Morgunblaðið - 21.07.2012, Page 12

Morgunblaðið - 21.07.2012, Page 12
VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég ætla ekki að láta það verða mína arfleifð á Íslandi að stefna villta ís- lenska laxastofninum í hættu. Ef leyft verður að hafa þriggja kynslóða eldi í sama firðinum, sama hversu stór hann er, verður til lúsa- verksmiðja og ávísun á umhverfis- slys. Þá er betra að pakka saman og snúa sér að einhverju öðru,“ segir Arnór Björnsson, einn af eigendum Fjarðalax hf. sem er að byggja upp laxeldi á sunnanverðum Vest- fjörðum og hefur leitt laxeldis- ævintýrið. Hann sættir sig ekki við að rúmlega 2 milljarða króna fjár- festing í laxeldinu verði sett í hættu með því að veita öðrum stöðvum leyfi í nágrenni Fjarðalax í Arnarfirði. Arnór er laxakaupmaður í Banda- ríkjunum og hefur keypt mikinn lax frá Evrópu. „Ég hef farið í gegnum súrt og sætt með laxeldinu.“ Hann keypti dreifingarfyrirtækið North Landing fyrir fimm árum með tveimur dönskum fjárfestum og rek- ur fyrirtækið. North Landing sér- hæfir sig í innflutningi og dreifingu á laxi og laxaafurðum. Þegar laxeldið í Síle hrundi hækkaði heimsmarkaðs- verð á laxi mjög. „Ég varð að tryggja hráefni fyrir markaðinn sem við höfðum byggt upp og var að undirbúa kaup á lax- eldi í Færeyjum þegar ég hitti gaml- an vin, Jónatan Þórðarson fiskeldis- mann, sem vakti athygli mína á möguleikum Vestfjarða. Ég sá strax að ef vel yrði staðið að málum væru allar aðstæður til að rækta þar lax á vistvænan hátt. Þetta kom upp á réttum tíma því framboð af laxi sem ræktaður er á umhverfisvænan hátt í Skotlandi minnkar stöðugt vegna vandræða með laxalús. Nota þarf eiturefni til að aflúsa fiskinn og þá fær hann ekki lengur vottun og kröfuhörðustu kaupendurnir hætta að kaupa,“ segir Arnór um ástæðu þess að fyrirtæki hans ákvað að hefja laxeldi á Vestfjörðum. Styrkari innviðir Mengunarlaust umhverfi fjarðanna á Vestfjörðum og vottun um að laxinn er alinn á lífrænan hátt er ein meginforsenda þess að Arnór sá möguleika á að koma upp arð- bæru laxeldi. Með því að rækta lax- inn upp í sjúkdómalausu umhverfi og tryggja að svo yrði áfram með því að ala kynslóðirnar í aðskildum fjörðum og hvíla á milli skapast sér- staða sem nýtist við markaðsstarfið. Fleira þarf til. Þannig taldi Arnór nauðsynlegt að framleiða stærri seiði til að nýta betur sumarið. Heita vatnið sem seiðastöð fyrirtækisins í Þorlákshöfn hefur aðgang að hjálpar til við það. Arnór taldi í upphafi að stærsta áskorunin væri skortur á innviðum í samfélaginu fyrir vestan. Ekki er hægt að kaupa nauðsynlega þjón- ustu sem til reiðu er í stærri laxeldislöndum, svo sem slátrun, köfun og þrif á kvíum. Því var ákveðið að byggja stóra stöð sem gæti staðið undir því að koma sjálf upp slíkri þjónustu. Telur hann að ekki sé hægt að komast af með minni einingu en 10 þúsund tonn. Það er í samræmi við þróunina er- lendis þar sem stöðvarnar stækka sífellt til að geta tekist á við verk- efnin á arðbæran og ábyrgan hátt. Slík starfsemi þarf 100 til 150 starfsmenn. Uppbyggingin er hröð og á næstunni þarf að ráða 20 til 30 starfsmenn til viðbótar við þá 32 sem þegar eru fyrir vestan. „Þetta fólk þarf húsnæði og góða skóla fyrir börnin. Og það þarf starfsöryggi,“ segir Arnór og vísar á ný til vott- unarinnar sem nauðsynleg er til að tryggja fyrirtækinu nægilega hátt verð fyrir afurðirnar. Fylgst hefur verið með uppbygg- ingu Fjarðalax og ýmis fyrirtæki hafa verið að afla sér leyfa í þeim landshlutum sem laxeldi er leyft. Arnarfjörður hefur sérstaklega ver- ið í umræðunni þar sem ein- staklingar og fyrirtæki hafa fengið leyfi nálægt kvíum Fjarðalax. Þau mál eru í biðstöðu vegna þess að um- hverfisráðuneytið felldi úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um að Arnarlax gæti hafið laxeldi án undangengis umhverfismats. Arnóri var létt enda er hann sann- færður um að stöð sem ætlar að ala þrjár kynslóðir í sama firðinum myndi ógna grundvelli hans fyrirtækis. Kallaður freki strákurinn „Löggjöfin er hriplek en ég gerði þau mistök í upphafi að telja að ég gæti opnað augu stjórnvalda og ís- lenskra vísindamanna fyrir þessu. Það eru nægar upplýsingar til í öðr- um löndum um mistökin sem gerð hafa verið og hvernig verið er að reyna að endurskipuleggja hlutina. En