskattstjóri birtir álagningarseðla á netinu 25. júlí  Mikil vinna við skipt- ingu útsvarstekna milli sveitarfélaga ef framteljendur hafa flust milli landshluta Skúli Eggert Þórðarson Sumarið 2008 voru fyrstu há- lendisvegirnir opnaðir 15. apríl og þeir síðustu 20. júlí. Árið 2009 voru fyrstu vegirnir opn- aðir 25. apríl og þeir síðustu 8. júlí. Fyrstu vegaopnanirnar sumarið 2010 voru síðan 9. apr- íl og þær síðustu 30. júní. Í fyrra voru fyrstu hálendisvegirnir opnaðir 6. maí og þeir síðustu 21. júlí. Í ár voru hins vegar fyrstu vegirnir opnaðir 4. apríl og þeir síðustu 4. júlí. Hálendisvegir virðast því hafa almennt séð verið opnaðir nokkuð snemma í ár miðað við árin á undan. Fyrstu vegirnir opnaðir í apríl OPNANIR HÁLENDISVEGA Á ÁRUNUM 2008-2012 Framteljendur sem geta séð álagningu sína 25. júlí nk. eru um 260 þúsund einstaklingar. Þetta er að sögn Skúla Eggerts Þórðarsonar svipaður fjöldi og undanfarin tvö ár. Lögaðilar fá svo sína álagningu í hendur í haust. Framteljendum fækkaði nokkuð fyrstu árin eftir hrun, þegar aðflutt vinnuafl yfirgaf landið í stórum stíl en fjöldinn hefur verið svipaður frá 2010. 260 þúsund töldu fram FRAMTELJENDUR 2012

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.