Morgunblaðið - 21.07.2012, Síða 11
Bóndi Hér er Benjamín með Gullbrá sem týndist í sólarhring.
minnst tuttugu sinnum á dag, að eig-
in sögn. „Svo þarf auðvitað að gefa
þeim að borða og drekka, en ég er
líka með fjóra vinnumenn sem að-
stoða mig við búskapinn. Þó Daníel
bróðir minn sé ekkert fyrir hænur
þá vill hann alveg vera aðstoðar-
maður minn. Og svo eru tveir frænd-
ur mínir Hilmar Starri og Þórhallur
Orri líka vinnumenn hjá mér. Viktor
Orri vinur minn kemur oft í heim-
sókn til mín en hann er fjórði vinnu-
maðurinn,“ segir Benni kotroskinn
og nokkuð ánægður með manna-
forráðin og óneitanlega góða þjón-
ustu fyrir hænurnar, því það er jú
einn vinnumaður fyrir hverja hænu.
Minkur át hænur á næsta bæ
Eins og nöfn hænsnanna gefa
til kynna þá er hún Mjallhvít hvít,
Svarthildur er svört, Gullbrá er gul
og brún og Eva er grá. „Þetta eru
frábærar hænur en þær eru ekki all-
ar eins, sumar eru styggar og sumar
spakar, sumar eru óhræddar en aðr-
ar frekar óttaslegnar,“ segir Benni
sem hleypir hænunum út á daginn,
því hann vill að þeim líði sem best og
að þær séu sem frjálsastar. Þetta
eru því alvöru haughænsn en vissu-
lega er líf frjálsra hænsna ekki laust
við hættur og Benni treystir ekki
rebba og minknum alveg nógu vel.
„Stundum kemur tófa skokkandi hér
niður fjallið, þetta er risastór grár
refur og pabbi ætlar að reyna að ná
honum næst þegar við sjáum hann,
en hann er mikil skytta. Við fréttum
líka af mink sem át hænurnar hér á
næsta bæ, þannig að það er eins gott
að passa sig. Sem betur fer eru mín-
ar hænur samt ekkert mikið fyrir
það að vera úti, þær halda sig meira
inni í kofa.“
Langar til að verða kúabóndi
Í æðum Benna rennur ekki að-
eins blóð bóndans heldur líka við-
skiptamannsins. „Ég sel eggin úr
hænunum á 110 krónur stykkið,
enda eru þetta mjög góð egg úr al-
veg frjálsum hænum. Mamma hefur
verið minn helsti viðskiptavinur en
ég hef fengið góð ráð hjá Bjarna í
Bjarnabúð hér í sveitinni, hann á
líka hænur og selur egg. Svo lét ég
búa til fyrir mig sérstakt merki á
eggjabakkann, frændur mínir sem
eru auglýsingateiknarar hjálpuðu
mér með að hanna það. Eggin mín
heita Begg, af því ég heiti Benjamín.
Og á miðanum kemur líka fram hvað
hænurnar heita og að ég sé framleið-
andinn.“ Dýravinurinn Benni kann
vel að meta að stundum koma
ókunnug dýr heima á bæ, til dæmis
svartur og hvítur köttur og líka
hundur. Hann er að hugsa um að
skella sér á reiðnámskeið hið fyrsta
og segist alveg geta hugsað sér að
verða bóndi í framtíðinni. Helst vill
hann vera kúabóndi. „Af því kýr
framleiða svo mikla mjólk. Ég las á
netinu að kýrin Hrafnhetta frá
Hólmum sé búin að mjólka 101.206
kílóum af mjólk um ævina. Það er
mjög mikið.“
Begg Á eggjabökkunum góðu koma
nöfn hænsnanna fram og einnig
nafn framleiðandans, Benna.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012
ÚTSALA
50%
afsláttur
af öllum útsöluskóm
Kringlunni - Smáralind
ntc.is - erum á
s. 512 1760 - s. 512 7700
Nýtt
korta
tímabil
Þau hafa farið víða í sumar og haldið
tónleika, þríeykið Björg Þórhalls-
dóttir sópran, Elísabet Waage hörpu-
leikari og Hilmar Örn Agnarsson sem
leikur á harmóníum. Í dag kl. 14 verða
þau með tónleika í Sólheimakirkju og
á efnisskránni eru íslensk sönglög
eftir Atla Heimi Sveinsson, Hildi-
gunni Rúnarsdóttur, Guðrúnu Ingi-
mundardóttur, Árna Thorsteinsson,
Gunnar Reyni Sveinsson, Sigfús Ein-
arsson, Markús Kristjánsson, Sigurð
Þórðarson og Pál Ísólfsson, bresk
þjóðlög útsett af Britten og tón-
smíðar eftir Arvo Pärt, Cherubini,
Mozart, Händel og Bach.