ég er bara kallaður freki strák- urinn sem telji sig geta eignað sér fjörðinn,“ segir Arnór. Hann segir mikilvægt að það svig- rúm sem skapast hafi eftir úrskurð ráðherra verði notað vel og farið yfir það hvernig best sé að skipuleggja arðbært og árangursríkt laxeldi hér á landi í sátt við náttúruna. Hægt sé að fá þekkingu frá nágrannalönd- unum. „Við höfum enn einstaka möguleika á að standa rétt að málum frá upphafi og skapa okkur sér- stöðu,“ segir Arnór. Nefnir hann að gera þurfi kröfur til fyrirtækjanna um að þau noti bestu tækni og leggi fram áætlanir um viðbrögð við sjúk- dómum og óhöppum. Ávísun á lúsaverk- smiðju og umhverfisslys Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Patreksfjörður Fjarðalax hefur nú komið sér fyrir við Hlaðseyri í Patreksfirði og þar hefst uppskera eftir rúmt ár.  Eigandi Fjarðalax biður um skipulega uppbyggingu Morgunblaðið/Ómar Eigandinn Arnór Björnsson segir að starfsemi Fjarðalax, sem er lang- stærsta laxeldisfyrirtæki landsins, sé ógnað með óskipulegri uppbyggingu. Starfsemi » Fjarðalax er með sjókvíaeldi í Tálknafirði, Arnarfirði og Pat- reksfirði. Alið er í tvö ár og fjörðurinn hvíldur þriðja árið. » Fyrirtækið rekur stóra seiðaeldisstöð í Þorlákshöfn og selur seiði til Færeyja. » Sláturhús er starfrækt á Patreksfirði. 32 starfsmenn eru á Vestfjörðum og 10 í seiðaeldi. Til stendur að ráða 25-30 starfsmenn til viðbótar. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012 Laxinn sem alinn er í kvíum Fjarða- lax á Vestfjörðum fer allur til við- skiptavina North Landing á aust- urströnd Bandaríkjanna. Laxinn hefur vottun sem nátt- úrulega framleidd afurð og stefnt er á að sækja um vottun fyrir líf- ræna framleiðslu. Arnór segir að kaupendurnir séu fólk sem vill vita nákvæmlega hvað er í matnum sem það og börn þess neyta. Varan þurfi að vera algerlega ómenguð og framleiðslan umhverfisvæn og sjálfbær. Arnór segir að markaðurinn sé stór og vaxi hratt. Nefnir að fram- leidd séu 1,5 milljónir tonna af laxi í heiminum og þar af séu aðeins 15 þúsund tonn vottuð sem nátt- úrulega ræktaður fiskur. „Við stefnum hátt. Þessi framleiðsla hefur verið flaggskip North Land- ing og við erum stoltir af henni.“ Fyrstu laxaseiðin voru sett út í kvíar í Tálknafirði vorið 2010 og var laxinum slátrað úr þeim sl. vet- ur. Eldið gekk vel. Sömu sögu er að segja um eldið í Arnarfirði. Þar voru seiði sett út vorið 2011 og verður byrjað að slátra í næsta mánuði og stendur sú vinna fram á vor. Þriðja starfsstöðin er komin í gagnið, í Patreksfirði. Þangað voru seiði flutt í vor. Fjarðalax er að stækka stöðvar sínar, eftir því sem leyfi fást. Í stöðinni í Patreksfirði verða fram- leidd 4.500 tonn af laxi á næsta og þarnæsta ári, ef allt gengur að óskum. Markmiðið er að framleiða 10 þúsund tonn á ári og helst meira. Arnór segir að Bandaríkjamark- aður taki við öllu þessu magni og því sé ekki svigrúm til að fara inn á Evrópumarkað í bili. Hann vill þó gefa Íslendingum kost á að bragða á þessari góðu afurð og stefnt er að því að vestfirski laxinn verði til sölu í verslunum á næstu vikum. 2,3 milljarðar Arnór hefur starfað sem laxa- kaupmaður í tuttugu ár, lengst í Bandaríkjunum. Hann hóf viðskipti með tengdaföður sínum, Eyþóri Ólafssyni, og vann lengi sjálfstætt en keypti North Landing með tveimur dönskum fjárfestum fyrir nokkrum árum. Fyrirtækið er eitt af stærstu dreifingarfyrirtækjum fyrir lax á austurströnd Bandaríkj- anna. Arnór segir að fyrirtækið hafi gengið mjög vel. North Landing er eigandi Fjarðalax og hefur lagt mikla fjármuni í upp- bygginguna. Heildarfjárfesting í fyrirtækinu er orðin 2,3 milljarðar króna. „Það dugar enginn kotbúskapur í nútíma laxeldi. Þetta er fjárfrek starfsemi sem skilar sér á löngum tíma. Það þarf fjárhagslega burðug og ábyrg fyrirtæki til að standa í þessu,“ segir Arnór. Allur laxinn til Bandaríkjanna HEFUR STARFAÐ SEM LAXAKAUPMAÐUR Í 20 ÁR Fossafjörður Stöðin í Arnarfirði. VINSÆLASTA KORTABÓK ÍSLANDS n ý o g e n d u r b æ t t w w w . f o r l a g i d . i s – a l v ö r u b ó k a b ú ð á n e t i n u UPPLÝSINGAR UM • sundlaugar • söfn • tjaldsvæði • golfvelli • fuglaskoðunarstaði Ítarleg nafnaskrá 60 landshlutakort og 40 þéttbýliskort

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.