Morgunblaðið - 21.07.2012, Side 10

Morgunblaðið - 21.07.2012, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þær heita Gullbrá, Eva,Svarthildur og Mjallhvít.Ég var hræddur um að éghefði glatað henni Gullbrá, við vorum búin að leita að henni út um allt og við vorum svolítið hrædd um að refur eða minkur hefði étið hana. En Daníel bróðir minn fann hana að lokum þar sem hún leyndist í hlöðunni,“ segir Benjamín Jónsson ungur hænsnabóndi um þann erfiða dag þegar ein af hænunum hans fjórum hvarf og var týnd í heilan sól- arhring. Benni er mikið fyrir dýr en er ekki í góðri aðstöðu til að eiga þau, því hann er tveggja heima drengur. Fjölskylda hans býr í Bandaríkjunum yfir vetrartímann en þau eyða sumrinu á öðru heimili sínu í Múla í Biskupstungum. „Afi minn sagði mér frá því að hægt væri að leigja hænur yfir sumarið og ég varð mjög glaður þegar mamma og pabbi sögðu já þegar ég bað um að fá nokkrar til að hafa í Múla í sumar. Bóndinn frá Tjörn á Vatnsnesi kom svo sjálfur með fjórar hænur til okk- ar og við þurftum að skrifa undir leigusamning.“ Athugar með hænurnar minnst tuttugu sinnum á dag Svo heppilega vill til að niðri við hlöðu á bænum hans Benna er lítið hús sem þeir bræður, hann og Daní- el eiga og hentar vel sem hænsna- kofi. „Við þurftum bara að breyta því aðeins, loka gaflinum, setja glugga, hænsnaprik, varpkassa og annað sem hænur þurfa,“ segir Benni sem er afar natinn við hæn- urnar sínar og athugar með þær Benni hænsnabóndi býður upp á Begg Þær eru fordekraðar hænurnar hans Benna í Múla og þeim sinna hvorki meira né minna en fjórir vinnumenn. Þetta eru alvöru haughænsn sem fá að vappa út um víðan völl. En líf frjálsra hænsna er ekki laust við hættur og Benni treystir ekki rebba og minknum alveg nógu vel og er því vel á verði með skyttu sér við hlið. Bræður Vinnumaðurinn Daníel og bóndinn Benjamín með tvær spakar. Vel haldnar Ekki væsir um Mjallhvíti, Evu, Gullbrá og Svarthildi í kofanum. Á heimasíðu ræktunarbúsins að Tjörn á Vatnsnesi, undir slóðinni landnamshaenan.is, er ekki einasta hægt að fræðast um ræktunina, markmiðið, starfið og aðstæðurnar, heldur er einnig hægt að lesa sig heilmikið til um landnámshænuna ís- lensku. Undir lið sem heitir kynning á stofninum, kemur til dæmis fram að íslenska hænan eða Landnámshænan (Haughænan eins og hún var alltaf kölluð) er talin hafa borist til lands- ins, ásamt öðrum búsmala með land- námsmönnum á landnámsöld eða á 10. öldinni og hefur fylgt okkur og verið okkur til nytja og ánægju allar götur síðan. Á síðunni má einnig lesa um uppeldi og fóðrun, egg og út- ungun, heilsufar og sjúkdóma hænsnfugla, hvernig hægt er að taka hænu í fóstur og margt fleira. Einnig eru þar uppskriftir bæði að eggja- réttum og kjúklingaréttum. Vefsíðan www.landnamshaenan.is Morgunblaðið/BFH Litfagrar Bæði haninn og hænurnar eru fallegar skepnur og skemmtilegar. Íslenska landnámshænan góða Full ástæða er til að hvetja fólk til að koma við á þeim fjölmörgu mörk- uðum sem finna má um allt land, þar sem seld er fersk matvara. Þetta er sá árstími sem hægt er að rækta úti og allt er í blóma hjá grænmetis- bændum. Íslenska sumarið er stutt og um að gera að nýta vel þann tíma sem gnótt er af grænum og vænum matvörum beint úr görðunum. Hvort sem fólk vill skella á grillið eða mat- reiða á annan hátt, þá er íslenskt grænmeti mikið gómsæti á þessum árstíma. Og ekki aðeins gott heldur líka alveg meinhollt, bæði sem með- læti en ekki síður í aðalrétti. Endilega... ...lítið við á mörkuðum Morgunblaðið/Frikki Grænmeti Gott í munn og maga. Taílensk-íslenska félagið stendur fyrir komu þrettán dansnema og fimm tónlistarnema á lokaári úr listadeildum þriggja háskóla í Taí- landi. Flokkurinn, sem heldur þrjár sýningar hér á landi, sérhæfir sig í aldagamalli danshefð, svokölluðum Khon-dönsum. Þar er efniviður sóttur í Ramayana, þar sem menn og risar takast á. Látbragð og handahreyfingar dansaranna segja sögurnar en Khon-dansar voru fram á miðja 18. öld einungis sýndir við konungs- hirðina. Þeir þykja enn mjög sérstakir og krefjast sérkunnáttu, umfram hefð- bundna taílenska dansa. Taílensk tónlist er leikin undir dansinum, á taílensk hljóðfæri. Taweesak Sriphong, kennari við Kasetsart háskólann í Bangkok fer fyrir hópnum. Hópurinn verður með tvær sýningar í Salnum í Kópavogi, í dag klukkan 13 og 19 og eina sýn- ingu í Sandgerði, kl. 13. Miðar verða seldir við innganginn og allir eru velkomnir. Afar litskrúðugir búningar og grímur í sýningunum Upphaflega var Ramayana 24.000 erinda ljóð sem ort var á sanskrít um 1000 f. Kr. og er einn helsti menningararfur Indverja. Sagan sem sögð er hefur síðan um aldir verið sögð mann fram af manni, endursögð, þýdd og end- ursköpuð um alla Suður- og Suð- austur-Asíu. Þar er sagan túlkuð í dansi, leikhúsi, brúðuleik, söng og kvikmyndum. Búningar og grímur í þessum sýningum eru afar litskrúðugar og listilega gerðar. Dansararnir eru beinlínis saumaðir inn í búninginn og tekur þá um tvo tíma að klæða sig í þá með aðstoðarmönnum. Taílensk-íslenska félagið Tækifæri til að sjá aldagamla taílenska konungsdansa í dag Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Í hverjum pakka af Fjólu Lúxus salernispappír er ein rúlla vafin happamiða. Innan á miðanum kemur í ljós hvort heppnin sé með þér. Meðal vinninga: Auk fjölda annarra vinninga Flug og gisting fyrir 2 innanlands RÚLLU LEIKURINN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.