Morgunblaðið - 21.07.2012, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 21.07.2012, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012 Birkir Fanndal Mývatnssveit | Baráttan um land- ið tekur á sig ýmsar myndir. Ein er sú hvaða fólk má eiga Ísland og önnur er sú er hvaða jurtir eru vel- komnar í flóru landsins. Vandamál af þessum toga hafa ekki brunnið mjög heitt á Mývetn- ingum fram undir þetta en nú má segja að málin séu komin nánast inn á gafl hjá okkur. Hinum megin við lækinn er kín- verskur fjárfestir að þreifa fyrir sér um land en aðskiljanlegar jurtir, misjafnlega vinsælar, sækja inn í sveitina að kalla úr öllum áttum. Við sleppum hér umræðu um Grímsstaði og einnig lúpínuna því þar má augljóslega finna bæði kosti og galla. Öðru máli gegnir um skógarkerfil sem hefur verið að færast nær sveitinni á undanförnum árum Hann á sér mikið óskaland og bækistöð í Reykjadal og nú er hann kominn með hersveitir sínar í eyjar og hólma Mývatns. Þetta gerist eig- inlega án þess að menn átti sig fyrr en holskeflan steypist yfir. Sumarið 2011 fór starfsfólk Um- hverfisstofnunnar á verst leiknu staðina, sem eru tveir hólmar skammt undan landi við Geiteyjar- strönd. Nú í sumar virðist svo sem það verk hafi skilað litlum eða engum árangri því hólmarnir eru enn á ný alhvítir af þessari ágengu jurt, sem engum er til gagns en drepur ann- an gróður. Soffía Valsdóttir, fulltrúi Ust í Mývatnssveit, segir að á næstu dögum verði vinnuflokkur sendur í hólmana til að gera enn eina tilraun til að hreinsa burt kerfilinn. Friðrik Dagur Arnarson, gam- alreyndur landvörður, segir að hann hafi gengið ströndina frá Geit- eyjarströnd að Vogum og þar sé jurtin farin að dreifast um fjörurn- ar. Vitað er um landvinninga kerfils í Geitey og Kálfshólma og ekki ástæða til annars en gera ráð fyrir að hann sé kominn í flestar eyjar á Mývatni. Hver maður getur séð að þá er honum greið leið niður með Laxá og er málið allt hið alvarleg- asta. Skógarkerfill springur út í Mývatnssveit  Nú er hann kominn með hersveitir sínar í eyjar og hólma Mývatns Morgunblaðið/Birkir Fanndal Skógarkerfill Strandarhólmar á Mývatni, gráhvítir yfir að líta í forgrunni, Geitey fjær. Umhverfið hefur skipt um lit. Shell hækkaði verðið á bens- ínlítranum um þrjár krónur á fimmtudag. Kostar lítrinn í sjálfsafgreiðslu nú 250,5 krón- ur. Önnur olíufé- lög hækkuðu einnig verðið. Hjá N1 og Olís kostar bensínlítrinn 247,3 krónur og dísilolían 250,8 krónur. Ódýrastur er bensínlítrinn hjá Orkunni, þar sem hann kostar 246,8 krónur. Hjá Atlantsolíu kostar bensínlítrinn 246,9 krónur og hjá ÓB 247,1 krónu. Bensínlítrinn kom- inn í 250,5 krónur Hæstiréttur framlengdi í gær gæsluvarðhald karls og konu, sem voru dæmd í Héraðsdómi Reykja- ness fyrir árás á konu í Hafnar- firði í desember í fyrra. Sigríður Frið- jónsdóttir rík- issaksóknari staðfesti við mbl.is að gæslu- varðhaldið hefði verið framlengt til 8. nóvember. Konan og karl- inn hlutu langa fangelsisdóma fyrir árásina. Tveir aðrir karlmenn voru einnig dæmdir fyrir árásina en tveir sýknaðir. Málum allra hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Ekki er heimilt að láta fólkið taka út refsingu fyrr en að dómi Hæsta- réttar gengnum, en vegna alvar- leika brotanna fór ríkissaksóknari fram á áframhaldandi gæslu- varðhald. Gæsluvarðhald framlengt Hæstiréttur. Bíll lenti utan vegar og valt á Nesjavallavegi nálægt Dyrafjöll- um á áttunda tímanum í gær- kvöldi. Ökumaðurinn var einn í bílnum og þurfti Slökkvilið höfuð- borgarsvæðisins að beita klippum til að ná honum út. Sendir voru tveir dælubílar og tveir sjúkrabílar á vettvang auk lögregluliðs. Öku- maðurinn var síðan fluttur á bráða- móttöku Landspítalans í Fossvogi. Nesjavallaleið var lokað í rúma klukkustund