Morgunblaðið - 21.07.2012, Síða 9

Morgunblaðið - 21.07.2012, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012 Meiri verðlækkun Glæsilegt úrval af sparikjólum Vertu vinur okkar á facebook Engjateigur 5 Sími 581 2141 www.hjahrafnhildi.is • • • Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Útsölustaðir: Heilsuverslanir og Apótek um allt land. Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is Vilt þú létta á líkamanum eftir grillveislurnar í sumar? safinn er vatnslosandi Safinn virkar vel á eðlilega úthreinsun líkamans Lífrænt ræktaður, án aukaefna Losar bjúg Léttir á liðamótum Losar óæskileg efni úr líkamanum Góður fyrir húð, hár og neglur Blanda má safann með vatni Má einnig drekka óblandað Enn meiri afsláttur Nú 50% af öllum vörum v/Laugalæk • sími 553 3755 www.birkiaska.is Birkilauf- Betulic Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Batman í Sambíóunum Nýjasta myndin um leðurblöku- manninn verður frumsýnd í öllum kvikmyndahúsum Sambíóa miðviku- daginn 25. júlí en ekki bara í Laug- arásbíói eins og fram kom í blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á þessu leiðu mistökum. Rangt nafn Rangt var farið með föðurnafn Ófeigs Björnssonar í umfjöllun um Gullsmiðju og listmunahús Ófeigs í blaðinu í fyrradag. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum. Þyngist um 600 þúsund tonn Misritun varð á upphæð í frétt um makrílveiðar og -vinnslu á Snæfells- nesi í blaðinu í gær. Makrílstofninn þyngist um 600 þúsund tonn hér við land, ekki 600 tonn, eins og raunar sést í framhaldinu. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. LEIÐRÉTT Bíll valt sunnan við Voga við Mývatn í gærmorgun. Tvennt var í bifreiðinni og komst fólkið út af sjálfsdáðum og gat hringt á lögreglu. Ekki var um teljandi meiðsl að ræða en fólkið var engu að síður flutt á sjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar. Var það á leið til vinnu þegar óhappið henti en bæði voru í bílbeltum að sögn lögreglunnar á Húsavík. Bíllinn er mikið skemmdur. Þá valt annar bíll í Álftafirði í umdæmi lögreglunnar í Stykkishólmi í gær. Fimm erlendir ferðamenn voru í bílnum sem virðist hafa lent úti í lausamöl og þaðan farið út af með fyrrgreindum afleiðingum. Ekki var um telj- andi meiðsl á fólkinu að ræða utan þess sem tvennt leit- aði sér aðhlynningar á sjúkrahúsi. Bíllinn er ónýtur. Bílveltur á Norður- og Vesturlandi Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) segir að fæð- ingardeild Fjórðungssjúkrahúss- ins á Neskaupstað hafi ekki verið lokað og ekki hafi staðið til að loka henni í sumar. Í tilkynningu frá Einari Rafni Haraldssyni, forstjóra HSA, sem hann segist senda vegna ýmissa rangfærslna í fréttum, segir að ljósmæður vinni áfram sitt starf við að sinna þunguðum konum og ungbörnum. Þá hafi Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað held- ur ekki verið lokað vegna þess að skurðlækni hafi vantað og aðrar deildir en skurðdeild sinni sínum hlutverkum. Í gær hafi tekist samningar við vanan skurðlækni til að fylla í skarð vegna veikinda þess sem á vaktina var skráður. Ein kona, sem reiknað var með að þyrfti að fæða annars staðar vegna þess að ekki hafði tekist að manna þessa læknastöðu, þurfi því ekki að fara annað heldur ali barn sitt á fæð- ingardeild sjúkrahússins. Skurðlæknir ráðinn Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is „Hann skelfur ennþá,“ segir fjöl- skyldufaðir úr Garðabæ um lítinn kettling sem laumaðist undir bíl fjöl- skyldunnar skömmu áður en hún lagði af stað til Akureyrar í fyrra- dag. „Hann á allavega átta líf eftir,“ segir Sófus Gústavsson um laumukisann. Sófus segir að kettlingurinn hafi látið á sér kræla þegar fjölskyldan var að búa sig undir ferðalagið. „Þegar við erum að raða í bílinn þá sé ég lítinn kettling koma labbandi og hann hoppar undir bílinn hjá mér. Ég sagði í gamni við krakkana að við ætluðum ekki að taka laumufarþega með okkur.“ Fjölskyldan gerði nokkrar tilraunir til að fæla kettling- inn í burtu en án árangurs. Loks datt Sófusi í hug að sækja garð- slönguna. „Ég sprautaði undir bílinn og hélt að þetta hefði nú aldeilis dug- að og hann væri bara farinn,“ segir Sófus. Við svo búið hélt fjölskyldan áfram að búa sig og skömmu síðar lagði hún af stað norður. Sófus segir að fjölskyldan hafi stoppað fimm sinnum á leiðinni norður og hvert stopp hafi varað í um það bil hálftíma. Leitað að eiganda „Þegar við erum komin á fimmta stoppið, sem er tjaldsvæðið hérna á Akureyri [við Þórunnarstræti], þá sér elsta dóttir mín köttinn hoppa undan bílnum og hann labbar af stað í burtu frá bílnum. Hún fór strax á eftir honum og náði honum. Hann var mjög hræddur og skelkaður,“ segir Sófus og bætir við að kisi hafi bitið dóttur sína í fingurinn þannig að það sá á henni en ekki sé um alvarleg meiðsl að ræða. Kettlingurinn er ómerktur en Sóf- us telur að hann sé ekki eldri en tveggja mánaða högni og úr Garða- bæ. Leit að eigandanum hefur ekki enn borið árangur en fjölskyldan hyggst snúa aftur heim á morgun eða mánudag og vonast til að þá verði réttur eigandi búinn að gefa sig fram. Laumufarþegi Kettlingurinn úr Garðabæ er í öruggum höndum á Akureyri en leit að eigandanum hefur ekki enn borið árangur. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ferðalangar Frá vinstri: Sólrún Elvarsdóttir, Sóley Sófusdóttir, Sófus Gúst- afsson, Sara Lovísa Sófusdóttir, með kettlinginn, og Thelma Sófusdóttir. Laumukisi á átta líf eftir  Um tveggja mánaða og líklega Garðbæingur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.