Þau verða svo í Patreksfjarðar-
kirkju þriðjudag 31. júlí kl. 20, á sum-
artónleikum í Strandarkirkju, Sel-
vogi, sunnud. 19. ágúst kl. 14 og
í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar,
Rvík fimmtud. 6. september kl. 20.
Sumartónar á Íslandi 2012
Söngur Björg Þórhallsdóttir
sópransöngkona er ein þeirra
þriggja sem koma fram í dag í Sól-
heimakirkju.
„Í ást sólar“ í Sólheimakirkju
Morgunblaðið/ÞÖK
Í kvöld verða tónleikar á Café Haiti
með tónlistarmanninum Sebastian
Storgaard sem spilar undir nafninu
Slowsteps. Langt er síðan Slowsteps
hélt tónleika og því tilvalið að kíkja
og heyra ný lög í bland við eldri.
Meginþema kvöldsins er að hafa
þetta afslappað og því mun Slow-
steps fá gesti og góðkunningja til að
spila með sér og ekki verður mikið
skeytt um uppröðun né tímaþröng.
Tónlistarmaðurinn Egill Halldórsson
mun einnig flytja eigið efni, en það
gerist einu sinni á fimm ára fresti
eða svo, þannig að þeir sem til hans
þekkja ættu ekki að láta sig vanta á
Café Haiti á þessu ágætis laugar-
dagskvöldi. Ókeypis verður inn og um
að gera fyrir fólk að kíkja niðrá höfn
og hlusta á góða tónlist.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21:30
verða fram til 23:30.
Slowsteps og Egill Halldórsson á Café Haiti
Slowsteps Hann er mjög svo af-
slappaður tónlistarmaður og ljúfur.
Fær gesti til að spila með
Komin er út hjá bókaútgáfunni
Sölku skáldsagan Ég læðist
framhjá öxi eftir Beate Grimsrud í
íslenskri þýðingu Hjalta Rögnvalds-
sonar.
Í tilkynningu frá forlaginu segir
að þetta sé fyrsta skáldsaga Beate
Grimsrud sem kemur út á íslensku.
Beate Grimsrud er margverðlaun-
aður rithöfundur sem vakið hefur
athygli á Norðurlöndum fyrir krefj-
andi skáldsögur sínar og ljóðrænan
stíl. Í sögunni Ég læðist fram hjá
öxi, segir frá stúlkunni Lýdíu sem
býr ásamt fjölskyldu sinni í smábæ
í Noregi á áttunda áratugnum.
Sjónarhornið er hennar og lesandi
fylgist með þegar hún upplifir ljúf-
sár tímamót æsku og unglingsára.
Systkinin eru sjö og fjölskyldan
þykir „óvenjuleg“, hefur ekki mikið
umleikis, faðirinn er atvinnulaus
sveimhugi en móðirin píanóleikari
með brostnar vonir.
Stúlkan hefur frjótt ímyndunarafl
– dvelur oft við augnablik og minn-
ingar og úr þeim verða sögur,
stundum léttar og barnslegar en
sumar þeirra eiga sér dekkri hlið.
Hér er fjallað um fjölskyldulíf, ást,
umhyggju, drauma og metnað, og
ýmislegt annað sem tekst á í huga
fólks frá degi til dags.
Ég læðist fram hjá öxi var til-
nefnd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs árið 2000 og einn-
ig var Grimsrud tilnefnd til sömu
verðlauna árið 2011 fyrir bók sína
En dåre fri.
Rithöfundurinn Beate Grimsrud
fæddist árið 1963 í Bærum í Noregi
en fluttist ung að aldri til Svíþjóðar
þar sem hún hefur starfað sem rit-
höfundur, kvikmyndaleikskáld og
leikstjóri. Hún hefur hlotið fjölda
viðurkenninga fyrir störf sín.
Skáldsaga
Saga um ljúfsár tímamót
æsku og unglingsára