á meðan lögregla og sjúkralið athöfnuðu sig á vettvangi. Bíll valt við Dyrafjöll á Nesjavallavegi Beitt var klippum. Skógarkerfill hefur víða breiðst út í þéttbýli og í beitarfriðuðu landi til sveita á undanförnum árum. Fram undir 2005 kvað mest að honum í Eyjafirði og á höfuðborg- arsvæðinu en nú er hann einnig orðinn allútbreiddur á Suðurlandi og á Vestfjörðum. Kerfillinn skýtur stöðugt upp kollinum á nýjum stöðum og er tekinn að setja svip á gróðurfar. Þetta kemur fram á vef Náttúrufræðistofnunar. Skógarkerfill vex villtur í Evrópu og Asíu. Hann hefur verið fluttur langt út fyrir heimkynni sín til ræktunar í görðum, en mörgum þykir hann fallegur í beðum og blómabreiðum. Líklegt er að skóg- arkerfill hafi borist hingað til lands fyrir tæpri öld, en elstu heimildir um hann í gögnum Nátt- úrufræðistofnunar eru frá árinu 1927. Allt bendir til að óhindruð útbreiðsla skógarkerfils um víð- áttumikil gróin svæði leiði til fá- breyttari gróðurs og verulegra breytinga á dýralífi, bæði smádýra og fugla. Fólk hefur haft samband við Náttúrufræðistofnun, lýst áhyggjum og viljað vita hvað gerist á landi sem skógarkerfill breiðist um og hvernig sporna megi gegn útbreiðslunni. Leiðir til fábreyttari gróðurs ELSTU HEIMILDIR UM SKÓGARKERFIL HÉRLENDIS ERU FRÁ 1927 „Ljóst er að þetta verður ekki stórt ár í kartöfluuppskeru, en það verður að öllum líkindum þokkalegt,“ segir Bergvin Jóhannsson, kartöflubóndi og formaður Landssambands kart- öflubænda. Kartöflurækt hefur ekki gengið þrautalaust fyrir sig á Ís- landi í ár og munu þurrkar og frost að öllum líkindum hafa áhrif á kom- andi uppskeru. Rigningin til bjargar „Uppskeran er á sæmilegu róli en þurrkar eru víða farnir að valda verulegu tjóni,“ segir Bergvin. „Það er farið að brenna í görðum, rétt eins og túnum og öðrum gróð- urlöndum,“ segir hann. „Uppsker- unni hefur þess vegna seinkað mikið en nú er að vænta góðrar rigningar- gusu sem mun væntanlega bjarga miklu,“ segir Bergvin. Hann segir að hjá einstaka mönn- um hafi orðið verulegar skemmdir af völdum þurrka. „Þurrkurinn seinkar uppskerunni og gerir það að verkum að hún verður umtalsvert minni en ella,“ segir Bergvin. „Þá var næturfrost fyrir nokkrum dögum á Eyjafjallasvæðinu og það sá dálítið á görðum á láglendi í kjöl- far þess.“ Að sögn Bergvins geta næturfrost haft alvarleg áhrif á kartöflurækt. „Miklar skemmdir á grasinu verða í næturfrosti sem þessu, auk þess sem uppskerunni seinkar ýmist eða hún eyðileggst,“ segir Bergvin. Að hans sögn þurfa Íslendingar þó ekki að óttast kartöfluskort eftir þetta uppskerutímabil. „Eins og málin standa nú stefnir í að þetta verði meðalár ef við sleppum við næturfrostið,“ segir Bergvin. Kartöfluræktendur hjá Þykkva- bæ eru nokkuð sáttir með stöðu mála. „Ef engin vá verður ætti upp- skeran að verða nokkuð góð í ár,“ segir Emil Ragnarsson, starfsmaður Þykkvabæjar. „Við höfum þurft að kljást við svolitla þurrka en það horfir til betri vegar um helgina,“ segir Emil. „Ég hugsa að það væri allt í lagi að fá svolitla gusu núna,“ segir Emil. Að hans sögn hefur ekki brunnið hjá þeim, en hann hefur orðið var við bruna á túnum í ná- grenni Þykkvabæjar. „Sjálfsagt fer hver að verða síðastur að bjarga uppskerunni með smávegis vætu.“ Hann segir að veðurfar til kartöfluræktunar á árinu hafi ekki verið til að hrópa húrra fyrir „en ef það verður einhver úrkoma héðan af telst þetta til ágætisárs,“ segir Emil. Kartaflan berst við þurrk og frost  Kartöfluuppskera líklegast ekki með besta móti í ár  Næturfrost í júlí og þurrkar víða um land Morgunblaðið/RAX Kuldi Næturfrost á meðan kartöflurnar eru að spretta getur valdið miklum skemmdum á grösum og uppskerunni seinkar eða hún eyðileggst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.